Morgunblaðið - 27.05.2010, Síða 42

Morgunblaðið - 27.05.2010, Síða 42
Annað undan- úrslitakvöldið fer fram í kvöld og þá keppa næstu sautján lönd um sæti í úrslitum. Tíu þeirra komast í lokakeppnina laug- ardaginn á eftir. Þess má geta að sex þjóðanna sem þátt taka þetta kvöld hafa sigrað í Evró- visjón, 21 sinni alls; Írar sjö sinnum, Hollendingar og Svíar fjórum sinn- um, Ísraelar þríveg- is, Danir tvívegis og Tyrkir einu sinni. Kepp- endur kvöldsins Armenia Armenum hefur gengið bærilega í keppninni í þau fjög- ur skipti sem þeir hafa verið með, en þó aldrei komist nálægt verðlaunasæti. Að þessu sinni tefla þeir fram laginu „Apricot Stone“ sem Eva Ri- vas syngur eftir Kar- en Kavaleryan og Ar- men Martirosyan. Eva Rivas er ríflega þrítug og marg- verðlaunuð. Þar á meðal hefur hún hlot- ið viðurkenninguna Gullrödd Rostov og Dónárperlan. Þess má geta að Karen Kavaleryan hefur samið texta sex Evróvisjónlaga. Aserbaídsjan Aserar leituðu til Svía með Evróvisjónlag sitt og fengu Sandra Bjur- man, Anders Bagge og Stef- an Örn til að semja lagið „Drip Drop“ sem Safura syngur. Hún er menntaður fiðluleikari og lærði svo á saxófón áður en hún tók síðan þátt í Idol- keppni í heima- landinu og sigr- aði sem söng- kona. Búlgaría Búlgarski tónlistar- maðurinn Miroslav Dimov Kostadinov, sem notar lista- mannsnafnið Miro, syngur lagið „Angel Si Ti“. Hann er margverðlaunaður fyrir sönghæfileika sína og var um tíma í dúettnum KariZma, sem naut gríðarlegrar hylli. Í Búlgaríu var vali á keppanda þannig háttað að fyrsta var flytjandinn valinn og síðan haldin laga- keppni þar sem hann söng öll lögin og þar á meðal eitt sem hann samdi sjálfur og varð hlutskarp- ast. Þess má geta að fyrsta sólóskífa Miro, oMIROtvoren, sló sölumet í Búlg- aríu á síðasta ári. Danmörk Danska tvíeykið Chanée og N’evergreen syngur „In A Moment Like This“ eftir þá Thomas G:son, Henrik Sethsson og Erik Bernholm. Christina Chanée hefur getið sér orð í heimaland- inu fyrir söng í kvik- myndum og söngleikjum. Thomas N’evergreen, sem hét áður Thomas Christiansen, hefur notið mikillar hylli utan heima- landsins, aðallega í Rúss- landi þar sem hann hefur búið síðustu ár. Þess má geta að Thomas G:son (Thomas Gustafsson), er frægur fyrir sín Evr- óvisjónlög, enda samið fimmtíu slík fyrir keppn- ina í Svíþjóð, Noregi, Finnandi, Póllandi, Lett- landi, Rúmeníu, Dan- mörku, Belgíu og á Spáni. Lög hans komust tvisvar í úrslit í fyrir Svía og einu sinni fyrir Spán- verja, Norðmenn og Dani. Georgía Söngkonan Sofia Nizhar- adze verður fulltrúi Georgíu og syngur lagið „Shine“ eftir norsku söng- konuna Hanne Sørvaag, sænska laga- smiðinn og upp- tökustjórann Harry Sommer- dahl og ítalska lagasmiðinn og upptökustjórann Christian Leuzzi. Sofia Nizharadze er margverðlaunuð fyrir söng í heimalandi sínu og tekið þátt í upp- færslum á ýmsum söngleikjum. Holland Söngkonan unga Sieneke syngur lagið „Ik Ben Ver- liefd (Sha-La- Lie)“ eftir Pierre Kart- ner. Sieneke sigraði í und- ankeppninni í Hollandi. Höf- undur lagsins hefur verið lengi að, sló í gegn í Hol- landi á sjö- unda áratugn- um, en mestar vinsældir hef- ur hann hlotið fyrir tónlistina á fyrstu Strumpaplöt- unni sem selst hefur í tug- milljónum ein- taka á ýmsum tungumálum. Króatía Króatíska stúlknasveitin Feminnem snýr aftur í Evró- visjón. Þær tók þátt 2005 og sungu þá fyrir Bosníu-Hersegó- vínu og lentu í 14. sæti. Nú syngja þær lagið „Lako je sve“ eftir Bra- nimir Mihaljevic, Neda Parmac og Pamela Ramljak. Feminnem var stofnuð uppúr Idol-keppni króat- íska sjónvarpsins, en nokkrar breyt- ingar hafa orðið á mannskipan frá þeim tíma. Þær sigruðu í undan- keppninni í Kró- atíu með miklum yfirburðum. Kýpur Jon Lilygreen & The Islanders syngja lagið „Life Looks Better In Spring“ eftir Nasos Lambrianides og Melis Konstantinou. Sagan segir að þeir Lambrianides og Konstantinou hafi samið lagið og sent inn í keppnina en var síðan sá vandi á hönd- um að þeir höfðu eng- an tiltækan til að flytja það. Þeir fund- ur upptökustjóra í Wales sem þeir leit- uðu ásjár hjá og hann benti þeim á My- Space-síðu tónlistar- mannsins Jon Lily- green frá Newport sem var til í tuskið. Liðsmenn hljóm- sveitar hans, sem kallar sig Eyjaskeggj- ana, skipa tónlistar- menn frá Wales, Skotlandi, Englandi Noregi og Kýpur. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2010 Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Sími 551 9000Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓwww.graenaljosid.is VINSÆLUSTU MYNDIR BÍÓDAGA - SÝNDAR ÁFRAM Í ÖRFÁ DAGA Youth in Revolt kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.14 ára Brooklyn‘s Finest kl. 6 - 9 B.i.16 ára Date Night kl. 6 - 8 - 10 B.i.10 ára Un Prophéte kl. 6 B.i.16 ára The imaginarium of Dr. P kl. 9 B.i.12 ára Oceans kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ Snabba Cash kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 ára Robin Hood kl. 6 - 9 B.i.12 ára The Back-Up Plan kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ Robin Hood kl. 6 - 9 B.i. 12 ára The Back-up Plan kl. 8 - 10 LEYFÐ Húgó 3 kl. 6 LEYFÐ SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI, SMÁRABÍÓ OG BORGARBÍÓ Stórskemmtileg teiknimynd fyrir alla fjölskylduna með íslensku tali SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUM SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI UNGLINGUR Í UPPREISN Frábær gamanmynd með Michael Cera úr Juno og Superbad Þegar hann kynnist draumastúlkunni er mikið á sig lagt til að missa sveindóminn SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND FRÁ LEIKSTJÓRA “THE TRAINING DAY” REGNBOGANUM Hafið er framandi heimur fyrir flestum en nú gefst þér einstakt tækifæri til að ferðast um undirdjúpin. HHH „Með öllum líkindum einhver ferskasta unglingamynd undanfarinna ára... Cera sýnir loksins á sér nýja hlið.” T.V. - Kvikmyndir.is Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann m

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.