Morgunblaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 16
Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta (Tölur í milljónum króna) Ársreikningur Ársreikningur 2009 2008 Í milljónum króna -4.068,1 –9.620,4 Rekstrarniðurstaða A hluta -3.211,7 -8.216,0 Skuldir og skuldbindingar samtals 42.798,2* 37.442,0* Eigið fé 10.443,2 10.091,2 Íbúafjöldi (Skv. Hagstofunni) 2009 2008 30.314 29.957 Erlend lán (hlutf. af heildarl.) A-hluti A og B-hluti* 49% 41% Skuldir á hvern íbúa (milljónir króna) 2009 2008 1,41 1,25 Að meðaltali skuldaði því fjögurra manna fjölskylda árið 2009: 5,64milljónirKÓPAVOGUR *Lífeyrisskuldbindingar meðtaldar FRÉTTASKÝRING Önundur Páll Ragnarsson onundur@mbl.is Fjárhagur Kópavogs hefur farið illa í krepp- unni, reksturinn er erfiður og útsvarsheimildin þó fullnýtt. Enginn flokkur minnist á skatta- lækkanir. Allir hafa flokkarnir ítarlegar stefnuskrár en oddvitarnir voru spurðir út í helstu áherslumálin. Ólafur Þór Gunnarsson, oddviti VG, segir mikilvægast að verja grunnstoðir bæjarins, tryggja að þjónustan sé bænum til sóma. „Við viljum forgangsraða þeim fjármunum sem við höfum í þjónustu við íbúa, einblína ekki á bygg- ingar eða dýrar framkvæmdir, heldur nota peningana sem við höfum til hluta sem íbúar geta beinlínis nýtt frá degi til dags og þeir þurfa á að halda.“ Af öðrum helstu áherslu- málum nefnir hann að komið verði á sameig- inlegri skipulagsnefnd fyrir höfuðborgarsvæð- ið, gerð verði rannsókn á stjórnsýslu bæjarins og að bærinn gangi í að klára hálfbyggð hús og koma þeim í notkun. Samfylkingin hefur svipaðar hugmyndir í húsnæðis- og atvinnumálum og vill að bærinn sjálfur gangi í verkið. Þá vill flokkurinn hag- ræða í rekstri bæjarins, endurskipuleggja yf- irstjórn hans og leita samstarfs við fólkið í bænum í þeim efnum. Lengi hefur verið á stefnuskrá Samfylkingarinnar að virkja íbúa- lýðræðið. „Við viljum halda öllum gjaldskrár- hækkunum í lágmarki og gæta þess að þær bitni ekki á þeim sem síst skyldi,“ segir Guð- ríður Arnardóttir oddviti. Atvinnumál eru efst á baugi hjá Sjálfstæðis- flokknum, en hann vill skapa umgjörðina fyrir atvinnulífið, ekki grípa beint inn í eins og vinstriflokkarnir vilja. Oddvitinn, Ármann Kr. Ólafsson, vill tengja Kársnesið við Háskólann í Reykjavík með göngubrú og skipuleggja stúd- entaíbúðir þar, í sátt við íbúa. „Þá munum við breyta skipulagi í nýjum hverfum þannig að þar verði byggðar minni íbúðir og ódýrari.“ Þannig nái fjármögnun frá ÍLS utan um kaup á slíkum íbúðum. Fullbyggðar íbúðir hafi verið að seljast. Við hrunið hafi þær verið um 200 í bænum, en nú séu þær um 60. Selja á lóðir sem hefur verið skilað til að bæta skuldastöðuna. Oddvitar flokka í bæjarstjórn telja að 14 millj- arða krafa á bæinn frá landeiganda við Vatns- enda sé út í bláinn og standist ekki skoðun. Y-listi Kópavogsbúa vill siðbót í stjórnsýsl- unni og tiltekt í fjármálum bæjarins. Hann set- ur sér markmið en lofar engu upp í ermina á sér, að sögn oddvitans Rannveigar H. Ásgeirs- dóttur. Hún segir flokkinn vilja vinna beint með samfélaginu. Sérstaklega gagnrýnir hún að ekkert sé farið að undirbúa yfirtöku á mál- efnum fatlaðra. „Það er byrjað að hugsa um steinsteypu en það gleymist alveg að hugsa um fólkið,“ segir Rannveig. „Við leggjum mesta áherslu á að ekkert barn verði útundan í Kópavogi,“ segir Ómar Stef- ánsson, oddviti framsóknarmanna. Þar á hann við frístundaiðkun og skólamáltíðir. Hann seg- ir of mikið reynt að mála stöðuna svörtum lit. Í dag sé frábært að vera Kópavogsbúi. Þar að auki leggur Ómar áherslu á atvinnu- mál ungs fólks. Hann vill einnig gefa afslátt af byggingartengdum gjöldum, svo auðveldara verði að koma þeim geira af stað. Hann tekur undir með Ármanni um brú yfir Fossvoginn og stúdentabyggð á Kársnesi. Helgi Helgason, oddviti Frjálslyndra, vill ganga úr Strætó bs. og reka eigin ókeypis strætó í bænum. Á þessu ári þurfi bærinn að borga hátt í 400 milljónir með Strætó, sem sé of mikið. Þá vil hann notendastýrða þjónustu við fatlaða. Einnig vilja Frjálslyndir setja nið- ur skýra áætlun um það hvernig skuldir bæj- arins verði greiddar niður. Byrja verði efst og fara svo niður, í stað þess að byrja neðst. Ekki tími fyrir stóru loforðin  Samfylking og Vinstri græn vilja að bærinn kaupi og klári hálfbyggð hús í bænum, til að koma í leigu  Sjálfstæðismenn vilja skapa rétta umgjörð með betra skipulagi en ekki grípa beint inn í markaðinn 16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010 Næstbesti flokkurinn vill nýjan sparisjóð fyrir Kópa- vogsbúa. Fólk hafi ótal hugmyndir um sjálf- stæðan atvinnurekstur, en öll mál strandi í bönk- unum. „Við viljum vinna í anda frumbyggjanna hér í Kópavogi og afneitum hugmyndum um fé án hirðis í sparisjóðunum. Þetta á að vera liður í að blása lífi í atvinnulífið,“ segir Hjálmar. Listi Kópa- vogsbúa vill stórauka sam- ráð bæjaryfirvalda við íbúa. Ekki með íbúa- kosningum, heldur með hverfaráðum. „Það er stórskrýtið að íbúa- samtök verði aðeins til vegna óánægju og til að stöðva stórslys,“ segir Rannveig. Framboðið gangi út á að vinna með fólkinu í bænum og tala við það áður en fram- kvæmt er. Sjálfstæð- isflokkurinn vill að mikið verði lagt í að- gengi að Þríhnúkagíg, helsta náttúruundri í landi Kópavogs. „Þetta mun skapa mikla at- vinnu. Þegar það verður búið verður þetta horn- steinn í markaðssetningu á íslenskri ferðaþjón- ustu,“ segir Ármann, sem vill skipuleggja or- lofshúsalóðir fyrir ferða- menn í Vatnsendalandi. Frjálslyndi flokkurinn vill setja skýra reglu um íbúa- lýðræði í Kópavogi, þess efnis að 25% atkvæð- isbærra manna geti framkallað slíka kosn- ingu. „Við erum eini flokkurinn sem hefur sett fram skýra leið til þess að hafa samráð við íbúa. Aðrir flokkar hafa bara talað um íbúa- lýðræði,“ segir Helgi Helgason. Samfylkingin vill að bærinn ljúki byggingu hálfkláraðs húsnæðis í bænum og komi því í langtímaleigu. „Þetta fjölgar störfum, skilar bænum tekjum í útsvari og fasteigna- gjöldum og fjölgar af- leiddum störfum í versl- un og þjónustu,“ segir Guðríður Arnardóttir. Tekjurnar standi undir verkefninu og hafi ekki áhrif á rekstur bæjarins. Vinstri grænir vilja efla sam- ráð við íbúana í bænum, ým- ist í gegnum hverfaráð eða íbúakosningar um einstök mál. „Við höfum lagt til að stofnað verði starf íbúatengiliðs, sem hafi það verkefni að styðja og jafnvel koma á fót hverfasamtökum, sem bærinn hjálpi svo að koma sínum málum á framfæri,“ segir Ólafur Þór Gunnarsson. Framsóknar- flokkurinn vill spara í stjórn- sýslu bæjarins, um a.m.k. 25 milljónir króna á ári. Meðal ann- ars vilja þeir lækka laun bæjarfulltrúa og nefndarfólks um 10%. Þannig að það liggi fyr- ir þegar menn fara inn í kosningarnar,“ segir Ómar Stefánsson. Þá vill hann einnig skoða sameiningu og samstarf sviða. Næstbesti flokkurinn var stofnaður vegna mikillar óánægju meðal íbúa, með fram- göngu flokkanna. „Við erum þreytt á grín- inu í stefnu hinna flokkanna,“ segir Hjálm- ar Hjálmarsson oddviti. Þrátt fyrir að flokkurinn beiti húm- ornum fyrir sig í baráttunni segir Hjálmar flokkinn ekkert grín. Yfirvöld hafi farið illa að ráði sínu í mörgum málum og upplýsi íbúa illa. Því verði að breyta með samvinnu við íbúana. Rannveig H. Ásgeirsdóttir, oddviti Y-lista Kópavogsbúa, segir fólkið á list- anum hafa mikla reynslu af vinnu við sam- félagsmál. „Við vitum alveg hvernig kerfið virkar. Við höfum séð bakhliðina á því og okkur líkar hún ekki.“ Framboðið þurfi ekki að skýla sér á bak við grín. Flokkarnir í bæjarstjórn hafi boð- ið íbúum upp á tragikómedíu á kjör- tímabilinu. Þreytt á gríninu ÓÁNÆGJAN KRAUMAR Í BÆNUM www.mats.is Sveitarstjórnarkosningar 29. maí

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.