Morgunblaðið - 07.04.2010, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2010
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
SÝND Í SMÁRABÍÓ, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
HHHH
„Bráðfyndin og ákaf-
lega vel leikin...”
- Þ.Þ., FBL
TÖFRANDI SKEMMTUN
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
HHH
„Fersk skemmtun...”
- S.V., Morgunblaðið
NÆST SÍÐASTISÝNINGARDAGUR
SÝND HÁSKÓLABÍÓI
Sýnd kl. 10:10Sýnd kl. 3:50 og 8
TÖFRANDI SKEMMTUN
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
Emma Thompson
HHH
T.V. - Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6 í 3D með ensku taliSýnd kl. 5:50, 8 og 10:10
Sýnd kl. 4 í 2D með íslensku tali
HHHH
ENTERTAINMENT WEEKLY
„DÁSAMLEGA SKEMMTILEG FLUGFERГ
HHHH- EMPIRE
I Love You Phillip Morris kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára Að temja drekann sinn 3D kl. 3:30 - 5:40 LEYFÐ
I Love You Phillip Morris kl. 3:30 - 5:40 - 8 - 10:20 LÚXUS Að temja drekann sinn 2D kl. 3:30 LEYFÐ
Loftkastalinn sem hrundi kl. 8 B.i. 14 ára Kóngavegur kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 10 ára
Nanny McPhee kl. 3:30 - 5:40 LEYFÐ
The Bounty Hunter kl. 5:40 - 8 - 10:25 B.i. 7 ára
Sýnd kl. 8 og 10:10
Sýnd kl. 4 og 6 í 3D með íslensku tali
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
-bara lúxus
Sími 553 2075
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
www.laugarasbio.isáskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
BÍÓLISTI páskahelgarinnar ber
það með sér að fólk hefur sótt í létt-
ari kvikmyndir og afþreyingu. Í
fyrsta sæti er hin bráðgóða teikni-
mynd How To Train Your Dragon,
Að temja drekann sinn, í öðru sæti
gamanmynd sem segir af mönnum á
miðjum aldri sem ferðast aftur í tím-
ann og kemur þar nuddpottur við
sögu, Hot Tub Time Machine.
Í þriðja sæti er svo nýjasta mynd
sprelligosans Jims Carreys, I Love
You, Phillip Morris, en í henni leikur
Carrey tukthúslim sem fellir hug til
annars sem leikinn er af Ewan
McGregor. Myndirnar í efstu þrem-
ur sætum voru allar frumsýndar fyr-
ir helgi og því nýjar á lista.
Kóngavegur, nýjasta kvikmynd
Valdísar Óskarsdóttur, gerir það
einnig gott, er í fjórða sæti en heild-
artekjur af miðasölu frá fyrstu sýn-
ingu nema nú um 4,5 milljónum
króna. Bounty Hunter með þeim
Jennifer Aniston og Gerard Butler
er enn á topp tíu en fellur úr 1. sæti
niður í 5.
Ný rómantísk kvikmynd, Dear
John, nær 6. sætinu og Emma
Thompson í gervi Nanny McPhee, í
kvikmyndinni Nanny McPhee and
the Big Bang, er í 7. sæti eftir tvær
sýningarvikur. Thompson samdi
handritið einnig.
Enn trekkir Loftkastalinn sem
hrundi að, enda á Stieg heitinn Lars-
son sér marga aðdáendur hér á
landi. Myndin hefur halað inn um 22
milljónir króna frá frumsýningu en
hún hefur verið sjö vikur í bíó og í
10. sæti á listanum að lokinni helgi.
Til stendur að endurgera allar þrjár
kvikmyndirnar um Lisbeth Saland-
er og Mikael Blomkvist, þ.e. í Holly-
wood, og bíða eflaust margir spennt-
ir eftir því að sjá hvaða leikarar eiga
að fara með aðalhlutverkin.
Af íslenskum kvikmyndum öðrum
en Kóngavegi er það að frétta að
The Good Heart er í 14. sæti,
Mamma Gó Gó í 18. og Bjarnfreð-
arson í 24. Bjarnfreðarson heggur
nærri 80 milljónum króna í miða-
sölutekjum og ljóst að sú mynd hef-
ur slegið í gegn hér á landi.
Tekjuhæstu kvikmyndir helgarinnar
Drekatamningar og
tímaflakk í heitum potti
!
" #
$ % # % &
'( #
)
*
+
,
-
.
/
0
)1
Heiti potturinn Hann verður að tímavél í gamanmyndinni Hot Tub Time
Machine sem er í öðru sæti Bíólistans að liðinni helgi.
OFURSKUTLAN Megan Fox hef-
ur verið orðuð við hlutverk hinnar
vígalegu Rauðu Sonju í vænt-
anlegri endurgerð Roberts Ro-
driguez á kvik-
myndinni Red
Sonja frá árinu
1985. Ef satt
reynist mun Fox
bregða sér í
málmbikiní og
sveifla sverði,
líkt og Brigitte
Nielsen gerði
fyrir 25 árum og
lék þá á móti
vöðvatröllinu
Arnold Schwarzenegger.
Þá stendur einnig til að end-
urgera Conan, sem Schwarzeneg-
ger túlkaði eftirminnilega og munu
leiðir Rauðu Sonju og Conans án
efa liggja saman í væntanlegum
endurgerðum. Rauða Sonja birtist
fyrst í teiknimyndasögum, fegursta
og hugrakkasta kona Hyrkaníu,
hvorki meira né minna.
Leikur Fox Rauðu Sonju?
Rauða Sonja Teiknimyndablað
með hetjunni hárfögru.
Megan Fox Fer
hún í málmbikiní?
ÍT-FERÐIR hafa
ákveðið að efna til
hópferðar á tón-
listarhátíðina High
Voltage Festival
sem fram fer í
London 24. og 25.
júlí nk. Á hátíðinni
mun fjöldi hljóm-
sveita koma fram
á þremur sviðum í
Victoria Park og
þ. á. m. hin sögu-
fræga Emerson,
Lake og Palmer.
Tríóið heldur upp á
40 ára starfsafmæli sitt á þessum
tónleikum. Af öðrum má nefna
ZZ Top, Heaven & Hell, Black
Label Society, UFO, Venom, Qui-
reboys, Uriah Heep, Focus,
Bachman & Turner, Argent, Asia,
Foreigner, Opeth, Clutch, Down,
Marillion, Steve Hackett, Gary
Moore og Joe Bonamassa. Ekki
komast þó margir í ferðina því
aðeins 20 sæti eru í boði í þessa
þriggja nátta ferð.
Reuters
ZZ Top Gamlingjar í fullu fjöri, eins og sjá má.
Hópferð á High Voltage