Morgunblaðið - 26.04.2010, Page 9

Morgunblaðið - 26.04.2010, Page 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2010 UMHVERFISVOTTUÐ PRENTSMIÐJA Ómar Stefánsson kokkur 50 ilmandi matseðlar. Oddi fyrir þig, þegar hentar, eins og þér hentar. Prentun frá A til Ö. Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is Opið virka daga kl. 9-18 og lau. kl. 10-16 Laugavegi 20 - Sími 552 4320 - www.brynja.is - brynja@brynja.is Póstkassar margar gerðir Bréfalúgur, dyrahamrar og húsnúmer www.birkiaska.is Birkilauf- Betulic Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Eftir Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is KERFISBUNDIN skekkja varð á dómgreind stjórnenda bankanna, almennings og stjórnmálamanna við þær aðstæður sem ríktu á Ís- landi fyrir árið 2008 . „Ég færi rök fyrir því hvernig allir í sam- félaginu, allt frá bankamönnum til grunnskólakennara, vildu að ís- lenskt efnahagslíf héldi áfram að blómstra,“ segir Hulda Þóris- dóttir, lektor í stjórnmálafræði, en hún flytur í erindi í fundaröðinni Uppgjör, ábyrgð og endurmat: lærdómar af skýrslu rannsóknar- nefndar Alþingis, sem haldin er á vegum Háskóla Íslands og hleypt verður af stokkunum í hádeginu í dag. Hjarðhegðunin vandamál Það var þessi vilji sem skerti dómgreind fólks fyrir bankahrunið að mati Huldu. Hjarðhegðun sé þó einnig vandamál sem huga þurfi að í fortíð og framtíð. „Það er sér- stök stemning í samfélaginu í dag, sem er skiljanlegt. Hún er þó líka vara- söm. Fólk má ekki hafa aðra skoðun en þá ríkjandi, annars er það úthrópað fyrir það. Þann- ig andrúmsloft er litlu og einsleitu samfélagi eins og Íslandi hættu- legt.“ Erindi Huldu ber yfirskriftina „Efnahagshrunið sem afsprengi aðstæðna og fjötraðrar skynsemi“ og byggist á viðauka sem hún skrifaði við siðferðishluta skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Fjallar hann um aðdraganda og orsakir hrunsins frá sjónarhóli kenninga og rannsókna í félagslegri sál- fræði. Fyrirlestrar verða haldnir á hverjum degi í þessari viku í stofu 132 í Öskju og eru þeir opnir öll- um. Þá verða þeir teknir upp og birtir á vef skólans. kjartan@mbl.is Aðstæður skertu dómgreind fólks  Lærdómar rannsóknarskýrslunnar Hulda Þórisdóttir Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is UM 90 kílómetrar af hjólastígum verða lagðir í Reykjavík næstu tíu árin til viðbótar við þá tíu kílómetra sem fyrir eru, samkvæmt nýrri hjól- reiðaáætlun sem samþykkt hefur verið í borgarstjórn. Þá tekur áætl- unin einnig til þess hvernig hægt er að stuðla að auknum hjólreiðum í borginni með fræðslu og kynningu. Að sögn Pálma Freys Randvers- sonar, sérfræðings í samgöngu- málum á umhverfis- og samgöngu- sviði borgarinnar, gengur áætlunin út á að útbúa alvöruhjólastígakerfi í borginni en ýmsar útfærslur verða á því hvers konar stígar verða lagðir. Horfa m.a. til Danmerkur „Við höfum gert alls kyns til- raunir í stígagerð undanfarin ár, s.s. að leggja stígabúta meðfram umferð á Laugaveginum og í Lönguhlíðinni. Sums staðar höfum við sett upp svo- kallaða hjólavísa sem vekja athygli bílstjóra á því hvar líklegt er að hjól- andi vegfarendur séu á ferðinni á götunum, og víða er pláss til að mála hjólreiðarönd meðfram umferðar- götunum. Við ætlum líka að vinna áfram með þá stíga sem fyrir eru og að- skilja þar umferð gangandi og hjól- andi vegfarenda með því að leggja sérstaka stíga við hliðina á þeim sem fyrir eru. Svo verður líka farið út í lausnir á borð við þær sem eru nýttar í Dan- mörku þar sem alvöruhjólastígar eru lagðir meðfram götunum. Það fer einfaldlega eftir aðstæðum hvaða leið verður valin hverju sinni.“ Pálmi segir áætlunina, sem gildir til ársins 2020, kosta töluvert. „Það á að leggja tíu kílómetra á ári og peningunum verður þá forgangs- raðað í það en kostnaðurinn verður svolítið breytilegur eftir því hvaða lausn verður notuð hvar.“ Og tíminn til að ráðast í slíka áætlun er núna, segir Pálmi. „Við finnum fyrir mjög auknum áhuga og heyrum reglulega í hjólreiða- samtökum. Eins erum við með taln- ingar sem sýna að hjólreiðafólki er greinilega að fjölga í borginni, enda hvetur allt til þess að fólk fari út að hjóla, s.s. hækkandi bensínverð og umhverfislegur sparnaður, fyrir ut- an hvað þetta er góð líkamsrækt.“ Hjólastígakerfið í borginni tífaldað næsta áratuginn Í HNOTSKURN »Gert er ráð fyrir hraðbrautfyrir hjól milli Laugardals og miðborgar og brú yfir Elliðaárósa fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. »Rætt er um brú yfir Breið-holtsbraut sem myndi tengja Norðlingaholt við Árbæ. »Ef 10% ökuferða færðustyfir á hjól spöruðust 50 þús- und eknir km á götum borgar- innar dag hvern. »Átakið Hjólað í vinnunahefst 5. maí næstkomandi, í áttunda sinn. Breyting Hugmynd að því hvernig hjólastígar í Borgartúninu gætu litið út.  Hjólreiðaáætlun til ársins 2020 samþykkt í borgarstjórn Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is ALLS var 151 mál tilkynnt og skráð hjá Rannsóknarnefnd sjóslysa á síð- asta ári. Tvö banaslys urðu 2009, en ekkert banaslys átti sér stað árið á undan og segir Jón Arelíus Ingólfs- son, forstöðumaður Rannsóknar- nefndar sjóslysa, það líklega í fyrsta skipti frá því að Íslendingar fóru að hafa atvinnu af sjómennsku. 57 slys urðu þá á fólki á sjó í fyrra og er það um 11% fækkun frá árinu á undan og 28% undir meðaltali áranna 2000-2008. „Við hjá Rannsóknar- nefnd sjóslysa höfum gert ýmsar til- lögur í öryggisátt sem sendar hafa verið Siglingastofnun til meðferðar,“ segir Jón Arelíus. Það sé þó ekki hvað síst að þakka starfi Slysavarnaskóla sjómanna að slysunum fari fækkandi . „Síðan eru sjómenn í dag líka mun meðvitaðri um slysahættuna en áð- ur.“ Þá hafi minni starfsmannavelta á fiskiskipum sitt að segja, enda skipti miklu að hafa vant fólk um borð. Mikill fjöldi þeirra sem skoða sjó- slysaskýrslur og slysatilkynningar sem birtar eru á vef Rannsóknar- nefndar sjóslysa er til vitnis um að sjómenn sýna þessum málefnum mik- inn áhuga, en algengt er að 5.000- 6.000 heimsóknir mælist við eina skýrslu. „Menn fylgjast með því hvað er að gerast og draga lærdóm af ,“ segir Jón Arelíus. Áherslan sem nefndin leggur á að hraða rannsókn mála hefur líka sitt að segja. Ekki tilkynnt um öll slys Nefndinni er þó ekki tilkynnt um öll slys og segir Jón Arelíus það mið- ur. „Ef málið er sent Tryggingastofn- un þá á að senda okkur það líka, jafn- vel þó það sé ekki stórt.“ Rannsóknarnefndin vinni markvisst að því að byggja upp tölfræði og þar skipti litlu hlutirnir líka máli. „Þannig getur til að mynda vaknað spurning um það hvort við séum sátt við að sama smáslysið eigi sér kannski ítrekað stað, atvik sem annars hefði kannski ekki verið vakin athygli á.“ Meira vakandi fyrir slysahættu  Slysum á fólki á sjó fer fækkandi Yfirlit um mál til RNS frá 2000 til 2009 Eðli mála 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 Meðaltal 2000-2008 Skip sekkur 10 6 4 7 16 7 4 6 8 8 8 Skip strandar 14 10 11 7 16 16 21 21 16 11 15 Árekstur 6 11 7 4 3 9 12 4 13 5 8 Eldur um borð 8 15 5 3 5 10 5 7 7 8 7 Leki að skipi 3 1 5 8 10 7 7 3 4 3 5 Slys á fólki 64 63 103 85 89 88 83 49 64 55 76 Banaslys 2 7 2 2 3 3 4 5 0 1 3 Banaslys við köfun 1 1 Önnur köfunaratvik 4 1 1 1 Skip dregin til hafnar 2 9 9 15 57 40 49 22 Annað 4 8 11 17 0 19 21 21 20 10 13 Skráð mál 116 121 149 136 151 168 172 171 172 151 157 FYRSTU kríurn- ar sáust á laugar- dag við Ósland við Höfn á Hornafirði. Að sögn Brynjúlfs Brynjólfssonar fuglaáhugamanns er ekki vitað hve margir fuglar eru komnir en mest hafa um tíu sést saman á flugi. Að- spurður segir hann flug farfuglanna ekki truflast vegna öskunnar úr gos- inu í Eyjafjallajökli sem hefur lamað flugsamgöngur í Evrópu undanfarið. „Þetta truflar nú fuglana lítið. Þeir fljúga langt fyrir neðan öskuna.“ kjartan@mbl.is Krían kom- in á Höfn Krían er mætt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.