SunnudagsMogginn - 18.09.2011, Blaðsíða 34

SunnudagsMogginn - 18.09.2011, Blaðsíða 34
34 18. september 2011 Þ að er óræður sjarmi yfir Gamla bíói. Skyldi engan undra, menningarsaga þessarar þjóðar drýpur þar af veggjum. Í 85 ár hefur þetta svipmikla hús verið snar þáttur í menningarlífi höfuðborgarinnar. Kvikmyndir, tónlist og leiklist hafa átt þar í öruggt hús að venda, að ekki sé talað um alla fundina, þar sem stálinu hefur verið stappað í fólk. Þegar Íslenska óperan flutti úr húsinu í Hörpuna fyrr á þessu ári hafa eflaust margir borið kvíðboga fyrir framtíð þess. Hinir sömu geta nú andað léttar enda bú- ið að tryggja að starfsemin í húsinu mun áfram verða á menningarlegum nótum. Leikhúsmógúllinn, sem er alþjóðlegt leikhúsfyrirtæki, leigir nú húsnæðið af Íslensku óperunni og hyggst reka þar starfsemi undir heitinu Gamla bíó Leik- hús. Þegar stungið er við stafni nokkrum dögum fyrir opnun vekur athygli að sára- litlu hefur verið breytt í húsinu. „Mark- mið okkar hefur verið að varðveita anda og útlit hússins enda liggur styrkur þess fyrst og fremst í því hvað það er ósnert. Gamla bíó hefur algjörlega lifað af míni- malismann,“ segir Signý Eiríksdóttir, verkefnastjóri Gamla bíós Leikhúss. Lengi langað að reka leikhús Þegar Íslenska óperan auglýsti húsið til leigu þurftu forsprakkar Leikhúsmógúls- ins ekki að hugsa sig um tvisvar. „Það er mikill heiður að vera treyst fyrir falleg- asta leikhúsi á Íslandi. Þetta er mikil áskorun,“ segir Signý og undirstrikar að húsið verði að vera í notkun. Óskar Eiríksson, framkvæmdastjóri Leikhúsmógúlsins og Gamla bíós Leik- húss, tekur í sama streng. „Við höfum verið að framleiða sýningar inn í leikhús en ekki gert það innan frá áður. Það verð- ur skemmtileg áskorun, okkur hefur lengi langað að prófa að reka leikhús.“ Óskar segir Gamla bíó þó eina leikhúsið sem komið hafi til greina. „Gamla bíó er einstakt hús, því kynntist maður þegar í barnæsku. Það er alltaf jafngóð tilfinning að koma þarna inn. Eftir að við tókum við húsinu hef ég stundum labbað þangað inn bara til að anda að mér loftinu,“ segir Óskar sem staddur er í Sviss þessa dag- ana. Mógúllinn byrjar á því að leigja húsið í eitt ár „en gangi vel í vetur erum við opin fyrir því að vera hér áfram“, segir Signý. Ekki spillir fyrir að Gamla bíó hefur sérstaka þýðingu fyrir Leikhúsmógúlinn. „Okkar ævintýri byrjaði hér í þessu húsi þegar ég og maðurinn minn Jón Tryggva- son sáum Hellisbúann árið 1999. Hann fékk þá þessa frábæru hugmynd að fá réttinn af því verki í Evrópu og ekki var aftur snúið,“ segir Signý en síðan hefur það verk verið sýnt vítt og breitt um heiminn. Ekkert lát er á vinsældum Hellisbúans og í desember næstkomandi verður hann frumsýndur í Kína. „Við vorum stórhuga í upphafi en þetta æv- intýri er orðið miklu stærra en okkur ór- aði fyrir,“ segir Signý en Leikhúsmógúll- inn er með starfsemi í fimm löndum, á Íslandi, í Bandaríkjunum, Kína, Sviss og Þýskalandi. Edda og Laddi í essinu sínu Af öðrum verkefnum Leikhúsmógúlsins má nefna Helliskonuna eftir Emmu Pier- son, sem þegar hefur verið frumsýnd í fjórum löndum, og söngleikinn Silence sem nýlega var frumsýndur í New York, Off-Broadway. „Sú sýning hefur gengið „Fallegasta leikhús á Íslandi“ Leikhúsmógúllinn hefur tekið við lyklavöldum í Gamla bíói og mun standa þar fyrir leiksýn- ingum og annarri menningarstarfsemi í vetur. Sáraitlu hefur verið breytt enda ætla nýir hús- bændur að varðveita anda og útlit hússins. Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Myndir: Eggert Jóhannesson eggert@mbl.is Enda þótt lágt sé til lofts er aðstaða fyrir listamenn í kjallara hússins býsna rúmgóð. Gamla bíó við Ingólfsstræti verður áfram vettvangur menningar- og listviðburða. Edda Björgvinsdóttir og Laddi leika í fyrstu sýningu vetrarins, Hjónabands- sælu eftir Michele Riml. Frumsýnt verð- ur á föstudaginn kemur.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.