Morgunblaðið - 27.05.2010, Side 18
18 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010
FRÉTTASKÝRING
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Christopher „Dudus“ Coke hefur verið lýst
sem „Hróa hetti“ íbúa fátækrahverfisins
Tivoli Gardens í Kingston, höfuðborg
Jamaíku. Bandaríska dómsmálaráðuneytið
lítur hins vegar á hann sem einn af hættuleg-
ustu eiturlyfjabarónum heims og segir hann
stjórna umfangsmikilli glæpastarfsemi, ekki
aðeins í Jamaíku, heldur einnig í fleiri Karíba-
hafslöndum, Norður-Ameríku og Bretlandi.
Coke nýtur mikils stuðnings í Tivoli
Gardens og margir íbúanna líta á hann sem
velgerðarmann sinn, sem útvegi þeim mat,
miðli málum þegar deilur koma upp og sjái
jafnvel til þess að börnin þeirra mæti í skól-
ann. Fyrrverandi ráðherra þjóðar-
öryggismála Jamaíku, Peter Philips, sagði ný-
lega að Coke væri sennilega áhrifamesti
maður landsins.
Þegar stjórnvöld í Jamaíku ákváðu að
verða við beiðni Bandaríkjastjórnar um að
handtaka og framselja Coke hétu þúsundir
stuðningsmanna hans því að koma honum til
varnar hvað sem það kostaði. Tugir manna
liggja í valnum eftir að þúsundir hermanna
réðust inn í fátækrahverfið.
Gegnsýrt af ofbeldi
Jamaíka er á meðal þeirra ríkja heims
þar sem ofbeldisglæpir eru algengastir. Íbúar
Jamaíku eru um 2,8 milljónir og á ári hverju
eru framin allt að 1.700 morð í landinu.
Ástandið er verst í fátækrahverfum
Kingston þar sem Coke ólst upp. Líf hans hef-
ur verið gegnsýrt af ofbeldi. Tveir af bræðr-
um hans og systir hafa verið skotin til bana.
Faðir hans, Lester Coke, var foringi glæpa-
gengisins „Shower Posse“ og dó í dularfullum
eldsvoða í fangelsisklefa árið 1992 þegar yfir-
völd hugðust framselja hann til Bandaríkj-
anna vegna ásakana um eiturlyfjasmygl og
morð. Glæpagengið er talið hafa myrt yfir
þúsund manns á níunda áratugnum.
Þýða má heiti gengisins sem „Regn-
dembuliðið“ vegna þess að það dregur nafn
sitt af því að glæpamennirnir voru þekktir
fyrir að láta byssukúlum rigna yfir andstæð-
ingana, að því er fréttavefur BBC hefur eftir
Michael Chettleburgh, kanadískum sérfræð-
ingi í glæpagengjum. Coke tók síðar við sem
foringi „Shower Posse“.
Í ljósi ofbeldisins kann
það að virðast furðulegt að
glæpaforingjar á borð við
Coke njóti svo mikillar
hylli í hverfi sínu. Vinsæld-
ir hans má meðal annars
rekja til mikillar fátæktar
íbúanna, gríðarlegrar mis-
skiptingar í landinu, og
spillingar stjórnmála- og
lögreglumanna.
Talið er að Coke hafi
notið verndar stjórnarflokksins, Verka-
mannaflokks Jamaíku (JLP), þar til nýlega.
Tivoli Gardens er í kjördæmi Bruce Goldings
forsætisráðherra sem lét undan þrýstingi
Bandaríkjastjórnar og féllst á að láta til skar-
ar skríða gegn Coke og liðsmönnum hans.
Ríki í ríkinu
Tivoli Gardens er á meðal fátækrahverfa
sem reist voru á sjöunda og áttunda áratug
aldarinnar sem leið þegar landið var ýmist
undir stjórn jafnaðarmanna í Þjóðarflokknum
(PNP) eða íhaldsmanna í Verkamannaflokkn-
um.
Ian Thompson, höfundur bókar um
Jamaíku, segir í grein í The Guardian að hlut-
ar Tivoli Gardens og fleiri hverfa hafi orðið að
„ríki í ríkinu“. Margir íbúanna greiði enga
leigu eða reikninga fyrir rafmagn og aðra
opinbera þjónustu. Hverfin séu í raun undir
stjórn glæpaforingja.
Ian Thompson segir að greinileg tengsl
séu á milli stjórnmálamanna og glæpagengja í
fátækrahverfunum í Kingston. Verkamanna-
flokkurinn hafi séð glæpaforingjum á borð við
Coke fyrir vopnum til að halda pólitískum
stuðningi þeirra. „Stjórnmálin í Jamaíku snú-
ast oft um opinbera fjármuni: Ef JLP tapar
kosningum verður Tivoli Gardens af fyrir-
greiðslu í húsnæðismálum, opinberum samn-
ingum, vopnum og annarri fyrirgreiðslu sem
stjórnmálamennirnir hafa lofað í skiptum fyr-
ir atkvæði.“
Thompson bætir þó við að stjórnmála-
mennirnir hafi reynt að rjúfa tengslin við
glæpagengin á síðustu árum. Eiturlyfja-
barónarnir séu einnig orðnir áhrifameiri í
landinu og farnir að setja stjórnmálamönnum
skilmála.
Howard Campbell, fréttaritari The Glea-
ner, dagblaðs í Jamaíku, segir að þar sem
þingmenn hafi ekki staðið við loforð sín um að
bæta lífskjörin í fátækrahverfunum séu
glæpaforingjar á borð við Coke álitnir fyrir-
myndir. „Þeir gegna hlutverki „feðranna“
sem sjá til þess að börn einstæðra mæðra
gangi í skóla, eða útvega matvæli handa fjöl-
skyldum sem eiga ekki fyrir nauðþurftum.“
Lýst sem Hróa hetti Tívolígarða
Eiturlyfjabaróninn Christopher „Dudus“ Coke hefur getið sér orð fyrir að vera velgerðamaður
fátækra íbúa Kingston og nýtur mikillar hylli Stjórnmálamenn sáu glæpagengjum fyrir vopnum
Reuters
Blóðsúthellingar Lögreglumaður leitar á tveimur mönnum í Kingston, höfuðborg Jamaíku.
Christopher
„Dudus“ Coke
Útsendarar Sov-
étríkjanna áttu
a.m.k. tvívegis á
árunum 1943 og
1944 möguleika
á að ráða Adolf
Hitler af dögum
en Jósef Stalín
hafnaði því í
bæði skiptin.
Danska blaðið
Jyllands-Posten hefur eftir Anatolí
Kúlíkov, fyrrv. hershöfðingja, að
ástæða þess að Stalín vildi ekki láta
drepa Hitler væri sú að hann ótt-
aðist að eftir dauða nasistaleiðtog-
ans myndu eftirmenn hans skrifa
undir sérstakan friðarsamning við
Bandaríkin og Bretland. Kúlíkov
sagði að Sovétmenn hefðu verið
með áform um að ráða Hitler af
dögum í sprengjubyrgi hans árið
1943 en Stalín hætti skyndilega við
þau áform. Árið 1944 komst sov-
éskur flugumaður inn í innsta hring
Hitlers og naut trausts hans. Ná-
kvæm áætlun var gerð um að þessi
flugumaður myndi myrða Hitler en
Stalín hætti aftur við á síðustu
stundu.
Stalín
þyrmdi lífi
Hitlers
Sovétmenn fengu
færi á að myrða hann
Jósef Stalín
Michelle Obama forsetafrú hleypur með skóla-
börnum á grasflöt við Hvíta húsið í Washington.
Hlaupið var liður í baráttu hennar gegn offitu
meðal barna. Hún lét ekki orðin nægja, heldur
brá á leik með börnunum til að hvetja bandarísk
ungmenni til að hreyfa sig meira.
Reuters
Forsetafrúin sprettir úr spori með börnum
Sigrún Skærings-
dóttir, sem býr í
Jamaíku, segir að
ástandið í Kingston
sé skelfilegt eftir að
yfirvöld létu til skarar
skríða gegn Christ-
opher „Dudus“ Coke
og glæpagengi hans í
Tivoli Gardens.
„Önnur glæpagengi
nota tækifærið núna,
þegar lögreglan er upptekin í Tivoli
Gardens, og ræna og rupla í öðrum
hverfum. Ástandið er því hræðilegt á
öðrum stöðum og allt fer í bál og
brand.“
Sigrún segir að íbúar höfuðborgar-
innar búi sig undir langvinnt ófremdar-
ástand og hafi því birgt sig upp af mat-
vælum. „Það var engu líkara en gefin
hefði verið út fellibyljaviðvörun því
verslanir voru troðfullar af fólki sem
hamstraði matvæli. Hillurnar tæmdust
nánast.“
Stjórnvöldum um að kenna
Sigrún segir að gífurleg misskipting sé
í landinu og fátækt fólk fái enga félags-
lega aðstoð, svo sem atvinnuleysis-
bætur, barnabætur eða ellilífeyri. „Það
er ægilegt að horfa upp á eymdina.“
Auðvelt hefur því verið fyrir glæpafor-
ingjann að kaupa sér vinsældir. Sigrún
segir að stjórnmálamenn eigi sök á
ófremdarástandinu því þeir hafi séð
glæpagengjunum fyrir vopnum.
„Það er í rauninni pólitíkusunum að
kenna hvernig ástandið er,“ segir hún.
„Þetta er algerlega komið úr bönd-
unum.“
Sigrún starfar hjá E. Pihl & Son og
dvelur í Falmouth, Trelawny, á norður-
strönd Jamaíku, þar sem verið er að
byggja höfn fyrir skemmtiferðaskip.
Hún bjó áður í sex ár í Kingston þar
sem fyrirtækið byggði gámahöfn.
Skelfileg eymd
ÓÖLDIN BREIÐIST ÚT
Sigrún
Skæringsdóttir