SunnudagsMogginn - 18.09.2011, Blaðsíða 4

SunnudagsMogginn - 18.09.2011, Blaðsíða 4
Úr vor- og sumarlínu aðallínu Marc Ja- cobs, sem sýnd var á tískuvik- unni í New York á fimmtudag. John Galliano, fyrrverandi listrænn stjórnandi Christian Dior, var rekinn fyrir andgyðingleg ummæli sem hann lét falla á bar í Marais-hverfinu í París. Nú hefur hann verið dæmdur sekur fyrir brot á frönskum lögum. Hámarksrefsing var sex mánaða fang- elsisvist en hönnuðurinn var fyrr í mánuðinum dæmdur til að greiða um milljón krónur í sekt. Dómarinn tók til greina við mildun refsingar að hann sæi eftir öllu saman og hefði leitað sér hjálpar. Galliano hefur ennfremur beðið manneskjurnar þrjár, sem hann braut gegn á barnum, fyrirgefningar. Hönnuðurinn var fyrir þetta einhver allra stærsta stjarnan í hönn- unarheiminum. Hann á sér ennþá marga vini og í vikunni lýsti Franca Sozzani, ritstjóri ítalska Vogue, því yfir að hún vildi að Dior tæki aftur við Galliano. „Ég skil að þeir geti ekki sagt: „Vondur strákur! Við fyrirgefum þér! Komdu aftur!“ En það er algjör synd,“ sagði hún í samtali við Newsweek. „Hann var drukkinn og einn á bar. Þegar fólk verður brjálað verður það brjálað. Þetta er bara mann- legt. Ekki pólitískt eða trúarlegt. Það er ekki eins og hann hafi myrt mann!“ L íklegt þykir að banda- ríski hönnuðurinn Marc Jacobs taki við sem list- rænn stjórnandi franska tískuhússins Christian Dior. Framtíð þessa þekktasta tísku- húss Frakklands (ef mögulega Chanel er undanskilið) hefur ver- ið í lausu lofti síðasta hálfa árið, eða allt frá því að aðalhönnuður hússins, John Galliano, var rekinn fyrir að hafa látið út úr sér óvið- eigandi og hatursfull ummæli um gyðinga er hann var drukkinn á bar. Jacobs er einhver þekktasti og áhrifamesti hönnuður heims í dag. Hann hannar tvær mjög vinsælar fatalínur undir eigin nafni, Marc Ja- cobs og Marc by Marc Jacobs. Til við- bótar er hann listrænn stjórnandi hins fornfræga tískuhúss Louis Vuit- ton, sem er ekki síst þekkt fyrir töskur sínar prýddar lógói húss- ins en líka fáguð frönsk föt. Dior og Louis Vuitton eru í eigu sama fyrirtækisins, LVMH, sem er risi í hágæðatískuiðnaðinum. Women’s Wear Daily greindi fyrst frá þessu. Þetta þýddi að LVMH þyrfti að finna staðgengil Jacobs hjá Louis Vuitton og kemur Phoebe Philo sterklega til greina. Philo hefur að und- anförnu gegnt starfi listræns stjórnanda Celine við mikla velgengni en henni hafði áður tekist að gera tískuhúsið Chloé smart á ný eftir nið- ursveiflu. „Þetta er öruggasta leiðin fyr- ir LVMH. Allir elska Marc. Hann er ótrúlega skapandi. Hann veit hvernig á að setja saman og stjórna frábæru liði. Og hann er mjög nútímalegur,“ sagði Dana Thom- as, tískublaðamaður og höf- undur bókarinnar Deluxe: How Luxury Lost Its Luster, í samtali við fréttastofu AP. Jacobs virðist líka vera öruggur kostur í heimi þar sem andlegt jafnvægi hönnuða er orðið at- riði en Bretinn Al- exander McQueen framdi sjálfsmorð í fyrra, svo ekki sé minnst á vandræðin í kringum Galliano. Þó að Jacobs teljist líklegastur til að verða fyrir valinu eru aðrir hugs- anlegir arf- takar Alber Elbaz hjá Lanvin, Sarah Burton hjá McQueen, Riccardo Tisci hjá Givenchy og Haider Ackermann. „Þau hafa unnið svo lengi með Marc [hjá Louis Vuitton] að LVMH veit alveg hvað fyrirtækið fengi hjá Dior. Ekkert óvænt og ekkert drama,“ sagði Thomas ennfremur við AP. Jacobs hefur sjálfur ekki neitað orð- róminum. „Það væri heiður. Ég á við að það er engin spuring um að tvö stærstu hátískuhúsin í París eru Chanel og Dior. Það væri mjög erfitt að hafna slíku tilboði,“ sagði Jacobs í samtali við CNN. Miklar launakröfur Samkvæmt nýrri frétt WWD hafa þó launakröfur hönnuðar- ins sett strik í reikninginn. Kröfur Jacobs og viðskipta- félaga hans til langs tíma, Ro- berts Duffy, hljóða upp á átta stafa tölu (í bandaríkjadöl- um) fyrir hvorn. Líklegt má telja að samningar náist enda Jacobs ósamanburðarhæfur við aðra hönnuði og vel hægt að sjá fyrir sér að hann bjargi Dior út úr þeirri krísu sem tískuhúsið er í. Eftirlæti tísku- heimsins Líklegt að Marc Jacobs taki við starfi Johns Galliano hjá Dior Svipmynd frá tískusýningu á línunni Marc by Marc Jacobs á tískuvikunni í New York í vikunni. ReutersVikuspegill Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Marc Jacobs. 4 18. september 2011 Ódýrari lína Marc Ja- cobs heitir Marc by Marc Jacobs og hefur notið mikilla vinsælda. Meðfylgjandi mynd er úr vor- og sumarlínunni 2012, sem sýnd var á tískuvikunni í New York í vikunni. Galliano dæmdur sekur Marc Jacobs er fæddur og uppal- inn í New York. Hann er 48 ára gamall og vegna vinnu sinnar býr hann núorðið bæði í París og gömlu heimaborginni. Hann lærði við Manhattan High School of Art and Design og fór það- an beint í nám við Parsons The New School for Design og var þar útnefnd- ur nemandi ársins, sem hafði sann- arlega forspárgildi um velgengni hans. Ferill Jacobs

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.