Morgunblaðið - 30.06.2010, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 30.06.2010, Blaðsíða 23
Minningar 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2010 ✝ Sigríður KatrínSteinsdóttir var fædd 12. maí 1933 þar sem nú stendur Vesturgata 7 í Ólafs- firði. Hún lést þann 18. júní 2010 á Hornbrekku, dval- arheimili í Ólafs- firði. Foreldrar Sigríðar voru Júlíana Ein- arsdóttir og Steinn Jónsson. Sigríður átti fjóra bræður, þeir voru Gunnar, Jón, Helgi og Ástvaldur. Sigríður giftist eftirlifandi eiginmanni sínum, Sveini Jóhann- essyni, 31.12. 1952. Eiga þau einn son, Björn Stein, f. 9.12. 1957. Hann er kvæntur Elsu Krist- ínu Gunnlaugsdóttur og eiga þau saman fjögur börn. Þau eru: Gunnlaugur Hafsteinn Elsuson, Halla Björk Erlends- dóttir, Katrín Sveina Björnsdóttir og Sveinn Gunnar Björnsson. Útför Sigríðar Katrínar fer fram frá Ólafsfjarð- arkirkju í dag, 30. júní 2010, klukkan 14. Tengdamóðir mín og vinkona, Sigríður Katrín Steinsdóttir, eða Sigga eins og hún var alltaf kölluð, er látin. Lést hún að Dvalarheim- ilinu Hornbrekku á Ólafsfirði en þar hafði hún verið vistmaður sl. ár ásamt eiginmanni sínum, Sveini Jóhannessyni. Það eru tuttugu og þrjú ár síðan ég, borgarstúlkan, kom ásamt syni þeirra hjóna norður í Ólafsfjörð í yndislegu veðri í mars. Múlinn var keyrður og það sem fyrir augu bar í náttúrunni var stórfenglegt. Þarna var ég ásamt eina syni þeirra hjóna, honum Birni Steini, að hitta tengdaforeldra mína í fyrsta sinn. Frá þeim degi er ég gekk fyrst inn í Gunnólfsgötu 16 hef ég alltaf verið umvafin hlýju og kærleik frá tengdaforeldrum mínum. Tengdamamma mín var um margt sérstök kona. Hún lifði við mikla fátækt þegar hún ólst upp og sagði hún mér einu sinni að fyrsta rúmið hennar hefði verið kexkassi. Sigga var forkur til vinnu og byrjaði ung að vinna og naut ég og fjölskyldan mín góðs af því, því aldrei taldi hún neitt eftir sér eða þau hjónin og frændi, en Gunnar Steinsson bróðir hennar var aldrei kallaður annað af mér og mínum börnum. Sigga hugsaði einstaklega vel um þennan elsta bróður sinn og var hann alltaf einn af þeim en hann lést árið 2007. Mætt var á Krókinn í vorverk, haustverk, flutninga eða til að passa fyrir okkur hjónin ef við þyrftum að bregða okkur af bæ. Eins ákvað Sigga það að sjá fjöl- skyldunni minni fyrir öllu jóla- brauði, soðbrauði og ég gæti talið endalaust upp allt það sem hún elsku tengdamamma mín hefur gert fyrir mig og mín börn, en það hefði hún ekki viljað. Hún var allt- af að reyna að létta undir með okkur hjónum, því henni fannst mikið að gera hjá okkur. Í dag, þegar ég kveð þig, get ég yljað mér við minningar um þær fjölmörgu stundir sem við höfum átt saman, hvort sem það var á Sauðárkróki, Ólafsfirði, í sumarbú- staðaferðum og núna síðast hér í Reykjavík, þar sem ég sé þig fyrir mér við hliðina á Svenna þínum að hugsa um það hvort við hefðum nóg af öllu því það komu allir á undan þér. Ég kveð þig með mikl- um söknuði og ljúf minning um þig lifir áfram hjá okkur. Guð veri með þér. Þín tengdadóttir, Elsa Kristín. Elsku amma mín, það verður ekki eins að koma heim í Ólafs- fjörð núna og sjá ykkur afa ekki saman, þið gerðuð alltaf allt sam- an. Ég man þegar ég kom til ykk- ar sem barn hvað það var alltaf mikil samvinna á milli ykkar. Mér fannst alltaf svo gott að koma til ykkar í Gunnólfsgötuna. Þar ríkti svo mikil ró. Elsku amma, ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig, því það var alveg sama hvað það var, alltaf voruð þið afi tilbúin að hjálpa til. Ég á eftir að sakna þess að geta ekki tekið upp símann og heyrt í þér, því þau voru ófá símtölin sem við áttum. Þú hefur alveg frá því ég man eftir mér sýnt mér svo mikla væntumþykju og stuðning þó svo að ég hafi ekki verið neitt sérstaklega hænd að þér sem ungbarn en þú varst alltaf viss um að við ættum eftir að eiga vel saman, sem reyndist svo vera alveg rétt hjá þér. Þær eru marg- ar minningarnar sem ég á um þig, heimsóknirnar ykkar afa og frænda í afmælin hjá okkur syst- kinunum, heimsóknir mínar til ykkar afa sem barn, það var tekið upp á ýmsu því þú vildir vera al- veg viss um að mér leiddist ekki. Ég veit að frændi hefur verið glaður að sjá þig og að þið fylgist með mér jafnt nú sem áður. Ég ætla að kveðja þig með bæn- inni sem við fórum alltaf með sam- an þegar ég var í heimsókn hjá þér sem barn. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni (Hallgrímur Pétursson) Katrín Sveina. Mæt kona hefur nú kvatt þessa jarðvist. Sigríður K. Steinsdóttir, vinkona fjölskyldu minnar, var einstök. Ég kynntist fjölskyldu hennar fyrir 73 árum þegar ég flutti með foreldrum mínum til Ólafsfjarðar. Fjölskylda Sigríðar bjó þá í næsta húsi. Hún var eina stelpan í barnahópi þessarar barn- mörgu fjölskyldu og var oft kölluð lipurtá af okkur systkinunum. Árin liðu og Sigga fór snemma að sjá fyrir sér sjálf með vinnu í frystihúsinu og við annað sem bauðst á þessum árum. Svo kom að því að Sigga kynntist einum af bekkjarbræðrum mínum í Barna- skóla Ólafsfjarðar, Sveini S. Jó- hannessyni. Sveinn vinur minn var verslunarmaður hjá KEA og síðar hjá Kaupfélagi Ólafsfjarðar. Sigga og Svenni reistu sér fljótlega myndarhús við Gunnólfsgötu 16 í bænum og var það griðastaður þeirra allt til þessa dags. Að koma í heimsókn þangað á hverju sumri, við hjónin eða með fjölskylduna, var sérstakur viðburður undan- farna áratugi. Fjölskylda mín minnist þessara heimsókna með gleðiglampa í augum enda voru móttökurnar frábærar. Sigga dekraði við börnin okkar Ásdísar í þessum heimsóknum þegar þau voru með hér áður fyrr. Þegar ár- in liðu og barnabörn stundum með í þessum heimsóknum var þetta eins, borðið svignaði undan frá- bærum veitingum og leikföng sem einkasonur þeirra Björn Steinn átti og enn voru til voru tekin fram fyrir börnin. Sigga og Svenni stunduðu um tíma búskap, voru með nokkrar ær og fór þeim það vel úr hendi. Síðustu mánuði fór heilsu Siggu að hraka og fluttu þau hjón þá á Dvalarheimilið Hornbrekku í Ólafsfirði þar sem Sigga lést 18. júní síðastliðinn. Innilegar samúðarkveðjur, kæri Sveinn minn, til þín, Björns Steins, Elsu og barna þeirra, frá mér og börnum mínum og fjölskyldum þeirra. Birgir Jóh. Jóhannsson. Sigríður Katrín Steinsdóttir Garðar Túnþökusala Oddsteins  Lóðaþökur  Fótboltaþökur  Golfvallargras  Holtagróður Steini, s. 663 6666 Kolla, s. 663 7666 visa/euro Húsnæði í boði GISTING 60 m² íbúð í nýju húsi á Seltjarnar- nesi með fríu aðgengi að bíl. Leigist minnst í tvo sólarhringa. Verð 15.000 kr. per sólarhr. Upplýsingar í síma 899-2190 eða siggiggeris@talnest.is. Sumarhús Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Til sölu Ódýr blekhylki og tónerar í HP, Dell, Brother, Canon og Epson. Send samdægurs beint heim að dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150. Sjá nánar á blekhylki.is Bátar Við viljum minna sjómenn á okkar frábæru fiskikör! Framleitt á landsbyggðinni. Upplýsingar í síma 460 5000, saevaldur.gunnarsson@promens.com Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Bílaþjónusta Allar minningar á einum stað. ÍS L E N S K A S IA .I S M O R 48 70 7 01 /1 0 –– Meira fyrir lesendur Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar Um leið og framleiðslu er lokið er bókin send í pósti. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 og til dagsins í dag. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efn- isliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minn- ing@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar Við Kiddi erum bún- ir að þekkjast í um 65 ár eða frá þeim tíma þegar Ögmundur móðurbróðir minn kvæntist Jóhönnu móður þinni og varð stjúpi þinn. Þá var ég fimm eða sex ára og þú tíu eða ellefu ára. Á Kristinn E. Guðmundsson ✝ Kristinn E. Guð-mundsson var fæddur í Reykjavík 6. febrúar 1934. Hann lést í sumarbústað sínum á Þingvöllum 8. júní sl. Útför Kristins fór fram frá Bústaða- kirkju 15. júní 2010. þessum tíma hittumst við aðallega í fjöl- skylduboðum og stó- rafmælum. Það var alltaf spennandi að hitta þig, töffarann úr borginni á vel pússuð- um skónum og flott greiddur. Þú hafðir alltaf frá svo mörgu skemmtilegu að segja. Vinskapurinn treyst- ist enn betur þegar ég flutti til Reykjavíkur og enn betur þegar ég stofnaði fjölskyldu og konurnar okkar yndislegu kynntust, Geira þín og Sigga mín, þessar ynd- islegu konur sem áttu stærstan þátt í vinatengslum okkar, vexti og þroska fjölskyldnanna. Því núna fór í hönd skemmtilegasti tíminn, við fórum að vinna saman hjá Áhaldahúsi hafnar- mála, Kópavogi, þar var vægast sagt skemmilegt að vinna. Stórbrotnir vinnufélagar og verkefni, enn í dag eru sögur frá þessum tíma uppistöð- ur í umræðunni. Um þetta leyti hóf- ust einnig veikindi þín sem settu mark sitt á þitt líf, án þess þó að skerða lífsgleði þína og hamingju- samt líf. Mér er oft hugsað til kvennanna okkar og þeirra vinnu. Við oft vinnandi fjarri heimilunum og þær fæddu og klæddu hópana sína alla daga, eftir á að hyggja hljóta þær að vera einhverskonar „fjölskyldufræðingar“. Við Sigga þökkum fyrir allar skemmtilegu samverustundirnar og biðjum góðan Guð að styrkja þína yndislegu Geiru, börn, barnabörn og barnabarnabörn alla tíð. Vilhjálmur og Sigríður (Villi og Sigga).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.