SunnudagsMogginn - 18.09.2011, Blaðsíða 41

SunnudagsMogginn - 18.09.2011, Blaðsíða 41
18. september 2011 41 LÁRÉTT 1. Mynta fær heyskap frá smiðju. (10) 4. Ást og unn bæta við sig fimm hundruð út af iðkun. (8) 8. Gera haf hvítara með fiski (10) 10. Framkoma æði áfram hjá fugli. (6) 11. 1 e.Kr. hjá ertu. (6) 12. Silfur og legur virði fyrir smánarlegan. (12) 13. Við nudd stalla fimmtíu finna ættartölu. (8) 14. Nem hund með kænsku. (6) 16. Ruglaður norpaði þegar þú laukst upp. (7) 17. Enn aðra slöngu má sjá. (5) 19. Illvild maka getur búið til þann sem hefur áhrifa- vald. (11) 22. Festir einhvern veginn lauslega eina sem er tryllt. (7) 25. Fullir á árstíð eru þeir sem þú fannst til með. (10) 27. Hik í stafsetningu. (4) 28. Hálfþokkaleg hönd nær að versla. (6) 29. Samlanda stúlkan er líka á mörkunum á landinu. (10) 31. Frú iðar með gæs og hálfþokkaleg hermennska birtist. (11) 32. Skjalagerð sem endar í geymslu. (5) 33. E.S. Par egnir. (5) 34. Vér leikin þeytumst um tölvu. (9) LÓÐRÉTT 1. Haf fyrir iðjulítinn er slétt. (8) 2. Með tár akir til Langaness til að finna líkamshluta. (11) 3. Ill vitjun getur endað sem hending. (9) 5. Húrrahróp í Tryggingastofnun hjá örfáum. (5) 6. Æ úr atlætinu kemur að utanverðu. (7) 7. Dægurlagasöngvari og þarmar birtast á hliðunum. (8) 8. Láti loft leika um vinning í spilum í vondu veðri. (9) 9. Orðrómar hjá þeim sem eiga ekkert inni hjá hvor hjá öðrum. (7) 15. Ja, OK að flækjast í rúmi. (4) 17. Enn ein í fleirtölu verður frumeind eða nevtróna. (8) 18. Steinn forlagatrúar. (4) 20. Að fimm entist einn úr kristnum söfnuði. (10) 21. Slapp við jólin í flækju út af plöntu. (10) 23. Flatamælingin tapar Finna með slæman framburð. (8) 24. Ullarflóka sýna að sögn í staðinn fyrir verkað vín- ber. (6) 25. AFV raði upp á nýtt þegar reikaði. (7) 26. Jara fór úr sjúkraklefa til að uppgötva sælin- dýrategund. (7) 28. Byrjaði skepna að tilheyra ættbálki spendýra. (6) 30. Kort handfjatlast. (5) Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátt- tökuseðilinn í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Há- degismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn kross- gátu 18. september rennur út á hádegi 23. september. Nafn vinn- ingshafans birtist í blaðinu 25. september. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi kross- gátunnar 11. september er Magnús Pétursson, Lækjargötu 32, Hafnarfirði. Hann hlýtur í verðlaun bókina Ævintýri góða dátans Svejks í heimsstyrjöld- inni eftir Jaroslav Hašek. Forlagið gefur út. Krossgátuverðlaun Þegar það spurðist út að Friðrik Ólafsson hygðist taka þátt í Norðurlandamóti öldunga urðu skipuleggjendur varir við stór- aukinn áhuga á mótinu. Friðrik hefur ekki teflt á opinberu móti hér á landi síðan á minning- armótinu um Jóhann Þór Jóns- son sem fram fór haustið 2001 og síðast tefldi hann á Skákþingi Norðurlanda fyrir 40 árum, sem fram fór í Norræna húsinu. Þar vann hann öruggan sigur. Fyrir marga keppendur mótsins hefur það áreiðanlega verið gamall draumur að tefla við Friðrik. Nokkrir íslensku skákmannanna mættu honum margsinnis hér á árum áður, t.a.m. Magnús Sól- mundarson og Gunnar Gunn- arsson og í þeirra hópi er einn sem náði að leggja hann að velli í kappskák, Jóhann Örn Sig- urjónsson vann það afrek á Skákþingi Reykjavíkur veturinn 1975 og þóttu mikil tíðindi. Hvað varðar erlendu gestina þurfum við gamlir aðdáendur Friðriks ekki annað en að slá upp í bók- inni Við skákborðið í aldarfjórð- ung – 50 valdar sóknarskákir til að sjá að þeir skákmenn sem taldir eru ganga Friðrik næstir að styrkleika, Finnarnir Westerinen og Rantanen, riðu ekki feitum hesti frá viðureignum sínum við Friðrik um miðjan áttunda ára- tug síðustu aldar. Friðrik hefur farið fremur ró- lega af stað en er engu að síður í námunda við efstu menn þegar fimm umferðir hafa verið tefldar. Staðan er þessi: 1.- 4. Bragi Halldórsson, Yrjo Rantanen, Jörn Sloth og Bent Sörensen 4v. 5. – 7. Friðrik Ólafsson, Heikki Esterinen og Gunnar Kr. Gunnarsson 3 ½ v. Bragi Halldórsson getur rifjað upp Norðurlandamótið 1971 í Norræna húsinu með nokkru stolti því ef greinarhöfund mis- minnir ekki varð hann þar hrað- skákmeistari Norðurlanda. Hann hefur teflt af mikilli hörku á öld- ungamótinu enda vel undirbúinn eftir þátttöku í afmælismóti Hellis á dögunum. Hann vann þrjár fyrstu skákirnar, lenti síðan í þekktri byrjanagildru gegn Jörn Sloth og tapaði. Fékk síðan að beita uppáhaldsbyrjun sinni, Caro-Kann vörninni, í fimmtu umferð: NM öldunga 2011: Jóhann Örn Sigurjónsson – Bragi Halldórsson Caro-Kann vörn 1. e4 c6 2. Re2 d5 3. e5 c5 Hér ber að varast að leika 3. … Bf5 vegna 4. Rd4! eins og Bent Larsen sýndi fram endur fyrir löngu. 4. d4 Rc6 5. c3 Bg4 6. f3 Bf5 7. a3 e6 8. Be3 c4 9. b4 f6 Gott var einnig 9. … cxb3 19. Dxb3 Dd7 en Bragi kýs að halda stöðunni lokaðri. 10. exf6 gxf6 11. Rf4 Dd7 12. Kf2 Bd6 13. Ha2 Dc7 14. g3 O- O-O 15. Bh3 Bxh3 16. Rxh3 Rge7 Svartur hefur komið mönnum sínum á framfæri á þann hátt sem best verður á kosið. Það sama verður hinsvegar ekki sagt um liðsafla hvíts. 17. He2 Rf5 18. f4? Reynir að sporna við framrás e-peðsins en veikir um of hvítu reitina. 18. … h5! 19. Bd2 e5 20. b5 Rce7 21. fxe5 fxe5 22. dxe5 Bxe5 23. Bf4 Bxf4 24. Rxf4 h4 25. Re6 Db6+ 26. Kf3 Hd6 27. Hhe1 hxg3 28. hxg3 (STÖÐUMYND) 28. … Hh3! (Eftir þennan leik fær hvítur ekki neitt við ráðið. Lok þessara skákar teflir Bragi af miklum krafti.) 29. Rd4 Hxg3+ 30. Kf2 Hd3 31. Hd2 Rxd4 32. Hxd3 Hf6+ 33. Kg2 cxd3 og hvítur gafst upp. Fram- haldið gæti orðið 34. cxd4 Dxd4! 35. Hxe7 Df2+ 36. Kh3 Hh6+ 37. Kg4 Hh4+ og mátar. Norðurlandamótinu lýkur um helgina. Helgi Ólafsson helol@simnet.is Bragi og Friðrik í fararbroddi á NM öldunga Skák Nafn Heimilisfang Póstfang Krossgáta

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.