Morgunblaðið - 04.06.2010, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Mynda meirihlutann í dag
Í Reykjavík stefnir ekki í annað en að Jón Gnarr verði næsti borgarstjóri
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Málefnasamningur nýs meirihluta í bæjarstjórn
Kópavogs verður kynntur með fréttatilkynningu í
dag, að sögn Guðríðar Arnardóttur, oddvita Sam-
fylkingarinnar. Viðræðurnar við VG, Lista Kópa-
vogsbúa og Næstbesta flokkinn, hafa gengið mjög
vel, að hennar sögn. Hún vill þó ekkert gefa upp
um hver verður næsti bæjarstjóri, eða hvort hann
verður ráðinn utan að. „Ég á ekki von á að neitt
komi í veg fyrir að það verði alveg frágengið öðr-
um hvorum megin við helgina,“ segir Ólafur Þór
Gunnarsson, oddviti VG, um stöðuna.
Nokkuð öruggt er orðið að Jón Gnarr, oddviti
Besta flokksins, verður borgarstjóri í Reykjavík,
ef samkomulag tekst við Samfylkinguna um
myndun meirihluta, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins. Ekki er þó búið að festa þetta niður
endanlega og formlega.
Viðræður flokkanna mjakast samkvæmt
áætlun, að sögn Gauks Úlfarssonar. Gaukur var
frambjóðandi Besta flokksins í kosningunum og
hefur verið framarlega í viðræðunum. Í gærkvöldi
sátu allir verðandi borgarfulltrúar flokkanna sam-
an á fundi, ásamt helstu ráðgjöfum sínum. Á fund-
inum var farið yfir niðurstöður síðustu daga.
„Við erum að teikna upp svona allsherjarplan.
Það lítur mjög vel út,“ segir Gaukur. Hann segir
engin stór ágreiningsmál hafa komið upp, en vill
ekki tala um einstök málefni fyrr en búið verður að
handsala samstarfið. „Þá verðum við að vera búin
að fara yfir öll mál,“ segir Gaukur.
Í Hafnarfirði er að klárast málefnasamningur
milli Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. Odd-
vitar flokkanna, Guðmundur Rúnar Árnason og
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, funduðu í gær.
Guðrún reiknar með að málefnin verði kláruð
í dag og að um helgina verði útkljáð hver verður
bæjarstjóri. Enn sé ekki farið að ræða um það
embætti og ekki búið að ákveða hver það verður.
„Það hefur gengið
ljómandi vel. Það
kemur niðurstaða í
þetta á morgun,“
sagði Guðríður í gær.
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Hiti og selta í sjónum umhverfis
landið eru yfir langtímameðaltali,
eins og verið hefur undanfarin ár.
Starfsmenn Hafrannsóknastofnun-
arinnar luku nýverið vorleiðangri
sínum á skipinu Bjarna Sæmunds-
syni. Leiðangurinn er hluti af árs-
fjórðungslegri vöktun Hafró á lífríki
sjávar. Hiti í hlýsjónum suður og
vestur af landinu var sex til níu
gráður og seltan mikil líkt og und-
anfarin tólf ár. Hiti í Austur-Ís-
landsstraumi var hins vegar heldur
lægri en síðustu ár en seltan mikil.
Síðasta hlýskeið á Íslandsmiðum
varði frá 1920 til 1965 og hafði ekki
síst jákvæð áhrif á afkomu bolfisk-
tegunda og síldar.
Í leiðangrinum kom einnig í ljós
að vorkoma gróð-
urs hefði orðið
snemma þetta ár-
ið og hámark
hennar var víða
yfirstaðið í efsta
lagi sjávar, næst
landi, þegar mæl-
ingar fóru fram.
Mestur gróður
var úti af Faxa-
flóa og yfir land-
grunninu norðan og austan lands-
ins.
Á heildina litið var magn átu í
kringum landið um eða yfir meðal-
tali. Á Norðurmiðum var hún hins
vegar vel yfir meðaltali, mest í kalda
sjónum djúpt norðaustur af landinu,
þar sem stórar og hægvaxta kald-
sjávartegundir voru algengastar.
Fyrir Suðurlandi og á Selvogsbanka
var rauðáta mjög áberandi í flestum
sýnum. Jóhann Sigurjónsson, for-
stjóri Hafró, segir að gögnin úr leið-
angrinum sýni nokkuð greinilega að
enn sé hlýskeiðsástand í sjónum í
kringum landið. Spurður hvaða
ályktanir megi draga af því um við-
gang fiskistofnanna segir hann snú-
ið að draga ályktanir um það.
Sannarlega ekki neikvætt
„Vegna þess að á vorin er mikill
toppur í framleiðslu og það getur
verið talsvert breytilegt hvar í þess-
um toppi vorleiðangurinn lendir,“
segir Jóhann. „En sannarlega er
þetta ekki neikvætt,“ bætir hann
við. Á meðan ekki sé hafísástand
norður af landinu sé ástandið
þokkalegt. Í raun séu gögnin úr leið-
angrinum þó aðeins mynd af einu
augnabliki í sjónum á hverjum stað.
Hafið enn hlýtt og nærandi
Vorgróðurinn í hafinu snemma á ferðinni þetta árið
Meiri áta en vorið 2009 og rauðáta áberandi sunnan til
Jóhann
Sigurjónsson
Hollensk stjórn-
völd bíða enn eft-
ir tilboði eða við-
brögðum frá
Íslendingum við
tilboði sem Bret-
ar og Hollend-
ingar lögðu fram í
deilunni um Ice-
save í vetur.
Þetta var haft
eftir fjármála-
ráðherra Hollands, Jan Kees de Ja-
ger, í fréttum Rúv í gær. Sagðist Ja-
ger þar búast við niðurstöðu
fljótlega eða á næstu mánuðum. Eft-
ir væri að ræða málið nánar við nýj-
an fjármálaráðherra Breta.
Sagði hollenski ráðherrann að
dómstólaleiðin kæmi til greina í deil-
unni. Hún hefði þó í raun verið farin
með niðurstöðu Eftirlitsstofnunar
EFTA, sem hefði verið nokkurs kon-
ar gerðardómur frá óháðri stofnun.
Þar hefði sjónarmiðum Íslands verið
hafnað og fallist á með Hollend-
ingum og Bretum að Íslendingum
bæri að greiða lágmarkstryggingar
vegna Icesave að fullu.
Bíða eftir
tilboði frá
Íslandi
Jan Kees
de Jager
Enn deilt um Icesave
Hæstiréttur dæmdi í gær Birki Arn-
ar Jónsson í fimm ára fangelsi fyrir
tilraun til manndráps í nóvember
síðastliðnum. Hann var ákærður fyr-
ir að hafa farið grímuklæddur og
vopnaður hlaðinni haglabyssu að
heimili manns í Þverárseli í Breið-
holti, rekið byssuhlaup í enni hús-
ráðanda þegar hann kom til dyra og
síðan skotið fimm skotum úr hagla-
byssunni á húsið eftir að húsráðandi
skellti útidyrahurðinni aftur.
Tvö skotanna hæfðu hurðina en
þrjú fóru í gegnum rúðu við útidyrn-
ar og skrámuðu andlit húsráðandans
sem stóð fyrir innan. Hæstiréttur
taldi verknað Birkis stórhættulegan
og hafa beinst að lífi og heilsu hús-
ráðandans en ekki yrði fullyrt að
ásetningur Birkis hefði myndast
fyrr en á þeirri stundu er húsráðandi
skellti aftur hurðinni. Því mildaði
Hæstiréttur dóm héraðsdóms úr sex
árum í fimm. Auk fangelsisrefsing-
arinnar var Birkir Arnar dæmdur til
að greiða húsráðandanum 600 þús-
und krónur í skaðabætur.
Fimm ár fyrir
drápstilraun
Tískusýning til styrktar heimilislausum var haldin á Austurvelli í gær.
Sýnd voru föt sem gefin hafa verið á fatamarkað Hjálpræðishersins og
reyndu nokkrir þjóðþekktir einstaklingar fyrir sér á sýningarpallinum. Í
tilefni dagsins var einnig haldinn risa-fatamarkaður í Herkastalanum.
Hér má sjá mögulega næsta borgarstjóra Reykvíkinga, Jón Gnarr, og
leikkonuna Eddu Björg Eyjólfsdóttur dilla sér á sýningarpallinum og
leggja góðu málefni lið í leiðinni. Þeim til halds og trausts var ung og upp-
rennandi sýningarstúlka, Sóldögg Móna. Björgvin Franz var kynnir.
Dilluðu sér til styrktar heimilislausum
Morgunblaðið/Ómar