SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 17.07.2011, Qupperneq 47

SunnudagsMogginn - 17.07.2011, Qupperneq 47
17. júlí 2011 47 D jasspíanistinn Sunna Gunnlaugsdóttir er fædd og uppalin á Seltjarnarnesi. Eftir mikla hvatningu frá móður sinni fór hún að æfa sig á píanó á unga aldri og er í dag mjög hátt skrifaður píanisti í djassheiminum. Árið 1993 fluttist Sunna til Bandaríkjanna og hóf nám við tónlistardeild William Patterson-háskólans. Í skólanum kynntist hún framtíðareiginmanni sínum og trommaranum Scott McLemore, en þau mynda, ásamt Þorgrími Jónssyni kontrabassaleikara, Tríó Sunnu Gunnlaugsdóttur. Árið 1996 fluttist hún ásamt Scott til Booklyn í New York og gaf út sína fyrstu plötu, Far Far Away. Síðan þá hefur Sunna gefið út 5 plötur og hafa þær allar hlotið mikla at- hygli og góðar viðtökur, en hennar hefur verið getið í tímaritum á borð við JazzTimes, Downbeat, Jazz- podium, Conserto Sterio, Jazzman, Village Voice, Time Out New York, Swing Journal All about Jazz og The Wasington Post. Að sögn Sunnu hefur hún gaman af tónleikaferðalögum, en hún hefur spilað mikið á meg- inlandi Evrópu, í Norður-Ameríku og í Asíu. Í fyrra gaf Sunna út plötuna The Dream sem hefur fengið mjög góðar viðtökur erlendis; var um tíma í öðru sæti kan- adíska djasslistans og í 20. sæti þess bandaríska. Ný plata í vinnslu The Dream er sjötta plata Sunnu, en sú sjöunda var að koma úr hljóðritun. „Við vorum að hljóðrita nýjan tríódisk og því má segja að platan sé bara í vöfflujárninu. Fyrsti diskurinn, sem ég gaf út árið 1997, var tríódiskur og ég hef ekki gert annan tríódisk síðan þannig að það var kominn tími á þetta,“ segir Sunna. „Við erum bara rétt að byrja að vinna hann og við fyrstu hlustun erum við nokkuð ánægð, en við stefnum að því að platan komi út í haust.“ Á plötunni eru tvö ,,cover“-lög, annað eftir Rufus Wainwright og hitt eftir Ben Harper, en annað efni á plötunni er eftir meðlimi tríósins. „Allir meðlimir tríósins eiga lag á plötunni. Við spilum djasstónlist, en þetta er ekki endilega hefðbundinn, gamaldags djass, þetta er meira í líkingu við það sem ECM-plötuútgáfan hefur gefið út. Lögin eftir Wainwright og Harper liggja bara mjög vel að okkar stíl og það er gaman að taka svona efni inn og láta það falla að hinu,“ segir Sunna. Tónlist Sunnu hefur vakið mikila athygli erlendis, en hún og Scott McLemore, eiginmaður hennar, hafa spilað mikið á meginlandi Evr- ópu og í Norður-Ameríku. „Við bjuggum í Brooklyn, eftir að við kláruðum námið, og spiluðum mikið þar. Þrjú síðustu árin okkar þar fórum við mikið til Evrópu í tónleikaferðalög og spiluðum einnig um þvert og endi- langt Kanada og vorum mjög virk enda barnlaus á þeim tíma. Svo fluttum við heim árið 2005 og eignuðumst okkar fyrsta barn og þá róaðist þetta svolítið hjá okkur. Með útgáfu disksins The Dream í fyrra vorum við að reyna að komast á fulla ferð aftur og erum búin að vera að vinna mikið í því undanfarið að bóka tónleika í Evr- ópu. Við erum til dæmis að fara með kvartett til Aust- urríkis og Þýskalands í lok september. Þessir tónleikar eru liður í að kynna diskinn The Dream,“ segir Sunna. Kvartettinn skipa meðlimir fyrrnefnds tríós, ásamt Ósk Guðjónsdóttur. Tónleikar í júlí Á næstunni kemur tríóið fram á tveimur tónleikum hér- lendis og fara þeir fram í Ketilshúsi á Akureyri hinn 21. júlí og í Sólheimakirkju á Sólheimum 23. júlí. „Við erum búin að bóka tvenna tónleika hérna heima sem haldnir verða á Akureyri og á Sólheimum. Þar tökum við ein- hverja góða blöndu: nýtt efni í bland við gamalt. Ég hugsa að við spilum eitthvert efni af plötunni Songs from Iceland sem ég gaf út fyrir tveimur árum í bland við eldri tónsmíði, og svo spilum við eitthvert efni af nýja disknum sem kemur út í haust. Platan Songs from Iceland inniheldur klassísk íslensk lög, lög eins og Það búa litlir dvergar og Úti í tunglsljósi, sem við höfum útfært,“ segir Sunna. Sunna starfar sem tónlistarmaður, en að auki kennir hún á píanó við Listaskóla Mosfellsbæjar og í tónlistar- skóla Reykjanesbæjar. Á heimasíðu Sunnu, sunnag- unnlaugs.com, er hægt að fræðast meira um hana: skoða dóma og lesa umfjöllun um hana og tónlist hennar sem birst hefur í erlendum blöðum og tímaritum. Þá er hægt að fara inn á síðuna sunnagunnlaugs.bandcamp.com til að hlusta á alla diskana hennar og kaupa niðurhal á þeim. Tríó Djasspíanistans Sunnu Gunnlaugsdóttur spilar á Akureyri 21.júlí og á Sólheimum 23.júlí nk. Djassdrottningin Sunna Gunnlaugsdóttir Sunna Gunnlaugsdóttir hefur farið mikinn í djassheiminum síðastliðin 15 ár. Frá árinu 1996 hafa komið 6 plötur frá henni sem hlotið hafa mikla athygli erlendis, en sú sjöunda kemur út í haust. Sunna myndar ásamt Scott McLe- more og Þorgrími Jónssyni Tríó Sunnu Gunnlaugsdóttur sem koma mun fram á tvennum tónleikum hérlendis í júlí. Róbert B. Róbertsson robert@mbl.is Við vorum að hljóðrita nýjan tríódisk og því má segja að platan sé bara í vöfflujárninu.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.