Morgunblaðið - 07.04.2010, Síða 10
„Þessa stundina verður uppáhalds-
stundin mín á föstudaginn þegar ég og
Kjartan Valdemarsson píanóleikari ætlum
að flytja nokkur af þeim lögum sem hafa
haft hvað sterkust áhrif á mig í gegn-
um árin og spjalla um ljóð og texta
laganna. Þetta verður í Þjóðleik-
húskjallaranum þar sem við ætlum
að eiga hugljúfa kvöldstund
með gestum.
Annars finnst mér alltaf
dásamlegt þegar börnin mín
koma öll upp í á morgnana
og við kúrum öll í klessu.“
Þórunn Lárusdóttir leik-
og söngkona
Uppáhaldsstund Þórunnar Lárusdóttur
Hugljúf kvöldstund og kúr
Morgunblaðið/Ernir
Gulli betri Úrvalsostar sem bráðna í munni eru lostæti.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Ég verð að játa að ég hefekki sama áhuga á ostumog ég hafði áður, ég hefmeiri áhuga á karríi og
hrísgrjónum núna,“ segir Hannes
Björnsson, sálfræðingur og prestur,
en hann er formaður hins forna
Ostavinafélags. Félagið stofnaði
hann þegar hann var nemandi í
Menntaskólanum á Laugarvatni
fyrir um þrjátíu árum. „Þetta kom
held ég aðallega til af því að lífið á
heimavistinni gekk út á að finna upp
á einhverju sniðugu til að skemmta
sér. Ég fékk félaga minn sem fór á
ráðstefnu til Sviss til að kaupa
óhemju mikið fyrir mig af bragð- og
lyktsterkum ostum. Hann eyðilagði
með þessu ferðatöskuna sína og öll
fötin sem í henni voru. Sumir kvört-
uðu yfir lyktinni á heimavistinni eft-
ir að ég fékk þessa osta til mín. Mér
er sérstaklega minnisstæður alvöru
Gorgonzola-ostur sem nánast skreið
um herbergið.“
Króksostur í Kaupfélaginu
Hannes segir að Ostavinafélagið
hafi verið mjög vinsælt. „Mig minn-
ir að um 140 manns hafi skráð sig í
félagið. Listinn var ógnarlangur,
hann hékk á hurðinni hjá mér og
Karli Björnssyni, herbergisfélaga
mínum. Þessi listi náði niður að
gólfi, þveraði hurðina, fór upp hurð
aftur og þaðan út með vegg,“ segir
Hannes og hlær að minningunni.
Hann telur að hann eigi þennan
lista með nöfnum félagsmanna enn í
fórum sínum. Ostavinir gengu
gjarnan út í kaupfélag og keyptu
sér ost sem oft kláraðist á bakaleið-
Ostavinur í áratugi
Hann stofnaði ótal félög á sínum yngri árum, m.a Antisportistafélagið, félag um
að sameina Svíþjóð og Skagafjörð og hið margrómaða Ostavinafélag.
Morgunblaðið/Ernir
Ostavinur Hannes kann vel við sig innan um osta.
10 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2010
Farðu að sofa blessað barnið smáa,
brúkaðu ekki nokkurn fjárans þráa.
Haltu kjafti, hlýddu og vertu góður.
Heiðra skaltu föður þinn og móður.
Svo orti hið skemmtilega skáld
Kristján Níels Jónsson, öðru nafni
Káinn. Vísan nefnist „Ný vögguvísa“
og er ein af mörgum gamanvísum
sem Káinn orti en hann þótti alla tíð
glaðlyndur og gamansamur og í
meira lagi orðheppinn. Mest setti
hann saman af gamanvísum en átti
það til að slá á alvarlegri strengi.
Í dag er 150 ára fæðingarafmæli
þessa merka skálds og af því tilefni
efna Kvæðamannafélagið Iðunn og
Baggalútur til afmælisfundar um
kímniskáldið Káinn í Menningar-
miðstöðinni Gerðubergi kl. 20.30 í
kvöld.
Steindór Andersen segir frá skáld-
inu og fer með nokkrar vel valdar vís-
ur. Félagsmenn Iðunnar flytja fáeinar
af vísum Káins og verður gestum
boðið að kveða með félagsmönnum.
Svo mun Baggalútur flytja nokkur lög
af plötunni Sólskinið í Dakóta.
Káinn fæddist 7. apríl 1860 og lést
25. október 1936. Hann fluttist vest-
ur um haf árið 1878 og bjó í Dakóta-
byggðinni í Pembina þar til hann lést.
Endilega...
Grallaraspói Kristján Níels Jónsson
var gamansamt skáld.
...kynnist Káinn
Útivinnandi foreldrar í Ameríku eyða
meiri tíma með börnum sínum nú en
fyrri kynslóðir. Þetta sýnir ný rann-
sókn sem unnin var við Háskólann í
Kaliforníu.
Skoðaður var fjöldi rannsókna frá
árunum 1965 til 2007 þar sem Am-
eríkanar voru spurðir hvernig þeir
eyddu tíma sínum. Kom í ljós að sá
tími sem foreldrar eyða með börnum
sínum, og sérstaklega hjá foreldrum
með háskólamenntun, hefur aukist
mjög mikið síðan um miðjan tíunda
áratuginn. Fyrir 1995 eyddi móðir að
meðaltali um tólf klukkustundum á
viku með börnunum sínum, árið 2007
hafði það aukist í 21,2 klukkustundir
á viku hjá háskólamenntuðum konum
en í 15,9 klukkustundir hjá minna
menntuðum. Þótt mæðurnar virðist
enn sinna foreldrahlutverkinu betur
Fjölskyldan
Amerískir foreldrar eyða meiri
tíma með börnunum en áður
Reuters
Amerísk fjölskylda Hvað ætli Obama eyði miklum tíma með dætrunum?
en feður hefur tími þeirra með börn-
unum líka aukist. Fyrir 1995 var með-
altalið um 4,5 klst. á viku en árið
2007 hafði það aukist í 9,6 klst. hjá
háskólamenntuðum karlmönnum, en
minna menntaðir karlar eyddu um
6,8 klst. með börnum sínum á viku.
En hvaðan kemur þessi aukatími? Jú
konur eyða minni tíma í að elda og
þrífa heimilið og karlar eyða minni
tíma í vinnunni.
Þessar niðurstöður ættu að létta á
samviskubiti hjá útivinnandi for-
eldrum sem finnst þeir aldrei eyða
nægum tíma með börnum sínum.
Fleira í sambandi við fjölskyldulífið
kom fram í þessari könnun, amerísk
pör bíða lengur með að giftast og
eignast börn en áður og skiln-
aðartíðnin minnkar með hverri kyn-
slóð.
DANSARAR frá Al-Jeel Al-Jadeed Circassian þjóð-
dansafélaginu í Amman, höfuðborg Jórdaníu, sýndu
verkið „Ferð kynslóðanna“ í vikunni. Var það í til-
efni af sextíu ára afmæli þjóðdansafélagsins sem
virðist vera hið glæsilegasta af myndunum að
dæma.
Glæsilegir þjóðdansar