Morgunblaðið - 27.05.2010, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Ólafur og Kolbrún
leiða H-lista framboð
um heiðarleika
Hlynur Orri Stefánsson
Sigurður Bogi Sævarsson
Mjög misjafnt er hversu
miklu fé flokkarnir sem
bjóða fram til sveitar-
stjórnarkosninga nú hafa
varið í auglýsingar. Sam-
fylkingin hefur eytt mestu
og Sjálfstæðisflokkurinn
næstmestu, samkvæmt
tölum frá Creditinfo, og komast aðr-
ir flokkar vart með tærnar þar sem
þessir flokkar hafa hælana.
Áður en kosningabaráttan hófst
sammæltust Framsóknarflokkurinn,
Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn
og Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð um að eyða ekki meiru í auglýs-
ingar, hvort heldur í blöðum, á net-
inu eða í ljósvakanum, en 11
milljónum króna á tímabilinu frá 29.
apríl og fram að kosningum 29. maí.
Besti flokkurinn var ekki með í
því samkomulagi og er því ekki í
samantekt Creditinfo. Að sögn
Gauks Úlfarssonar, fjölmiðlafulltrúa
flokksins, er auglýsingakostnaður
framboðsins nú 600 þús-
und kr. og fer ekki yfir
eina milljón.
Tölur Ceditinfo ná
fram á sl. mánudag og
hafði Samfylkingin þá
eytt 7,4 milljónum í aug-
lýsingar, sem eru 67,1% af
11 milljóna króna há-
markinu. Ætla má þó að
kostnaður Samfylkingar
sé orðinn meiri. Flokkurinn gaf út
átta síðna fylgiblað með Frétta-
blaðinu á miðvikudag. Auk þess birt-
ust t.d. tvær auglýsingar frá flokkn-
um í Fréttablaðinu á þriðjudag.
Munu ekki fara
yfir hámarkið
„Við fylgjumst vel með þessu og
pössum mjög vel upp á að fara ekki
yfir þessa upphæð,“ segir Sigrún
Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Sam-
fylkingar. Þá segir hún blaðið sem
fylgdi Fréttablaðinu í gær vera
„fylgiblað, ekki auglýsingu“. Hún
hafði í gær ekki tölur um kostnað
sem eru nýrri en frá mánudegi.
Sjálfstæðisflokkur hafði á
mánudag eytt 4,7 milljónum sem eru
42,5% af hámarkstölu. Gera má ráð
fyrir að kostnaður Sjálfstæðisflokks
hafi einnig hækkað síðan á mánudag,
enda birtist t.d. auglýsing frá flokkn-
um í Morgunblaðinu í gær.
Fylgja settri birtingaráætlun
Jónmundur Guðmarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks,
segir að eftir að flokkarnir gerðu
með sér áðurnefnt samkomulag hafi
sjálfstæðismenn sett sér birtingar-
áætlun í samræmi við það. „Við höf-
um fylgt og munum áfram fylgja
þeirri áætlun svo ég á ekki von á
öðru en að kostnaður okkar komi til
með vera töluvert innan markanna.“
Hann hefur ekki tölur sem eru nýrri
en þær frá Creditinfo.
Athygli vekur hversu langt
Framsóknarflokkur og Vinstri græn
eru frá samþykktum hámarkskostn-
aði. Kostnaður Framsóknar var á
mánudag ekki nema 3,9% af 11 millj-
óna hámarkinu en kostnaður VG
14,1% .
Mikill munur á
auglýsingakostnaði
Samfylking auglýsti mest fyrir sveitarstjórnarkosningar
Auglýsingafé flokkanna
Samtals, með vsk
8
7
6
5
4
3
2
1
0
M
ill
jó
ni
r
kr
ón
a
Sjálfstæðis-
flokkurinn
Framsóknar-
flokkurinn
Samfylkingin Vinstri grænir Besti
flokkurinn
Samtals:
4.669.919
Samtals:
430.868
Samtals:
7.376.585
Samtals:
1.548.115
Samtals:
600.000*
Blöð Sjónvarp Útvarp Netmiðlar Hlutfall af 11 milljóna hámarki
42,5%
3,9%
67,1%
14,1%
5,5%
*Sundurgreining liggur ekki fyrir
Tölurnar Hjá Besta flokknum eru tölurnar frá flokknum sjálfum, en í öðrum tilvikum eru þær fengnar frá Creditinfo.
Hjálmar Sveinsson, frambjóðandi í 4.
sæti á lista Samfylkingarinnar í
Reykjavík, sagði í RÚV í gær að hann
teldi óhjákvæmilegt að Steinunn Val-
dís Óskarsdóttir, alþingismaður og
fyrrverandi borgarstjóri, segði af sér.
Ástæðan er styrkir sem hún fékk
vegna prófkjöra fyrir sveitarstjórnar-
kosningar 2006 og alþingiskosningar
2007. Hjálmar sagði að þetta særði
réttlætiskennd fólks „og réttlætis-
kenndin er heilög“, sagði hann.
Steinunn Valdís fékk alls 8,1 millj-
ón frá lögaðilum vegna prófkjörs fyrir
borgarstjórnarkosningarnar. Hún
fékk 4,65 milljónir að auki vegna próf-
kjörs til alþingiskosninganna. Dagur
B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar-
innar í Reykjavík, fékk 5,6 milljónir í
styrki fyrir sama prófkjör fyrir borg-
arstjórnarkosningar, þar af þrjár frá
lögaðilum. Morg-
unblaðið spurði
Hjálmar hvers
vegna hann gerði
ekki sömu kröfu
til Dags og Stein-
unnar Valdísar
um afsögn.
Hjálmar sagði
að hann teldi að
þær háu fjárhæðir
sem Steinunn Valdís fékk á skömm-
um tíma, tæpar 13 milljónir, hefðu
sært réttlætiskennd fólks.
„Ég get líka sagt að mér finnst
það of mikið sem Dagur fékk“
Honum þótti ekki rétt að bera sam-
an sérstaklega styrki til þeirra Dags
og Steinunnar Valdísar vegna próf-
kjörsins sem þau tóku bæði þátt í en
undanskilja styrki til Steinunnar
vegna alþingisprófkjörsins.
„Það er þessi ofboðslega háa upp-
hæð sem öllum, og ég held meira að
segja henni sjálfri, finnst að hafi verið
of há. Ég get líka sagt að mér finnst
það of mikið sem Dagur fékk,“ sagði
Hjálmar. Hann sagði að sér þætti
bæði skynsamlegt og virðingarvert af
Degi að hann skyldi hafa sett sér þá
reglu að taka ekki við meira en 500
þúsund krónum frá hverjum þeim
sem styrkti hann. Hjálmar sagði að
sér þætti mikill munur á því að þiggja
500 þúsund frá einhverjum og að
þiggja tvær milljónir frá þeim sama.
„Munurinn liggur í því að Steinunn
Valdís fékk tæpar 13 milljónir á einu
ári og Dagur fékk 5-6 milljónir. Það
finnst mér mjög mikill munur,“ sagði
Hjálmar. gudni@mbl.is
Mikill munur á 5-6 milljón-
um og nærri 13 milljónum
Hjálmar Sveinsson
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Við einbeitum okkur að því nú
hvernig við getum haldið Landsmót
hestamanna árið 2010. Það er ekkert
annað uppi á borðinu,“ sagði Har-
aldur Þórarinsson, formaður Lands-
sambands hestamannafélaga.
Sem kunnugt er hefur skæð
hestapest herjað víða um land og
ógnað undirbúningi landsmótsins.
Það á að hefjast á Vindheimamelum
í Skagafirði 27. júní. Haraldur sagði
margar hugmyndir á kreiki um
hvernig ætti að bregðast við vand-
anum sem hestapestin ylli. Á meðal
hestamanna ganga sögusagnir um
að landsmótinu verði frestað um ár
eða tvö.
Haraldur sagði það vonbrigði að
hestapestin væri ekki að gefa neitt
eftir eins og dýralæknar höfðu talið
að hún myndi gera. „Hún átti að
veikjast eins og aðrar flensur þegar
kæmi fram á sumarið. Það virðist
ekki ætla að ganga eftir og þeir eru
ekki búnir að finna hvaða veira þetta
er. Það eru óþægilega mörg ef í
þessu öllu saman,“ sagði Haraldur.
Hann sagði marga gera sér grein
fyrir því nú hve mikið væri í húfi fyr-
ir þá sem hefðu atvinnu af íslenska
hestinum og ekki síst ferðaþjón-
ustuna að landsmótið yrði haldið.
„Við verðum að vera alveg 100% viss
ef á að blása landsmótið af. Við ætl-
um að halda okkar striki og meta
stöðuna á mánudaginn kemur. Þá
förum við yfir þetta og látum okkar
færustu sérfræðinga meta stöðuna,“
sagði Haraldur.
Fundur var haldinn í sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðuneytinu
annan í hvítasunnu með hags-
munaaðilum, yfirdýralækni og
dýralækni hrossasjúkdóma.
Fundurinn á mánudaginn verð-
ur í húsi ÍSÍ í Laugardal og þar
kemur saman stærri hópur
en í ráðuneytinu.
Á morgun verður
formannafundur
allra hestamanna-
félaganna og þar
verður farið yfir
hvernig pestin hef-
ur leikið hvert land-
svæði um sig og á
hvaða stigi hún er á
hverjum stað.
Stefna að lands-
móti þrátt fyrir
hósta og hik
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Vindheimamelar Undirbúningur
fyrir landsmótið stendur sem hæst.
Afar mikilvægt er að fyrir-
byggja sýkingar í kjölfar
hóstapestarinnar sem lagst
hefur á hesta víða um land. Á
vef Matvælastofnunar
(www.mast.is) segir að sýk-
ingar í kjölfar pestarinnar
virðist magnast hratt upp í
hesthúsum. Því sé áríðandi að
hafa hrossin eins mikið úti og
í eins hreinu umhverfi og
hægt er.
Óhætt er að
sleppa hrossum
sem ekki bíða
sérstök verkefni
og draga þannig
úr smitálagi í hest-
húsunum. Nauð-
synlegt er að hvíla
hestana um leið og
vart verður við
fyrstu einkenni
veikinnar.
Tamningamenn
segja að svo virðist
sem hestar séu alla
jafna fljótir að ná sér
eftir veikindin.
Útiveran góð
FYRIRBYGGJA Á SÝKINGAR