Morgunblaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010 Lántakendur losni úr snörunni  Fjármögnunarfyrirtæki og félagsmálaráðherra vilja að allir sitji við sama borð  Um 112 milljarðar króna útistandandi í um 40 þúsund myntkörfulánum Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri fjármögn- unarfyrirtækisins Lýsingar hf., segir að fyrirtækið ætli að bíða átekta eftir frumvarpi félagsmálaráð- herra um lækkun bílalána í erlendri mynt og að lögin verði samþykkt. „Þá sitja allir við sama borð og við förum eftir þeim lögum sem verða sett,“ seg- ir hann. Um 40 þúsund myntkörfulán SP-Fjármögnun tilkynnti í fyrradag að fyr- irtækið ætlaði frá og með gærdeginum að bjóða upp á lækkun höfuðstóls erlendra bílalána. Fram hefur komið að samtals séu um 120 milljarðar úti- standandi í ríflega 53 þúsund bílalánum og þar af séu um 112 milljarðar í um 40 þúsund myntkörful- ánum. Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjár- mögnunarfyrirtækisins Avant hf., segir að Avant hafi skoðað hvað hægt væri að gera í stöðunni, drög að frumvarpi liggi fyrir og síðan falli stóri dómur um lögmæti erlendra lána í Hæstarétti. Ekki sé ráðlegt að grípa til einhverra aðgerða nú og þurfa að snúa við í miðri á eftir nokkrar vikur eða þegar niðurstaða Hæstaréttar liggur fyrir. Því hefði Avant ákveðið að bíða átekta, staldra við, skoða stóru myndina og taka síðan ákvarðanir í framhaldi af því. Almennt geti fólk gert ráð fyrir því að fjármögnunarfyrirtækin komi til móts við viðskiptavini sína, þannig að þeir beri ekki skaða af því að vera hjá einu fyrirtæki frekar en öðru, en ótal spurningar brenni á öllum viðkomandi. Fljótlega verða tekin fyrir í Hæstarétti tvö mál um lögmæti erlendra lána. Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra segir að frumvarpið um lækk- un bílalána í erlendri mynt sé ótengt þessum mál- um. Feli niðurstaða dóms Hæstaréttar í sér frekari rétt fyrir lántakendur njóti þeir hans og ef ekki tryggi frumvarpið þeim ákveðinn rétt. Eftir stendur sú spurning hvort það borgar sig að breyta erlendum lánum í ís- lenskar krónur. „Mér finnst mjög mikilvægt að Björk láti í sér heyra og allir þeir sem vilja stemma stigu við því að ágóðinn af auðlindunum fari til einkaaðila í út- löndum og úr höndum íslensks al- mennings sem á þessar auðlindir. Ég er því glöð að fá áskorun frá henni og vil áskorun frá sem flestum,“ segir Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráð- herra, innt viðbragða við tölvupósti Bjarkar Guðmundsdóttur tónlistar- konu til stjórnarþingmanna sem greint var frá í blaðinu í gær. Þarf að skoða ofan í kjöl Í bréfi sínu stingur Björk upp á því að stjórnarþingmenn rifti samningn- um á sölu HS Orku til kanadíska fyr- irtækisins Magma Energy. Í samtali við Morgunblaðið segist Svandís þeirrar skoðunar að leita eigi allra leiða sem fyrst til þess að vinda ofan af málinu og tekur hún fram að hún sé búin að skoða nokkrar leiðir í þeim efnum og nefnir lagasetningu í því samhengi. „Mér finnst yfirbragðið á öllum þessum gjörningum í tengslum við Magma bera vott um að það þurfi að skoða þau mál verulega ofan í kjöl- inn,“ segir Svandís og telur ljóst að reisa þurfi varnir í formi lagasetning- ar. „Ég er þeirrar skoðunar að þegar löggjöfin var sett á sínum tíma þá hafi hún ekki verið fullrædd í samfélaginu og ég held að fólk sé núna að átta sig á því hvert þessi löggjöf getur leitt okkur. Því eins og hún lítur út er ekkert sem kem- ur í veg fyrir að við getum glutrað auðlindunum út úr höndunum á okkur eins og þær leggja sig.“ Fagnar ákalli Bjarkar  Umhverfisráðherra skoðar leiðir til að vinda ofan af sölunni á HS Orku Árni Páll Árna- son félagsmála- ráðherra mælir fyrir frumvarpi um lækkun bíla- lána í næstu viku, væntan- lega 1. júní. Hann segir að ákvörðun SP- Fjármögnunar um að bjóða upp á lækkun höf- uðstóls erlendra lána sýni að við- bárur þess efnis að slíkt sé fjár- mögnunarfyrirtækjunum um megn og setji þau í þrot eigi ekki við rök að styðjast. Ríkið eigi því ekki að þurfa að óttast bótamál frá þessum fyrirtækjum vegna lagasetningarinnar. Stuðningur við frumvarpið Árni Páll Árnason Sú ákvörðun SP-Fjármögnunar að bjóða höfuðstólslækkun á bílalánum mun hafa jákvæð áhrif á bílasölu í landinu að mati Özurar Lárussonar, framkvæmdastóra Bílgreina- sambandsins. Hann fagnar frum- kvæði fjármögnunarfyrirtækisins og segir að söluaukning muni bæta úr brýnni þörf fyrir notaðar bifreiðar í landinu. Özur segir bílasölu hafa aukist áð- ur en SP tilkynnti ákvörunina. „Það var 17,5% aukning í síðustu viku frá sömu viku í fyrra. Það hefur verið 8- 10% aukning á mánuði frá áramót- um frá fyrra ári. Þetta eru jákvæð teikn en ég legg áherslu á að ég er aðeins að tala um fólksbíla.“ Bílasala tekin að glæðast Slökkviliðið í Borgarbyggð náði um klukkan 21 í gærkvöldi að slökkva sinu- og kjarreld sem kviknaði síðdegis við Jarðlangsstaði við Langá á Mýrum. Fjöldi manna tók þátt í slökkvistarfinu, bæði slökkviliðsmenn víða að úr Borgarfirði, bændur á svæðinu sem margir komu með haug- sugur og fleiri. Verulegar gróðurskemmdir urðu á nokkurra hektara svæði. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá púströri á fjórhjóli sem þarna var verið að nota við að draga út vatnslögn til sumarhúsalóða í grenndinni. Sinu- og kjarreldar við Jarðlangsstaði Morgunblaðið/Theodór Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma á Íslandi, segir rang- færslur í viðtalinu við Björk. Bendir hann m.a. á að HS Orka eigi ekki auðlindirnar við orkuverin í Svartsengi og á Reykjanesi og því ekki hægt að segja að verið sé að selja þær. Jafnframt bendir hann á að löggjöf frá 2008 heimili að orkufyrirtæki í einkaeigu leigi auðlindir af t.d. opinberum aðilum og samkvæmt henni er hámarks- leigutíminn 65 ár. „Að hálfnuðum þeim tíma er unnt að framlengja leigutímann, þannig að allt tal um 130 ára leigutíma á sér ekki stoð í lögunum.“ Ekki rétt FORSTJÓRI MAGMA Filippus Hannesson, bóndi á Núpsstað, andaðist á hjúkrunar- heimilinu Klaustur- hólum á hvítasunnu- dag, 23. maí, á 101. aldursári. Filippus fæddist á Núpsstað 2. desember 1909 og voru foreldrar hans Hannes Jónsson, landpóstur og bóndi, og Þóranna Þórarins- dóttir húsfreyja. Filippus var sá fjórði í röð tíu syst- kina. Margrét er elst, fædd 1904, þá Dagbjört, fædd 1905, Eyjólfur, fæddur 1907, Filippus, fæddur 1909, Margrét, fædd 1910, Jón, fæddur 1913, Málfríður, fædd 1914, Sigrún, fædd 1920, Jóna Að- alheiður, fædd 1924, og Ágústa Þor- björg, fædd 1930. Filippus var ókvæntur og barnlaus. Hann var fjárbóndi lengst af æv- innar og ólst upp við það að fé væri beitt á vetrum en minna gefið hey á húsum. Kindurnar hans voru vanar útigangi og voru að hluta gamall kvíastofn, svolítið gróf- byggðar, sem hentaði vel í fjalllendi, og harðgerar. Filippus hætti fjárbú- skap árið sem hann varð níræður, það er 1999. Systkinin Margrét (f. 1904), Jón, Jóna Aðal- heiður og Ágústa Þorbjörg, lifa bróð- ur sinn. Þau Margrét og Filippus voru elstu lifandi systkini landsins og ald- ur þeirra samanlagt kominn yfir 205 ár sem mun vera Íslandsmet sam- kvæmt vefnum langlifi.net Andlát Filippus Hannesson bóndi á Núpsstað Svandís Svavarsdóttir Mannanafnanefnd hefur heimilað að karlmannsnöfnin Brími og Móri og kvenmannsnöfnin Eres, Róska og Sylva verði skráð á mannanafna- skrá. Hins vegar hefur nefndin hafn- að nöfnunum Ericu og Werner og millinafninu Zitu en samþykkt milli- nafnið Magg. Í umfjöllun um karlmannsnafnið Werner segir m.a. að þrír íslenskir karlar séu skráðir með þetta nafn, sá elsti nærri áttræður. Þá er 31 karl skráður í þjóðskrá með eiginnafnið Werner, þar af tveir með íslenskt ríkisfang frá fæðingu en hafa ekki átt búsetu hér. Hinir eru allir er- lendir ríkisborgarar sem búa eða hafa búið hér á landi. Í manntali 1920 bar enginn þetta nafn og því telst ekki hefð vera fyrir því. Móri í lagi en Werner hafnað Ásgeir Margeirsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.