Morgunblaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 1
–– Meira fyrir lesendur
fylgir
með
Morgu
nblað
inu í d
ag
ÁSTIN
BLÓMSTRAR
Í KREPPUNNI
OFVAXNIR
SPARISJÓÐIR
SILVÍA NÓTT VAR
OFURSKREYTT OG
FLOTT
VIÐSKIPTABLAÐ 6 KLÆÐIN FÍN Í EVRÓVISJÓN 41EYJÓLFUR GULLSMIÐUR 10
Hlynur Orri Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
Flestir Reykvíkingar vilja Hönnu Birnu Krist-
jánsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, sem
næsta borgarstjóra, samkvæmt nýrri könnun sem
unnin var fyrir Morgunblaðið. Sögðust 41,4% vilja
að hún yrði áfram borgarstjóri. Jón Gnarr nýtur
næstmests stuðnings í borgarstjórastólinn, eða
27,3% þeirra sem afstöðu tóku.
Eins og áður virðist nokkurt misræmi vera á
milli þess hvaða flokk Reykvíkingar ætla að kjósa í
borgarstjórnarkosningunum á laugardag og þess
hvaða oddvita þeir vilja helst sjá sem borgar-
stjóra. Samkvæmt könnun Morgunblaðsins er
flokkur Jóns Gnarr, Besti flokkurinn, með talsvert
forskot á aðra flokka, eins og sagt var frá í gær.
Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar,
sagðist 21% vilja að yrði næsti borgarstjóri
Reykjavíkur. 0,9% sögðust vilja að Einar Skúla-
son, oddviti Framsóknar, settist í borgarstjóra-
stólinn en 0,6% sögðust styðja oddvita Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs, Sóleyju
Tómasdóttur.
Enginn aðspurðra nefndi neinn af hinum odd-
vitunum, en 8,8% sögðu að þau vildu að einhver,
sem ekki væri oddviti þeirra flokka sem væru í
framboði, yrði næsti borgarstjóri. Þá sögðust
36,2% aðspurðra vera óákveðin.
Áberandi munur er á afstöðu kynjanna til næsta
borgarstjóra Reykjavíkur, en sami munur birtist í
könnun á fylgi flokkanna sem sagt var frá í gær.
38,4% karla sögðust vilja að Jón Gnarr yrði borg-
arstjóri, en 14,3% kvenna.
Allir hinir oddvitarnir, sem einhver nefndi sem
næsta borgarstjóra, njóta samkvæmt könnun-
inni meira fylgis hjá konum en körlum.
Þannig sögðust t.d. 27,2% kvenna vilja
að Dagur yrði næsti borgarstjóri en
15,7% karla. Munurinn var þó ekki
jafn mikill hjá öðrum oddvitum,
en 43,5% kvenna sögðust styðja
Hönnu Birnu og 39,5% karla.
Þátttakendur í könnuninni
voru 517 og voru valdir með
slembiúrtaki. Miðlun gerði könn-
unina fyrir Morgunblaðið 20. til
24. maí.
Flestir vilja Hönnu Birnu
Misræmi er á milli þess hvaða flokk Reykvíkingar ætla að kjósa og þess hvaða
oddvita þeir vilja sem borgarstjóra Áberandi munur er á afstöðu kynjanna
Hvern viltu sem næsta borgarstjóra?
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Jón Gnarr
Kristinsson
Dagur B.
Eggertsson
Einhvern
annan
Einar
Skúlason
Sóley
Tómasdóttir
Baldvin
Jónsson
Helga
Þórðardóttir
Ólafur F.
Magnússon
41,4%
27,3%
21,0%
8,8%
0,9% 0,6% 0,0% 0,0% 0,0%
Enn skortir
óyggjandi merki
um að eldgosinu í
Eyjafjallajökli sé
lokið. Víðir Reyn-
isson, deildar-
stjóri almanna-
varnadeildar
Ríkislögreglu-
stjóra, sagði að
menn vildu bíða aðeins áður en kveð-
ið yrði upp úr um goslok.
Vísindamenn könnuðu yfirborð
jökulsins og uppgötvuðu að það er
mjög óstöðugt og getur skriðið fram
hvenær sem er.
Stefnt er að því að opna fyrir um-
ferð í Þórsmörk eins fljótt og auðið
er af öryggisástæðum og ástandi
náttúrunnar. Talið er líklegt að
Fimmvörðuháls verði hafður utan
lokunarsvæðisins á jöklinum. »4
Lýsa ekki
yfir goslok-
um að sinni
„Við einbeitum
okkur að því nú
hvernig við get-
um haldið Lands-
mót hestamanna
árið 2010. Það er
ekkert annað
uppi á borðinu,“
sagði Haraldur
Þórarinsson, for-
maður Landssambands hesta-
mannafélaga.
Uggur er í mörgum vegna hesta-
pestarinnar sem herjað hefur á
hross víða undanfarið.
Á morgun munu formenn hesta-
mannafélaga hittast og bera saman
bækur sínar. Á mánudaginn kemur
munu þeir sem eiga hagsmuna að
gæta og sérfræðingar funda um
framhaldið og meta stöðuna. »2
Einbeita sér
að mótshaldi
Fréttaskýring eftir
Örn Arnarson
Stofnað 1913 121. tölublað 98. árgangur
F I M M T U D A G U R 2 7. M A Í 2 0 1 0
Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar,
segir „ótrúlega langsótt“ að Samfylkingin
gangi til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn að
loknum kosningum í borginni. „Lokasprett-
urinn snýst um það hvort Samfylkingin eða
Sjálfstæðisflokkurinn fær sterkari stöðu.“
Samkvæmt skoðanakönnun á fylgi flokk-
anna, sem sagt var frá í Morgunblaðinu í gær,
þýðir afstaða Dags að Samfylking mun
ekki geta myndað meirihluta í borg-
inni nema með Besta flokknum.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, odd-
viti Sjálfstæðisflokks, segist tilbúin
að vinna með hvaða flokki sem er. Í
sama streng tekur Jón Gnarr, oddviti
Besta flokksins, sem er tilbúinn að
vinna með öllum sem vilja leggja
hönd á plóg í borginni. »12
Útilokar samstarf
DAGUR VILL EKKI SJÁLFSTÆÐISFLOKK
Hagar verða skráðir í næsta mánuði,
ef marka má orð forsvarsmanna
Kauphallar Íslands og stjórnenda
Haga. Arion banki hafði tilkynnt um
að skráningin myndi eiga sér stað í
júní í febrúar síðastliðnum, en eftir
að fréttir þess efnis að lífeyrissjóð-
um og öðrum fjársterkum aðilum
hefði verið boðið á sérstakar kynn-
ingar á fyrirtækinu heyrðust efa-
semdaraddir um að af skráningunni
yrði. Samkvæmt forstjóra Haga er
áreiðanleikakönnun á fyrirtækinu
lokið og unnið að skráningarlýsingu.
Þegar fyrirtæki eru skráð á mark-
að þarf að gefa upp alla samninga
fyrirtækisins við ráðgjafa og færa til
bókar öll þau hlunnindi sem einstak-
lingar kunna að njóta á kostnað fyr-
irtækisins.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að Jón Ásgeir Jóhannesson hafi
fengið greiðslur fyrir ráðgjöf á sviði
smásölu til langs tíma frá Högum en
þeim samningi hafi nú verið slitið.
Segja Haga munu
verða skráða í júní
MViðskiptablað
MAuglýsingakostnaður »2