Morgunblaðið - 27.05.2010, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 27.05.2010, Qupperneq 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010 Eyrún Magnúsdóttir, Hlynur Sigurðsson, Jón Pétur Jónsson og Una Sighvatsdóttir „Ég er bara þakklátur fyrir þennan stuðning og fyllist von fyrir hönd borgarinnar,“ segir Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins sem sam- kvæmt könnun Morgunblaðsins hefur afger- andi forskot á aðra flokka í Reykjavík og nær sjö mönnum inn í borgarstjórn. Jón segir Besta flokkinn vera til í að vinna með öllum sem vilja leggja hönd á plóg í borg- inni og hann geri því ekki greinarmun á milli flokka. „Við erum að koma þarna inn til að vera til gagns, til að hjálpa. Þetta er fólk sem vill laga hlutina og er tilbúið að leggja sig fram. Þetta er mikil vinna og fólk fer ekki í svona baráttu nema það hafi brennandi áhuga á og ástríðu fyrir borginni.“ Jón segir Besta flokk- inn hafa unnið heimavinnuna sína og sé reiðubúinn að takast á við stóru málin. „Stærsta vandamálið sem við þurfum að tak- ast á við eftir kosningar er málefni Orkuveitu Reykjavíkur […] Það er mál sem verður að leysa í mjög nánu samstarfi við starfsfólk Reykjavíkurborgar. Þar er reynsla og þar er kunnátta til að leysa þetta eins farsællega og hægt er. Orkuveitan er gullkálfurinn okkar. Hann er fárveikur og nú þarf að hjúkra honum og reyna að koma honum aftur til heilsu. Það krefst skapandi hugsunar og vinnu,“ segir Jón. Lokaspretturinn barátta á milli S og D Sjálfstæðisflokkurinn fær fimm menn kjörna og Samfylkingin tvo, samkvæmt könn- uninni. Flokkarnir gætu því myndað minni- hlutastjórn hefðu þeir stuðning Vinstri grænna. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri og oddviti sjálfstæðismanna, segir flokkinn, sem nær fimm kjörnum fulltrúum inn sam- kvæmt könnuninni, vera opinn fyrir samstarfi um góð mál í borginni með hverjum sem er. „Ég útiloka ekki samstarf við neinn, ég hef áð- ur sagt að ég tel að ég geti unnið með öllu þessu fólki og ég tel að okkur beri skylda til þess að reyna eins og við getum að vinna saman og tryggja það að góð verkefni fái góða niðurstöðu fyrir Reykvíkinga. Við hljótum að reyna að taka öll höndum saman og gera góða hluti.“ Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylking- arinnar, segir hins vegar „ótrúlega langsótt“ að Samfylkingin gangi til samstarfs við Sjálf- stæðisflokkinn. „Mér finnst Sjálfstæðisflokk- urinn hafa nýtt tækifærin sem hann fékk eftir síðustu borgarstjórnarkosningar illa. Það hef- ur margt misfarist á þessu kjörtímabili og mín skoðun er sú að Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að fá frí. Ég held að næstu dagar í kosningabar- áttunni snúist ekki um Besta flokkinn, það er augljóst að hann mun fá sterka kosningu. Lokaspretturinn snýst um það hvort Samfylk- ingin eða Sjálfstæðisflokkurinn fær sterkari stöðu.“ Áhugi á kosningunum að aukast Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn, tekur niðurstöðum könnunar- innar ekki sem endanlegum, en samkvæmt þeim fær VG 6,3% fylgi og einn mann inn. „Við Vinstri græn höfum bæði toppað og botnað á hinum ýmsu stöðum í könnunum,“ segir Sóley. „Við ætlum að vera dugleg þessa síðustu daga að kynna okkar stefnu fyrir borg- arbúum og þá er ég alveg viss um að við fáum meira fylgi en þetta.“ Einar Skúlason, oddviti Framsóknarflokks- ins í Reykjavík, segist þrátt fyrir allt jákvæður gagnvart því að fylgi flokksins sé aftur á leið- inni upp, en samkvæmt könnuninni fær Fram- sókn ekki mann í borgarstjórn. „Miðað við hversu margir eru óákveðnir þá getur mjög mikið gerst fram að kjördegi. Við ætlum að halda áfram af fullum krafti og finn- um fyrir góðum hljómgrunni. Við erum öll að koma ný inn á lista og ég er viss um að fólk vill endurnýjun.“ Einar telur áhuga borgarbúa á kosningunum vera að aukast. Feimni við að ræða málefnin Reykjavíkurframboðið mælist með 0,6% fylgi og fær ekki mann í borgarstjórn sam- kvæmt könnuninni. Oddviti listans, Baldvin Jónsson, segist þrátt fyrir það enn gera sér von um að ná inn manni eða jafnvel tveimur. „Við gerum okkur grein fyrir að við stigum mjög seint fram þannig að við lítum á þetta sem kapphlaup fram á síðustu stundu. Það eru margir sem vita ekki af okkur ennþá og það fer því miður lítið fyrir málefnalegri umræðu. Okkur finnst gjarnan að stóru flokk- arnir séu feimnir við að ræða málefnin af ótta við að því verði snúið upp í grín.“ Ólafur F. Magnússon, oddviti H-listans, seg- ist ekki taka mark á könnuninni, samkvæmt henni mælist hann með 0% stuðning en hann telur sig eiga mikið inni. „Ég er heimilislæknir hátt á annað þúsund Reykvíkinga og ég veit það frá fyrstu hendi að verulegur meirihluti þeirra, og ýmsir þeim tengdir, hafa ávallt kosið mig og munu gera það áfram.“ Frjálslyndi flokkurinn nær heldur ekki inn manni í borgarstjórn skv. könnuninni. Helga Þórðardóttir, oddviti hans, segist þó ekki hafa trú á því að það verði niðurstaða kosninganna. „Við erum að koma mjög seint inn og ég held að okkar málflutningur eigi eftir að komast betur til fólksins. Það er engan bilbug á mér að finna enda geri ég þetta vegna hugsjónanna.“ Jón Gnarr „Þetta hefur vissulega kom- ið mörgum á óvart. En ekki sjálfum mér, ég hef frá upphafi talið þetta raunhæft. Hanna Birna „Ég útiloka ekki samstarf við neinn. Ég tel að ég geti unn- ið með öllu þessu fólki.“ Dagur B. Eggertsson „Það þyrfti mjög mikið að ganga á til að við færum að vinna með Sjálfstæð- isflokknum.“ Sóley Tómasdóttir „Við Vinstri græn höfum toppað og botnað á hinum ýmsu stöðum í könnunum.“ Einar Skúlason „Það er ekki hægt að kjósa eftir á, það er ekki hægt að slíta borgarstjórn og kjósa aftur.“ Baldvin Jónsson „Við höfum [skilning á þessari stemningu] en menn verða líka að koma fram með einhverjar lausnir.“ Ólafur Magnússon „Ef einhver sker sig frá í borgarstjórn er það ég en ekki aula- og mútuþægnifram- boð Jóns Gnarr.“ Helga Þórðardóttir „Mér hefur þó fund- ist sorglegt að upp- lifa hvað þetta á allt að vera mikið grín og djók.“ Breytt landslag í borginni  Frambjóðendur Besta flokksins með „ástríðu fyrir borginni“  Samstarf S og D „ótrúlega langsótt“ Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ofbeldi gagnvart börnum fyrir- finnst í öllum löndum heims. Ofbeld- ið tekur hins vegar á sig ýmsar birt- ingarmyndir í hinum ólíku menningarsamfélögum,“ segir Jasmine Whitbread, framkvæmda- stjóra alþjóðasamtakanna Save the Children. Spurð hvað skýri ofbeldið segir hún ljóst að börn séu viðkvæm- asti þjóðfélagshópurinn, búi ekki yf- ir miklum völdum og eigi sér ekki marga málsvara, auk þess sem þau þori oft ekki að kvarta undan því of- beldi sem þau verða fyrir af ótta við að þeim verði hegnt fyrir það. Sök- um þessa sé aðeins tilkynnt um brotabrot þess ofbeldis sem í reynd eigi sér stað. Whitbread hefur starfað fyrir Save the Children sl. fimm ár, en samtökin eiga sér 91 árs sögu. Í dag starfa um 15 þúsund manns á vegum samtakanna í 120 löndum auk fjölda sjálfboðaliða og árlega hafa þau, að sögn Whitbread, jákvæð áhrif á líf 80 milljóna barna. Að sögn Whit- bread snúa verkefni samtakanna að því að stöðva ofbeldi gagnvart börn- um, hindra ótímabæran dauðdaga barna vegna m.a. vannæringar og skorts á bólusetningum og ekki síst að veita þeim tækifæri til grunn- menntunar. Setja þarf málin á dagskrá „Á degi hverjum deyja 24 þúsund börn áður en þau ná eins árs aldri og árlega deyja 8,8 milljónir barna áður en þau ná fimm ára aldri. Í flestum tilvikum kostar sáralítið að bæta lífs- skilyrði þessara barna,“ segir Whit- bread og bendir á að samtökin beiti sér m.a. fyrir því að ríkisstjórnir heims setji málið á dagskrá. Tekur hún fram að til þess að ríkisstjórnir geri það sé hins vegar nauðsynlegt að almenningur krefjist úrbóta. Spurð hvað hinn almenni borgari á Íslandi geti gert til að styðja starf samtakanna bendir Whitbread að ein auðveldasta leiðin sé að gerast fjárhagslegur stuðningsaðili Barna- heilla á Íslandi. „Auk þess hvetjum við almenning til þess að vera með- vitaður um það ofbeldi sem börn geta orðið og verða fyrir og þora að varpa ljósi á það,“ segir Whitbread og leggur áherslu á að þó ofbeldi gegn börnum finnist víða þá sé ger- legt að útrýma því og bendir í því samhengi á að opinberar tölur sýni að baráttan hafi skilað árangri á sl. áratugum. Börnin þurfa málsvara  Ofbeldið á sér ýmis birtingarform  Horfast þarf í augu við vandann Okkar ábyrgð Jasmine Whitbread berst gegn ofbeldi gagnvart börnum á heimsvísu og hvetur fólk til þess að vera meðvitað um vandann. 24.000 börn deyja á degi hverjum áður en þau ná eins árs aldri 30% þeirra deyja vegna vannæringar 70.000.000 börn eru án grunnmenntunar í heiminum í dag 15.000 starfsmenn vinna á vegum Save the Children á heimsvísu í 120 löndum ‹ VANDI BARNA › » Mikil endurnýjun er í vændum í stjórn Reykjavíkurborgar ef marka má skoðana- könnunina sem unnin var fyrir Morgun- blaðið dagana 20. til 24. maí. Niðurstöðurnar benda til þess að allir þeir flokkar sem einnig buðu fram í síð- ustu borgarstjórnarkosningum, vorið 2006, tapi miklu fylgi á meðan Besti flokkurinn vinnur kosningasigur. Þannig missa bæði Sjálfstæðisflokk- urinn og Samfylking tvo fulltrúa í borg- arstjórn, Vinstri grænir missa einn og Framsókn einnig einn. Framsóknarflokkurinn nær þannig eng- um manni inn í borgarstjórn á næsta kjör- tímabili verði niðurstöður kosninganna í samræmi við skoðanakönnunina. Hvor- ugur flokkanna sem frambjóðendur Frjáls- lyndra og óháðra eru nú í fær mann í borg- arstjórn og hið nýja Reykjavíkurframboð ekki heldur. Hinsvegar fær Besti flokkurinn sam- kvæmt könnuninni 43,1% atkvæða og sjö fulltrúa í borgarstjórn, er einum borgarfulltrúa frá því að ná hreinum meirihluta. Alls tóku 517 manns á aldr- inum 18-75 ára þátt í könnun- inni, sem unnin var af Miðlun fyrir Morgunblaðið. 61,9% tóku afstöðu. Ótvírætt forskot á aðra flokka Sveitarstjórnarkosningar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.