Morgunblaðið - 27.05.2010, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010
Halldór Jónsson verkfræðingurskrifar: „Nú er BYR fallinn.
Enn eitt handarverk meistara Jóns
Ásgeirs og félaga hans. Lánveit-
ingar til þeirra félaga felldu BYR
þar sem afskrifa þurfti lán uppá
tugi milljarða til þeirra, sem þeir
létu handbendi sín í stjórn BYR
samþykkja að lána gegn engum
tryggingum. Starfsmenn BYR sem
áttu að kunna Basel-reglurnar og
halda trúnað við
umbjóðendur
sína brugðust
eigendunum. Enn
eitt bankaránið
innanfrá. Enn
eitt brotið af
hálfu trúnaðar-
manna banka
leiðir til þess að
eigendurnir tapa
öllu. Þetta frá-
bæra starfsfólk og trúnaðarmenn
okkar stofnfjáreigenda, sem var
venja að lofsyngja á hverjum fund-
inum eftir annan lét þá sumt bara
kaupa sig til brotastarfsemi eða þá
þagnar.
Jón Ásgeir skipulagði leikfléttu
sem fólst í því að láta stofnfjárfesta
auka við stofnfé sitt uppá 30 millj-
arða. Hann beitti fyrir þá með því
að bankinn hans Glitnir myndi lána
þeim sem vildu fyrir allri aukning-
unni. Engra frekari trygginga yrði
krafist heldur en veðs í bréfunum
sjálfum. Strax á fyrsta ári myndu
menn fá myndarlegan arð sem
myndi greiða þriðjung af láninu.
Næstu ár myndi arður svo greiða
restina af skuldinni. Fyrirhafnar-
laus fjármögnun stofnfjárkaupa
þessa óskabarns allra, BYR Spari-
sjóðs.“
Nú vita allir hve illan endi þettafékk eins og fleiri fléttur sama.
Hinn Sérstaki eltist enn við Sigurð
úr Kaupþingi og heimtar framsal.
Bandaríkjamenn heimta að Jam-
aíka framselji foringjann Coke til
sín.
En hvað með Diet Coke? Þar erbara eftirspurn frá L.Í. og Arion
sem vilja fá að lána honum meira.
Halldór Jónsson
Er hann útundan?
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Kristján Loftsson, framkvæmda-
stjóri Hvals hf., segir að fresta verði
byrjun hvalveiða í sumar um
óákveðinn tíma vegna frumvarps um
hvalveiðar, sem legið hafi fyrir Al-
þingi, en fyrir helgi var afgreiðslu
þess frestað til haustsins.
Vegna frumvarpsins var ómögu-
legt að skipuleggja veiðar og vinnslu
sumarsins, að sögn Kristjáns. Hefði
það orðið að lögum, hefði farið í gang
ferli umsagna og ákvarðanatöku.
Áður en frumvarpið var lagt fram
hafi hann gælt við að hefja veiðar
eftir sjómannadaginn, en óvissan um
framhaldið hafi tafið allan undirbún-
ing og úr því sem komið er verði
varla byrjað fyrir þjóðhátíðardag.
Áður en veiðarnar hefjast þarf að
fara með hvalveiðiskipin tvö í slipp
og segir Kristján að nú þurfi að fara
í þá röð á ný. Gert hafi verið ráð fyr-
ir að ráða um 150 manns vegna veiða
og vinnslu og segir Kristján að
mannskapurinn frá því í fyrra sé að
mestu til taks en ekki sé hægt að
ráða fólk fyrr en staðan skýrist nán-
ar.
„Ég vona bara að þetta haldi sem
þeir segja,“ segir Kristján um með-
ferð frumvarpsins og vísar til þess
að ekkert hafi verið dregið til baka
og þingið muni fjalla um það í sept-
ember. Kvóti Hvals í ár er 150 lang-
reyðar auk 25 dýra frá fyrra fisk-
veiðiári eða 175 dýr. Veiðarnar geta
dregist lengra fram á haustið en í
fyrra vegna seinkunarinnar.
Hvalveiðar í undirbúningi
Sjómannadagurinn var viðmiðið en
nú horft til nándar við þjóðhátíðardag
Morgunblaðið/Kristinn
Spenna Hvalveiðar hefjast senn.
Nýtt fimleikahús við Ásgarð í
Garðabæ var formlega tekið í notk-
un í vikunni. Fimleikahúsið er
nærri 3.500 fermetrar að flatarmáli
og er byggt við Íþróttamiðstöðina í
Ásgarði. Í tilkynningu frá Garðabæ
kemur fram að húsið hafi verið
reist án lántöku. Haft var samstarf
við fimleikadeild Stjörnunnar við
hönnun hússins en yfirþjálfari
deildarinnar, Jimmy Ekstad, var
meðal ráðgjafa við hönnunina. Í
húsinu verður aðsetur fimleika-
deildar Stjörnunnar auk þess sem
lögð var áhersla á að húsið nýttist
til fjölbreytts íþróttastarfs með að-
gengi skóla, leikskóla og eldri bæj-
arbúa. Við vígsluna ávarpaði Ólaf-
ur Rafnsson, forseti ÍSÍ, gesti
hátíðarinnar en á borðann klipptu
Gunnar Einarsson bæjarstjóri og
Ragnhildur Inga Guðbjartsdóttir,
formaður íþrótta- og tóm-
stundaráðs Garðabæjar.
Nýtt fimleikahús í Ásgarði
Veður víða um heim 26.5., kl. 18.00
Reykjavík 13 léttskýjað
Bolungarvík 8 heiðskírt
Akureyri 4 skýjað
Egilsstaðir 3 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 13 skýjað
Nuuk 16 heiðskírt
Þórshöfn 6 skýjað
Ósló 13 heiðskírt
Kaupmannahöfn 13 skýjað
Stokkhólmur 16 heiðskírt
Helsinki 12 skúrir
Lúxemborg 19 léttskýjað
Brussel 10 skýjað
Dublin 14 léttskýjað
Glasgow 15 heiðskírt
London 14 skýjað
París 19 skýjað
Amsterdam 13 léttskýjað
Hamborg 14 skýjað
Berlín 15 heiðskírt
Vín 21 alskýjað
Moskva 10 skúrir
Algarve 23 heiðskírt
Madríd 24 heiðskírt
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 22 heiðskírt
Róm 23 léttskýjað
Aþena 26 heiðskírt
Winnipeg 13 skýjað
Montreal 30 léttskýjað
New York 31 heiðskírt
Chicago 28 skýjað
Orlando 28 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR
27. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:36 23:15
ÍSAFJÖRÐUR 3:03 23:58
SIGLUFJÖRÐUR 2:44 23:43
DJÚPIVOGUR 2:57 22:53
Milljónaútdráttur
Þar sem eingöngu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigandi bæði að
hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
5. flokkur, 26. maí 2010
Kr. 1.000.000,-
2710 H
3902 E
7217 G
11173 E
24117 E
30543 H
38237 H
40000 B
53326 B
56397 H
TIL HAMINGJU
VINNINGSHAFAR