Morgunblaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 30
30 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010
Hve stundin er hröð
og heimslífið skammt,
himinninn mikill – og
lítil storðin! (E. Ben.)
Þegar maður í blóma lífsins er
kvaddur hinstu kveðju, brestur mann
skilning litla stund á tilgangi lífsins
og allt virðist svart í sorgarranni.
Þorsteinn Sigurfinnsson var ljós í
lífi margra og gat sér gott orð sem
vinur og félagi í fjölskyldu sinni og
stórum vinahópi. Við eignuðumst
hann sem velgjörðarmann og góðan
félaga. Hann kom alltaf til dyranna
eins og hann var klæddur, hlýr og
brosandi og vildi hvers manns vanda
leysa. Við áttum margar gleðistundir
með Steina, Vigdísi og börnunum
þeirra þeim Hlyni og Sólveigu meðan
hjónaband þeirra varði, stundir sem
aldrei gleymast.
Steini var meistarinn, allt lék í
höndum hans, fagmaður til verka. Við
í fjölskyldunni minnumst þess hversu
hjálplegur og góður hann var sínum
tengdaforeldrum, þeim Hauki og Sig-
urbjörgu á Stóru-Reykjum. Alltaf
tilbúinn að laga og verða að liði ef
eitthvert verkefni var á döfinni.
Steini var mikið náttúrubarn,
ógleymanlegt var fyrir okkur að fara
með honum um landið, sitja við
straumþunga á eða dorga fisk í vatni.
Þar var hann sá sem allt kunni og
miðlaði af reynslu og þekkingu. Eftir
góðan dag var enginn betri við grillið,
matseld lék í höndum hans og sann-
arlega kunni hann að kitla bragðlauk-
ana. Margar ferðir fór Steini með vin-
um sínum þar sem hann sótti björg í
bú, fugl eða fisk. Hann elskaði landið
sitt og sagði okkur veiðisögur og æv-
intýri úr slíkum ferðum.
Þorsteinn Örn
Sigurfinnsson
✝ Þorsteinn ÖrnSigurfinnsson
fæddist á Fæðingar-
heimili Reykjavíkur
5. júlí 1964. Hann lést
á Landspítalanum
föstudaginn 14. maí
síðastliðinn.
Útför Þorsteins fór
fram frá Guðríðar-
kirkju í Grafarholti
26. maí 2010.
Samstarf okkar varð
mjög náið um tíma.
Hann var bílstjóri okk-
ar þegar ég varð land-
búnaðarráðherra.
Nærvera hans var góð,
hann bjó yfir mikilli til-
litssemi, trúnaði,
snyrtimennsku og var-
færni sem bílstjóri.
Metnaðurinn var að
hafa bílinn óaðfinnan-
legan og þann flottasta
í flotanum. Hann
fylgdist vel með frétt-
um og fræddi ráðherra
sinn og lagði gott til þegar vanda bar
að höndum.
Hvert sem við fórum og hvar sem
við vorum var hann kominn í gott
samband við heimamenn. Í ráðuneyt-
inu var hann vinsæll og greiðvikinn
sem og í hópi bílstjóranna. Við fórum
oft í frí og ferðalög með Steina, Vig-
dísi og börnum þeirra til útlanda.
Steini naut sín vel á slíkum stundum
enda heimsmaður, hafði dvalist með
foreldrum sínum í Frakklandi og víð-
ar. Steina þótti gaman að bregða fyr-
ir sig fallegri frönsku á góðum degi.
Börnum sínum var hann einstakur
faðir og bera þau vitni góðum foreldr-
um.
Steini var listrænn, hann söng með
Fóstbræðrum síðustu misseri og
naut þess af lífi og sál. Við kveðjum
góðan mann sem margir munu sakna.
Í sorg okkar liggur gleði okkar, það
er minning um mann sem var vinur í
raun og sá alltaf ljósið og lífið fram-
undan.
Við sendum börnum hans foreldr-
um og fjölskyldunni allri okkar
dýpstu samúðarkveðjur. Þegar öllu
er á botninn hvolft eru það góðir
menn sem skipta öllu máli í lífinu.
Far í friði, vinur, og friður guðs
fylgi þér um alla eilífð.
Margrét og Guðni Ágústsson.
Þegar ég var að veiða með Þor-
steini Sigurfinnssyni (Steina) uppi í á
hjá mér fyrir norðan hvarflaði ekki að
mér að níu mánuðum seinna sæti ég í
þeim þungu sporum að semja minn-
ingargrein um besta vin minn og góð-
an dreng.
Ég fór með Steina á hverju sumri
síðastliðin ár að veiða ásamt fleiri vin-
um og var þetta mjög góður og sam-
heldinn hópur. Á veturna hittumst
við stundum og elduðum við félagarn-
ir saman villibráð sem við sjálfir
veiddum og voru þetta frábærar
stundir. Steini var frábær kokkur og
eldaði hinar bestu krásir við þessi
tækifæri.
Einnig var Steini með mér í Lions-
klúbbnum Fjörgyn í Grafarvogi síð-
astliðin sjö ár. Þar var hann virkur fé-
lagi og tók hann að sér hin ýmsu verk
og vann hann þau öll af natni og ósér-
hlífni og ávallt skilaði hann góðri
vinnu fyrir klúbbinn. Fyrir það eru
félagarnir ævinlega þakklátir.
Kæri vinur, þakka þér fyrir góð
kynni og trausta vináttu og megir þú
hvíla í friði. Vil ég votta börnum hans,
Hlyni og Sólveigu, og foreldrum hans
mína dýpstu samúð.
Helgi Sigurbjartsson.
Síðastliðið haust gengu nokkrir ný-
ir félagar til liðs við okkur Fóstbræð-
ur. Þetta er árviss atburður að ný
andlit birtist í Fóstbræðraheimilinu
og alltaf er svolítil spenna að sjá
hverjir hafa áhuga á því að syngja og
starfa með kórnum. Kórinn er nefni-
lega bæði skipaður söngmönnum sem
hafa söng sem áhugamál en hann er
ekki síður menningarstofnun sem
starfar eftir gömlum og góðum gild-
um sem eiga upptök sín í kristilegu
starfi allt frá stofnun.
Þorsteinn var einn þessara nýju
manna sem mættu á sína fyrstu æf-
ingu með Fóstbræðrum á liðnu
hausti. Okkur birtist hann sem bros-
hýr, örlítið feiminn en hlýr í viðmóti.
Þorsteinn söng með Fóstbræðrum
allt til jóla en þá hafði meinið gamla
tekið sig upp og nú varð ekki við ráð-
ið.
Við áttum saman alllangt samtal
skömmu eftir áramót er hann gat
ekki mætt til æfinga og sá ég þá til
hans innri manns og tel mig vita mun
betur hvern mann hafði að geyma.
Því get ég sagt með sanni að þar fór
góður drengur alltof snemma.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum.)
Fyrir hönd okkar Fóstbræðra
þakka ég fyrir kynnin af Þorsteini,
þau voru góð.
Öllum ástvinum hans sendum við
samúðarkveðjur.
Gunnlaugur V. Snævarr,
formaður.
Hann kom inn í hópinn eins og
stormsveipur og okkur fannst eins og
við hefðum þekkt hann í mörg ár.
Ljóshærður, kraftmikill, brosandi út
undir eyru og alltaf til í stuð. Þor-
steinn Sigurfinnsson sem við kveðj-
um nú í dag var stór hluti af skóla-
göngu okkar í FB. Við eyddum
miklum tíma saman bæði í skólanum
og í félagslífi og alltaf kom Steini
sterkur inn. Fyrir honum voru hindr-
anir til að takast á við þær og við-
horfið var alltaf: Við reddum ‘essu
krakkar.
Við fráfall hans koma upp í hugann
margar dýrmætar minningar um
tímann okkar saman. Steini var mikill
ljúflingur og mikil félagsvera. Hann
naut sín innan um fólk og þekkti ótrú-
lega marga, það var eins og hann
væri alls staðar á heimavelli. Alltaf
var stutt í brosið hjá honum og hlát-
urinn. Nærvera hans var ljúf og það
var skemmtilegt að umgangast hann.
Steini var alltaf eins. Þó ár liðu á milli
endurfunda, þá var það alltaf eins og
maður hefði hitt hann síðast í gær.
Steini hefur nú yfirgefið sviðið allt-
of fljótt, en í minningunni lifir góður
drengur sem með glaðværð sinni og
jákvæðni naut þess sem lífið bauð
uppá. Börnunum hans, sem hann var
svo stoltur af, foreldrum og systkin-
um sendum við okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
F.h. Jamaicahópsins,
Fjóla Hauksdóttir.
Jónas Sigurgeirsson.
✝
Ástkær bróðir okkar,
ÁSGRÍMUR EINARSSON,
Grundargötu 9,
Siglufirði,
sem lést á Heilbrigðisstofnuninni Siglufirði
miðvikudaginn 19. maí, verður jarðsunginn frá
Siglufjarðarkirkju föstudaginn 28. maí kl. 14.00.
Stella Minný Einarsdóttir,
Sólveig Einarsdóttir,
Ásta Einarsdóttir,
Eysteinn Óskar Einarsson,
Jón Einarsson
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ARNHEIÐUR HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Vallholti 16,
Selfossi,
áður Sólbergi, Stokkseyri,
lést mánudaginn 24. maí.
Anna Jósefsdóttir, Ingibergur Magnússon,
Guðmundur Jósefsson, Arndís Lárusdóttir,
Sigmundur Sigurjónsson,
Ólafur Jósefsson, Rósa Kristín Þorvaldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SKARPHÉÐINN JÓNSSON
frá Kringlu,
Dalabyggð,
lést að dvalarheimilinu Seljahlíð, Reykjavík,
þriðjudaginn 25. maí.
Guðrún Skarphéðinsdóttir, Kjartan Sigurðsson,
Sigríður Skarphéðinsdóttir, Jóel Þorbjarnarson,
Jón Skarphéðinsson,
Margrét Skarphéðinsdóttir, Thor Eggertsson,
Svanhildur Skarphéðinsdóttir, Magnús Sigurðsson,
Jónas Rútsson, Kristín Viðarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
INGIBJÖRG HARALDSDÓTTIR
frá Patreksfirði,
síðast til heimilis
Arnarhrauni 4,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum mánudaginn 24. maí.
Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn
3. júní kl. 13.00.
Pétur Ólafsson,
Arnbjörg Pétursdóttir, Haraldur Ólafsson,
Óliver Pétursson, Svandís Þorvaldsdóttir,
Kristín Petrína Pétursdóttir, Sigþór Jóhannes Guðmundsson,
Haraldur Pétursson
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir mín,
SIGRÍÐUR MARGRÉT GÍSLADÓTTIR,
Sísí,
frá Skálholti,
Vestmannaeyjum,
síðast að dvalarheimilinu Sólvöllum,
Eyrarbakka,
lést þann 20. þessa mánaðar.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki dvalar-
heimilisins að Sólvöllum fyrir einstaklega góða
umönnun og nærveru.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gísli Sigurðsson.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÁSGERÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR,
áður til heimilis í Gnoðavogi 42,
Reykjavík,
lést á dvalarheimilinu Skógarbæ að kvöldi mánu-
dagsins 24. maí.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju mánudaginn
31. maí kl. 11:00.
Kristinn Sigmundsson, Ásgerður Þórisdóttir,
Þórður Sigmundsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og dóttir,
GUÐRÚN ÞÓRSDÓTTIR,
skólastjóri
Vinnuskóla Reykjavíkur,
lést á heimili sínu þann 25. maí.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
3. júní kl. 13.00.
Ólafur Stefánsson,
Þór Ólafsson,
Stefán Ólafsson, Stefanía Björgvinsdóttir,
Anna Hulda Ólafsdóttir, Gunnar Hilmarsson,
Friðrik Boði Ólafsson,
Anna Hulda Sveinsdóttir
og barnabarn.