Morgunblaðið - 07.04.2010, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2010
NÝJUSTU fréttir af eiginmanni leikkonunnar
Söndru Bullock, brátt fyrrverandi eiginmanni,
Jesse James, eru þær að hann sé byrjaður aftur í
meðferð við kynlífsfíkn í Arizona, en áður höfðu
borist þær fréttir að hann hefði skráð sig úr með-
ferð eftir einungis vikudvöld. Meðferðin tekur 45
daga en James kenndi fjölmiðlum um að hann
hefði ekki enst lengur þegar hann hætti í með-
ferðinni eftir vikudvöl, af því að fréttum af gangi
mála hefði verið lekið úr meðferðarstofnuninni.
Þá segja aðrir heimildarmenn að James hafi hætt
í meðferð þegar honum varð ljóst að hjónabandi
þeirra Bullock væri lokið. Bullock er sögð full-
södd á bifhjólavirkjanum sem ku hafa haldið
ítrekað framhjá henni með ótal konum.
Jesse James
aftur í meðferð
Reuters
Bullock og James Á góðri stund í upphafi árs.
LEIKARINN Jake Gyllenhaal hóf
að stunda íþróttina eða hreyfilistina
„parkour“ áður en tökur hófust á
Prince of Persia: The Sands of Time,
en hlutverkið krafðist mikils líkam-
lega af leikaranum. Parkour heitir
það þegar menn hlaupa um borg og
bý og reyna að komast yfir hindranir
án hjálpartækja, þ.e. beita líkam-
anum eingöngu.
Gyllenhaal segist aldrei hafa lagt
jafnmikið á sig fyrir hlutverk, enda
hafi hann viljað vera í sem allra
bestu formi. Upphafsmaður park-
our, David Belle, þjálfaði leikarann.
Gyllenhaal segist hafa byrjað á því
að stökkva fram af hinu og þessu og
lært grunnatriðin en svo hafi harka
færst í leikinn. Á köflum hafi honum
ekki litist á blikuna en látið engu að
síður vaða. Hann vilji leggja sig
110% fram í vinnunni.
Gyllenhaal segist hafa leikið í erf-
iðum áhættuatriðum í myndinni og
segir í samtali við tímaritið People
að sum þeirra hafi verið býsna
hættuleg.
Jake Gyllenhaal Í fínu parkour-
formi sem Persíuprinsinn.
Kom sér í form
með „parkour“
BANDARÍSKI leikarinn Dennis Hop-
per, sem berst við krabbamein í
blöðruhálskirtli, þarf að greiða eig-
inkonu sinni, Victoriu Duffy Hopper,
og sjö ára dóttur þeirra, 12 þúsund
dollara á mánuði meðan á skilnað-
ardeilu þeirra stendur fyrir rétti í
Los Angeles. Þá hefur Victoria einn-
ig fengið heimild frá dómara til að
búa í húsi Hoppers meðan á deilunni
stendur ásamt dóttur sinni.
Hopper er orðinn 73 ára gamall og
mun illa haldinn af krabbameini.
Eiginkonan segir að Hopper hafi ætl-
að að gera sig arflausa en Hopper
segir hana hafa komið illa fram við
sig, m.a. tekið frá sér listaverk að
verðmæti um 1,5 milljónir dollara.
Victoria segir Hopper hafa hótað
sér og reykt gras fyrir framan dótt-
ur þeirra. Dennis og Victoria hafa
verið gift í 14 ár og búa í sama húsi
á Venice Beach í Kaliforníu. Í mars
sl. kvað dómari upp þann úrskurð
að Victoria yrði að halda sig í tíu
feta fjarlægð frá Hopper, að lág-
marki.
Hopper greindist með krabba-
meinið í október í fyrra og mun
vera dauðvona.
Reuters
Hopper Með dóttur sinni Galen (t.v.) og barnabarninu Violet Goldstone þeg-
ar hann hlaut stjörnu á frægðarstígnum í Hollywood 26. mars sl.
Eiginkona Hoppers fær
mánaðarlegar greiðslur
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Morgunblaðið gefur út glæsilegt
sérblað um Heimili og hönnun
föstudaginn 23. apríl.
Í blaðinu verða kynntir geysimargir
möguleikar og sniðugar lausnir
fyrir heimilin.
Skoðuð verða húsgögn í stofu,
hjónaherbergi, barnaherbergi og
innréttingar bæði í eldhús og bað.
MEÐAL EFNIS:
Hvaða litir verða áberandi í vor og sumar?
Hönnun og hönnuðir
Sniðugar lausnir
Stofan
Eldhúsið
Baðið
Svefnherbergið
Barnaherbergið
Innlit á fallegt heimili
Þjóvavörn
Vorverkin á heimili og í garðin
Ásamt fullt af öðru
spennandi efni um
heimili og hönnun
Heim
ili o
g hö
nnu
n
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Heimili og hönnun
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 12, mánudaginn 19. apríl.
BESTA LEIKKONA
Í AÐALHLUTVERKI
SANDRA BULLOCK
TILNEFND SEM
BESTA MYND
„Ein af 10 BESTU
myndum Þessa árs“
Maria Salas TheCW
„Besta Frammistaða
Söndru Bullock til þessa“
Pete Hammond
- Box Office Magazine
HHHH
“…frábær þrívíddar
upplifun…”
JEFF CRAIG,
SIXTY SECOND PREVIEW
SÝND Í ÁLFABAKKA
“...fullkomin...”
LEONARD MALTIN,
ENTERTAINMENT TONIGHT
“Meistaraverk“
PETE HAMMOND
- BOXOFFICE MAGAZINE
„Besta mynd Tim Burton‘s í áraraðir“
DAN JEWEL - LIFE & STYLE WEEKLY Disney færir okkur hið
stórkostlega ævintýri um
Lísu í Undralandi og nú í
stórkostlegri þrívídd
Aðsóknarmesta mynd
Tim Burtons
fyrr og síðar
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA
RÓMANTÍSK GAMANMYND
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR
THE PROPOSAL
HHHH
- EMPIRE
„A FLAT-OUT
FANTASTIC FILM“
– A.N. BOXOFFICE
„GEORGE CLOONEY
IS HILARIOUS“
– P.T. ROLLING STONE
HHH
– H.S.S MBL
„GEORGE CLOONEY
STENDUR SIG
FRÁBÆRLEGA...“
HHHH
- ROGER EBERT
SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
HHH
- I.G. MBL
AÐ TEMJA DREKANN SINN ísl. tal kl. 8 L
BOUNTY HUNTER kl. 10:20 12
GREEN ZONE kl. 8 12
FROM PARIS WITH LOVE kl. 10:20 16
AÐ TEMJA DREKANN SINN ísl. tal kl. 63D L THE LOVELY BONES kl. 10 12
HOW TO TRAIN YOUR DRAGON kl. 83D enskt tal L WHEN IN ROME kl. 6 - 8 L
HOT TUB TIME MACHINE kl. 10D L
HOT TUB TIME MACHINE kl. 8 - 10:10 L
AÐ TEMJA DREKANN SINN ísl. tal kl. 8 L
FROM PARIS WITH LOVE kl. 10:10 16
/ KEFLAVÍK / SELFOSSI/ AKUREYRI