Morgunblaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 40
40 Menning MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010  Nú styttist í hátíðina Úlfaldi úr mýflugu, sem fram fer dagana 9. og 10. júlí í Mývatnssveit. Af því tilefni verða söfnunartónleikar á Sódómu Reykjavík í kvöld. Fram koma, Cliff Clavin, Thingtak, Vicky og Skálmöld á sínum fyrstu tónleikum. Tónleikarnir hefjast kl. 22 og er miðaverð 1000 kr. Hitað upp fyrir Úlfald- ann á Sódómu í kvöld Fólk Nýverið hófst sala á stuttermabolum í mjög tak- mörkuðu upplagi frá listamönnunum Apfelsin Bros á heimasíðu þýska plötuútgefandans Morr Music. Apfelsin Bros eru tónlistarmennirnir Sindri Már Sigfússon úr Seabear og Örvar Þór- eyjarson Smárason úr múm og Fm Belfast og eru fáanlegir níu handteiknaðir stuttermabolir, sem þeir félagar gerðu í sameiningu. „Við höfum verið að gera þetta í sitthvoru horninu áður, en þetta er í fyrsta skipti sem við gerum þetta saman undir nafninu Apfelsin Bros. Við fengum senda óprentaða boli frá Morr núna í vor og við byrjuðum strax að teikna á þá,“ segir Sindri. Kveikjan að verkefn- inu var handgerður stuttermabolur sem Örvar gaf Sindra í jólagjöf fyrir nokkrum árum. Sindri var þá sjálfur að prófa sig áfram með að teikna á boli með fatatússi, líkt og Örvar. Þeir félagar hafa svo í gegnum tíðina unnið saman að ýmsum verkefnum og eru bolirnir það nýjasta. „Í byrjun deildum við niður þessum níu bolum og teiknuðum á hálfan bol og skiptum svo. Það var því frekar fyndið þegar við vorum að skipta á bolunum að sjá að við vorum búnir að teikna mikið af svipuðum myndum á þá, “ segir Sindri. Eins og segir eru bolirnir fáanlegir í gegnum heimasíðu Morr útgáfunnar, www.anost.net. En þeir félagar stefna á að opna sína eigin heimasíðu í haust þar sem verður til sölu meira af handgerðum varningi í takmörkuðu upplagi frá Apfelsin Bros. matthiasarni@mbl.is Handteiknaðir bolir frá Apfelsin bræðrum Handteiknað Bolur frá Apfelsin Bros.  Eftir vel heppnað opnunarkvöld Gogoyko live sem var haldið á sum- ardaginn fyrsta á Kaffi Rósenberg, hefur verið ákveðið að endurtaka leikinn. Það verður djassinn sem ræður ríkjum á Gogoyoko live í kvöld, þar sem fram koma banda- ríski trommuleikarinn Scott McLe- more og Hammond tríó Þóris Bald- urssonar. Tónleikarnir verða teknir upp og aðgengilegir til hlustunar og kaups á heimasíðunni www.gogoyok.com á morgun. Hefjast herlegheitin stundvíslega kl. 21. Miðaverð er 1.000 krónur og eru miðar seldir við inngang. Gogoyoko live í kvöld á Kaffi Rósenberg  Í kvöld kl. 21 munu þýsk ung- skáld lesa upp á Næsta bar. Skáldin þrjú hafa, ásamt þeim Bergi Ebba Benediktssyni, Uglu Egilsdóttur og Dóra DNA, farið víða um landið, og kynnt sér rætur Íslendinga- sagna. Að auki hafa þau átt fundi með rithöfundum og fræðimönnum sem byggt hafa á sagnaarfinum í sinni sköpun. Þýsk ungskáld lesa upp á Næsta Bar Annað kvöld verður haldin fjölskylduhátíðin Hólmstokk á ÍR-vellinum í Breiðholtinu. Hátíðin er skipulögð af fé- lagsmiðstöðinni Hólmaseli í Seljahverfi og taka ungling- arnir virkan þátt í undirbúningi viðburðarins. Að sögn Kára Sigurðssonar, starfsmanns Hólmasels, hefur hátíðin verið haldin í um tíu ár, en hefur aldrei ver- ið jafnglæsileg og nú. „Þetta hefur verið fremur lítið í sniðum hingað til, það hafa verið svona fimmtíu til hundrað manns sem mæta. En okkur langaði að gera þetta stærra í ár og spurðum krakkana í janúar hvernig þeim litist á að halda úti-tónleika. Og þeim leist bara rosalega vel á það.“ Verkefnið vatt smám saman upp á sig, en fór almenni- lega í gang þegar ljóst var að þau fengju aðstöðu á ÍR- svæðinu og þegar fyrirtækið Exton bauðst til að styrkja þau með því að gefa leigu á sviðinu og hljóðkerfi. Ágóðinn af Hólmstokk hefur jafnan runnið til góðs málefnis, en að þessu sinni ákváðu krakkarnir að láta Barna- og unglingageðdeild Landspítalans og Barna- hús njóta góðs af. Listamennirnir sem ætla að leggja átakinu lið eru ekki af verri endanum, en á hátíðinni koma fram m.a. Skítamórall, Toggi, Lára, Pollapönk og Haffi Haff. Ýmis fyrirtæki hafa einnig lagt krökkunum lið og verða pulsur, gos, sælgæti og happdrættismiðar til sölu á svæðinu. Kári segir krakkana hafa lagt mikla vinnu í undirbúninginn og að skipulagningin hafi ver- ið mjög skemmtileg. Nú vona þau bara að veðurblíðan haldi áfram að leika við höfuðborgarbúa, a.m.k. fram yfir hátíðina. holmfridur@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Skítamórall Piltarnir spila á Hólmstokk annað kvöld.  Hólmstokk í Breiðholtinu 28. maí Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is „Hugmyndin er komin frá mér. Ég hringdi í Palla,“ segir Birgir Örn Steinarsson, Biggi í Maus, sem vinn- ur nú að bók um tónlistarferil Páls Óskars Hjálmtýssonar. „Mig langaði til að gera bók um hann. Hann er merkileg persóna sem er samofin sínum ferli. Þetta verður því bók sem segir frá persónulegum hlutum, en það er sumt sem hann vill geyma. Þetta er aðallega um tónlistarferil- inn sem skarast óumflýjanlega við einkalíf hans,“ segir Biggi sem úti- lokar ekki að leggja ritstörfin fyrir sig. „Ég er á þeim stað í lífinu að ég þarf að ákveða hvað ég ætla að verða,“ segir Biggi og hlær en hann hefur notið vinsælda sem tónlistar- maður. „Núna þarf ég að skoða hvað ég ætla í alvörunni að gera. Ég kann að skrifa, ég kann að búa til tónlist og ég kann að vafra um það listræna. Ég hef áhuga á svona hlutum og mér finnst gaman að skrifa um svona. Ég hef samt ekkert súper gaman af blaðamennsku, hún er allt í lagi en þar er alltaf einhver að segja manni hvað maður á að gera,“ segir Biggi sem telur sig nú vera á réttri hillu í lífinu en hann hefur ekki gefið út bók áður. Tók ekki vel í hugmyndina „Ég var bara að spá í hvað ég vildi eiginlega gera. Ég vildi skrifa bók um Pál Óskar. Hann er svona jákvæð manneskja, ég nenni ekki að skrifa bók um einhvern sem er búinn að dópa og þykir það töff. Palli hefur athyglisverða sögu sem sendir frá sér jákvæðni. Hann tók mikla dýfu en kom til baka mun sterkari. Þetta er mjög áhugavert að fjalla um. Þetta er ein hverskonar sigursaga,“ segir Biggi sem telur samstarfið ganga mjög vel þótt Páll Óskar hafi ekki tekið vel í hugmynd- ina í fyrstu en hugmynd Bigga var að skrifa ævisögu Páls Óskars frekar en sögu tónlistarferils hans. „Hann tók ekki vel í þetta. Ég hringdi í hann og hann sagði bara: „Nei, ég ætla ekki að skrifa ævisögu mína fyrr en ég orðinn allavega fimmtíu ára og þá mun ég skrifa hana sjálfur.“ Ég skildi það nú vel og við spjölluðum aðeins saman í símann og þar fædd- ist hugmyndin að bókinni. Við rædd- um um bækur sem fjalla um popp- kúltúr, eins og Beatles Anthology. Svoleiðis hefur eiginlega ekki verið gert á Íslandi áður,“ segir Biggi og bætir við að bókin sé komin vel á veg. Báðir vandvirkir Biggi segir það skemmtilegt verk- efni að skrifa bók um Pál Óskar enda hefur hann brennandi áhuga á tón- list. Bókin er unnin í góðu samstarfi en Páll Óskar hefur hönd í bagga við ritstörfin. Þeir hafa ekki ákveðið út- gáfudag enda verkið óklárað. „Ég skila nýjum kafla mánaðarlega. Hann Palli er samt ekkert að flýta sér og í raun ekki ég heldur, ég vil gera þetta vel. Við erum báðir harðir á því að geyma þetta og gera það vel frekar en að gera þetta í stresskasti. Þannig að ef það er fullt eftir að gera í ágúst þá frestum við þessu bara um ár. Það liggur ekkert á að skila þessu,“ segir Biggi sem telur samt mögulegt að koma bókinni út fyrir jól. Þeir eru enn sem komið er ekki í sam- starfi við útgefanda en leita í sameiningu að réttum aðila. „Við erum að skoða allar hliðar út- gáfumála. Við höfum ekki undir- ritað neitt. Þannig er engin pressa á útgáfudagsetningu að hafa áhrif á bókina,“ segir Biggi sem telur bókina verða skemmtilega frásögn íslenskrar poppstjörnu af litríkum ferli. Dálítil kennslubók Biggi segir bókina fjalla um allar hliðar tónlistarheimsins á Íslandi. Páll Óskar hefur komið víða við og bæði tekist vel til á mörgum sviðum og mistekist á öðrum. „Samstarfið gengur mjög vel, ég held að þetta verði góð bók. Við höfum rætt bókina mikið okkar á milli. Eins og hann hefur talað um og við höfum rekið okkur á í starfinu, þá er þetta dálítil kennslubók. Kennslubók í hvernig maður á að vera poppstjarna á Ís- landi, hvað maður á að gera og hvað maður á að forðast. Hann er orðinn alger stjarna en hefur gert mistök og lært af þeim öllum. Svo eru að sjálf- sögðu mjög margar sögur, bæði fyndnar og sorglegar, sem einkenna feril hans.“ segir Biggi og bætir við að Páll Óskar sé reyndari en flestir í íslenskri popptónlist. Einhverskonar sigursaga  Biggi í Maus skrifar bók um tónlistarferil Páls Óskars  Tónlistarlífið hefur áhrif á einkalífið  Páll Óskar ætlar að skrifa sína eigin ævisögu um fimmtugt Morgunblaðið/Jakob Fannar Óákveðinn Biggi í Maus veit ekki hvað hann ætlar að gera þegar hann er orðinn stór. Hann vinnur nú að bók um tónlistarferil Páls Óskars. Fjölskylduhátíð til styrktar BUGL og Barnahúsi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.