Morgunblaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 39
Menning 39FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010 Kvennakórinn Embla heldur árlega vortónleika í Glerár- kirkju á Akureyri á föstudag kl. 20:00 og í Laugarneskirkju í Reykjavík á sunnudag kl. 16:00. Flutt verða verk fyrir kvennakór, einsöngvara og hljóðfæraleikara, þ. á m. eftir Báru Grímsdóttur, Þorkel Sig- urbjörnsson, Jón Leifs, Monte- verdi, Lasso, Berlioz, Liszt, Grieg, og d’Indy. Einsöngvari með kórnum er Elín Ósk Óskars- dóttir sópransöngkona. Hljóðfæraleikarar eru Helga Kvam, harmonium, Richard Simm, píanó, og Sophie Marie Schoonjans, harpa. Stofnandi og stjórnandi Emblu er Roar Kvam. Tónlist Árlegir vortón- leikar Emblu Elín Ósk Óskarsdóttir Vorhefti Skírnis 2010, tímarits Hins íslenska bókmennta- félags, er komið út. Meðal efnis í ritinu má nefna greinar um stjórnarskrá og hlutverk for- settaembættisins, um kyn- þáttahyggju og fordóma á Ís- landi, menningararf í samtímanum og tímasetningu landnáms á Íslandi. Einnig er fjallað um kvæðabálk Halldórs Laxness um unglinginn í skóg- inum og stöðu hans í ljóðlist samtímans, og íslensk draugafræði, birt eru ljóð eftir Anton Helga Jóns- son og Ingunni Snædal, ritdómar um Þórbergs- bækur Péturs Gunnarssonar og bók Árna Heimis Ingólfssonar um Jón Leifs. Íslensk fræði Vorhefti Skírnis komið út Vorhefti Skírnis 2010. Á morgun mun píanóleikarinn William Westney halda tón- leika í Salnum í Kópavogi, kl. 19.30. Westney er þekktur ein- leikari og hefur haldið tónleika víða um heim og unnið til fjöl- margra verðlauna. Westney mun leika einleik á píanó og er efnisskráin bæði metnaðarfull og skemmtileg, en meðal ann- ars leikur hann verk eftir Joseph Haydn, Gabriel Fauré, Franz Liszt og George Gershwin. Westney hefur hlotið fyrstu verðlaun í Alþjóð- legu tónlistarkeppninni í Genf og komið fram með hljómsveitinni La Suisse Romand í Sviss auk fjölda þekktra sinfóníuhljómsveita um allan heim. Tónlist William Westney spilar í Salnum William Westney Apfelsin Bros teikna á boli í mjög takmörkuðu upplagi 40 » Í dag hefst í Norræna húsinu al- þjóðleg ráðstefna um tungumál og listir undir yfirskriftinni Art in Translation. Á ráðstefnunni verður fjallað um það hvernig listumræða handan við mörk tungumála mótar listræna sköpun, viðtöku og túlkun í heimsvæddu umhverfi. Opnunarfyrirlestra flytja rithöf- undurinn og þýðandinn Guðbergur Bergsson og finnsku listamennirnir Lea og Pekka Kantonen. Á meðal annarra viðburða má nefna sýningu á myndinni Tales from the Gimli Hospital eftir ís- lensk-kanadíska kvikmyndagerð- armanninn Guy Maddin og tónleika þar sem lög Billie Holiday verða flutt á norsku. Samhliða ráðstefn- unni verður sýningin a book of fragments, sem byggð er á vænt- anlegri bók eftir Birnu Bjarnar- dóttur, opin í Norræna húsinu dag- ana 27. maí til 13. júní. Frekari upplýsingar má finna á vefsetri ráðstefnunnar: conference.inotherwords.is Sköpun Guðbergur Bergsson flytur opnunarerindi Art in Translation. Ráðstefna um tungu- mál og listir Listumræða handan við mörk tungumála Ásgerður Júlíusdóttir asgerdur@mbl.is Leikhúsdansverkið „Bræður“ eftir Ástrós Gunnarsdóttur, Láru Stef- ánsdóttur og Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdóttur verður frumsýnt á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu í kvöld en uppsetningin er hluti af dagskrá Listahátíðar. Lára Stefánsdóttir og Ástrós Gunnarsdóttir hafa áður starfað saman en þær settu upp verkið „Systur“ fyrir um tveimur ár- um. Í samtali við Morgunblaðið segir Lára að þær hafi langað til þess að halda áfram að vinna saman og því hafi þær farið út í að semja „Bræð- ur“. „Þetta er mjög kraftmikið leik- húsdansverk og það eru 13 karlmenn á aldrinum 16 til 60 ára sem taka þátt í verkinu. Við erum með leikarara, söngvarar og dansara en við nýtum okkur styrkleika hvers og eins á sinn hátt.“ Verkið fjallar um samskipti kynjanna í stóru samhengi á óvenju- legan og opinskáan hátt. Allir að- standendur verksins eru konur og að sögn Láru hefur samstarfið gengið afskaplega vel. „Þeir hafa tekið mjög virkan þátt í sköpun verksins og ver- ið mjög jákvæðir og auðveldir í sam- starfi. Það hefur til dæmis ekki kom- ið upp neitt drama eins og oft gerist ef konur eru einnig hluti af dans- eða leikhópnum. Konur eiga það nefni- lega til að velta hlutunum of mikið fyrir sér en strákarnir hafa verið af- skaplega þolinmóðir við okkur og verið til í að prófa ýmislegt. Þrátt fyrir að karlar taki mestan þátt í upp- setningunni þá er verkið samt sem áður sýn okkar kvenna á karlorkuna í heiminum.“ Lára segir að þær séu ekki endilega að leitast eftir ein- hverju ákveðnu svari við því hvernig karlmenn séu heldur vilji þær frekar sýna hvernig karlorkan hefur verið ráðandi afl. „Karlmenn hafa löngum verið ráðandi í allri stjórnun og það er miklu meira til af höfundarverkum eftir karla en konur. Við reynum samt að koma með kvenorkuna inn í verkið líka og tökum sjálfar þátt í hluta verksins. Við fléttum bæði kyn- orkuna og móðureðlið og móðurjörð- ina inn í hina karllægu heimsmynd“. Lára tekur samt skýrt fram að að- allega fjalli verkið um bræður og bræðralag. „Það er ósk okkar í lok verksins að bræður standi saman og það er sameiginleg niðurstaða okkur að við getum ekki staðið ein.“ Nýtt dansverk frumsýnt í kvöld Ljósmynd/Rakel Björt Jónsdóttir Karlorka Frá æfingu á dansverkinu „Bræðrum“ sem frumsýnt verður á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Við getum ekki staðið ein Samskipti kynjanna » Tvær sýningar verða á „Bræðrum“, í kvöld og annað kvöld. » Filippía Elísdóttir sér um búninga og Ragnhildur Gísla- dóttir samdi tónlistina. » Meðal „bræðranna“ eru Finninn Jorma Uotinen, Bras- ilíumaðurinn Vicinius, Gunn- laugur Egilsson, Ívar Helgason, Ívar Örn Sverrisson, Brian Gerke o.fl. Glöggir vegfarendur hafatekið eftir stórri ljós-mynd af ungbarni semblasir við á vegg Land- símahússins við Austurvöll en þarna er um listaverk eftir Spessa að ræða og hluta af ljósmyndasýn- ingunni „Raunveruleikatékk“ sem er á dagskrá Listahátíðar og stað- sett er í miðborginni. 12 myndlist- armenn og ljósmyndarar eiga verk á þessari sýningu sem hverfist að miklu leyti um vísun í veruleikann, ekki síst eins og hann birtist í ljós- myndum. Málefni samtímans eru áberandi umfjöllunarefni, svo sem hvalveiðar, nýleg mótmæli og bankahrun – og í því samhengi vís- ar mynd Spessa til óskrifaðrar framtíðar. Ljósmyndirnar hanga nær allar úti í almenningsrýminu sem verður fyrir vikið virkur hluti af merkingu þeirra. Sumar eru stórar og sjást víða að, aðrar hanga í augnhæð og kalla á meiri nálægð. Dæmi um hið fyrrnefnda er stór mynd eftir Li- biu Castro og Ólaf Ólafsson utan á Íslandsbanka í Lækjargötu, af glaðbeittum manni með gítar. Verkið virðist vitnisburður um nöt- urlegar aðstæður heimilislauss manns úti í heimi, heimfærðar upp á íslenskan borgarveruleika. Myndinni fylgir óþægilegur sann- færingarkraftur, ekki síst þar sem hún hangir utan á byggingunni sem áður hýsti Glitni; táknmynd skýjaborgar sem nú er hrunin til grunna. Listamönnunum tekst vel upp í beittu háði sem jafnframt hefur tragískan undirtón. Annað dæmi um velheppnaða framsetningu verks af svipaðri stærðargráðu, er mynd eftir Krist- leif Björnsson í Tryggvagötu sem sýnir fram á sköpunarmátt ljós- myndarinnar. Verkið birtir fegurð í hversdagsleikanum þegar af- greiðslustúlka við búðarkassa lítur undan eitt augnablik. Hún horfir inn í myndrýmið en við það skap- ast „exklúsíft“ andrúmsloft sem þó er á skjön við mónúmental stærð og staðsetningu ljósmyndarinnar. Myndin gefur því tilefni til hug- leiðinga um mörk hins einkalega og almennings. Mynd eftir sama listamann inni í Hafnarhúsinu dregur fram hið mannlega og ein- staklingsbundna í stofnanalegu umhverfi, auk þess að tefla saman andstæðum í sýningarumgjörð eða samhengi myndlistarverka. Sýningin samanstendur af ljós- myndum, sem gerir hana á vissan hátt að „felusýningu“ þar sem að myndirnar eru í spennuafstöðu við raunsæislega framsetningu í myndmáli auglýsinga, fjölmiðla eða upplýsingaskilta er gegnsýra borg- arrýmið og vegfarendur taka sem gefnu og leiða jafnvel hjá sér. Smærri verk sýningarinnar gætu farið framhjá vegfarendum, en eru þó mörg til þess fallin að ögra doða borgarbúa gagnvart umhverfi sínu. Þau vekja m.a. til umhugs- unar um veruleika sveitarinnar, sem er í senn fjarlægur og nálæg- ur, um það hvernig við umgöng- umst og mótum nánasta umhverfi, og um hvers konar veruleikasýn eða minningum myndir geta miðl- að. Öðrum verkum fylgir ónota- kennd sem tengist eftirliti og frið- helgi. Myndir af mótmælendum með auglýsingaskilti máta sig við kunn- uglegt myndmál fjölmiðla en ná ekki almennilega að hefja sig yfir hið klisjukennda, jafnvel þótt þeim sé ætlað að afhjúpa og ydda klisj- ur. Þá vekur staðsetning mynda af hvalaskurði við Ægisgarð fremur fyrirsjáanleg viðbrögð meðal túr- ista á leið í hvalaskoðun og ann- arra sem vita af þessum samslætti. Óvæntasti hluti sýningarinnar eru ljósmyndir á Austurvelli eftir Vigfús Sigurgeirsson, teknar á 4. og 5. áratug síðustu aldar, og hefði raunar mátt gera meira úr þessum verkum. Þarna eru m.a. myndir sem sýna hérlenda búskaparhætti, teknar fyrir heimssýninguna í New York 1939, og myndir sem Vigfús tók af opinberum embætt- ismönnum í árdaga lýðveldisins. Uppsetning verkanna á lykilstað í þjóðarvitundinni undirstrikar þátt ljósmynda í sköpun minninga og ímynda. Jafnframt er þarna komin snjöll leið til að varpa ljósi á sam- band ljósmynda og veruleika í samhengi opinbers rýmis – sem er þegar allt kemur til alls, kjarni sýningarinnar. Listahátíð/Útisýning í miðborginni Raunveruleikatékk bbbmn Daníel Þorkell Magnússon, Eggert Jó- hannesson, Haraldur Jónsson, Hlynur Hallsson, Ieva Epnere, Ingvar Högni Ragnarsson, Kristleifur Björnsson, Libia Castro og Ólafur Ólafsson, Óskar Hall- grímsson, Silja Sallé, Spessi og Vigfús Sigurgeirsson. Til 30. júní 2010. Sýningarstjóri: Æsa Sigurjónsdóttir. ANNA JÓA MYNDLIST Á förnum vegi Raunveruleikatékk Þessi mynd úr nýrri myndröð Spessa er meðal mynd- anna á Raunveruleikatékki Listahátíðar. Myndin heitir „Án titils, 2010“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.