Morgunblaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 38
38 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand DÓRA, EF SKE KYNNI AÐ SKRÍMSLIÐ REYNI AÐ ÉTA OKKUR... JÁ, DODDI? ÞÁ HEFUR MIG ALLTAF LANGAÐ AÐ SEGJA ÞÉR... JÁ, ELSKAN MÍN? AÐ MÉR HEFUR ALLTAF FUNDIST ÞÚ MJÖG BRAGÐGÓÐ!! ÉG HELD AÐ ÞAU ÆTTU AÐ AFPANTA MATINN ÉG ÆTLA EKKI Í SKÓLANN Í DAG ÉG ER MEÐ HÖFUÐVERK HANN ER SVO HROKAFULLUR EF ÞAÐ VERÐA EINHVERJAR FRAMFARIR Í GRUNNSKÓLA- KENNSLU, LÁTTU MIG VITA NEMA ÞÚ SÉRT MEÐ SJÖ RÉTTA MÁLTÍÐ Í POKANUM... ÞÁ VIL ÉG FARA ÚT AÐ BORÐA ÉG HEF VERIÐ Á FERÐALAGI Í MARGA MÁNUÐI. ÞAÐ VERÐUR GOTT AÐ KOMA HEIM OG FÁ GÓÐA, HEIMALAGAÐA MÁLTÍÐ ÉG KEYPTI ÞESSA FISKA Í GÆLUDÝRA- BÚÐINNI HVERNIG FISKAR ERU ÞETTA? VIÐ FENGUM TÖLVUPÓST FRÁ MANNI Í NÍGERÍU SEM VILL GEFA OKKUR TÍU MILLJÓNIR! VIÐ ERUM RÍKIR! KJÁNA- FISKAR SJÁÐU! ZENTH T-52 FRÁ 1968 KEYPTIR ÞÚ ANNAÐ GAMALT ÚTVARP? HVAÐ ÆTLAR ÞÚ EIGINLEGA AÐ KAUPA ÞÉR MÖRG? HVERJU SKIPTIR ÞAÐ? ÞAU ERU ÓDÝR OG ÉG HEF MJÖG GAMAN AF ÞEIM HEYRÐU! EKKI SNERTA ÞETTA! ÉG HEF EKKI MESTAR ÁHYGGJUR AF PENINGUNUM BIG-TIME, MÁ ÉG HÆTTA AÐ LEIKA KÓNGULÓAR- MANNINN NÚNA? NEI, HANN ÞARF AÐ TAKA SÖKINA FYRIR EINN GLÆP Í VIÐBÓT MORÐIÐ Á MARÍU LOPEZ PETER PARKER FÆR KANNSKI LOKSINS ÖRLITLA HVÍLD... ...EN ILLSKAN SEFUR ALDREI Borgarstjórnar- kosningar Dagurinn er að kveldi kominn, hef þegið kvöldverðarboð hjá syni mínum; hrefnu- kjöt smakkað svona til að finna bragðið, síðan hefðbundinn lamba- kjötsréttur, ís á eftir og kaffisopi. Ekið er heim um Breiðholtið, horft inn í Elliðarárdalinn, ekið um Sundahöfn, nýja stóra bryggju- svæðið skoðað, en þar geta stærstu skemmti- ferðaskip lagst að bryggju; ekið í vesturátt, ný fögur stórhýsi blasa við á Sundabraut í stað sviðakofanna áður við Skúlagöt- una og Sláturfélagið, Kveldúlfs- bryggjuna og Skuggahverfið þá í baksýn, framundan stór bygging í smíðum, sem taka á 1800 áhorfendur í sæti samanborið við álíka höll í Kaupmannahöfn með 1200 sæti. Veðrið er fagurt, innsiglingin blasir við og borgin okkar aðlaðandi, falleg og hrein. Mér duttu í hug kosning- arnar. Hver eða hverjir eiga að taka við fæðingarborg minni að afloknum borgarstjórnarkosningum? Mér virðist að öllum sé nú sama, jafnvel örlög hennar orðin að grín- og hlát- ursefni. Ég viðurkenndi við son minn og tengdadóttur að mér er ekki sama; ég óska að henni verði vel stjórnað og vel verði með fjámuni hennar og skattfé okkar varið. Hvernig þetta endar að lokum veit ég ekki, en mér er ekki sama. Hvað finnst ykkur? Svari hver fyrir sig! Borgarbúi. Selfoss - Stjarnan Þeir sem fylgdust með Íslenska boltanum í sjónvarpinu í fyrra- kvöld frá viðureign Selfoss og Stjörnunnar í úrvalsdeildinni í fót- bolta, urðu vitni að því (þegar sýnt var í hægri endursýningu) þegar leikmaður Selfoss, Sævar Þór Gíslason, „fiskaði“ víta- spyrnu með því að láta sig falla í vítateig andstæðinganna. Það sást greinilega þegar Sævar fór framhjá markverðinum að hann steig niður báðum fótum og lét sig falla með stæl. Dómarinn lét blekkja sig og dæmdi umsvifalaust vítaspyrnu, sem Selfoss skoraði úr. Svona nokkuð er hneisa fyrir íþróttina og vil ég meina að þetta sé svindl sem ber að taka alvarlega á og refsa fyrir. Fyndist þriggja leikja bann og fjársektir vera hæfileg refs- ing. Áhorfandi. Ást er… … þegar matarlystin hverfur. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, vatns- leikfimi (Vesturbæjarl.) kl. 10.50, prjóna- kaffi kl. 13. Árskógar 4 | Handavinna, smíði/ útskurður kl. 9, botsía kl. 9.30, leikfimi kl. 11, helgistund kl. 10.30, myndlist kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Myndlist kl. 9, bók- band kl. 13. Dalbraut 18-20 | Bókabíllinn kl. 11.15, samverustund með sr. Bjarna kl. 15.15. Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8, upplestur kl. 14. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Dagsferð 2. júní um Reykjanes. ATH. brottför frá Sæmundargötu kl. 9.30 og Stangarhyl kl. 10, skrán. og uppl. s. 588-2111. Félagsheimilið Garðatorgi 7 | Leikfimi kl. 9.45, rammavefnaður. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handa- vinna kl. 9, ganga kl. 10, handav. og brids kl. 13, jóga kl. 18. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Gönguhópur, vatnsleikf., karlaleikf., handav. og botsía, fastir tímar. Ath. síð- ustu tímar í karlaleikf. og botsía á önn- inni. Félagsstarf Gerðubergi | Helgistund kl. 10.30, vinnust. opn. frá hád., m.a. mynd- list og perlusaumur. Á morgun fellur starfsemi niður frá hádegi vegna jarð- arfarar Helgu Vilmundardóttur. S. 575- 7720. Furugerði 1, félagsstarf | Messa á föstudag kl. 14. Hraunsel | Morgunrabb/samvera kl. 9, qI-gong kl. 10, leikfimi kl. 11.20, vatns- leikf. kl. 14.10, dansl. 28. maí kl. 20.30- 24, Þorvaldur Halldórs., kr. 1.000. Hvassaleiti 56-58 | Botsía kl. 10, hann- yrðir kl. 13, félagsvist kl. 13.30. Hæðargarður 31 | Hringborðið kl 8.50 Stefánsganga kl. 9, glerskurður kl. 9 og 13. Uppl. í s 411-2790. Kynningarfundur Frjálslyndra kl. 14.30, Pétur Bjarnason spilar á harmonikku. Örsýning Lista- smiðju auk samsýningar Listasmiðju, Frístundah. Sólbúa og Skapandi skrifa. Listasmiðjan opin í júní. Íþróttafélagið Glóð | Hringdansar í Kópavogsskóla kl. 17. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er sundleikfimi í Grafarvogssundl. kl. 9.30. Listasmiðja á Korpúlfsst. kl. 13-16. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu- stund, spjall og léttar æfingar kl. 10, handverks- og bókastofa op., botsía kl. 13.30, þjóðlagastund kl. 15, hárgreiðslu- stofa s. 552-2488, fótaaðgerðastofa s. 552-7522. Norðurbrún 1 | Smíðastofa opin, hand- av. og leirlist kl. 9 og 13, botsía kl. 10, bókabíll kl. 10. Sími 411-2760. Vesturgata 7 | Handavinna, glerskurður kl. 9.15, ganga kl. 11.30, kertaskreytingar kl. 13, kóræfing kl. 13, leikfimi kl. 14 30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bók- band/postulín. kl. 9, morgunst. kl. 9.30, botsía kl. 10, framh.saga kl. 12.30, hand- av. kl. 13, frjáls spil, stóladans kl. 13.15, bíómynd kl. 13.45. Sigrún Haraldsdóttir kastar framstöku um gang lífsins: Gjörla varla gengur mér glóru í því að eygja, furðulegt það ferli er að fæðast til að deyja. Kristján Eiríksson veltir því fyrir sér hvort þessu sé öfugt farið „eða þannig“: Þessu trúa ýmsir enn, um eilífð vonir glæðast, að drottinn láti dýrðarmenn deyja til að fæðast. Davíð Hjálmar Haraldsson klykkir út með: Sólin myrkrið sigrar enn, sá er lífsins kraftur að grafnir fyrrum göngumenn ganga sumir aftur. Víst er að Margrét Jónsdóttir lif- ir enn í skáldskap sínum, en hún fæddist að Árbæ í Holtum árið 1893 og lést árið 1971. Margrét var rit- stjóri Æskunnar og skrifaði marg- ar bækur, sögur, ljóð og leikrit. Eitt kunnasta kvæði hennar er Ísland er land þitt, sem fjallar meðal annars um trúna á „frelsisins vor“. En hún orti einnig „Á Seltjarnarnesi“, þar sem þetta er skrifað: Fjalla hringur fagur, víður faðminn breiðir móti þér. Særinn blikar blár og fríður, bjart er, hvert sem litið er. Snæfellsjöfur skarti skrýddur skikkjum mjallar tiginn ber. Sólargeisla gulli prýddur gnæfir yfir land og ver. Vísnahorn pebl@mbl.is Af sól og Seltjarnarnesi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.