SunnudagsMogginn - 17.07.2011, Blaðsíða 45

SunnudagsMogginn - 17.07.2011, Blaðsíða 45
17. júlí 2011 45 Lesbók Þ ar sem ég umstaflaði í bókaskápunum í kjallaranum í þús- undasta sinn í veikri von um að ná að brjóta lögmál eðlisfræðinnar og búa til meira pláss rakst ég á gamalt og velkt eintak af The Sot-Weed Factor eftir John Barth. Sú ágæta bók kom fyrst út 1960, en útgáfan sem hér um ræðir er kilja í stóru broti frá Grosset & Dun- lap og kom út 1964. Sigurður Jóhannsson vinur minn gaf mér bókina 1974 og ég las hana þá og aftur síðar. The Sot-Weed Factor segir frá ævintýrum Ebenezer Cooke í nýja heiminum á sautjándu öld, en kveikjan að bókinni var samnefnt ljóð eftir raunveru- legan Ebenezer Cooke frá 1708 og Barth prjónaði úr skelmska þroskasögu, heilmikið verk – ríflega 800 blaðsíður. Eintakið sem ég rakst á er velkt og slit- ið, reyndar svo slitið að blöð í því eru öll orðin laus en hangir saman í örkum.. Ég hef merkt mér bókina með fullu nafni, sem ég gerði sjaldan á þeim tíma (og aldrei í dag), en und- irstrikar hvað ég hélt upp á bókina. Kápan er líka rækilega viðgerð með gulnuðu límbandi og kjölurinn helst saman með sama límbandi. Hún er svo slitin að varla er hægt að lesa káputextann. Af hverju að halda upp á þvílíkt dót? Er ekki fínt að henda ónýtum bókum til að rýma fyrir nýjum? Víst er það skynsamlegra og rökréttara, en það er nú bara svo að hver lesin bók er ekki bara safn af blaðsíðum, heldur er hún iðu- lega líka saga tímaskeiðs og hugarástands lesandans, svip- mynd af liðnum tíma og er maður þá ekki að henda minn- ingunni með bókinni? Er ekki bara fínt að það lendi á börn- unum að henda bókinni þegar þau eru að rusla út úr dán- arbúinu? The Sot-Weed Factor fór í það minnsta aftur upp í hillu og situr þar. Minn- ingar í ruslið ’ Hver lesin bók er ekki bara safn af blaðsíð- um, heldur er hún iðulega líka saga tímaskeiðs og hugar- ástands lesandans. Orðanna hljóðan Árni Matthíasson arnim@mbl.is Bækurnar á náttborðinu eru tvær. Ég er ný- byrjaður að lesa fyrsta bindi ævisögu Stein- gríms Hermannssonar eftir Dag B. Eggerts- son. Ég hef lengi ætlað mér að lesa þessa ævisögu, sem á sínum tíma var þó nokkuð umtöluð og þótti forvitnileg aflestrar, sér- staklega fyrir þá sem áhuga hafa á pólitík. Ég er ennþá að lesa um bernskuárin og því lítið um pólitík nema hvað varðar Hermann föð- ur Steingríms og fyrstu ár hans sem for- sætisráðherra. Það er ljóst að Steingrímur hefur verið ofvirkur sem krakki og uppá- tækjasamur í meira lagi. Frásögnin er lífleg og skemmtileg og á mörgum stöðum heyrir maður Steingrím í gegnum textann. Dag- bækur Steingríms sem hann hélt alla tíð frá unglingsárum koma að góðum notum við ritun sögunnar og eru ómetanleg heimild. Hin bókin á náttborðinu er Afleggjarinn eftir Auði Övu Ólafsdóttur. Ég hef ekki enn hafið lestur bókarinnar en ætla að lesa hana samhliða ævisögu Steingríms. Afleggjarinn kom fyrst út árið 2007 en þá fór þessi skáld- saga algjörlega fram hjá mér og eflaust fleir- um. Það var ekki fyrr en ég rakst á hana í franskri þýðingu í bókabúð í París fyrir al- gjöra tilviljun í desember í fyrra, að áhugi minn vaknaði. Henni var þar stillt upp á borði þar sem sölumestu bókunum var rað- að upp. Ég komst í framhaldi að því að hún hafði fengið frábæra dóma hjá frönskum gagnrýnendum og það er sérstaklega ánægjulegt í ljósi þess að íslenskir rithöf- undar hafa ekki hingað til átt greiðan að- gang að Frökkum. Auður var auk þess alveg nýlega að fá verðlaun í Quebec í Kanada og sló þar við ekki ómerkari höfundum en Mic- hel Houellebecq og Sofi Oksanen. Það er ekki í fyrsta sinn sem upphefðin kemur að utan og ég hlakka til að kynnast þessum efnilega höfundi. Lesarinn Stefán Már Halldórsson deildarstjóri Steingrímur og Auður Ava á náttborðinu Bækur Auðar Övu Ólafsdóttur hafa notið mik- illar hylli í Frakklandi og Kanada. Morgunblaðið/Kristinn Verið velkomin LISTASAFN ÍSLANDS Söfn • Setur • Sýningar KONA / FEMME, LOUISE BOURGEOIS 27.5. -11.9. 2011 SUNNUDAGSLEIÐSÖGN 17. júlí kl. 14 í fylgd Þorvaldar Þorsteinssonar myndlistarmanns og rithöfundar. KJARVAL, Úr fórum Jóns Þorsteinssonar og Eyrúnar Guðmundsdóttur 27.5. -11.9. 2011 SAFNBÚÐ Listaverkabækur, kort, plaköt, íslenskir listmunir og gjafavara. SÚPUBARINN, 2. hæð Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600 OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga Allir velkomnir! www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Þúsund ár - fjölbreytt verk úr safneign Listasafns Íslands frá 19. öld til nútímans. Fyrsti áfangi nýrrar grunnsýningar um þróun íslenskrar myndlistar. „Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“ Sýning um æsku og lífsstarf þjóðhetjunnar, undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar. Sýningin höfðar sérstaklega til barna og ungs fólks á skólaaldri. Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna. Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is Listasafn Reykjanesbæjar Eitthvað í þá áttina, sýning um kortagerð, skrásetningu og staðsetningu. 14. maí - 14. ágúst Byggðasafn Reykjanesbæjar: Bátasafn Gríms Karlssonar: Opið virka daga 12.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn HLUTIRNAR OKKAR – úr safneign safnsins (9.6. – 16.10. 2011) Opið alla daga nema mánudaga kl. 12-17. KRAUM og kaffi. Garðatorgi 1, Garðabær www.honnunarsafn.is ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Húsasafn Þjóðminjasafnsins: Keldur á Rangárvöllum. Opið alla daga 9:00-17:00 Víðimýrarkirkja í Skagafirði. Opið alla daga 9:00-18:00 Fjölbreyttar sýningar: Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár Pétur Thomsen: Ásfjall Kurt Dejmo: Ljósmyndir úr Íslandsheimsókn 1955 Farandsýningin: Ekki snerta jörðina! Leikir 10 ára barna Guðvelkomnir, góðir vinir! Útskorin íslensk horn Stoppað í fat – Útskornir kistlar Glæsileg safnbúð og Kaffitár Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is Opið alla daga kl. 10-17 Myndin af Þingvöllum Sýningarstjóri: Einar Garibaldi Eiríksson Fjölbreytt verk frá 1782-2011, yfir 50 höfundar Kaffistofa – Leskró – Barnakró OPIÐ: alla daga. kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.listasafnarnesinga.is HveragerðiHugvit Einar Þorsteinn Ásgeirsson stendur til 14. ágúst Verk úr safneign stendur til 25. september Opið 12-17, fimmtudaga 12-21, lokað þriðjudaga www.hafnarborg.is sími 585 5790 - Aðgangur ókeypis 15. maí – 15. sept. Sumarsýningin Fundað í Fjölni Fjölbreyttar sýningar í báðum söfnum Opið alla daga kl. 11-18 www.husid.com Sími 483 1504

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.