Morgunblaðið - 30.06.2010, Qupperneq 4
FRÉTTASKÝRING
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Verðbólga á ársgrundvelli mælist
5,7% samkvæmt mælingum Hag-
stofu Íslands og hefur ekki mælst
minni síðan við árslok 2007. Verðlag í
júní lækkaði um 0,33% frá fyrri mán-
uði og höfðu verðlækkanir á elds-
neyti, mat og drykkjarvöru mest
áhrif.
Vísitala neysluverðs miðað við
verðlag í júní mælist nú 364,1 stig.
Vísitala neysluverðs án húsnæðis er
346,3 stig og lækkaði hún um 0,46%
frá því sem hún var í maí. Vísitala
neysluverðs hefur þó hækkað um
5,7% sé litið til síðustu tólf mánaða
og um 7,5% án húsnæðis á sama
tímabili.
Undanfarna þrjá mánuði hefur
vísitala neysluverðs hækkað um
0,3% sem jafngildir 1,3% verðbólgu á
ári samkvæmt Hagstofu Íslands.
Möguleg gengisáhrif
Samkvæmt upplýsingum Hagstof-
unnar hefur verð á bensíni og dísel-
olíu lækkað um 5,9%. Þá lækkun má
að verulegu leyti rekja til verðstríðs
olíufyrirtækjanna og lækkandi
heimsmarkaðsverðs. Guðrún Ragn-
heiður Jónsdóttir, deildarstjóri vísi-
töludeildar Hagstofunnar, tekur þó
fram, að ekki sé hægt að útiloka
gengisáhrif á lækkun eldsneytis-
verðs. „Við erum ekki alveg tilbúin
að staðhæfa gengisáhrif, til þess
þurfum við aðra mælingu, en líklegt
er að gengið hafi einhver áhrif,“ seg-
ir Guðrún.
Möguleg gengisáhrif sjást þó víð-
ar. Athygli vekur að áfengisverð
lækkaði um 0,3% á milli mánaða og
segir Guðrún lækkunina að öllum
líkindum mega rekja til sterkara
gengis krónunnar en áfengisverð
haldist að jafnaði frekar stöðugt.
Þá lækkaði verð á mat og
drykkjarvöru um 1,5% og að sögn
Guðrúnar ráða að mestu árstíða-
bundnar verðlækkanir á grænmeti.
„Við sjáum tólf prósent lækkun á
grænmeti á milli mánaða sem er að
miklu leyti árstíðarbundin,“ segir
Guðrún og bætir við, að það skýrist
helst af því að á sumrin þurfi ekki að
sækja grænmetið eins langt auk
þess sem sömuleiðis komi þá innlend
framleiðsla á markað.
„Þetta eru betri tíðindi en við höf-
um séð lengi og það er jákvætt út af
fyrir sig, en niðurstöðurnar koma þó
ekki á óvart“ segir Henný Hinz, hag-
fræðingur hjá ASÍ. Hún segir mæl-
ingar Hagstofunnar í samræmi við
spár. Áfram sé gert ráð fyrir að
verðbólga fari hratt minnkandi, þ.e.
á næstu mánuðum.
Verðbólga ekki
mælst minni
síðan árið 2007
Matar- og eldsneytisverð lækkar
Vænt Grænmetisverð hefur áhrif til
lækkunar vísitölu neysluverðs.
Lækkanir
» Vísitala neysluverðs lækkaði
um 0,33 prósent í júní miðað
við fyrri mánuð.
» Verðlækkanir á eldsneyti,
mat og drykkjarvörum hafa
mest áhrif til lækkunarinnar.
» Greina má áhrif styrkingar
krónunnar í mælingum Hag-
stofu Íslands.
» ASÍ gerir ráð fyrir að verð-
bólga fari hratt minnkandi á
næstu mánuðum.
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2010
www.noatun.is
Nóatúni
Nýttu þér nóttina í
Verslanir Nóatúns eru
opnar allan sólarhringinn
Anna Sigríður Einarsdóttir
annaei@mbl.is
Gott gengi íslenska liðsins í A-riðli Evrópumeistara-
mótsins í brids, sem nú stendur yfir í Oostende í Belg-
íu, hefur vakið vonir um að Íslendingar öðlist keppn-
isrétt á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Hollandi
haustið 2011. Tæp 20 ár eru frá því Íslendingar tóku
þátt í heimsmeistaramóti síðast, en 1991 hampaði liðið
heimsmeistaratitlinum eftir að hafa lent í 4. sæti á
Evrópumeistaramótinu. Sex efstu lið Evrópumeistara-
mótsins öðlast keppnisrétt á heimsmeistaramótinu og í
gær unnu Íslendingar A-riðil mótsins með 358 stig.
Næstir komu Ítalir með 350 stig.
Björn Eysteinsson er bjartsýnn á árangur nú fyrir
Íslands hönd, en hann var fyrirliði íslensku heimsmeist-
aranna. „Þetta er gott lið og það gefur góðar vonir, en
það er þó enn mikið eftir,“ segir Björn og varar við of
mikilli bjartsýni. „Við höfum nokkrum sinnum áður
verið nálægt því að komast á heimsmeistaramótið.“
Seinni hluti keppninnar, sem Ísland er þegar búið að
tryggja sér þátttökurétt í, er enda erfiður því þar
keppa níu efstu lið A-riðils við níu efstu lið B-riðils.
„Það kemur sér vel að vera með mikið magn stiga og
lenda ofarlega í riðlinum, því stigin fylgja liðunum upp
og í því felst góður grunnur, auk hvatans sem fylgir því
að vera upptendraður af góðu gengi.“
Hversu raunhæfur draumurinn um heimsmeistara-
mótið sé skýrist væntanlega á næstu tveimur dögum.
Íslenska landsliðið skipa að þessu sinni þeir Sigur-
björn Haraldsson, Magnús Magnússon, Þröstur Ingi-
marsson og Júlíus Sigurjónsson og svo þeir Jón Bald-
ursson og Þorlákur Jónsson, sem unnu heimsmeist-
aratitilinn í Yokohama í Japan ásamt Birni.
Upptendraðir af góðu gengi
Íslenska landsliðið í brids
vann A-riðil Evrópu-
meistaramótsins
Stund milli stríða Magnús Magnússon og Sigurbjörn
Haraldsson slappa af milli briddsleikja.
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Önnur konan sem handtekin var fyrr
í mánuðinum fyrir stórfellt amfeta-
mínsmygl er rússnesk, en hin er frá
Kasakstan. Báðar eru þær með
þýskan ríkisborgararétt.
Karl Steinar Valsson, aðstoðaryf-
irlögregluþjónn hjá fíkniefnadeild
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu,
gefur ekki upp hvaðan amfetamínið
er komið né heldur hvaðan konurnar
lögðu upp í för sína. Það sé í rann-
sókn. Yfirheyrslur standi enn yfir og
muni gera það á næstu dögum.
Gæsluvarðhald yfir konunum
rennur út á föstudaginn, en mál sem
varða skipulagða glæpastarfsemi og
hafa miklar erlendar tengingar taka
oft langan tíma. Jón H.B. Snorrason,
aðstoðarlögreglustjóri og saksókn-
ari, segir allt benda til þess að áfram-
haldandi gæsluvarðhalds verði kraf-
ist. Ekkert bendi til þess að þær séu
fórnarlömb í málinu, heldur frekar
að þær séu þátttakendur í þraut-
þjálfuðu verkefni skipulagðra
glæpasamtaka. Hann segir það ekki
rétt að því hafi verið slegið föstu að
konurnar séu hér á vegum lithásku
mafíunnar. Önnur glæpasamtök hafi
sóst eftir áhrifum hér. Hins vegar sé
aðferðin sem notuð var við flutning
efnanna vel þekkt í Eystrasaltslönd-
unum og Póllandi. Lögreglan vinnur
með Europol og Interpol að rann-
sókninni.
Athygli vekur að yfirbragð flutn-
inganna var sakleysislegt og ekki
notast við svartan BMW eða Benz
eins og oft áður, heldur Volkswagen.
Barn var einnig með í för. „Það er til
dæmis orðið þekkt í flutningi á milli
S-Ameríku og Evrópu að ráðsett
hjón séu fengin til að gera þetta,“
segir Karl Steinar. Þetta hafi mikið
breyst á síðustu misserum.
Styrkur amfetamíns sem
neytt er á Íslandi er á
bilinu 5,8 til 10%. Lítrarn-
ir tuttugu sem hald var
lagt á duga því til að
framleiða 150 til 264
kíló. Grammið af
amfetamíni kost-
ar um 5.000 krón-
ur í smásölu og
var verðmæti
farmsins því lík-
lega á annan
milljarð króna.
Önnur er Rússi en
hin frá Kasakstan
Áframhaldandi gæsluvarðhalds verður krafist á föstudag
Ljósmynd/Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Tankurinn Efnin voru í flöskum inni í bensíntanki Volkswagen Passat-bifreiðar. Sú aðferð er mikið notuð í Eystra-
saltslöndunum og Póllandi en þekkist einnig víðar. Lögreglan gefur ekki upp hvar konurnar tvær hófu ferð sína.
Um 700 einstaklingar leggjast
inn á Vog á hverju ári vegna
amfetamínfíknar og á þriðja
hundrað eru nýgreindir sem
amfetamínfíklar á ári. „Þetta
er stærsti vandinn sem kemur
upp á okkar borð. Stærsti
hópurinn sem notar ólögleg
vímuefni notar amfetamín,“
segir Valgerður Rúnarsdóttir,
yfirlæknir á Vogi. Nokkuð er
síðan amfetamín velti kanna-
bisefnum úr sessi sem
stærsti vandinn, en flestir
fíklar nota hvort tveggja.
Valgerður segir amfeta-
mínið faraldur sem enn
sæki á og hafi gert frá
1995.
Spíttið mesti
vandinn
FARALDUR GEISAR
Karl Steinar
Valsson