Morgunblaðið - 26.04.2010, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2010
10 Daglegt líf
Hlíðasmára 14
sími 588 2122
www.eltak.is
Eltak sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
líðas ára 14
Sí i 588 2122
.eltak.is
Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja
mælum • skiptum um • traust og fagleg þjónusta • 30 ára reynsla
MEÐ TUDOR
fæst í Sólningu Kópavogi, Njarðvík og Selfossi
og Barðanum Skútuvogi
Morgunblaðið/Kristín Ágústs
Skapandi krakkar Það var 10. bekkur sem sigraði í Úlfur úlfur! Hér fínpússa þeir atriðið ásamt Evu Halldóru.
Eftir Kristínu Ágústsdóttir
kristin@na.is
Nemendur í elstu bekkjumNesskóla eru skapandiog hugmyndaríkirkrakkar segir Katrín
Halldóra Sigurðardóttir sem hefur
boðið þeim til þátttöku í tilrauna-
verkefni í leiklist. Verkefnið nefnist
Úlfur úlfur! og er nokkurs konar
hæfileikakeppni í skapandi sviðs-
listum fyrir nemendur 7.-10.bekkjar
á Norðfirði. Verkefnið mótaði Katrín
Halldóra og bauð svo nemendum
Nesskóla til samvinnu. „Með rausn-
arlegum styrkjum frá góðum fyrir-
tækum varð þetta mögulegt, en án
styrkjanna hefði þetta aldrei orðið að
veruleika“.
Skapandi hópastarf gegn einelti
Markmiðið er að vekja áhuga ungs
fólks á skapandi verkefnavinnu og
frumlegri hugsun, vinna gegn einelti
og styrkja sjálfsmynd einstaklinga
með öflugu hópastarfi og stuðla að
listsköpun og menningarviðburðum í
samfélaginu.
Sviðslistir af öllu tagi
Alls tóku um 90 nemendur þátt í
verkefninu sem fólst í margvíslegri
verkefna- og hugmyndavinnu tengdri
sviðslistum hvers konar undir leið-
sögn Katrínar Halldóru, Evu Hall-
dóru Guðmundsdóttur og Odds Júl-
íussonar í svokölluðum smiðjum sem
haldnar voru í tvígang. Frumleg og
skapandi leiklist, sviðslýsing, dans,
ljósavinna, hljóðvinna, hárgreiðsla og
förðun, tónlist og hvaðeina sem við-
kemur sviðslist var viðfangsefni nem-
endanna. Á milli þess sem nemendur
fengu leiðsögn unnu þau sjálf að eigin
sköpun. Mikið fjör var í þessum
smiðjum og greinilegt að nemendur
og leiðbeinendur náðu vel saman.
10. bekkur sigraði
Verkefninu lauk sl.þriðjudagskvöld
með Kveldúlfshátíðinni þar sem
Skapandi og hug-
myndaríkir krakkar
Nemendum í 7.-10. bekk á Norðfirði bauðst að taka þátt í verkefninu Úlfur úlfur!
sem er nokkurs konar hæfileikakeppni í skapandi sviðslistum. Níutíu nemendur
tóku þátt og lauk verkefninu á Kveldúlfshátíðinni þangað sem öllum bæjarbúum
var boðið og bekkirnir kepptu sín á milli um besta atriði.
Leikfélagið Hugleikur sýnir nú nýtt ís-
lenskt leikrit, sem nefnist Rokk, í hús-
næði Hugleiks að Eyjarslóð 9. Rokk
fjallar um tvær hljómsveitir sem deila
með sér æfingahúsnæði. Eins og gefur
að skilja koma upp ýmsir árekstrar og
flækjur, og það setur óneitanlega strik
í reikninginn að í annarri sveitinni eru
eingöngu strákar, en hin er aðeins
skipuð stelpum. Þar að auki koma við
sögu eigandi húsnæðisins og dular-
fullur fylgisveinn hennar. Tónlist leikur
stórt hlutverk í sýningunni.
Leikstjóri verksins er Þorgeir
Tryggvason og höfundar eru: Ásta
Gísladóttir, Júlía Hannam, Sigurður H.
Pálsson og Þórarinn Stefánsson.
Verkið var frumsýnt á föstudaginn
og aðeins eru fimm sýningar á því svo
það er um að gera að tryggja sér miða
sem fyrst. Næsta sýning er á fimmtu-
daginn og tvær eftir hann. Miða-
pöntun fer fram á vef Hugleiks,
www.hugleikur.is.
Endilega....
Reuters
Rokk Trujillo í Metalica er rokkari.
...reddaðu þér miða á Rokk
REGLAN um 72 er mikilvæg, ofur-
einföld þumalputtaregla til þess að
reikna út hvernig peningar vinna og
það tekur einungis um tvær mínútur
að ná tökum á henni.
Segja má að sá sem lánar pen-
inga sé að leigja þá út. Vextir eru
því nokkurs konar leigugjald sem
lántakandi greiðir lánveitanda fyrir
afnot af peningunum hans sem
hann myndi að öðrum kosti nota í
eitthvað annað. Þegar þú leigir út
íbúð í þinni eigu færðu leigugjald;
þegar þú lánar peninga (til dæmis
með því að leggja þá inn á banka-
reikning) færðu leigugjald fyrir í
formi vaxta. „...Svo færðu vexti og
vaxtavexti og vexti líka á þá,“ eins
og segir í gamalli bankaauglýsingu.
Albert Einstein ku hafa sagt að
vaxtavextir væru „mikilvægasta
stærðfræðiuppfinning allra tíma.“
Enda er undramáttur vaxtavaxta
mikill. 10% vextir af 1.000 kr. eru
100 krónur á fyrsta tímabili útreikn-
ings, eða samtals 1.100 kr. Næst
eru reiknaðir 10% vextir af 1.100 kr.
sem eru 110 kr. og þeir lagðir við
höfuðstólinn, og svo koll af kolli.
Upphæð sem ber 10% vexti er
þannig rúm 7 ár að tvöfaldast.
Reglan í hnotskurn:
Til að reikna árafjöldann sem tek-
ur upphæð að tvöfaldast skaltu
deila 72 með vaxtaprósentunni:
72/vextir =árafjöldi til tvöföld-
unar
Dæmi: Yfirdráttarlán bera um
15% vexti: 72/15=4,8. Upphæð yf-
irdráttarláns tvöfaldast á tæpum 5
árum sé hún ekki greidd niður.
Líttu nú á hvað gerist í hvert sinn
sem upphæð tvöfaldast:
1 kr. ... 2 kr. ... 4 kr. ... 8 kr. ... 16
kr. ... 32 kr. ... 64 kr. ... 128 kr. ...
256 kr.
Þess vegna er svo mikilvægt að
peningar sem þú átt tvöfaldist sem
oftast og skuldir þína geri það sem
sjaldnast. En hversu oft mun upp-
hæð tvöfaldast á tilteknum tíma?
Til að komast að því skaltu deila út-
komunni í dæminu að ofan með ára-
fjöldanum.
Dæmi: Hversu oft tvöfaldast yf-
irdráttarlán á 20 ára tímabili?
20/4,8=4,2
Yfirdráttarlán tvöfaldast rúmlega
4 sinnum á 20 ára tímabili sé það
ekki greitt niður.
100.000 kr. yfirdráttarlán verður
því rúmar 1.600.000 kr.
Núna hefurðu lært undirstöðu-
atriði reglunnar um 72. Nýttu þér
hana til að láta fjárfestingu tvöfald-
ast aðeins oftar yfir langan tíma og
eftirlaunasjóðurinn gæti orðið marg-
falt stærri. Hugsaðu líka um hversu
hratt skuldir sem bera háa vexti
vaxa. Það getur skipt sköpum við
lántökur og fjárfestingu að gera sér
grein fyrir tvöföldunartíma fjár.
Breki Karlsson er forstöðumaður
Stofnunar um fjármálalæsi og vinnur
að eflingu fjármálalæsis Íslendinga.
Fjármálalæsi
Hvernig vinna peningar?
Gott er að nýtta sér regluna um 72 til að láta fjárfestingu tvöfaldast sem oftast.