Morgunblaðið - 04.06.2010, Side 24
24 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010
✝ Guðrún AnnaGunnarsson
fæddist í Kaup-
mannahöfn 4. maí
1923. Hún lést á
heimili sínu 25. maí
sl.
Móðir Guðrúnar
Önnu var Anna Krist-
ín Gunnarsdóttir, f.
1898 að Eyri við
Skötufjörð, d. 1928
en Guðrún ólst upp
hjá fósturforeldrum
sínum, móðurbróð-
urnum Bjarna Gunn-
arssyni, f. 1891 að Eyri við Skötu-
fjörð, d. 1978 og konu hans Elínu
Þuríði Jónatansdóttur, f. 1894 að
Smáhömrum í Steingrímsfirði, d.
1976. Hálfsystur Guðrúnar eru
Helga, f. 1925, Katrín, f. 1926, og
Kristín Ólöf, f. 1928, d. 2000. Guð-
rún gekk árið 1950 í hjónaband
með Þorsteini Magnússyni, hús-
gagnasmið í Vestmannaeyjum f.
1919, d. 1983. Foreldrar hans voru
Magnús Ísleifsson frá Kanastöðum
í Landeyjum, f. 1875, d. 1949 og
Herdís Magnússína Guðmunds-
dóttir frá London í Vestmanna-
eyjum, f. 1874, d. 1944. Þau Guð-
Önnu og Atla Helgasonar: Guðrún
Anna. Barnabarnabörn Guðrúnar
Önnu Gunnarsson eru sjö að tölu.
Guðrún flutti með móður sinni frá
Kaupmannahöfn til Reykjavíkur
sem ungabarn fyrir atbeina og
með stuðningi Hedvig Blöndal sem
þær bjuggu hjá fyrst um sinn.
Anna Kristín, móðir Guðrúnar,
giftist Ólafi Kristni Steinssyni og
fluttu þau að Keldu í Mjóafirði.
Eftir andlát móður sinnar fer Guð-
rún til fósturforeldra sinna á Ísa-
firði, þeirra Elínar og Bjarna. Þar
gekk Guðrún í barna- og gagn-
fræðaskóla. Frekara nám stundaði
hún svo við Húsmæðraskólann
Laugalandi. Guðrún vann í Lands-
bankanum á Ísafirði, á læknastofu
í Reykjavík og við fleiri störf. Þar
kynntist hún Þorsteini og gengu
þau í hjónaband 1950. Árið eftir
fluttu þau til Vestmannaeyja þar
sem þau bjuggu fram að gosi 1973.
Þá fluttu þau upp á land og settust
að í Kópavogi. Þorsteinn stundaði
húsasmíðar en Guðrún tók að sér
húsmóðurhlutverkið eins og al-
gengt var í þá daga. Eftir lát Þor-
steins vann hún sem húsvörður í
Snælandsskóla í um tuttugu ár.
Guðrún tók virkan þátt í fé-
lagsmálum, gekk í Oddfellowregl-
una 1965 og var einn stofnenda
stúkunnar Þorgerðar 1977 þar
sem hún var heiðursfélagi.
Útför Guðrúnar fer fram frá
Nesskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.
rún og Þorsteinn
eignuðust fimm börn
en fyrir átti Guðrún
Bjarna Gunnar f.
1946 með Sveini Ás-
geirssyni, hagfræð-
ingi f. 1925, d. 2002.
Þorsteinn gekk
Bjarna í föðurstað.
Bjarni Gunnar er í
sambúð með Júlíu
Leví. Börn Bjarna
Gunnars og Unnar
Helgadóttur: Þor-
steinn Gunnar og
Helgi. Börn Guð-
rúnar og Þorsteins eru: 1) Elín
Kristín, f. 1951, d. 2007, eftirlif-
andi maki Ásmundur Sigvaldason.
Börn Elínar og Sæmundar Vil-
hjálmssonar: Bjarni og Styrmir.
Barn Elínar og Ásmundar: Harpa
Rún. 2) Magnús Gunnar, f. 1954,
maki Kristín Sigurðardóttir. Börn:
Sæunn, Sædís, Katrín Helena og
Díana Dögg. 3) Sigurður Gunnar,
f. 1956, maki Aldís Gunnarsdóttir.
Börn: Gunnar og Vignir. 4) Herdís,
f. 1961, maki Finnur Kristinsson.
Börn: Gunnsteinn og Hekla. 5)
Anna Hedvig, f. 1968, í sambúð
með Gunnari Svavarssyni. Barn
Ég vissi að það kæmi að því; samt
kom það á óvart. Ég var ekki viðbú-
in. Kannski voru fæturnir og augun
farin að gefa eftir, en hún mamma
var svo lifandi í öllu sem hún gerði,
skörp í hugsun, ræðin og félagslynd
fram á síðasta dag að mér fannst
tími hennar ekki kominn.
Við ræddum oft saman í síma á
kvöldin rétt um háttatímann. Um-
ræðuefnin voru margvísleg en oftar
en ekki barst nafna hennar, hún
Guðrún Anna mín, í tal. Við mamma
áttum það sameiginlegt að vera
ótrúlega montnar af henni og gát-
um rætt endalaust um hvað hún var
að fást við og hvernig henni gekk í
því sem hún tók sér fyrir hendur.
Mamma var fasti punkturinn í lífi
mínu og sú sem ég gat ávallt leitað
til. Líklega hef ég verið mikið
mömmubarn. Ég var yngst og ekki
nema 15 ára þegar pabbi dó, ég
uppivöðslusamur unglingurinn og
mamma saman. Ég held samt að ég
hafi alltaf farið eftir því sem
mamma sagði; maður sá að það sem
hún lagði til málanna var skynsam-
legt. Þannig var hún fram á síðasta
dag, fylgdist vel með öllu sem gerð-
ist í kringum hana, hvort heldur var
í fjölskyldunni, vinahópi eða þjóð-
málunum og hún hafði ákveðnar
skoðanir á málefnum. En hún hafði
líka húmorinn í lagi, svolítið hrjúfan
eins og Vestfirðingum er lagið en
allt vel meint og aldrei meiðandi.
Mamma var ankerið í fjölskyld-
unni og fréttaveita. Hjá henni gat
maður alltaf fengið fréttir af ætt-
ingjum, systkinum, börnum þeirra
og barnabörnum. Hún hélt góðu
sambandi við ættingja sína og fjöl-
marga vini alla tíð. Það er ekki
lengra síðan en um síðustu jól að
mamma hélt hina hefðbundnu
skötuveislu fyrir stóran hóp manna
þótt hún væri komin hátt á níræð-
isaldurinn.
Ég er þakklát fyrir allar góðu
stundirnar sem við áttum saman.
Við sátum oft og iðulega og spjöll-
uðum lengi saman við eldhúsborðið
í Litlahjallanum. Löngu síðar héld-
um við áfram að spjalla í símann
fyrir svefninn fram á síðasta dag.
Svo sofnaði mamma. Eftir sitja fal-
legar minningarnar um mömmu
sem ég kveð með þessum fáu orð-
um. Ég mun ætíð sakna þín.
Anna Hedvig.
Hún Gunna Gunn tengdamóðir
mín er farin. Hún kvaddi okkar til-
verustig nokkuð óvænt þó svo að
hún væri komin á aldur eins og hún
orðaði það stundum sjálf, nýlega
orðin 87 ára.
Gunna var ótrúlega þrautseig og
dugleg fram á síðustu stund. Þrátt
fyrir ýmis áföll bæði andleg og lík-
amleg hefur hún alltaf staðið upp
keik og sterk. Síðasta slysið var
beinbrot í vetur. Hún var á Odd-
fellow-balli. Við vorum á leiðinni út
og hún studdi sig við mig. Gunnu
skrikaði fótur og féll í gólfið og
brákaði bein í ökklanum. Eftir á
stríddi hún mér á því að það hefði
verið lítið á þessum stuðningi að
græða, síðan hló hún og sagði um
hæl: „O, hvað þetta er ljótt af mér
að segja þetta“.
Þegar Gunna var að jafna sig eft-
ir þetta brot, var það mikilvægasta
takmark hennar að ná að komast af
eigin rammleik út undir bert loft
og að ganga niður í Elliðaárdal.
Gunna var alla tíð mikil útivistar-
kona og skildi mikilvægi þess að
hreyfa sig reglulega og þá helst úti
undir beru lofti. Gunna var kominn
vel af stað og var farin að fara í
sína göngutúra eftir því sem veður
leyfði.
Útivistarkonan og náttúruunn-
andinn Gunna Gunn fór í nokkrar
útilegur og fjallaferðir með okkur.
Í einni ferðinni vorum við með nýtt
„tengdamömmubox“ á þaki bílsins.
Talaði hún oft um það í ferðinni að
hún yrði að haga sér vel svo hún
yrði ekki sett í boxið. Það var ekki
mikil hætta á því að við þyrftum að
nota boxið, enda alltaf gaman að
ferðast með Gunnu. Ef ekki voru
skemmtisögur eða fróðleikur, átti
hún það til að fara með vísu eða
hluta úr kvæði og spyrja okkur eft-
ir hvern það væri. Fljótlega átt-
uðum við okkur á því að vinsælustu
skáldin voru Einar Ben. og Davíð
Stefánsson. Þannig að oft var hægt
að bjarga sér með því að nefna
annan hvorn þeirra.
Ég hitti Gunnu fyrst fyrir rétt-
um 24 árum, þegar við Herdís kom-
um óvænt heim í stutta heimsókn
frá Danmörku. Tók hún mér strax
eins og ég hefði alla tíð verið hluti
af fjölskyldunni. Þegar við vorum á
Íslandi þessa daga voru tveir til-
vonandi tengdasynir kynntir í fjöl-
skyldunni sama kvöldið. Einhverj-
um hefði þótt nóg um, en við Ási
erum ennþá hluti af fjölskyldunni,
enda lærðum við fljótt að tala ekki
hærra en þeir sem fyrir voru. Það
var aldrei lognmolla í kringum
Gunnu, alltaf skemmtilegar og fjör-
ugar umræður, enda bjó Gunna yf-
ir ótrúlegum hæfileikum þegar
kom að mannlegum samskiptum.
Sagði sína skoðun, var létt og
skemmtileg, hrein og bein. Hún var
einnig orðheppin og átti auðvelt
með að svara fyrir sig á skemmti-
legan hátt.
Það er sárt að horfa á eftir góð-
um vini og ömmu barnanna sinna.
Og ég mun ætíð minnast hennar
með hlýju í hjarta.
Finnur Kristinsson.
Mikil heiðurskona hefur kvatt
þennan heim.
Ég kynntist Gunnu Gunn, eins og
Guðrún var ávallt kölluð, þegar ég
kom til Vestmannaeyja í fyrsta sinn
fyrir 34 árum og Sigurður yngsti
sonur hennar kynnti mig fyrir
henni og Steina í London. Síðan þá
höfum við átt góða samleið og ætíð
verið mjög góðar vinkonur.
Hún var mikil náttúru- og útivist-
arkona, stundaði skíði og fjallgöng-
ur á fyrri árum, gönguferðir allt til
dánardags.
Gunna var ákveðin og víðsýn á
menn og málefni, ljóðelsk, fróð,
glettin og skemmtileg heim að
sækja. Í hvert sinn fór ég út frá
henni með meiri visku og mildi í
hjarta í farteskinu.
Henni var mikið í mun að halda
fjölskyldunni saman og greiða götu
hvers og eins, ef hún mögulega gat,
ávallt tilbúin að hlusta. Hún orðaði
það svo, að ekkert mál er að standa
saman og með sínum þegar vel
gengur, mikilvægara er og fyrst
reynir á að standa saman þegar
brýtur á og illa gengur.
Ég þakka þér fyrir elsku, Gunna
mín, allar okkar samverustundir er
ég geymi hjá mér, ég veit í hjarta
mínu að þú ert sátt þar sem þú ert
stödd í dag. Ég kveð þig eins og þú
kvaddir mig eftir síðasta símtalið
okkar og lofa að vera góð við hann
Sigurð þinn og hann Sigga minn, þú
veist mitt svar.
Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý
og hógvær göfgi svipnum í.
Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt
og hugardjúpið bjart og stillt.
(Höf. ók.)
Hafðu þökk fyrir samfylgdina.
Hvíl í friði.
Þín tengdadóttir,
Aldís.
Elsku amma mín, nú ertu horfin
á braut. Ég á eftir að sakna þess að
geta komið í heimsókn til þín líkt og
síðasta vetur. Þær stundir sem við
áttum saman einkenndust af gleði,
hlátri og alls konar spjalli og þegar
við vorum ekki sammála hlógum við
hvor að annarri. Þú varst líka alltaf
svo ljúf og þegar eitthvað bjátaði á
þurfti engin orð, þú skildir mig og
opnaðir faðminn. Þú varst líka alltaf
að hrósa okkur og það þurfti lítið til
að gera þig stolta.
Elsku amma. Þú átt eftir að skilja
eftir þig stórt skarð í fjölskyldunni
sem aldrei verður fyllt. En við get-
um þó geymt allar „ömmusögurn-
ar“ sem alltaf er hægt að brosa að
og þær rifja upp góðar minningar.
Þú ertu nú vonandi komin á betri
stað þar sem öllum veikindum og
þyngslum er aflétt.
Elsku amma. Þín verður sárt
saknað og ég á alltaf eftir að geyma
þig í hjarta mínu.
Þín
Sædís.
Elsku amma.
Eins mikið og ég sakna þín, þá
ætla ég ekki að kveðja þig með tár-
um heldur einungis með bros á vör
enda einkennir það samband okkar
tveggja. Því alltaf þegar við hitt-
umst og vorum saman þá var mikil
vinátta og kærleikur og mikið um
hlátur og gleði. Fáa get ég nefnt
sem hafa veitt mér jafn mikla visku
og sögur eins og þú.
Ég gat leitað til þín þegar eitt-
hvað bjátaði á hjá mér og alltaf
varst þú mér til halds og trausts.
Já, amma, þú ert langbesta amma
sem hægt er að hugsa sér. Ég
þakka fyrir allt sem þú hefur gefið
mér, hvíl þú í friði þangað til leiðir
okkar mætast á ný.
Þinn angurgapi,
Vignir Sigurðsson.
Elsku amma, nú hefur þú kvatt
þennan heim. Ég er þakklát fyrir
allar stundirnar sem við áttum sam-
an og eftir sitja góðar minningar.
Þú stóðst við hlið mér sem klettur í
gegnum súrt og sætt. Gast alltaf
fengið mig til að brosa í gegnum
tárin með hnitmiðuðum húmor þín-
um. Við Gunnsteinn vorum oft í
pössun hjá þér þegar við vorum
yngri og lærðum margt af þér. Ég
gleymi því seint þegar þú varst í
eldhúsinu að elda og flauta lag. Um
leið og ég kom inn til þín greipst þú
um mig og byrjaðir að dansa. Eftir
því sem við barnabörnin döfnuðum
kunnum við alltaf meira og meira að
meta þig. Oft reyndum við að slá
þig út af laginu með alls kyns óvið-
eigandi hlutum en þú áttir alltaf góð
svör sem slógu okkur út. Mér er
minnisstætt þegar við keyrðum
saman út á land, þú dáðist að nátt-
úrunni og söngnum sem ég söng
fyrir þig þrátt fyrir að vera afar
laglaus. Ég fór í heimsókn til þín
þann 9. maí og við áttum langt og
gott samtal. Mikið náðum við vel
saman, amma. Eitt af því síðasta
sem þú sagðir við mig var: „Guðrún
mín, þú ert með svo þurrar varir.
Þú þarft að fara að láta einhvern
strák kyssa þær fyrir þig.“ Þetta
sástu, amma mín, þrátt fyrir dapra
sjón. Þú sást það sem þú vildir sjá.
Enda mikill dugnaðarforkur. Þegar
ég kom að þér látinni í rúminu vissi
ég ekki hvaða tilfinningar ég átti að
tjá. Stóð þarna yfir ömmu minni
sem hafði gefið mér svo margt og
hrópaði á þig: „Vaknaðu, amma.“
Auðvitað gastu ekki vaknað. Þú
varst búin að yfirgefa þennan heim.
Engu að síður er ég mjög þakklát
fyrir að hafa komið að þér og fengið
að kveðja þig. Mér er mjög minn-
isstætt þegar ég var 10 ára gömul
og amma Lilja dó, þá sagðir þú:
„Guðrún mín, ég vil ekki að þú grát-
ir mig þegar ég yfirgef heiminn því
það er gott að fá að fara þegar mað-
ur er gamall.“ Ég reyni eins og ég
get, amma mín, að gráta ekki en
missirinn er mikill og ég er viss um
að allir séu sammála mér. Rétt eftir
aðkomuna fór ég að skoða í bóka-
hillur þínar og fann þar ljóðabók.
Ljóðið sem var ætlað dánardegi
þínum fannst mér fremur lýsandi
fyrir daginn. Þetta er ljóðið:
Og þögnin, þögnin hvíslar hálfum
orðum.
Hugurinn minnist söngs sem löngu
er dáinn.
Ó, sál mín, sál mín! svona komu
forðum
sumrin öll, sem horfin eru í bláinn.
(Tómas Guðmundsson)
Ég er ánægð með að hafa fengið
að erfa nafnið þitt sem var þér svo
dýrmætt. Ég mun halda uppi heiðri
nafnsins og er stolt að fá heita það
sama þú, amma. Þín verður sárt
saknað.
Guðrún Anna Atladóttir.
Vinkona mín og frænka, Gunna
Gunn, er gengin fyrir ætternisstap-
ann. Hún var nákomnari fjölskyld-
unni á Svalbarði í Ögurvík en aðrir
venslamenn, enda taldi hún sig sjálf
gjarnan tilheyra þeirri fjölskyldu.
Vorið 1960 heimsótti undirritaður
Vestmannaeyjar í pólitískum erind-
um og gisti þá hjá Guðrúnu frænku
og ágætum eiginmanni hennar,
Þorsteini Magnússyni.
Móðir mín og móðir Guðrúnar
voru systur, dætur Kristínar Önnu
Haraldsdóttur og Gunnars Sigurðs-
sonar á Eyri í Skötufirði. Móðir
þeirra dó þegar Salome var þriggja
ára en Kristín Anna nýfædd, enda
andaðist móðir þeirra úr sjúkdómi,
sem þá var kallaður barnsfararsótt,
en litla stúlkan skírð í höfuð henn-
ar.
Í Vestmannaeyjadvölinni sagði
Guðrún frá högum móður sinnar,
þegar hún var sjálf í heiminn borin
og framhaldi þess. Kristín Anna
hafði kynnzt ungum menntamanni
og varð barnshafandi af hans völd-
um. Hún var þá send til Kaup-
mannahafnar að ala barnið, sem þá
var mikill siður, enda fordæmið að-
eins rúmlega ársgamalt frá því sem
systir hennar, Elísabet, var af
landsfrægum athafnamanni þangað
send til barnsburðar. Við þeim syni
gekkst athafnamaðurinn síðar.
En Kristín Anna lenti í stökustu
erfiðleikum með Guðrúnu sína, ein
og með öllu yfirgefin og ráðalaus.
Þá kom til sögunnar Hjálmar Blön-
dal, sem var hagfræðingur Reykja-
víkurborgar á sínum tíma. Guðrún
tók svo djúpt í árinni að hann hefði
bjargað lífi þeirra mæðgna; greiddi
för þeirra til Íslands og á heimili
móður hans í Reykjavík var alin
önn fyrir mæðgunum um hríð.
Og heim komst Kristín Anna með
Guðrúnu sína að Djúpi. Þar tók
bróðir Kristínar, Bjarni og kona
hans Elín Jónatansdóttir, við Guð-
rúnu og ólu hana upp sem sína eigin
dóttur, í nokkru eftirlæti kannski,
en af mikilli alúð.
Kristín Anna giftist Ólafi Kristni
Steinssyni að Keldu í Mjóafirði og
átti með honum Kristínu Ólöfu, en
andaðist sjálf hinn 5. ágúst 1928.
Sögu sinni af þeim mæðgum lauk
Guðrún með því að lesa upp nokkur
bréf, sem faðir hennar hafði sent
Kristínu Önnu á sínum tíma. Spurði
svo að lestri loknum: „Á ég ekki að
brenna þessi bréf?“
Það slumaði í mér í fyrstu við svo
erfiðri spurningu, en játti síðan af
því sem ég fann að hún vildi fá það
svar. Var gott að þau bréf urðu eldi
að bráð. Þau hefðu aldrei orðið
neinum til gleði eða góðs, en bréf-
ritara ef til vill til álitshnekkis.
Gunna Gunn kom í heimsókn inn
að Svalbarði í Ögurvík ung að árum.
Hún var gustmikill unglingur. Sal-
ome móðir mín og móðursystir
hennar hafði á henni mikið dálæti
og einnig faðir minn Hermann og
var þó frábitinn því að flíka tilfinn-
ingum sínum.
Guðrún Gunnars var myndar-
kona og um hana lék gerðarþokki.
Sorgin sótti hana heim sem verður
þeim sem lengi lifa; andlát eigin-
manns fyrir margt löngu og elztu
dóttur síðar. Það bar hún með reisn
þeirrar manneskju, sem er mikil af
sjálfri sér og ekki fisjað saman.
Ég kveð þessa mína kæru frænku
með þakklæti og virðingu. Hún
þurfti að færast mikið í fang um æv-
ina og hverfur nú frá vel unnu verki
„meira að starfa Guðs um geim“.
En sviðið verður eyðilegra eftir að
hin einarða kona hefir kvatt.
Sverrir Hermannsson.
Það er sárt að sjá á eftir vinkonu
minni Gunnu Gunn. Hvern hefði
grunað þegar hún hringdi í mig
kvöldið áður en hún kvaddi að það
yrði síðasta samtal okkar. Við töl-
uðum um heima og geima, en þó að-
allega um barnabörnin því þá voru
tvö í gistingu hjá mér. Síðan barst
talið að ferðalögum okkar sem við
vorum duglegar að stunda, bæði
innanlands og utan.
Kynni okkar byrjuðu 17. júní fyr-
ir 35 árum í miðbæ Reykjavíkur,
þar sem eiginmaður minn, Guð-
mundur Þór, kynnti mig fyrir
Gunnu og Steina, eiginmanni henn-
ar. Þeir höfðu kynnst nokkru áður í
Vestmannaeyjum þegar bygging
sjúkrahússins stóð yfir. Þorsteinn
vann við bygginguna sem yfirsmið-
Guðrún Anna
Gunnarsson