SunnudagsMogginn - 18.09.2011, Side 47

SunnudagsMogginn - 18.09.2011, Side 47
18. september 2011 47 S káldsagan Frönsk svíta eftir Irene Nemirovsky hefur farið sigurför um heiminn undanfarin ár. Nemirovsky lést í Auswitsch árið 1942, senni- lega úr taugaveiki, 39 ára gömul. Handritið að bók sem hún var að vinna að var í ferðatösku sem dóttir hennar Denise Epstein varðveitti. Það var ekki fyrr en um sextíu árum eftir dauða móður sinnar sem Denise fór að rýna í handritið og komst að því að það sem hún hafði talið vera dagbókarskrif var skáldsagnarhandrit. Frönsk svíta kom út í Frakklandi árið 2005, hefur verið þýdd á fjölda tungumála og fengið gríðarlegt lof. Frönsk svíta er nú komin út á íslensku í þýðingu Friðriks Rafnssonar og skaust við útkomu beint í fyrsta sæti metsölulista Ey- mundsson. Dóttir Nemirovsky, Denise Epstein, var nýlega hér á landi í boði Bókmenntahátíðar og Alliance Francaise og kynnti bók móður sinnar. Með í för var Olivier Phil- ipponnat sem ásamt Patrick Lienhardt ritaði merka ævi- sögu Nemirovsky sem kom út í Frakklandi árið 2007. Irene Nemirovsky var rússneskur gyðingur sem flutti til Frakklands eftir rússnesku byltinguna ásamt for- eldrum sínum. Hún byrjaði ung að skrifa og var þekktur rithöfundur á millistríðsárunum. Hún giftist Michel Ep- stein, sem var einnig rússneskur gyðingur, og þau eign- uðust tvær dætur, Denise, sem nú er 82 ára, og Elísabetu sem lést fyrir nokkrum árum. Nokkrum mánuðum eftir handtöku eiginkonu sinnar var Michel handtekinn og sendur í gasklefana í Auswitsch. Denise Epstein lýsir móður sinni svo: „Mamma var meðalhá, dökk yfirlitum, með afar hrokkið hár. Þegar hún horfði á okkur börnin sín var augnaráð hennar milt og fallegt en hún en horfði gagnrýnni augum á um- hverfið. Hún var afskaplega góð, blíð og ljúf móðir. Sjálf átti hún erfiða æsku. Móðir hennar var skrímsli. Ég á erfitt með að nota orðið amma um þá konu. Hún hafnaði móður minni frá upphafi og lét aðra um að hugsa um hana. Þær fyrirlitu hvor aðra.“ Hvernig var líf þitt með foreldrum þínum og systur. Voruð þið hamingjusöm fjölskylda? „Já, foreldrar mínir voru afar ástfangin og hjónaband- ið var mjög hamingjusamt. Þau sáu um uppeldi okkar systranna í sameiningu og hugsuðu afar vel um okkur. Þau voru mjög ólík. Mamma var fremur alvörugefin og íhugul. Hún sagði okkur systrunum sögur á hverju kvöldi og pabbi kenndi okkur lög með Mistinguette og Josephine Baker, sem voru söngstjörnur þess tíma. Þegar mamma var handtekin í júlímánuði 1942 varð pabbi afar örvæntingarfullur. Þegar hann var svo sjálfur handtekinn skömmu seinna varð hann eiginlega ánægð- ur því hann var viss um að hann væri á leið á sama stað og mamma og að þau myndu fá að vera saman. Hann vissi ekki að hún var dáin.“ Að missa foreldra sína á svona hörmulegan hátt hlýtur að hafa markað þig. Hvaða kenndir hafa hrærst sterkast innra með þér? Er það reiði, hatur, biturð eða sorg? „Maður gengur í gegnum mörg stig við aðstæður eins og þessar. Fyrst kom biðin og óvissan, sem var það erf- iðasta. Svo kom reiðin, bæði gagnvart Þjóðverjunum og líka gagnvart foreldrunum. Um tíma höfðu foreldrar mínir tækifæri til að flýja Frakkland. En þau sýndu því ekki áhuga og mamma einbeitti sér að því að halda áfram að skrifa Frönsku svítuna. Við systurnar hötuðumst um tíma við bók- menntir því bókmenntirnar áttu þátt í að taka mömmu frá okkur. Ég hélt lengi í vonina og neitaði í horfast í augu við þá skelfilegu staðreynd að mamma myndi ekki koma aftur. Þegar ég var sjálf orðin móðir var ég enn að bíða eftir móður minni og þóttist stundum sjá hana á götu. Smám saman varð ég að horf- ast í augu við þá staðreynd að hvorki foreldrarnir, frændurnir né frænkurnar kæmu til baka. Mitt val var að halda áfram og eignast börn til að geta byggt upp mitt eigið líf. Ein af þeim fjölmörgu tilfinningum sem hrærðust með mér var sársaukinn sem hverfur aldrei. En ég fann aldrei til haturs.“ Nú hefur Franska svítan gert móður þína ódauðlega og vakið athygli og áhuga á eldri verkum hennar. Þú hlýtur að finna gleði í því. „Ég er mjög stolt og glöð að bækur mömmu skuli vekja svo mikla athygli um allan heim. Það er heilmikill sigur. Sigur á gleymskunni. Sigur á nasistunum. Það er stórkostleg gleði fyrir mig að vera umvafin ást lesenda sem eru að enduruppgötva verk mömmu og sjá hversu mikla umhyggju þeir sýna henni.“ Olivier Philipponnat er annar höfunda ævisögu Irene Nemirovsky sem varð verðlaunabók í Frakklandi og kom út á ensku árið 2010. Þegar hann og félagi hans Pat- rick Lienhardt kynntu hugmyndina að ævisögunni fyrir útgefanda sínum var hann ekki viss um að hugmyndin væri góð, enda hafði Nemirovsky fallið í gleymsku. Mánuði seinna kom Franska svítan út í Frakklandi og allt var breytt. Bókin var á allra vörum. „Við vorum tvö ár að skrifa bókina,“ segir Philipponnat. „Við fengum aðgang að skjalasafni Nemirovsky þar sem var ógrynni bréfa og handrita og við fundum einnig áður óbirt handrit úr fórum síðasta út- gáfustjóra Nemirovsky. Það voru litlar heimildir til um líf hennar í Rússlandi og þess vegna fór ég með Denise til Moskvu til að hitta einn af síðustu ættingjum Nemirovsky sem var enn á lífi. Þessi ætt- ingi átti ýmsar myndir og deildi minn- ingum sínum með okkur og þannig var hægt að bregða upp mynd af lífi Nem- irovsky í Rússlandi.“ Það er Friðrik Rafnsson sem á heið- urinn af því að þýða Frönsku svítuna á íslensku. „Ég hef þýtt hátt í þrjátíu bækur og þessi er sú allra magnaðasta sem ég fengið að glíma við,“ segir Friðrik. „Bókin er á svo mörgum plönum og tilfinn- ingaskalinn er gríðarlega breiður. Nemirovsky skrifar fágaðan og flottan stíl sem var heilmikið mál að koma til skila. Ég var með frábært verk í höndunum. Það var að ýmsu leyti erfitt að fást við þetta snilldarverk en um leið ákveðinn lúxus og mjög skemmtilegt.“ Texti: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Mynd: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is Friðrik Rafnsson, Denise Epstein og Olivier Philipponnat Sigur á gleymskunni ’ Það er stórkost- leg gleði fyrir mig að vera umvafin ást lesenda sem eru að enduruppgötva verk mömmu og sjá hversu mikla umhyggju þeir sýna henni.“

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.