Morgunblaðið - 26.04.2010, Page 12
12 Viðskipti
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2010
Eftir Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
ÓJAFNVÆGI í alþjóðaviðskiptum
og mikil skuldabyrði fullvalda ríkja
voru meginstef vorfundar Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins. Eins og fram
kom á fundi Dominique Strauss-
Khan, framkvæmdastjóra sjóðsins,
um helgina hefur alþjóðahagkerfið
rétt úr kútnum að undanförnu en
hinsvegar eru efnahagshorfur ein-
stakra ríkja mjög ólíkar. Umtals-
verður slagkraftur er í hagkerfum
nýmarkaðsríkja á borð við Kína,
Brasilíu og Indland á meðan horf-
urnar eru dekkri í þróuðustu hag-
kerfum heims beggja vegna Atlants-
ála.
Skuldsetning hins opinbera í
þróuðu hagkerfum er verulegt
vandamál að mati sérfræðinga
sjóðsins. Því er spáð að öllu
óbreyttu að skuldir hins opinbera í
þróuðu hagkerfunum verði að með-
altali um 100% af landsframleiðslu
árið 2014 og hafa slík hlutföll ekki
sést síðan í seinni heimstyrjöldinni.
Þetta skuldahlutfall var um 60% áð-
ur en fjármálakreppan brast á og til
þess að ná því aftur niður á næstu
áratugum þurfa stjórnvöld að með-
altali að skera niður útgjöld um 8%
af landsframleiðslu fyrir árið 2020
og halda svo útgjöldunum óbreytt-
um eftir það að mati sérfræðinga
sjóðsins.
Þrátt fyrir að ekki sé rætt um það
í formlegum yfirlýsingum AGS blas-
ir við að slíkur niðurskurður yrði
sársaukafullur, ekki síst í þeim ríkj-
um þar sem skuldavandi er yfir
meðallagi og þar með nauðsynlegt
að ganga enn lengra í aðhalds-
aðgerðum.
Gjaldeyrismál ekki rædd
Hin hliðin á skuldavanda þróuðu
ríkjanna er skipan mála á gjaldeyr-
ismörkuðum. Sem kunnugt er hafa
stjórnvöld í Bandaríkjunum lagt
hart að kínverskum stjórnvöldum að
leyfa gengi júansins að styrkjast
gegn Bandaríkjadal og öðrum helstu
gjaldmiðlum. Væri slík gengisstyrk-
ing liður í að auka eftirspurn Kín-
verja eftir útflutningsvörum Vestur-
landa og myndi það þar af leiðandi
draga úr halla á milliríkjaviðskiptum
þeirra síðarnefndu við Kína.
Gjaldeyrismálin voru ekki rædd á
fundi fjármálaráðherra sem sitja í
fjárhagsnefnd AGS um helgina þrátt
fyrir að mikilvægi þeirra um þessar
mundir sé nánast óumdeilt. Eftir
fundinn sagði Alistair Darling, fjár-
málaráðherra Bretlands, við blaða-
mann Financial Times að nafn kín-
verska gjaldmiðilsins hefði ekki einu
sinni verið nefnt á fundinum. Enn-
fremur var haft eftir ráðherranum
að þrátt fyrir að allir vissu að ójafn-
vægið í viðskiptum þróaðra hag-
kerfa og nýmarkaðshagkerfa væri
brýnasta úrlausnarefnið í alþjóða-
hagkerfinu hefði ekki verið rætt um
hvernig breyting á gengi gjaldmiðla
gæti stuðlað að auknu ójafnvægi.
Misjafnar efnahagshorfur
Ójafnvægi og skuldavandi þjóða efst á baugi á vorfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington
Sársaukafullur niðurskurður óhjákvæmilegur hjá skuldsettum ríkjum um víða veröld
REUTERS
Á vakt Lögreglumenn á hjólum fyrir utan höfuðstöðvar Alþjóðabankans í Washington DC, þar sem vorfundur AGS fer fram.
ÁLAG á skuldatryggingar Grikkja
náði 610 stigum á föstudaginn, en
ávöxtunarkrafa á grísk ríkisskulda-
bréf náði nýjum hæðum og gengi
þeirra þar með nýjum lægðum á
fimmtudaginn. Krafa á 10 ára bréf fór
þá í 8,33% og hefur ekki verið hærri
síðan Grikkir gengu í myntbandalagið
árið 2001. Þetta kom í kjölfar þess að
Eurostat, hagstofa Evrópusambands-
ins, tilkynnti að fjárlagahalli Grikkja á
árinu 2009 hefði numið 13,6% af vergri
landsframleiðslu, en ekki 12,9% eins
og áður hafði verið gert ráð fyrir.
George Papandreou Grikklands-
forseti bað á föstudaginn um að 30
milljarða evra lánalínu Evrópusam-
bandsins yrði sem fyrst kastað til
Grikkja. Búist er við því að Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn leggi að auki til
lánsfé upp á 10-15 milljarða evra, en
nú standa yfir samningaviðræður
Grikkja við nefnd frá Evrópuráðinu,
Evrópubankanum og AGS um vaxta-
kjör á lánum og lánalínum.
Ýmsir fréttaskýrendur eru á þeirri
skoðun að björgunarpakkinn komi til
með að duga tiltölulega skammt, enda
séu skuldir Grikkja yfir 400 milljarðar
evra og þar af komi 50 milljarðar til
greiðslu í ár.
Þá sýna skoðanakannanir að tveir-
þriðju þýsku þjóðarinnar eru á móti
því að Grikkjum sé bjargað.
ivarpall@mbl.is
Grikkir nálgast
bjargbrúnina
Skuldatryggingaálag aldrei hærra
Reuters
Grikkir Hið opinbera skuldar yfir
400 milljarða evra.
BANDARÍSKI
tölvurisinn Apple
hyggst opna nýja
verslun í Mið-
London á næst-
unni, en nú búa
starfsmenn fyrir-
tækisins sig und-
ir að hefja sölu á
iPad-spjaldtölv-
unni í Bretlandi.
Að því er fram kemur í frétt Daily
Telegraph er fyrirtækið nú að ráða
starfsfólk í verslunina, sem verður í
hjarta Covent Garden - nánar til-
tekið þar sem næturklúbburinn
Rock Garden var áður. Hún verður
opnuð innan örfárra mánaða.
Búist er við því að nýja Apple-
búðin muni velgja Apple-búðinni á
Regent-stræti undir uggum í
keppninni um arðsömustu verslun
breska konungsveldisins, mælt á
fermetra. Sú síðarnefnda halar inn
60 milljónir punda á ári, eða 2.000
pund á ferfet. Það er tvöfalt meira
en tekjur Harrods á sama mæli-
kvarða.
Bretar búa sig undir iPad
Apple Ný búð.–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Þann 14.maí gefur Morgunblaðið út
sérblað Ferðasumar 2010
ferðablað innanlands.
Ferðablaðið mun veita upplýsingar
um hvern landshluta fyrir sig.
Ferðablaðið höfðar til allrar
fjölskyldunnar, þannig að allir ættu
að finna sér stað eða skemmtun
við hæfi.
MEÐAL EFNIS:
Fjölskylduvænar uppákomur um land allt.
Hátíðir í öllum landshlutum
Gistimöguleikar.
Ferðaþjónusta.
Útivist og náttúra.
Uppákomur.
Skemmtun fyrir börnin.
Sýningar.
Gönguleiðir.
Tjaldsvæði.
Skemmtilegir atburðir.
Ásamt fullt af öðru
spennandi efni.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, föstudaginn 7. maí.
Ferðasumar 2010
ferðablað innanlands