Morgunblaðið - 04.06.2010, Síða 35
Minningar 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Garðar
Hellulagnir og öll jarðvinna
Hellulagnir- snjóbræðsla- drenlagnir-
og öll almenn jarðvinna.Tökum að
okkur stór sem smá verk. Vönduð
vinna - vanir menn. Uppl. í s. 848-
3537, Árni, ag.verk@gmail.com
Glæsilegt heilsárs-/sumarhús í
Grímsnesi til sölu eða leigu
Laust nú þegar. Upplýsingar í síma
663 4374.
Sumarbústaðalóðir
Eignarlönd til sölu í landi Kílhrauns á
Skeiðum, 50 km frá Rvk. í stærðunum
0,5 ha. til 1,1 ha. Hentar vel til
gróðursetningar og er með fallega
fjallasýn, kalt vatn, síma og þriggja
fasa rafmagn að lóðarmörkum, til
afhendingar strax, hagstætt verð og
góð kjör. Verið velkomin.
Hlynur í síma 824 3040.
www.kilhraunlodir.is
BREKKUSKÓGUR - Til sölu
gott 48 m² sumarhús með öllu innbúi
í Brekkuskógi. Verð kr. 13 millj. Get
tekið góðan húsbíl (lágþekju) upp í.
Uppl. í s. 552 8329.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratugareynsla.
Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig
á hinum ýmsu byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Sumarhús (með öllu) - Vinnuskúr
3 f. rafm. Færanlegur, einangraður,
ca. 3x9 m, 3 fasa rafm., anddyri
m/gluggum/innréttingu. Miðrými
m/skápum, salerni og sturtu. Enda-
rými með gluggum og fataskápum.
Uppl. í síma 895-3037.
Þjónusta
Halló! - Vantar þig aðstoð?
Garðsláttur og tiltekt við hús og
garða. Hringdu í kallinn í síma
848 1416.
Tek að mér
ýmis smærri verk
Upplýsingar í síma 847 8704
eða manninn@hotmail.com
Ýmislegt
120 m² ferðaþjónustuhús til sölu
áður Kaffi Grindavík, gæti einnig
hentað sem sumarh., verslun,
aðstöðuh. eða m.fl. 300 m² sólp. Hús
sem er auðvelt að flytja. Gott verð.
Uppl. í s. 897 6302.
Heitir pottar
Sími 565 8899
GSM 863 9742
www.normx.is
normx@normx.is
Tilboð
Dömusandalar úr leðri.
Verð: 3.500,-
Sími: 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18,
lau. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Velúrgallar
Innigallar fyrir konur
á öllum aldri
Stærðir S - XXXL
Sími 568 5170
...þegar þú vilt þægindi
Softshell fyrir dömur og herra
Kr. 14.500.-
St. XS-3XL Jakki fyrir bæði kyn
sem andar, vind og vatnsfrá-
hrindandi, rennilás á innaná-
vösum.
Bonito ehf. Praxis
Faxafeni 10, 108 Reykjavík
Sími: 568 2878
Opnunartimi: mánud- fimmtud kl.
11.00 - 17.00
föstudaga kl. 11.00 -15.00
www.praxis.is
TVEIR STÓRGÓÐIR !!
Teg. 4457 - gamli, góði
íþróttahaldarinn í BCD skálum fæst í
hvítu, húðlitu og svörtu á kr. 4.350,-
teg. 75526 - mjög flottur íþrótta-
haldari í BCD skálum, fæst í hvítu
og svörtu á kr. 4.350,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
- vertu vinur
Fallegir og þægilegir dömuskór
úr mjúku leðri, skinnfóðraðir.
Stærð: 37 - 41.
Verð: 13.950,-
Sími: 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18,
lau. 10 -14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Sumarhús
Það er með miklum
trega sem ég kveð
Gunnar, tengdaföður
minn. Ég minnist þess
þegar ég hitti hann
fyrst á heimili hans og Jytte konu
hans fyrir meira en 20 árum. Hann
var í eldhúsinu að galdra fram
meistararétti og ég sá strax að eld-
húsið var hans staður. Oft átti mað-
ur eftir að njóta hæfileika hans í
eldhúsinu, jafnvel þegar hann kom
sem gestur á heimili okkar Hildar,
dóttur hans. Ég sá strax að á þessu
fallega heimili var mikið af bókum
og hann var mikill bókamaður og
fróður um margt. Hann var tækni-
fræðingur og sérhæfði sig í hönnun
loftræstikerfa, þ. á m. þar sem ég
vinn. Ég vissi ekki, fyrr en ég
kynntist honum, að það væri hægt
að hafa ástríðu fyrir loftræstikerf-
um en það er greinilega staðreynd
enda tókst hann allur á loft þegar
við ræddum um loftskipti á skurð-
stofum, sem við gerðum ósjaldan.
Hann hafði líka sérstaka unun af að
segja mér hvernig hann leysti
vandamál við hönnun loftræstikerf-
isins í Perlunni þar sem efsta hæðin
snýst. Hann ræddi sjaldnar um
sjálfan sig. Það var ekki fyrr en
seinna að ég komst að því að hann
hafði átt erfiða æsku í fátækt og
basli og flest af því sem hér kemur
fram að neðan hef ég frétt síðustu
daga. Móður sína missti hann ungur
en hún varð snemma einstæð móðir.
Hún var saumakona og þau bjuggu
á saumastofunni þannig að snemma
morguns þurfti að taka upp öll rúm
og breyta heimilinu í vinnustað.
Með harðfylgi framfleytti hún fjöl-
skyldunni en svo brást heilsan og að
lokum lést hún en hann naut skjóls
hjá eldri bræðrum sínum. Hann
Gunnar Geirsson
✝ Gunnar Geirssonfæddist í Reykja-
vík 18. desember
1934. Hann lést á
gjörgæsludeild Land-
spítalans í Fossvogi
14. maí 2010.
Útför Gunnars fór
fram frá Dómkirkj-
unni 25. maí 2010.
braust til mennta og
lærði byggingatækni-
fræði í Svíþjóð. Varð
einn af fremstu hönn-
uðum loftræstikerfa
hérlendis og var enn
til hans leitað þótt
hann væri orðinn 75
ára. Lauk sínu síðasta
verkefni minna en
hálfum mánuði fyrir
andlátið. Hann var
hlýr en dulur. Ástúð
sýndi hann fremur í
fasi og verkum en í
orðum. Hann var
glaðvær og hafði skemmtilega
kímnigáfu og hann hallmælti aldrei
neinum. Hann lifði gjöfulu lífi en
samt byggðist gæfa hans fyrst og
síðast á elju hans og dugnaði. Hann
átti fallegt heimili, ferðaðist mikið
og starfaði við það sem hann hafði
einlægan áhuga á. Alla tíð naut
hann góðrar heilsu og hafði aldrei
lagst á sjúkrahús fyrr en hann lá
banaleguna. Hann skilur eftir sig
dýrmætan fjársjóð, 5 uppkomin
börn og hóp barnabarna. Hans er
sárt saknað og vissulega hefðum við
öll viljað njóta hans lengur. En eitt
sinn skulu allir deyja og það eru
forréttindi að fá að lifa jafn ástríku
og innihaldsríku lífi og hann gerði í
sátt við guð og menn og að vera
kvaddur með söknuði.
Ásgeir Valur Snorrason.
Horfinn er af sjónarsviðinu góður
og tryggur vinur okkar, Gunnar
Geirs, vinur í gegnum nokkra ára-
tugi, vinur sem aldrei brást, vin-
skapur sem ekki átti sér nokkra
skugga, til þess að ávinna sér slíkan
vitnisburð þarf að stíga varlega til
jarðar, virða andrúm þeirra sem í
kringum mann eru, andmæla af
hógværð og fylgja skoðunum sínum
eftir af sömu hógværð, því hvar
finnst skoðunarlaus maður? Þennan
eiginleika hafði Gunnar. Slík fram-
koma laðar að, Gunnar gáraði ekki
öldur – hann lægði öldur og stutt
var í hláturinn. Hlátur bægir öllum
óróa frá. Skarð hefur verið höggið í
okkar vinahóp – eftir stöndum við
hnípin og verðum að vinna úr.
Margar minningar hrannast upp á
langri göngu, ferðalög um hálfan
heiminn, styttri ferðalög þar sem
áhersla var lögð á að njóta fastrar
sem fljótandi fæðu í fögru umhverfi,
ennþá styttri ferðir sem aðeins lágu
rétt út fyrir bæjarmörkin með börn-
um okkar og tjald og prímus að
vopni, og það sem mest var um vert
– hláturinn. En tíminn líður og ekk-
ert er eilíft í þessum heimi. Það
hægði á okkur. Börnin okkar uxu
upp, urðu að fullorðnu fólki, við
eignuðumst tengdabörn og barna-
börn, og áherslurnar breyttust en
hugurinn hélt áfram sínum hnatt-
reisum, og sumum var fylgt eftir.
Gunnar var farsæll í sínu atvinnu-
og einkalífi. Hann elskaði Juttuna
sína og bar hag hennar mjög fyrir
brjósti, sem og annarra fjölskyldu-
meðlima. Þau voru samheldin hjón,
Jutta og Gunnar. Í atvinnulífinu,
sem tæknifræðingur, var Gunnari af
forráðamönnum meinað að hætta
starfi hjá því fyrirtæki, sem hann
hafði unnið hjá í nokkra áratugi, þó
kominn væri langt fram yfir aldur.
Fallegur vitnisburður, sem segir
meira en nokkur orð.
Við kveðjum vin okkar Gunnar
með trega, þakklæti og söknuði,
hugurinn er óskiptur hjá Juttu okk-
ar og öðrum aðstandendum. Allir
standa saman í sorg.
Marta María og
Poul Erling (Palli).
Okkur hjónin langar til að kveðja
gamlan vin gegnum 40 ár og þakka
honum og Jyttu fyrir allar eftir-
minnilegu stundirnar sem við höfum
átt saman. Gunni Geirs, eins og við
kölluðum hann oftast okkar í milli,
var ljúfmenni, vildi öllum vel og mat
hana Jyttu, gömlu vinkonu okkar,
mikils. Hann var snyrtimenni,
klæddist alltaf glæsilega og naut
þess að njóta alls hins besta í lífinu.
Þau hjón áttu sameiginlegt áhuga-
mál, sem var ferðalög, og hafa þau
farið saman um heiminn þveran og
endilangan ef svo má segja. Mat-
argerð var honum hugleikin, og gat
hann töfrað fram dásamlega rétti
sem við fengum oft að njóta, sem og
margir fleiri.
Við þekkjum ekki mikið til verka
hans á vinnustað, en vitum að þar
voru honum falin ýmis stór verkefni
við hönnun loftræstikerfa í nýbygg-
ingum, sem segir nokkuð um hæfni
hans á því sviði sem hann tileinkaði
sér þegar hann lærði tæknifræði í
Svíþjóð fyrir margt löngu. Má þar
nefna Flugstöðina á Keflavíkurflug-
velli og stórar hótelbyggingar í
Reykjavík, sem segir sína sögu um
það traust sem til hans var borið.
Við kveðjum kæran vin með
þakklæti og virðingu og vitum að
hann hefur hlotið góða heimkomu,
enda margir fjölskyldumeðlimir
sem þar hafa beðið komu hans. Hvíl
í friði, kæri vinur.
Ásdís og Gunnar Waage.
Bridsfélag Reykjavíkur
Aðalfundur félagsins verður
mánudaginn 14. júní kl. 17:30 í Síðu-
múla 37. Venjuleg aðalfundarstörf,
m.a. kosning nýrrar stjórnar. Fé-
lagsmenn eru hvattir til að mæta.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 28 maí var spilað á 15
borðum. Úrslit urðu þessi í N/S:
Rafn Kristjánss. – Magnús Halldórsson 377
Sigurður Tómass. – Guðjón Eyjólfsson 374
Bjarnar Ingimars – Bragi Björnsson 359
Einar Markúss. – Sverrir Gunnarsson 349
A/V
Ásgeir Sölvason – Haukur Guðmss. 419
Jón Hallgrímsson – Bjarni Þórarinsson 390
Jón Sævaldsson – Kristján Þorláksson 357
Jón Hákon Jónss. – Bergljót Gunnarsd. 353
Þriðjudaginn 1. júní var spilað á 15
borðum.Úrslit urðu þessi í N/S:
Erla Sigurjónsd. – Jóhann Benediktss. 398
Rafn Kristjánsson – Magnús Halldórss. 364
Albert Þorsteinss. – Björn Árnason 348
Oliver Kristóferss. – Magnús Oddss. 342
A/V
Júlíus Guðmss. – Óskar Karlsson 387
Sverrir Jónsson – Óli Gíslason 371
Oddur Halldórss.– Oddur Jónsson 358
Jón Sævaldss. – Kristján Þorláksson 344
Sumarbrids í Reykjavík
Mánudaginn 31. maí var spilaður
monrad barómeter með þátttöku 25
para.
Efstu pör:
Eðvarð Hallgrímss. - Magnús Sverriss. 73,7
Ásmundur Pálss. - Guðm. Páll Arnars. 69,3
Csaba Daday - Haraldur Ingason 61,8
Þórður Jörundss. - Jörundur Þórðars. 58,5
Miðvikudaginn 2. júní spiluðu 25
pör monrad barómeter.
Efstu pör voru:
Björn Friðrikss. - Sverrir Þórisson 57,5
Halldór Þorvaldss. - Magnús Sverriss. 41,7
Gróa Guðnad. - Unnar .Guðmss. 40,7
Guðný Guðjónsd. - Halldóra Magnúsd. 35,7
Bronsstigahæstu menn 2. júní:
Magnús Sverrisson 85
Gunnar Björn Helgason 65
Halldór Þorvaldsson 63
Örn Einarsson 60
Sumarbrids er spilað mánudags-
og miðvikudagskvöld.
Keppnisstjóri er Sveinn Rúnar Ei-
ríksson.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins.
Smellt á reitinn Senda inn efni á
forsíðu mbl.is og viðeigandi efnislið-
ur valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður grein-
in að hafa borist eigi síðar en á há-
degi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi
eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur.
Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og
hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram.
Minningargreinar