Morgunblaðið - 26.04.2010, Side 32

Morgunblaðið - 26.04.2010, Side 32
MÁNUDAGUR 26. APRÍL 116. DAGUR ÁRSINS 2010 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 1. Einn kom með veghefil 2. 17 slösuðust þegar flugvél féll 3. Geimverur geta verið ... 4. Mikilfenglegar jökulbrýr »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Leikritið Íslandsklukkan fær mjög góða dóma hjá rýni Morgun- blaðsins, Guðmundi S. Brynjólfs- syni. Segir hann m.a.: „Ekki verður annað séð en að leikstjórn Bene- dikts Erlingssonar gangi upp að langmestu leyti. Hann hefur auð- vitað kafað djúpt í verkið, hafandi samið leikgerðina sjálfur. Þetta veldur því að hann færir okkur mjög heilsteypta og sanna mynd af framvindu þessarar sögu – best finnst mér honum takast upp í því að gera þessa sögu að línulegu ævintýri, aðgengilegu á leiksviði hverjum þeim sem lifir við þá skömm að hafa ekki lesið Íslands- klukkuna.“ Dóminn, sem er bæði ítarlegur og listavel skrifaður, má lesa á síðu 28. Íslandsklukkan fær lofsamlega dóma  Dægurmenn- ingarritið Paste Magazine birti kersknislega grein fyrr í vik- unni. Segir þar að fúllyndir Evrópu- búar ættu ekki að gera Íslendinga að sökudólgum vegna eldfjallsins góða. Í kjölfarið fylgir svo spilunarlisti með lögum ís- lenskra listamanna til að sefa reiði þeirra sem liggja á flugvöllum víðs- vegar um Evrópu og reyna að fá sér lúr. Meðal annars er þar að finna lög með Jónsa, Lay Low, Hjaltalín, Mug- ison, Retro Stefson og Seabear. Lækning við Eyjafjallablús Á þriðjudag Austan 3-8 m/s og víða bjartviðri, en hvassara, skýjað og lítils háttar úr- koma við suðurströndina. Bætir í vind og úrkomu um kvöldið. Hiti 2 til 9 stig. Á miðvikudag Austan- og norðaustanátt, víða á bilinu 8-15 m/s. Þurrt vestanlands, ann- ars rigning, en slydda NA-til. Hiti 1 til 11 stig, hlýjast á Vesturlandi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægur vindur, svolítil væta á Suður- og Vesturlandi en annars þurrt. Hiti 0 til 8 stig yfir daginn, hlýjast suðvestantil. VEÐUR Úrslitin á Íslandsmótinu í körfuknattleik karla gætu ráðist í kvöld í Stykkis- hólmi. Heimamenn í liði Snæfells geta með sigri tryggt félaginu Íslands- meistaratitilinn í fyrsta sinn í sögunni. Keflavík er undir í einvíginu, 2:1, en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki verður meistari. Snæfell lagði Keflavík í þriðja leiknum á útivelli á laugardag. »3 Snæfell skrefi frá meistaratitlinum Brenton Birmingham, íslenski lands- liðsmaðurinn í körfuknattleik, hefur ákveðið að leggja keppn- isskóna á hilluna. Brenton, sem leikið hefur með Grindavík undanfarin ár, er á 38. aldursári en hann hefur leikið á Ís- landi frá árinu 1998 og þrívegis fagnað Ís- lands- meist- aratitlinum á þeim tíma. » 1 Brenton Birmingham leggur skóna á hilluna Chelsea herti tökin á efsta sætinu með 7:0-sigri gegn Stoke í ensku úr- valsdeildinni. Chelsea er með eitt stig í forskot á Manchester United þegar tvær umferðir eru eftir. Liver- pool á enn möguleika á að ná fjórða sætinu eftir 4:0-sigur gegn Burnley sem féll með formlegum hætti úr efstu deild eftir eins árs veru á meðal þeirra bestu. »7 Gríðarleg spenna í meistarabaráttunni ÍÞRÓTTIR Eftir Stefán Stefánsson og Ívar Benediktsson sport@mbl.is „ÞAÐ eru tuttugu og sjö ár síðan mamma vann þennan bikar og nú verð ég að fara að unga út svo hægt sé að vinna hann fljótlega aftur. Mamma var mjög ánægð með sigurinn og skilur sigurgleði mína alveg ótrúlega vel. Hún hefur oft lýst fyrir mér hvernig það var að taka við bik- arnum,“ sagði Katrín Andrésdóttir, leikmaður Vals í handknattleik, sem fetaði í gær í fótspor móður sinnar, Magneu Friðriksdóttur, þegar Valur fagnaði Íslandsmeistaratitli með sigri á Fram í fjórðu viðureign liðanna, 26:23, í æsi- spennandi og framlengdum leik á heimavelli Fram. Magnea, móðir Katrínar, var í liði Vals þegar lið félagsins vann Íslandsmeistaratitilinn í hand- knattleik kvenna síðast, fyrir 27 árum. Leikurinn í gær var sennilega síðasti kappleikur Katrínar en vegna þrálátra meiðsla í baki reiknar hún með að leggja keppnisskóna á hilluna nú. Sigurgleði Valskvenna var fölskvalaus á fjölum íþróttahúss Fram í gær þegar Íslandsmeistara- bikarinn var kominn í hendur þeirra „Ég er með frábært lið sem hefur lagt á sig mikla vinnu til þess að hampa þessum titli,“ sagði Stefán Arn- arson, þjálfari Vals, eftir að hann hafði lyft Ís- landsmeistarabikarnum. Sigur Vals er ennþá sætari í ljósi þess að liðið tapaði fyrir Fram í úrslitum bikarkeppninnar fyrr á keppnistímabilinu þannig að í gær var að nokkru leyti hefnt fyrir það tap. Valur fagnaði Íslandsmeistaratitli í handknattleik kvenna eftir 27 ára bið Morgunblaðið/Eggert Sætur sigur Gleði Valsliða yfir að hljóta Íslandsmeistaratitilinn var fölskvalaus. Katrín Andrésdóttir er þriðja frá vinstri á myndinni. Katrín náði að feta í fótspor móður sinnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.