Morgunblaðið - 20.05.2010, Síða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Heitar sósur skilja sig.Ég skil ekki af hverju.
– Þú finnur fjölda girnilegra uppskrifta að kvöldmatnum á www.gottimatinn.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
0
-0
0
7
1
Krían er mikil prýði á Tjörninni í Reykjavík en
hún verpir í svonefndum Litlahólma. Oftast eru
eggin 1–3. Hún er lítil en ákaflega flugfim og ver
egg og unga af harðfylgi. Ekki þarf fólk samt að
verja sig á gangstígum við Tjörnina með því að
veifa höndunum fyrir ofan höfuð eins og víða
gerist í kríuvarpi annars staðar á landinu. Krían
fer alla leið til svæða við Suðurskautslandið á
veturna en kemur hingað í apríl eða maí.
Krían heldur tryggð við Litlahólma á Tjörninni
Morgunblaðið/Ómar
Smávaxinn flugkappi með hvassan gogg
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
„Þetta er dálítið raunalegt hvað
menn skila seint og illa,“ segir Lárus
Ögmundsson, aðallögfræðingur Rík-
isendurskoðunar, um þá niðurstöðu
að tæplega þriðjungur sjálfseignar-
stofnana, sem lögum samkvæmt áttu
að skila reikningum sínum fyrir árið
2008 til Ríkisendurskoðunar, hefur
ekki gert það.
Samkvæmt lögum ber sjóðum og
stofnunum sem starfa samkvæmt
staðfestri skipulagsskrá að senda
ársreikninga sína til Ríkisendur-
skoðunar. Um er að ræða sjálfseign-
arstofnanir sem ekki stunda at-
vinnurekstur, einkum ýmsa
styrktar- og minningarsjóði og góð-
gerðarstofnanir.
Í lok apríl sl. höfðu 486 aðilar af
samtals 705 sem féllu undir lögin
skilað ársreikningum fyrir árið 2008.
Tæplega þriðjungur, eða 219, hafði
ekki skilað.
Lárus segir að ýmsar ástæður geti
verið fyrir því að menn skili ekki
reikningum. Margir sjóðir séu með
litla starfsemi og forsvarsmenn
þeirra gleymi að skila reikningum.
Ennfremur eru dæmi um að for-
svarsmenn deyi og engir taki við.
Gömul saga og ný
Lárus segir að Ríkisendurskoðun
þrýsti á um að reikningum sé skilað.
Ef það sé ekki gert hafi stofnunin
heimild til að vísa málum til sýslu-
manns og það hafi verið gert í nokkr-
um tilvikum. Lárus sagði að það væri
gömul saga og ný að menn skiluðu
reikningum seint og illa. „Þessar
sjálfseignarstofnanir eru því marki
brenndar að þær eru staðfestar af
því opinbera. Það er sérstök löggjöf í
landinu sem kveður á um að menn
staðfesti sjóðina. Tilgangurinn er
fyrst og fremst sá að koma þessu
undir eitthvert opinbert eftirlit.“
Heildareignir sjálfseignarstofn-
ana sem skiluðu reikningum fyrir ár-
ið 2008 námu samtals 41 milljarði
króna í árslok. Skuldir þeirra námu
samtals 15,1 milljarði og var eigið fé
því samtals 25,9 milljarðar. Heildar-
tekjur námu samtals 10,7 milljörðum
en gjöld 11,7 milljörðum. Af þessum
stofnunum höfðu 104 yfir 5 milljónir
króna í tekjur á árinu.
Skila ekki reikningum
Ríkisendurskoðun þarf að hafa mikið fyrir því að fá senda reikninga frá sjálfs-
eignarstofnunum og sjóðum Þriðjungur ekki skilað reikningum vegna 2008
Sjóðir Þeir eiga mismikla peninga.
Talsverðar truflanir á inn-
anlandsflugi vegna ösku
Heilbrigðisráðu-
neytið segir að
tryggt sé að eng-
inn sjúklingur,
sem njóti lyfja-
meðferðar vegna
þunglyndis, verði
án lyfja í kjölfar
nýrrar reglu-
gerðar um
breytta greiðsluþátttöku vegna
þunglyndislyfja.
Ráðuneytið segir Frumtök, sam-
tök frumlyfjaframleiðenda, hafa
gengið lengra í sínum „fullyrð-
ingum og hræðsluáróðri gagnvart
viðkvæmum sjúklingahópi en hægt
sé að láta ósvarað,“ eins og segir í
tilkynningu ráðuneytisins.
Enginn án
þunglyndislyfja
Skjálftahrina hófst norðvestur af
Gjögurtá á sjötta tímanum í gær-
kvöldi. Urðu skjálftarnir norð-
austur af Siglufirði, sá öflugasti var
nærri fjögur stig. Fyrsti skjálftinn,
um hálfsexleytið, var áberandi
stærstur. Um tugur eftirskjálfta
fylgdi í kjölfarið, þeir stærstu um 2
stig á Richter. Tilkynningar bárust
um að skjálftinn hefði fundist á
Ólafsfirði og Siglufirði. Skjálftar af
þessari stærðargráðu verða annað
slagið á þessum slóðum, samkvæmt
upplýsingum Veðurstofu.
Skjálftahrina norð-
austur af Siglufirði
Sums staðar geta verið svæði í
háloftunum með mikilli ösku en
sé flogið nokkrum kílómetrum
lengra mælist nær engin aska,
að sögn BBC. Breska veð-
urstofan notar í tilraunaflugi
sínu flugvélar með hátæknibún-
aði til að mæla þessar sveiflur
en það er ekki gert í til-
raunaflugi flugfélaga. Ef
síðarnefnda vélin slepp-
ur við allt öskutjón
getur skýringin ein-
faldlega verið heppni.
Sveiflukennt
ASKAN Á FLUGLEIÐUM
Tilkynningar um öskufall komu
frá Flúðum, úr Fljótshlíð, Rang-
árþingi ytra, Húsavík og Skagafirði
en þar varð vart ösku samfara rign-
ingu um hádegið, að því er fram
kom í tilkynningu frá Veðurstofu
Íslands og jarðvísindastofnun Há-
skólans.
Rúmlega tuttugu eldingar mæld-
ust á eldingamælum bresku veð-
urstofunnar frá miðnætti og fram á
miðjan dag í gær. Er það mun
minni tíðni en daginn áður.
kjon@mbl.is
Millilandaflug var með eðlilegum
hætti í gær en er leið á daginn var
aflýst áætlunarferðum Flugfélags
Íslands til Egilsstaða og Ísafjarðar
um kvöldið. Óljóst var hver staðan
yrði í dag og voru farþegar hvattir
til að fylgjast með fréttum.
Gosmökkurinn frá Eyjafjalljökli
var heldur lægri í gær en síðustu
daga eða fimm til sex kílómetrar.
Því lægri sem strókurinn er, þeim
mun minna er magnið af ösku sem
kemur úr fjallinu. Gjóskufalls gætti
norðvestur af eldstöðinni og einnig
á Norðurlandi upp úr hádegi. Búist
er við öskufalli norðaustur af eld-
stöðinni í dag, fimmtudag, áttin
verður austanstæð við gosstöðina
en vindur verður hægur næstu
daga.
Gosmökkurinn nokkru lægri í gær
Meðal sjóða sem ekki hafa skil-
að reikningum er Gjöf Jóns Sig-
urðssonar, en hann er vistaður í
forsætisráðuneytinu. Sam-
kvæmt skýrslu Ríkisendurskoð-
unar hefur sjóðurinn ekki skilað
reikningum til stofnunarinnar
síðan 1995. Bókasjóður forseta-
embættisins að Bessastöðum
hefur heldur ekki skilað reikn-
ingi síðan árið 1988.
Á listanum eru líka sjóðir á
vegum sparisjóða, kirkna, skóla
og safna. Menningarsjóður
Glitnis hefur ekki skilað reikn-
ingum og Menningar- og styrkt-
arsjóður SPRON ekki heldur.
Elstu sjóðirnir, Reynislegat,
stofnaður árið 1662, og
Thorkillisjóður, frá 1759, hafa
ekki skilað reikningum.
Skila ekki
FJÖLBREYTTUR LISTI