Morgunblaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 24
Garðabær hluti af eldfjallagarði Reykjanesskaginn er með marg- ar og fjölbreyttar gerðir eldfjalla, gíga og jarðminjar. Mikill áhugi er hjá átta sveitarfélögum að bindast samtökum um stofnun eld- fjallagarðs á landsvæði frá Þingvöll- um út að Reykjanestá. Hugmyndin er að eldfjallagarðurinn byggist á fjórum hringleiðum á núverandi ak- vegum og á hverri hringleið væru 15-20 stöðvar þar sem gestir skoða og fræðast um eldvirkni og jarð- skorpuhreyfingar. Síðan geta sveitarfélögin hvert fyrir sig tekið áhugaverð svæði innan sinna sveitarfélagamarka og gert að sérstöðu í sinni sveit. Þar eigum við Garðbæingar eitt besta svæð- ið sem hefur gríðarlegt fræðslu- og kynning- argildi vegna nálægðar við byggðina; þetta er Búrfellið, Búrfellsgjáin, Selgjáin og hraun- rennslið til sjávar. Hraunrennslið í þéttbýli Garðabæjar er alveg einstakt þar sem það ligg- ur nánast órofið frá upptökum til sjávar. Hraunin í Garðabæ bera nokkur nöfn eftir því hvar þau eru, þ.e Vífilsstaðahraun, Flata- hraun, Garðahraun og Gálgahraun. Hvert þessara hrauna á sitt sérkenni og sína sérstöðu. Öll þurfa hraunin verndun fyrir komandi kynslóðir að njóta. Á Urriðaholti er verið að byggja Náttúrufræðistofu Íslands en vart er til glæsilegri staðsetning fyrir Náttúrufræðistofu en Urriðaholtið með útsýni yfir hraunstíflað Urr- iðakotsvatnið og Vífilsstaðahraunið. Ímynd Garðabæjar, „Bær í blóma“, hefur þroskast um leið og byggðin hefur stækkað. Nú þurfum við að færa okkur á næsta stig og taka hraunin og gígana inn sem einkenni og ímynd Garðabæjar. Við þurfum að vernda Búr- fell, Búrfellsgjá, Selgjá og hraunin sem fólk- vang og tengja þetta allt saman í huga fólksins sem „jarðminjabæinn Garðabæ“. Festa þarf svæðið í sessi sem einstakt jarðminjasvæði inn- an eldfjallagarðsins. Þarna eru mörg tækifæri í ferðamennsku. Nefna má upplifun gesta sem ganga eftir hrauni frá gíg til stranda. Þannig upplifir fólk stórbrotin náttúrufyrirbæri upp- tök og endi á þriggja til fjögurra klukkustunda göngu innan bæjarmarka. Eftir Auði Hallgrímsdóttur Auður Hallgrímsdóttir Höfundur er í 5. sæti á lista fyrir Fólkið í bænum. 24 UmræðanKOSNINGAR 2010 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010 Þeir eru margir áratugirnir síðan við Helgi Sæmundsson vorum í stjórn Alþýðuflokksfélags Reykja- víkur. Hann var ritstjóri Alþýðu- blaðsins og frábær ræðumaður sem heillaði fólk með orðsnilld og glað- legum húmor. Í ræðuflutningi studdist hann ekki við blöð eða fyr- irfram skrifað efni. Helgi var mað- ur sem lét ekki flokkseigendurna ráðskast með sig. Hann var maður fólksins og stóð og féll með sann- færingu sinni. Við vorum góðir kunningjar og studdi ég hann til formanns, enda langbesti kosturinn þá. En honum var hafnað bæði sem formanni og stjórnarmanni. Útkoma kosning- anna var undanfari niðurlægingar Alþýðu- flokksins og dauða. Nokkrum árum seinna, yf- ir kaffibollum á heimili hans, gerði hann mér ljóst að engu sæi hann meira eftir en árunum sem hann sóaði í pólitík. Sem betur fer eru ennþá til alvöru grínistar eins og Helgi. Menn sem þora að láta reyna á hvort frambjóðendur þurfi að vera alvörugefin peð fjórflokkanna til að þjóðin telji óhætt að kjósa þá. Jón Gnarr er þannig maður. Hann hefur reynt að útskýra fyrir pólitískum hræsnurum, að lygi sé ekki trúverðug. Hugs- anlega meinar hann að hægt sé að lágmarka ósannindi. Til dæmis með því að segjast ekki ljúga nema öðru verði ekki við komið. Auðvelt og einfalt. Sannleikur er stundum lygi lík- astur, enda afstæður. Frambjóð- endur lofa oft meiru en búskap- urinn þolir. Þá er spurning hvort verið sé að misnota sannleikann. Mér er kunnugt að núverandi borgarstjóri ætlar að skerða hlut fatlaðra og aldraðra nái hún kosn- ingu. Þar á meðal verður Ferða- þjónusta fatlaðra. Þeim sem ánetjast flokkum, hættir til að kjósa gegn sannfæringu sinni. Kjósum ekki fólk sem hugsar fyrst og fremst um eigin frama. Kjósum þá sem vilja vinna borgarbúum vel. Stjórnmálamenn fjórflokk- anna eru allir við sama heygarðshornið. Þeir fara að vilja auðvalds og eigenda. Þeir ætla að setja á þjóðina áratuga drápsklyfjar skulda og koma henni undir erlent yfirvald. Það er engin áhætta að breyta til. Fjórflokkarnir eru baggar á þjóðinni. Jón Gnarr er óskrifað blað í stjórnmálum. Kjósum hann og snúum baki við eiginhagsmunaklík- um. Látum ekki arðræna okkur framar. Kjósum Jón Gnarr Eftir Albert Jensen Albert Jensen Höfundur er trésmíðameistari. Innan íþróttafélaga í Mosfellsbæ er unnið frábært og óeigingjarnt starf sjálfboðaliða, foreldra, þjálf- ara, stjórnenda og starfsmanna. Starf félaganna er að mestu í mikl- um blóma og ætlum við framsókn- armenn að tryggja að svo verði áfram. Á krepputímum þarf að leggja megináherslu á að innra starf félaganna haldist blómlegt og vilja framsóknarmenn samráð við félög um rekstur og uppbyggingu íþrótta- og tómstundastarfs. Skuldir á íbúa Mosfellsbæjar hafa tvöfaldast á síðustu tveimur árum og nema um 800 þús. á íbúa, veltufjárhlutfall var 0,7% 2009 en þarf að vera 8% ef vel á að vera. Fara verður mjög varlega í nýframkvæmdir því búið er að skuld- binda bæjarsjóð fyrir ýmsum framkvæmdum og fyrirhugaðar framkvæmdir gera það að verkum að skuldir stefna í ríflega 1 milljón á íbúa. Þessar áætlanir sníða rekstri íþrótta- mannvirkja og uppbyggingarstarfi mjög þröngan stakk. Á kvöldvöku Aftureldingar nýverið fór Har- aldur Sverrisson bæjarstjóri undan í flæmingi þegar hann var inntur eftir því hvað liði bygg- ingu anddyris, þjónustu- og félagsað- stöðubyggingar að Varmá, sem núverandi bæjarstjórnarmeirihluti „gaf “ Aft- ureldingu á 100 ára afmælinu. Und- irritaður sagðist ekki ætla að gefa út innistæðulaus loforð í þessu efni en ef tækist að gera raunhæfa kostnaðar- og fjármögnunaráætlun ætti að ljúka þessu á næsta kjör- tímabili. Huga þarf að gerð fim- leikagryfju, bæta lýsingu í íþrótta- sölum að Varmá fyrir blak og badminton og lagfæra frjáls- íþróttaaðstöðu við Varmárvöll. Efla þarf starfsemi MotoMos á Tungu- melum til að bæta aðstöðu og stemma stigu við utanvegaakstri. Fjölga ber reiðstígum og bæta lýsingu þeirra, í samstarfi við Hestamannafélagið Hörð, til að auka umferðaröryggi. Við viljum vinna með forsvarsmönnum Golf- klúbbsins Kjalar að byggingu félagsheimilis, ef sameiginlega tekst að standa skynsamlega að þeirri framkvæmd hvað kostnað og fjár- mögnun áhrærir. Framsóknarmenn vilja hækka frístundaáv- ísanir ef nokkur kostur er til að jafna aðstöðu þeirra sem stunda íþróttir og tómstundir í Mosfellsbæ. Framsókn og kraftur í íþróttamálum Mosfellinga Eftir Snorra Hreggviðsson Snorri Hreggviðsson Höfundur er verkfræðingur, býður sig fram í 3. sæti B-listans í Mosfellsbæ. Frambjóðendur Sjálfstæð- isflokksins í Garðabæ hafa nú í aðdraganda kosninga gengið í öll hús í bænum, að venju, og dreift vandaðri stefnuskrá sinni. Við frambjóðendur erum afar þakklát fyrir þær góðu og uppörvandi viðtökur sem við höfum fengið hjá bæjarbúum. Garðbæingar kunna greinilega vel að meta þá góðu og traustu stjórnsýslu sem viðhöfð hefur verið hér í Garða- bæ undir traustri forystu Sjálfstæð- isflokksins. Auk framboðslista Sjálfstæð- isflokksins bjóða fram þrír aðrir listar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Sam- fylking býður fram í fyrsta sinn í Garðabæ, Framsóknarflokkur lætur aftur reyna á fylgi sitt og býður fram sinn eigin lista eft- ir nokkurt hlé og nokkrir einstaklingar standa að sérframboði sem er að því er best verður séð samansafn óánægðra úr öllum flokkum. Á laugardaginn standa Garðbæingar frammi fyrir því að velja bænum sínum framtíð næstu fjögur árin. Valið stendur í raun og veru á milli þess að veita Sjálfstæð- isflokknum endurnýjað umboð til að stýra Garðabæ og þar með að tryggja áframhaldandi stöð- ugleika og uppbyggingu eða kjósa breytingar sem geta leitt af sér óvissu og óstöðugleika í rekstri bæjarfélagsins. Við lifum á umbrotatímum. Flest sveit- arfélög eru í miklum fjárhagsörð- ugleikum og það takmarkar mjög þeirra möguleika á að halda uppi þeirri þjónustu sem íbúarnir þarfnast. Þessu er sem betur fer ekki þannig varið hér í Garðabæ. Staða bæj- arsjóðs er sterk og fjárhagur traustur sem er forsenda þess blómlega samfélags sem er hér í Garðabæ. Við frambjóðendur Sjálf- stæðisflokksins sækjumst eftir umboði þínu, kjósandi góður, til að halda áfram á sömu braut. Stöndum vörð um framtíð Garðabæjar og kjósum X-D á laugardaginn kemur. Garðbæingar, stöndum vörð um bæinn okkar Eftir Erling Ásgeirsson Erling Ásgeirsson Höfundur er oddviti framboðslista Sjálfstæð- isflokksins í Garðabæ og skipar 5. sæti listans. Næstkomandi laugardag munu íbúar kjósa um hvernig framtíð þeir vilja hafa á Akranesi. Stefnu- skrá Sjálfstæðisflokksins sker sig úr að því leyti að í henni eru skýr verkefni sett fram en ekki loðin lof- orð um allt og ekki neitt. Það er ekki að ástæðulausu sem stefnuskráin er sett fram með þeim hætti. Kjósendur eiga það skilið. Á fjögurra ára fresti er ákveðið upp- gjör. Mín sannfæring er sú að kjós- endur hafi lengra minni en fjögur ár og geti því með auðveldum hætti borið sam- an þetta kjörtímabil 2006- 2010 við kjör- tímabilið 2002- 2006. Stöðnun eða framfarir Eftir mín fyrstu fjögur ár í bæjarstjórn er ég stolt að tilheyra hópi sjálfstæðismanna sem geta komið kinnroðalaust til kjósenda við lok kjörtímabilsins, hópi sem hefur uppfyllt kosn- ingaloforðin sem voru sett fram sem skýr og afmörkuð verkefni. Stolt okkar er ekki síður það að skila svona góði búi með ábyrgri fjár- málstjórnun við einstaklega erfiðar aðstæður. Trúverðugleiki skiptir miklu máli. Stefnuskrá okkar nú er lögð fram af hógværð. Í megindráttum byggist stefnuskrá- in á því að taka til baka í áföngum þær aðhaldsaðgerðir sem farið hef- ur verið í, bæta í velferðina og leggja áfram mikinn þunga í við- haldsverkefni á vegum bæjarins og stuðningsverkefni við atvinnulífið. Þetta er hægt af því að fjárhags- staða bæjarins er góð en engu að síður þarf að halda áfram að endur- skoða fjárhagsáætlun ársfjórð- ungslega og halda vel utan um reksturinn. En með markmið- abundinni áætlun er vel kleift að fylgja loforðunum eftir. Með þá sýn að atvinna sé undirstaða velferðar, þar sem ekki er lagst gegn neinum atvinnugreinum, er hægt að efla velferðina. Að standa gegn uppbyggingu at- vinnulífs en ætla sér samt að bæta í velferðina er innihaldslaus froða. Velferðin verður best varin með nægri atvinnu og hag fjölskyldna að leiðarljósi. Umfram allt er mikilvægt að finna lausnir til eflingar Akranesi, með þeim hætti vil ég áfram vinna, nú sem endranær, fái Sjálf- stæðisflokkurinn umboð þitt, kjósandi góður. Skýr stefna eða loðin loforð Eftir Eydísi Aðalbjörnsdóttur Eydís Aðalbjörnsdóttir Höfundur er bæjarfulltrúi á Akranesi og skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Kópavogur hefur eins og mörg önnur sveitarfélög þurft að spila varnarleik í kjölfar hruns efna- hagslífsins. Hagrætt hefur verið í rekstri bæjarfélagsins og rekstur bæjarfélagsins er traustur. Skuldir bæjarins jukust í kjölfar hrunsins vegna hækkunar er- lendra lána en að mestu vegna lóðaskila. Það var engum ljúft að skila inn lóð framtíðarheimilis fjölskyldunnar í Kópavogi en þegar fólk tapaði peningum og jafnvel missti vinnu, þá voru mörgum ekki aðrar leiðir færar. Bærinn hefur staðið við skuldbindingar sínar gagnvart þessum fjöl- skyldum og við vitum að þegar efnahags- ástandið verður eðlilegra munu þær vilja reisa sitt framtíðarheimili í Kópavogi þar sem allir innviðir eru þegar til staðar. Þá mun bærinn greiða hratt niður skuldir sín- ar en þær hafa lækkað um milljarð frá ára- mótum. Kosningarnar snúast um atvinnumál Sjálfstæðisfólk í Kópavogi hefur lagt fram fjölbreyttar tillögur sem miða að því að örva atvinnulífið. Með breyttu skipulagi í Þingum, Rjúpnahæð og Kársnesi er hægt að mæta eftirspurn sem er að myndast eft- ir minni íbúðum fyrir ungt fólk sem er að kaupa sína fyrstu íbúð. Stærstu árgangar Íslands- sögunnar eru að koma inn á húsnæðismarkaðinn og þeir þurfa hentugt húsnæði. Allir innviðir eru til staðar í bænum til að taka á móti þessu unga fólki. Með tímabundnu afnámi gatnagerðargjalda vegna stækk- unar á eldra húsnæði myndast hvati fyrir fólk til að ráðast í framkvæmdir sem veita munu iðn- aðarmönnum vinnu og hafa jákvæð áhrif á afleiddar atvinnugreinar. Ennfremur viljum við leggja sérstaka áherslu á ferðamennsku, nýta höfnina í ferðatengda starfsemi, bjóða ferðamenn velkomna í landnámsbæ á Kópavogstúni og opna aðgengi að Þríhnúkagíg. Þessi verk- efni munu skapa vinnu við framkvæmdir til skemmri tíma og þjónustu til lengri tíma auk þess að gera bæinn okkar skemmti- legri. Kosningarnar á laugardag snúast um at- vinnumál enda eru þau undirstaða velferð- arinnar. Tryggjum að þau verði sett í önd- vegi með því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi. Snúum vörn í sókn í Kópavogi Eftir Ármann Kr. Ólafsson Ármann Kr. Ólafsson Höfundur skipar 1. sæti á lista Sjálfstæð- isflokksins í Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.