Morgunblaðið - 30.06.2010, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 30.06.2010, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 181. DAGUR ÁRSINS 2010 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 1. Drukknum ferðalöngum hent út … 2. Efast um íslenska lögfræði 3. Paragvæar lögðu Japani … 4. Ásdís Rán á forsíðu Playboy í júlí »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Hin virtu BET-verðlaun voru veitt í Los Angeles síðastliðinn sunnudag. Mikið stjörnuregn var á hátíðinni og glamúr, bæði á rauða dreglinum og sviðinu. Meðal annars var tónlist- armaðurinn Prince heiðraður fyrir ævistarf sitt í þágu tónlistar. »29 BET-verðlaunin af- hent í Los Angeles  Á næstu miss- erum mun ævi- saga Vigdísar Finnbogadóttur, Vigdís – Kona verður forseti, koma út í Þýska- landi. Gengið var frá samningum við bókaforlagið Orlanda í gær, sem sendi inn tilboðið á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Ævisaga Vigdísar í Þýskalandi  Í vetur var átakið Öðlingurinn 2010 stofnað til að berjast gegn kyn- bundnu ofbeldi, en þá voru m.a. boðnir upp tónleikar með Baggalúti. Lögfræðistofa Halldórs Birgissonar bauð hæst í tónleikana, en hefur nú ákveðið að gefa þá Krafti, stuðningsfélagi ungs fólks með krabbamein. Bagga- lútur mun því troða upp á sumarfagnaði félagsins milli kl. 17 og 19.30 í dag við ylströndina Nauthólsvík. Öðlingar gefa tón- leika Baggalúts Á fimmtudag A og NA 13-20 m/s og rigning. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast vestanlands. Á föstudag Stíf austlæg átt með rigningu víða um land. Milt í veðri. Á laugardag, sunnudag og mánudag Norðaustlæg eða breytileg átt, yfirleitt fremur hægur vindur. Rigning með köflum eða skúrir og áfram milt í veðri. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi austanátt 10-18 m/s og rigning syðst síðdegis, en annars hægari vindur, skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 10-18 stig, hlýjast inn til landsins. VEÐUR Cristiano Ronaldo úr leik á HM Vel á þriðja hundrað frjálsíþróttakrakkar á aldrinum sex til fjórtán ára tóku þátt í hinu ár- lega móti á Varm- árvelli í Mos- fellsbæ, Gogga galvaska, um síðustu helgi. Þar er ávallt gleði og skemmtun í fyrirrúmi og ljósmyndari Morgunblaðs- ins mætti á staðinn. »4 Gleði og skemmtun á Gogga galvaska Ingimundur Ingimundarson, lands- liðsmaður í handknattleik, skrifar í dag undir samning við dönsku meistarana AaB frá Álaborg. Ingi- mundur, sem hefur verið lykilmaður í varnarleik íslenska landsliðsins undanfarin misseri, lék síðast með þýska liðinu Minden en hætti þar í vor eftir að það féll úr efstu deild. »1 Ingimundur á leið til dönsku meistaranna ÍÞRÓTTIR Anna Sigríður Einarsdóttir annaei@mbl.is El-go-rafmagnsvespur komu á markað hér á landi í vor. Þær hafa selst drjúgt það sem af er sumri að sögn Kolbeins Pálssonar, sölumanns í Suzuki-umboðinu. „Fólk á öllum aldri hefur verið að kaupa vesp- urnar og álítur þær sniðug farar- tæki í og úr vinnu,“ segir Kolbeinn. Umboðið auglýsir að enga trygg- ingu þurfi fyrir vespuna né heldur ökuréttindi. Hún falli enda undir reiðhjólaskilgreiningu umferðar- laga. „Rafmagnsvespurnar ná ekki nema 25 km hraða á klst og eru því ekki skilgreindar eins og skellinöðr- ur,“ segir hann. Hjá Tollgæslunni er ökutækjum sem ekki ná meiri hraða hleypt í gegn án skráningar og sam- kvæmt þeim skilgreiningarflokki á vespan heima á gangstéttum og göngustígum – ekki götunni. Rafmagnsvespunni svipar til hefðbundinnar vespu í útliti og veg- ur ein 60 kg – litlu minna en aðrar vespur. Slíkt hefur hins vegar engin áhrif á skilgreiningu ökutækisins að sögn Kolbeins og þetta staðfestir Umferðarstofa. Kolbeinn telur ekki ábyrgðarhlut að nýta vespurnar á gangstígum þótt þær séu nokkru þyngri en önn- ur ökutæki sem þar fara um. „Raf- magnsvespurnar eru notaðar á hjólastígum í Evrópu og við erum einfaldlega að bjóða upp á það sem er vinsælt þar.“ Umboðinu hafi heldur ekki borist neinar athuga- semdir vegna þeirra. „Einn kaup- andi kannaði hvort löglegt væri að vera með barn á vespunni og það eina sem var farið fram á var að hann væri með barnastól.“ Hvorki próf- né hjálmskylda Lögregla er þó ekki sátt við að ökutæki á borð við rafmagnsvespur aki um gangstéttir og telur ekki skýrt að þær falli undir reiðhjóla- skilgreininguna. Alvarleg slys geti enda orðið lendi gangandi vegfar- andi í árekstri við slíkt ökutæki. Lögreglan hefur því óskað eftir að Umferðarstofa skoði málið. „Mér sýnist þessi ökutæki falla undir aðra grein umferðarlaga [reiðhjólaskilgreininguna] en við höfum að sjálfsögðu beðið lögfræð- ing okkar að skoða málið að beiðni lögreglunnar,“ segir Kristófer Ágúst Kristófersson, verkefnastjóri tæknimála ökutækja hjá Umferð- arstofu. Guðbrandur Sigurðsson, aðal- varðstjóri umferðardeildar Lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu, bend- ir á að teljist vespan í flokki reið- hjóla þurfi ekki að skrá tækin, tryggja né þurfi ökuréttindi. „Síðan er ekki hjálmskylda nema til 15 ára aldurs,“ segir hann og telur ástæðu til að skoða aðra grein umferðarlaga nái hún yfir rafmagnsvespuna. „Aðrar vespur sem líta svipað út og eru jafnvel litlu þyngri eru skráningarskyldar, trygginga- skyldar, krefjast ökuréttinda og þeim fylgir hjálmskylda. Er eitt- hvað minni hætta af þessum hjól- um?“ spyr Guðbrandur og kveður fulla þörf fyrir nánari skýringu og túlkun á lögunum. Reiðhjól samkvæmt lögum? Lögreglan óviss um skilgreiningu á rafmagnsvespum Morgunblaðið/ Ómar Ökutæki Rafmagnsvespur hafa verið í notkun sl. ár í Evrópu og er þar ekið á hjólastígum að sögn Kolbeins. Hver er skilgreining umferðarlaga á þeim ökutækjum sem falla í flokk reiðhjóla? Samkvæmt annarri grein umferðarlaga eru það ökutæki, sem knúin eru áfram með stig- eða sveifarbúnaði og ekki ætluð eingöngu til leiks. Undir flokk reiðhjóla falla líka vélknúðir hjólastólar, sem ekki eru hannaðir til hraðari aksturs en 15 km á klst, og lítil vél- eða rafknúin ökutæki, sem ekið geta á hraðanum 8-25 km hraða klst. Má aka á þessum vélknúðu ökutækjum á götunum? Nei, samkvæmt umferðarlögum mega hvorki vélknúðir hjólastólar né vélknúin hlaupahjól vera á götunum. Hvaða umferðarreglur gilda um notkun göngustíga? Gangandi vegfarendur eiga réttinn. Hjól og vélknúðu ökutækin sem umferðarlög taka til mega hins vegar nýta sömu stíga, en ber að víkja fyrir fótgangandi vegfar- endum þegar þess er þörf. Spurt & svarað Paragvæar og Spánverjar voru síðustu þjóðirnar til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitunum á HM. Spánverjar lögðu Portúgala, 1:0, og Paragvæar höfðu betur gegn Japönum í víta- spyrnukeppni. »3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.