Morgunblaðið - 07.04.2010, Side 25
Dagbók 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2010
Sudoku
Frumstig
9 4 2 3 5
5 8 4 2
7
9
5
2
1 4 2 9
8 5 7
7 2 1 3 8
6 4
2 4 9 6 3
5 6 4 1
1 6
3 9 5
7 5 2 3 8
9 2 5
4 3 1 2
1 8 6 4
3 5
2 8 5
3 9 5
4
1 4 8
2 9 6
6 8 3
4 7 2 8 5 3 6 9 1
9 8 3 4 1 6 7 5 2
5 6 1 7 9 2 4 3 8
2 9 7 3 4 8 1 6 5
1 5 8 6 7 9 3 2 4
3 4 6 1 2 5 9 8 7
8 2 4 9 3 7 5 1 6
7 3 5 2 6 1 8 4 9
6 1 9 5 8 4 2 7 3
7 5 1 9 4 8 6 3 2
6 2 4 5 7 3 8 9 1
9 8 3 2 1 6 5 7 4
4 6 2 3 5 9 7 1 8
5 7 9 1 8 2 4 6 3
1 3 8 7 6 4 2 5 9
2 4 7 6 9 1 3 8 5
3 1 5 8 2 7 9 4 6
8 9 6 4 3 5 1 2 7
5 6 8 3 1 2 7 4 9
4 1 9 7 5 8 2 3 6
7 3 2 4 6 9 5 1 8
6 5 4 2 8 7 3 9 1
3 8 7 1 9 5 4 6 2
2 9 1 6 3 4 8 5 7
1 7 5 9 2 3 6 8 4
8 4 6 5 7 1 9 2 3
9 2 3 8 4 6 1 7 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 7. apríl, 97. dag-
ur ársins 2010
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður,
að þér elskið hver annan. Eins og ég
hef elskað yður, skuluð þér einnig
elska hver annan. (Jóh. 13, 34.)
Viktoría krónprinsessa Svíþjóðarmænir á mannfjöldann ofan af
stórum auglýsingaborðum, sem eru
um allt á Arlanda-flugvelli í Stokk-
hólmi. Við hlið hennar er andlit
manns með gleraugu með þykkum,
svörtum spöngum og horfir hann
flóttalega til hliðar, eins og eitthvað
hafi truflað einbeitingu hans, þótt
hann sé glaðbeittur á svip. Við hlið-
ina á myndinni stendur að 75 dagar
séu til stefnu og það er verið að telja
niður. Maðurinn á myndinni heitir
Daniel Westling og hann og Viktoría
ætla að ganga í hjónaband 19. júní,
en hátíðahöldin eiga að standa í þrjá
daga. Á auglýsingaspjöldum á flug-
vellinum er skorað á fólk að koma til
Svíþjóðar og upplifa kærleiksdaga
með sænsku þjóðinni. Sænska utan-
ríkisráðuneytið gerir ráð fyrir að
þetta verði heimsviðburður og ætlar
að búa til vinnuaðstöðu fyrir 250
blaðamenn.
x x x
Sænska konungsdæmið er æva-fornt, en Víkverji las einhvers
staðar að núverandi konungs-
fjölskylda hefði komist til valda
snemma á 19. öld þegar sænska þing-
ið kaus franska marskálkinn Jean-
Baptiste Bernadotte arftaka sænsku
krúnunnar. Síðast var haldið kon-
unglegt brúðkaup í Svíþjóð 1976 þeg-
ar Karl Gústav XVI gekk að eiga Syl-
víu Sommerlath, sem hann kynntist
á Ólympíuleikunum í München 1972,
ári áður en hann varð konungur.
x x x
Í fréttum segir að Daniel Westlingreki líkamsræktarstöðvar. Í
nokkur ár hafði gengið orðrómur um
að þau myndu ganga í hjónaband og
sænskir fjölmiðlar spyrja hvort hann
sé þess verðugur að kvænast krón-
prinsessunni. Þegar tilkynnt var um
brúðkaupið reyndi Svíakonungur að
slá á slíkar efasemdir: „Á und-
anförnum árum höfum við fengið að
kynnast Daníel og komist að því að
hann er ungur maður sem leggur
hart að sér og tekur lífið alvarlega.“
Það er kannski engin furða að augna-
ráð hans sé flóttalegt á myndunum á
Arlanda-flugvelli. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 háðs, 4 reim, 7
samsinnir, 8 aldurs-
skeiðið, 9 lyftiduft, 11
ósaði, 13 baun, 14 öldu-
gangurinn, 15 þref, 17
að undanteknum, 20
snák, 22 sekkir, 23 un-
aðurinn, 24 afkomandi,
25 geta neytt.
Lóðrétt | 1 sjónvarps-
skermur, 2 skeldýrs, 3
harmur, 4 þrákelkinn, 5
styrkir, 6 kveif, 10 vatns-
flaumur, 12 afkvæmi, 13
bókstafur, 15 urtan, 16
kuskið, 18 lýkur, 19 ör-
lög, 20 fugl, 21 peningar.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1holskefla, 8 rigsa, 9 ilmur, 10 pól, 11 selja, 13
lenda, 15 hokra, 18 snarl, 21 urt, 22 puðið, 23 akkur, 24
plógskeri.
Lóðrétt: 2 orgel, 3 skapa, 4 ekill, 5 lamin, 6 hrós, 7 orka,
12 jór, 14 enn, 15 hopa, 16 kaðal, 17 auðug, 18 stakk, 19
askur, 20 lært.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. Rf3 Rf6 2. d3 d5 3. Rbd2 c5 4. c3 Rc6
5. g3 g6 6. Bg2 Bg7 7. O-O O-O 8. Dc2
b6 9. e4 a5 10. He1 e6 11. Rf1 Ba6 12.
Hd1 Hc8 13. Rh4 Dc7 14. f4 dxe4 15.
dxe4 Hfd8 16. Be3 Rg4 17. Bf2 Rxf2 18.
Kxf2 b5 19. Re3 b4 20. Hac1 bxc3 21.
bxc3 c4 22. e5 Db6 23. Ke2 Hd3 24. Rf1
g5 25. Rf3 gxf4 26. gxf4 Bh6 27. Rg5
Staðan kom upp í seinni hluta Ís-
landsmóts skákfélaga, 2. deild, sem
lauk fyrir skömmu í Rimaskóla í
Reykjavík. Alþjóðlegi meistarinn
Björgvin Jónsson (2359) hafði svart
gegn Gísla Jóhannessyni (2052). 27…
Rxe5! 28. Be4 Rg6 29. Bxg6 hxg6 30.
Ke1 Bxg5 31. fxg5 Hc5 32. Hxd3 cxd3
33. Dg2 He5+ 34. Kd1 Bb5 og hvítur
gafst upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Skorist í leikinn.
Norður
♠7
♥D10985
♦KD6
♣ÁD72
Vestur Austur
♠843 ♠6
♥Á763 ♥K4
♦9542 ♦ÁG1083
♣G5 ♣98643
Suður
♠ÁKDG10952
♥G2
♦7
♣K10
Suður spilar 6♠.
Einhvern tíma í árdaga spilsins sat
Alfred Sheinwold (1912-1997) á öxl
suðurs og beið þess að rúbertunni lyki
svo hann kæmist að. Suður vakti á 2♠,
sterkum. N-S voru á hættu og Shein-
wold óskaði þess heitt og innilega að
þeir „tækju út“ í 4♠. En honum varð
ekki aldeilis að þeirri frómu ósk sinni –
fyrr en varði átti vestur útspilið gegn
sex spöðum, ekki fjórum. Suður hafði
sýnt fyrirstöðu í laufi og vestur ákvað
að reyna þar fyrir sér með gosanum.
Sagnhafi tók á ♣K heima og lagði út
öll trompin, eitt af öðru. Í fjögurra
spila endastöðu átti blindur ♦K og
♣ÁD7. Heima átti sagnhafi ♥G2, ♦7
og ♣10. En austur? Hann var enn að
velja síðasta afkastið frá ♥K, ♦Á og
♣986. Loks henti hann ♥K. Suður tók
þá ♣10, spilaði tígli og … Sheinwold
gat skorist í leikinn.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú ættir að nota daginn til að
heimsækja foreldra þína eða aðra sem þú
hefur tekið þér til fyrirmyndar. Sinntu
reikningum, tölvupósti, garðvinnu - ótrú-
legt hve mikið er hægt að hreinsa í einu.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Einhverjir draugar úr fortíðinni eru
að vefjast fyrir þér. Fáðu þér göngutúr og
láttu hreina loftið feykja leiðindum á bak
og burt.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Láttu ekki hugfallast þótt eitt-
hvað gangi þér í móti í vinnunni. Þú vilt
láta hendur standa fram úr ermum og ná
árangri.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ert fús til að leggja meiri
áherslu á gæði en flestir, sérstaklega í
mat og drykk. Njóttu tilbreytingarinnar
og komdu svo hress til starfa á ný.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ert viðkvæm/ur núna og þarft að
gera upp við þig hvort þú viljir að fólk
segi að þú sért fullkominn eða leggi spilin
á borðið.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ert farinn að taka vinnuna með
þér heim sem bitnar á einkalífi þínu.
Skoðaðu málið og taktu svo ákvörðun.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Af þér fer orðstír sem þú hefur unnið
til og þú munt gera eitthvað til að bæta
hann eða vernda. Njóttu fegurðar náttúr-
unnar með þínum nánustu.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Dagurinn fer í að vera annað-
hvort yfirmáta spenntur eða orðlaus af
undrun. Heimilið er staðurinn þar sem
málin eiga að leysast.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú munt sjá að misjafn sauður
er í mörgu fé. Sár gróa hægt og rólega,
mundu það. Mundu bara að hóf er best í
hverjum hlut.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú gætir fengið góðar hug-
myndir að einhvers konar breytingum á
heimilinu eða innan fjölskyldunnar. Hætt
er við að þú látir freistast og farir yfir
strikið í dag og heilsan bíði tjón af.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Hugsaðu þig tvisvar um áður
en þú lofar einhverjum í dag. Stundum
veltir þú því fyrir þér hvort gjöfin sé ein-
hvers metin, en það er aukaatriði.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þetta er góður dagur til samninga-
viðræðna og hvers konar viðskipta. Gættu
þess þó að segja ekkert sem þú munt sjá
eftir síðar.
Stjörnuspá
7. apríl 1943
Laugarnesspítali í Reykjavík
brann. Hann var byggður árið
1898 sem holdsveikraspítali en
síðustu árin hafði bandaríski
herinn hann til umráða. „Einn
mesti eldsvoði sem hér hefur
orðið,“ sagði í Morgunblaðinu.
7. apríl 1968
Lög um tímareikning öðluðust
gildi kl. 01.00. Samkvæmt
þeim skal hvarvetna á Íslandi
telja stundir árið um kring eft-
ir miðtíma Greenwich.
7. apríl 1979
Ólafslög voru samþykkt á Al-
þingi. Þau fjölluðu um stjórn
efnahagsmála og voru kennd
við Ólaf Jóhannesson forsætis-
ráðherra.
7. apríl 1979
Fjögur systkini úr Vest-
mannaeyjum gengu í hjóna-
band í sömu athöfn í Bústaða-
kirkju, þrír bræður og systir.
Þetta þótti mjög óvenjulegt.
7. apríl 2005
Framhaldsskólanemendur
mótmæltu hugmyndum um
styttingu náms í framhalds-
skólum úr fjórum árum í þrjú
ár.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Angelika Sól Andradóttir og Arn-
ar Breki Ragnarsson voru með tom-
bólu við Austurver og söfnuðu
2.282 krónum sem þau færðu
Rauða krossinum til styrktar Haítí.
Hlutavelta
„ÉG þarf að læra yfir daginn en ætla að taka frí
um kvöldið og elda góðan mat,“ segir Kári Sig-
hvatsson, laganemi, sem er 23 ára í dag.
Á þessum tímamótum minnist Kári með sér-
stökum hlýhug afmælisdaga sinna í æsku þegar
hann hélt ávallt sameiginlegar veislur með systur
sinni, sem á afmæli aðeins þremur dögum fyrr. Sú
venja hefur því miður lagst af, en ein er sú hefð
sem lengi hefur haldist í fjölskyldu Kára og hún er
sú að á afmælisdögum er jafnan hægt að ganga að
nýbökuðum pönnukökum vísum hjá ömmu hans
og vonast hann til að hafa tíma til að gæða sér á
nokkrum rjómapönnsum. Eins og svo oft áður einkennist afmælis-
dagur Kára hinsvegar af yfirvofandi prófatíð, en hann leggur stund á
lögfræði við HR og tekur fyrsta prófið, í samkeppnisrétti, þann 14.
apríl. Unnusta hans, Áslaug Heiða Sch. Th., er einnig laganemi og
munu þau því líklega liggja yfir bókunum í dag en ætla svo að gera vel
við sig í kvöld. „Það er ekki svo oft sem við leyfum okkur að elda fínan
mat, en núna ætlum við að gera lasagne og hafa heimagerða súkku-
laðimús í eftirrétt. Svo horfum á góða bíómynd, þannig gerum við
eins gott úr þessum degi og hægt er miðað við aðstæður.“ una@mbl.is
Kári Sighvatsson laganemi er 23 ára í dag
Lasagne og rjómapönnsur
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is