SunnudagsMogginn - 18.09.2011, Blaðsíða 40

SunnudagsMogginn - 18.09.2011, Blaðsíða 40
40 18. september 2011 Kaffidrykkir af ýms- um toga eru góðir nú þegar farið er að kólna dálítið í veðri. Það er jú alltaf hægt að búa sér til klassískt Sviss mokka með heitu súkku- laði og kaffi. Skreyta síðan með rjóma á toppinn og súkkulaði og bera fram í smart glasi. Sumir vilja líka setja smá hjarta- styrkjandi út í kaffidrykkinn og það er allt í fínu lagi í hófi eins og flest annað. Yljandi og góðir drykkir Þegar kemur að mat er ég nokkuð nýjungagjörn en sumar samsetningar vil ég þó hafa eins, ætíð. Vanafast er best É g finn hvernig ég byrja að svitna þar sem ég stend fyrir framan hill- una og stari á merkinguna. Jú, í þessari hillu á vissulega að vera Nóakropp en það er ekkert eftir nema þetta með dökka súkkulaðinu. En þar sem ég er vanaföst og borða alltaf bara hitt get ég ekki hugsað mér að kaupa það. Nú er illt í efni því ég er á leið í Nóaklúbbinn. Hann saman- stendur af okkur tveimur vinkonunum (eig- inmaður hennar fær stundum tvö vínber ef hann er heppinn) sem hittumst reglulega og fáum okkur te og með því. Tedrykkjuna má rekja til þess að við bjuggum um tíma í Eng- landi og þar kom Nóakroppið stundum við sögu. Einhver góður að heiman hafði nefnilega stundum sent poka og þá var það heilög stund að hittast, hella upp á te og hella kroppinu í skál. Eftir heimkomu okkar fyrir nokkrum árum tók að þróast sú hefð að hittast yfir góðu tei og veitingum. Þannig bættist við ostur, sulta og kex og vínber. Síðast vorum við reyndar nýjungagjarnar og fengum okk- ur líka breskt smjörkex með. Svo fær stund- um eitthvað nýtt að slæðast með. En kropp- ið má ekki vanta. Svo þar sem ég stend á miðju gólfi stórmarkaðarins og bíð eftir því að vinsamlegi afgreiðslumaðurinn komi vonandi með síðasta pokann í búðinni handa mér er ég örugglega mjög ámátleg og ráðvillt að sjá. Enda hvað gerir maður ef eitt mikilvægasta hráefnið vantar? Kaupir líf- rænt súkkulaði eða kex? Nei, ekki í dag, ekki fyrir Nóaklúbbinn. Þar má ekkert klikka og ég anda léttar þegar afgreiðslumaðurinn birtist sigri hrósandi með um fimm poka í hvorri hendi. „Ég væri alveg til í að taka þá alla en í dag ætla ég bara að fá einn,“ segi ég og brosi fyrir allan peninginn. Á leiðinni upp stigann til vinkonu minnar líður mér svolít- ið eins og ég hafi fengið fixið mitt. Hjart- slátturinn róast og ég veit að bráðum fæ ég góðan tesopa úr dömulegum bolla og heila skál af kroppi … Svona þarf nú ekki mikið meira til að gleðja mann eftir hversdags- legan vinnudag! En eftir þetta fór ég að hugsa hvað maður er ótrúlega vanafastur þegar kemur að ýms- um matarsamsetningum. Kókómjólk með kæfubrauði, mjólk með mjólkurkexi, trópí með morgunkorninu og gos með pitsunni. Það mætti stundum halda að maður væri orðinn níræður en ekki rétt tæplega þrítug (nýjungagjörn) kona. En sumt vill maður bara alltaf hafa eins og þannig er nú það. Lífið og tilveran María Ólafsdóttir maria@mbl.is’ Einhver góður að heiman hafði nefnilega stundum sent poka og þá var það heilög stund að hittast, hella upp á te og hella kroppinu í skál. Lífsstíll Kerti Gleymum ekki að njóta skammdegisins sem færist nú yfir okkur smám saman. Það er svo kósí að kveikja á kertum og um að gera að nota þau sem mest. Þegar þú kemur heim úr ræktinni og ferð í heita og góða sturtu er t.d. til- valið að spila notalega tónlist og kveikja á ilmkerti. Þá ertu næst- um því komin/n í þína eigin heilsulind heima fyrir. Jákvæðni Stundum er sagt að já- kvæðni sé allt sem þarf og er vissulega mikið til í því. Við verðum að muna eftir að brosa. Suma daga er það erfiðara en annars en ef okkur tekst það þá líður okkur svo miklu betur. Hrökkbrauð Hrökkbrauð er fíneríis-fæða í dagsins önn. Til eru ýmiskonar tegundir og um að gera að prófa sig áfram. Með osti, smur- osti, túnfisksal- ati eða bara til að narta í. Það er meira að segja hægt að finna hrökkbrauð með chilíkrydduðu súkkulaði utan um! Vertu ætíð með hrökkbrauð í seiling- arfjarlægð. Hrökkbrauðspakkinn á skrifborðinu eða í bílnum mun ekki bregðast þér á ögurstundu! Kistan Ilmreyr og reyrgresi Sá er heppinn sem lært hefur að þekkja reyrgresi og veit um stað þar sem það vex og þá oft í stórum breið- um. Þrátt fyrir nafnið ilmar reyrgresið sterkar en hinn eiginlegi ilmreyr. Lyktin kemur fyrst fram við þurrkun. Besta ráðið til að þekkja grösin er að merkja hvar þau finnast, taka myndir eða teikna og skrifa í vasabókina sína. Síðan er hægt að fara ár eftir ár, safna í visk og leggja í uppáhaldsskúffuna sína og taka svo fram ilm- andi föt allan veturinn eins og langömmur okkar gerðu. Natturan.is, 48 góð ráð fyrir þig og umhverfið. Hildur Hákonardóttir og Hörður Kristinsson. Ilmandi góð föt Lavandermús setur góða lykt í skúffuna eða skápinn.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.