Morgunblaðið - 27.05.2010, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010
10 Daglegt líf
Ertu að telja kalóríurnar? Láttu Carb-
counter.org hjálpa þér. Þetta er frír
gagnagrunnur þar sem hægt er að sjá
kalóríuinnihaldið í yfir sex þúsund og
fimmhundruð ólíkum matarteg-
undum. Einnig er hægt að finna
kalóríuinnihald margra ólíkra drykkja
á síðunni.
Grunninum er skipt í nokkra mat-
ar- og drykkjarflokka. Hægt er að
nota síðuna á tvo vegu; auðvelda leið-
in er leitargluggi og síðan er hægt að
velja flokka og athuga hvort matar-
tegundin sem leitað er að, komi ekki
upp innan þeirra.
Ef flokkurinn grænmeti er valinn
koma upp tugir grænmetistegunda.
Ef gulrætur eru valdar innan hans
kemur upp löng tafla með kalóríu-
innihaldi allskonar ólíkra útgáfna af
gulrótum; hráar gulrætur, hráar og
skornar gulrætur, frystar og skornar
gulrætur, frystar gulrætur án salts,
gulrótasafi og allskonar aðrar út-
gáfur af gulrótum. Meðal annars eru
kolvetnin og trefjarnar í hverjum 100
gr. talin upp og síðan í einni
skammtastærð. Gulræturnar eru
voða hollar en þegar skyndibitamat-
urinn og önnur óhollusta er skoðuð er
annað hljóð í strokknum, augljóslega
ekkert gott fyrir æðakerfið þar.
Vefsíðan www.carb-counter.org
Morgunblaðið/Ómar
Grænmeti Hægt er að lesa allt um hollustu þess á vefsíðunni.
Hollusta eða óhollusta?
Á síðustu tuttugu árum hafa farið
fram hátt í þrjátíu minni og stærri
fornleifarannsóknir á vestursvæðum
Seltjarnarness, flestar á bæjar-
hólnum í Nesi. Á sýningunni Saga og
framtíð, fornleifarannsóknir á vest-
ursvæðunum, sem nú stendur í Nes-
stofu, er gerð grein fyrir rannsókn-
unum og helstu niðurstöðum þeirra.
Á norðanverðum bæjarhólnum í Nesi
stendur nú yfir fornleifarannsókn á
vegum Háskóla Íslands.
Í dag, fimmtudaginn 27. maí, kl.
14.00 fræðir Margrét Hrönn Hall-
mundsdóttir fornleifafræðingur gesti
um rannsóknirnar, gripina og helstu
niðurstöðurnar. Einnig gengur Mar-
grét Hrönn um bæjarhólinn og skoð-
ar yfirstandandi fornleifarannsókn
Háskólans og bendir á sýnilegar bú-
setuminjar sem þar eru varðveittar.
Aðgangur er ókeypis.
Endilega...
...fræðist um Nesstofu
Morgunblaðið/Ómar
Nesstofa Leiðsögn verður um staðinn í dag.
Íþróttaiðkun barna er aðeins af hinu
góða þegar hún er í hófi og kröfurnar
eru raunhæfar. Of mörgum ungum
íþróttamönnum er ýtt óeðlilega
áfram, gerðar eru of miklar kröfur til
þeirra og þeir gera of miklar kröfur til
sjálfra sín, sem gerir það að verkum
að þeir eru undir gríðarlegu álagi, lík-
amlega sem andlega. Þetta segir í
grein í The New York Times.
Hvert ár þurfa yfir 3.5 milljónir
barna undir 15 ára aldri í Bandaríkj-
unum læknisaðstoð vegna íþrótta-
meiðsla, helmingurinn af þeim er
vegna álags og ofþjálfunar. Meiðslin
eru samt aðeins hluti af vandamálinu
að sögn Mark Hyman sem er höf-
undur bókarinnar Until It Hurts: Am-
erica’s Obsession with Youth Sports
and How It Harms Our Kids. Eftir því
sem fullorðnir koma meira nálægt
þjálfun barna og ungmenna, virðist
þjálfunin færast fjær heilbrigðu við-
horfi til íþrótta og því að skapa heil-
brigt, öruggt og uppbyggjandi starf
fyrir börnin.
Markmiðið með íþróttaþjálfun
barna ætti að vera að skapa ævilangt
gott líkamlegt atgervi, tómstundir og
færni í heilbrigðri keppni. Því miður
eyðileggja fullorðnir, foreldrar og
þjálfarar, þessi markmið sem eru orð-
in eins og í heimi atvinnumennsk-
unnar. Fæstir horfa til þess að aðeins
2 til 5 af hverjum 1000 ungum
íþróttamönnum komast í atvinnu-
mennsku.
Það er gengið of langt þegar
íþróttaiðkun og frammistaða snýst
öll um að vinna og leiðir til meiðsla
Börn
Ofþjálfun barna orðin vandamál
Bónus
Gildir 27. - 30. maí verð nú áður mælie. verð
Bónus pylsubrauð, 5 stk............. 98 109 20 kr. stk.
Bónus pylsur ............................. 599 719 599 kr. kg
Fanta lemon, 500 ml ................. 98 109 196 kr. ltr
Es bleiur, allar teg...................... 1.498 1.579 1.498 kr. pk.
Ín ferskir borg., 4 stk. m/brauði .. 598 719 150 kr. stk.
Danskar grísalundir, 1. fl. ........... 1.259 1.398 1.259 kr. kg
Bónus snakk, 160 g................... 198 229 1.238 kr. kg
Pepsi, 2 ltr ................................ 175 229 87 kr. ltr
Kjörfugl ferskar kjúklingabringur .. 1.598 1.798 1.598 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 27. - 29. maí verð nú áður mælie. verð
Lambalærisneiðar I. fl., úr kjötb... 1.545 1.845 1.545 kr. kg
Svínakótilettur úr kjötborði.......... 998 1.398 998 kr. kg
Hamborgarar 2x115g m/brauði .. 298 398 298 kr. pk.
FK kjúklingabringur .................... 1.781 2.375 1.781 kr. kg
Grillaður kjúklingur..................... 790 970 790 kr. stk.
KF íslenskt hátíðarlamb.............. 1.398 2.490 1.398 kr. kg
FK grill svínakótilettur ................. 1.198 2.098 1.198 kr. kg
Ali spareribs .............................. 1.064 1.418 1.064 kr. kg
Ali hunangskótilettur .................. 1.924 2.565 1.924 kr. kg
Hagkaup
Gildir 27. - 30. maí verð nú áður mælie. verð
SS VSOP lambalæri án rófubeins 1.942 2.428 1.942 kr. kg
SS VSOP lambatvírifjur ............... 1.998 2.498 1.998 kr. kg
SS VSOP lambalærisneiðar ........ 2.262 2.828 2.262 kr. kg
Jack Daniels svínarif .................. 1.119 1.598 1.119 kr. kg
Siggi sterki hamborgarar ............ 594 849 594 kr. pk.
Íslandsnaut kryddleginn vöðvi ..... 1.499 1.998 1.499 kr. kg
Holta kjúklingabr. m/hvítl&rósm . 1.796 2.395 1.796 kr. kg
Myllu sérb. vínarbrauð, 4 í pk...... 279 449 279 kr. pk.
Myllu hnetuvínarbrauð. 4 í pk. .... 279 449 279 kr. pk.
Kostur
Gildir 27. - 30. maí verð nú áður mælie. verð
Kostur kjúklingabringur .............. 1779 2375 1779 kr. kg
Goði Gourmet berjalæri .............. 1498 1998 1498 kr. kg
Goði grísahnakki pipar /BBQ ...... 1574 2098 1574 kr. kg
Goði ostapylsur ......................... 359 449 359 kr. pk.
Kostur túnfiskur í vatni & olíu ...... 109 149 109 kr. stk.
Capry Sun ................................. 369 515 369 kr. stk.
Gouda ostur 26% ...................... 972 1296 972 kr. stk.
Chipsletten papr. snakk, 100 g ... 199 245 199 kr. stk.
Krónan
Gildir 27. - 30. maí verð nú áður mælie. verð
Grísakótilettur lúxus beinl. .......... 998 1.998 998 kr. kg
Grísalundir ................................ 1.299 2.598 1.299 kr. kg
Grísakótilettur ítölsk marinering... 899 1.498 899 kr. kg
Kjúklingur grillaður ..................... 998 998 998 kr. stk.
Krónu kjúklingur ferskur 1/1 ....... 598 698 598 kr. kg
Krónu kjúklingabitar blandaðir .... 447 745 447 kr. kg
Bautab. lambalærissn. krydd. ..... 1.798 1.998 1.798 kr. kg
Goða pítubakki, 6 stk................. 798 998 798 kr. pk.
Emmess ávaxtastangir heimilisp. 379 498 379 kr. pk.
Nóatún
Gildir 27. - 30. maí verð nú áður mælie. verð
Lambalæri með villisveppum úrb. 1.799 2.398 1.799 kr. kg
Lambalærissneiðar kryddaðar..... 1.598 1.998 1.598 kr. kg
Lambaframhryggjasn. kryddaðar . 1.598 1.998 1.598 kr. kg
Lambakótilettur kryddaðar.......... 1.599 2.198 1.599 kr. kg
Lamba Rib Eye kr. að eigin vali .... 3.198 3.998 3.198 kr. kg
Grísalundir með sælkerafyllingu .. 2.249 2.998 2.249 kr. kg
SS nautakótilettur Argentína ....... 1.678 2.098 1.678 kr. kg
Ísl. m. kjúklingabringur ............... 1.799 2.398 1.799 kr. kg
Goða parísarskinka.................... 1.758 2.198 1.758 kr. kg
Þín Verslun
Gildir 27. - 30. maí verð nú áður mælie. verð
Ísfugls kjúklingur 1/1................. 682 975 682 kr. kg
Korngrísalundir úr kjötborði......... 1695 2398 1695 kr. kg
Korngrísakótilettur úr kjötborði .... 998 1698 998 kr. kg
Korngrísahnakki úrb. úr kjötborði. 998 1798 998 kr. kg
Findus Oxpytt, 550 g.................. 559 749 1017 kr. kg
Kjörís jarðarberjapinnar, 10 stk. .. 649 845 65 kr. stk.
Caj P grillolía original, 250 ml..... 285 375 1140 kr. ltr
Breton ostakex original, 225 g .... 295 398 1312 kr. kg
Milka mjólkursúkkulaði, 100 g .... 215 279 2150 kr. kg
Helgartilboðin
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég hef skipt nokkrum sinn-um um vélar og innrétt-ingar. Þetta er þriðja út-gáfan af verkstæðinu
mínu hér í þessu húsi og svona hefur
þetta verið undanfarin þrjátíu ár. En
fyrsta útgáfan af verkstæðinu er
komin á Árbæjarsafnið,“ segir Eyj-
ólfur Kúld gullsmiður sem hefur í
hálfa öld verið með gullsmíðaverk-
stæði á heimili sínu við Hjallaveg í
Langholtinu í Reykjavík, eða frá því
árið 1960.
„Ég ólst upp í þessu húsi og þá var
þetta hálfgerð sveit hérna í holtinu,
hestar á beit og kartöflugarður við
hvert hús. Mér er sagt að fyrri eig-
endur þessa húss hafi verið með
hænur og eina kú, þannig að gull-
smíðaverkstæðið mitt er fyrrverandi
gripahús,“ segir Eyjólfur sem hefur
sérhæft sig í smíði trúlofunarhringa,
eins og sjá má á skiltinu sem er utan
á húsinu.
Engin kúlupennanúll á verðinu
„Ég sérsmíða trúlofunarhringa
bæði úr hvítagulli og gulu gulli. Þeir
eru vandaðir og þungir. En ég hef
ævinlega lagt mig eftir því að vera
með ódýrustu trúlofunarhringana.
Fólk hefur kunnað að meta það. Ég
lærði þau viðskiptalegu fræði á sín-
um tíma að vera vandvirkur og heið-
arlegur. Ég hef haldið mig við það
og það hefur reynst mér vel. Ég hef
ekki kært mig um að setja
kúlupennanúll á verðið á skartgrip-
unum sem ég sel.“
Eyjólfur segir að margir noti trú-
lofunarhringana sína sem giftingar-
hringa þegar gengið er upp að alt-
arinu, og þá pússi hann þá upp fyrir
verðandi brúðhjón. Aðrir vilji fá nýja
hringa á stóra deginum.
Hefur lengi safnað íslenskum
slípuðum steinum
En hann smíðar margt annað en
trúlofunarhringa.
„Ég hef nóg að gera, ég smíða silf-
urskart í þjóðbúninga og demants-
hringa eftir pöntun. Ég framleiði
fleiri kíló af skarti hérna, allskonar
belti og ramma, hálsmen og fleira
eftir pöntun, aðallega fyrir Gull-
kistuna á Frakkastíg. Ég bæði
steypi og handsmíða skartið, en
handsmíðin er að hverfa, ungu kyn-
slóðinni finnst það alltof erfitt og
flókið,“ segir Eyjólfur sem er ekki af
baki dottinn og stefnir á nýjar braut-
ir, ætlar að gera það sem hann hefur
lengi langað til.
„Ég er að hugsa um að fara að
smíða hringa með gömlum íslensk-
um slípuðum steinum sem ég hef
verið að safna í gegnum tíðina og á í
fórum mínum. Þetta eru áratuga-
gamlir steinar frá þeim tíma þegar
farið var upp í dali til að tína steina.
Sumir steinarnir eru kúptir og til-
búnir í hringa. Þetta gæti orðið
skemmtilegt,“ segir Eyjólfur sem
byrjaði fimmtán ára í gullsmíðinni
og tók hæsta gullsmíðapróf sem tek-
ið hefur verið hér á landi, bæði í
teikningunni og smíðinni.
„Ég var líka að vinna niðri í bæ
Fann ég á fjalli
fallega steina
Ástin blómstrar og fólk heldur áfram að trúlofa sig þó það sé kreppa. Eyjólfur Kúld
gullsmiður sérsmíðar trúlofunarhringa í gömlu húsi í íbúðahverfi þar sem fátt
hefur breyst í áratugi. Hann lumar líka á sögum af Vilhjálmi frá Skáholti.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sáttur Eyjólfur er vandvirkur og nýtur starfsins vel.
Knattspyrna Draumurinn um
atvinnumennsku er oft foreldr-
anna, ekki barnanna. Álag og
ofþjálfun ungra íþróttamanna
er orðið vandamál í Bandaríkj-
unum.