Morgunblaðið - 30.06.2010, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2010
10 Daglegt líf
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
D
adi Guizar er fædd á
Indlandi og einn af
helstu leiðtogum Bra-
ham Kumaris World
Spiritual University en
Lótushús er miðstöð þeirra andlegu
samtaka á Íslandi. Hún er á níræð-
isaldri og hefur ástundað hugleiðslu
frá 8 ára aldri. Hún þykir búa yfir
mikilli visku og innri friði.
Jayanti Kirpalani er líka ind-
versk en býr í London og þýddi allar
spurningar og svör Guizar sem talaði
enga ensku. Kirpalani er boðberi
nýrra tíma og eftirsóttur fyrirlesari
um allan heim. Hún varpar skýru
ljósi á atburðarás og málefni líðandi
stundar og hefur unnið ómælt starf
við að stuðla að jákvæðri vitund-
arvakningu í heiminum.
Þær komu í sína fyrstu heim-
sókn til Íslands nýverið á vegum Lót-
ushúss og héldu meðal annars and-
lega samkomu í Salnum í Kópavogi
þar sem fjöldinn allur af fólki hlýddi á
orð þeirra.
Skynjaði litla neikvæðni
Það var lítil samkoma sem átti
sér stað í Lótushúsi þegar mig bar að
garði. Það var hálfgerður spurt og
svarað-tími og var ástand heimsins
gestum hugleikið. Guizar lagði
áherslu á að hver og einn þyrfti að
byrja á því að breyta sjálfum sér til
að geta haft áhrif á heiminn.
Eftir samkomuna var ég svo
heppin að fá að eyða nokkrum mín-
útum með þessum yfirveguðu kon-
um. Það er ekki fyrir óþolinmóða að
spjalla við Guizar sem talar rólega og
vandar augljóslega orðaval sitt þó ég
Djúp innri sátt er
fræið að velgengninni
Það var yfirvegað og rólegt andrúmsloft sem mætti blaðamanni þegar hann gekk
inn á samkomu í hugleiðsluskólanum Lótushúsi þar sem Dadi Guizar og Jayanti
Kirpalani frá Indlandi voru í heimsókn. Þær eru meðal áhrifaríkustu andlegu
leiðtoga heimsins í dag. Þetta var fyrsta heimsókn þeirra til Íslands og voru marg-
ir sem sóttu í að innbyrða visku þeirra.
Morgunblaðið/Ernir
Vitur Dadi Gulzar er á níræðisaldri og hefur hugleitt síðan hún var 8 ára.
Beliefnet.com er vefsíða þar sem
finna má ýmislegt um trúarbrögð
heimsins, andleg efni og innblástur.
Þetta er afskaplega björt og jákvæð
síða þar sem margt gagnlegt og
áhugavert má lesa.
„Þó enginn geti farið til baka og
byrjað upp á nýtt geta allir byrjað
upp á nýtt núna og fengið splunku-
nýjan endi,“ eru höfuðorð síðunnar
en þau sagði Carl Bard.
Umfjöllun um öll trúarbrögð
heimsins er á síðunni, sérhver trúar-
brögð hafa sína síðu og þar geta
þeir sem eru þeirrar trúar fengið
ýmsa vitneskju og styrk.
Undir liðnum innblástur er margt
fallegt að finna eins og hjartnæmar
sögur, innblásandi kvót og kjúklinga-
súpu fyrir sálina. Heilsa og skemmt-
un fá sína liði sem og ást og fjöl-
skylda. Blogg er á síðunni þar sem
allskonar ráðgjafar og annað fólk
skrifa um málefni tengd umfjöll-
unarefni síðunnar. Einnig er boðið
upp á allskonar sjálfspróf þar sem
er m.a hægt að athuga hverrar trúar
þú ert, hversu bjartsýn/n þú ert, eða
hversu auðvelt þú átt með að fyr-
irgefa.
Trúarnetið er hin besta síða fyrir
sálina.
Vefsíðan www.beliefnet.com
Reuters
Hamingja Það er margt gott um lífið að finna á Beliefnet.com.
Bjart og jákvætt trúarnet
Komin er út hjá Skruddu bókin Fjalla-
skálar á Íslandi eftir Jón G. Snæland.
Í bókinni er í máli og myndum lýst
hartnær 400 skálum, gömlum og nýj-
um, sem reistir hafa verið víðs vegar
á Íslandi. Bókin hefur að geyma fróð-
leik um skálana, sögu þeirra og bún-
að, auk þess sem getið er eigenda og
umsjónarmanna. Ljósmynd er af öll-
um skálunum og staðsetning þeirra
mörkuð með GPS-punkti og á landa-
korti. Greinargóðar leiðarlýsingar eru
að skálunum og víða er sagt frá nátt-
úruperlum í nágrenni þeirra.
Þetta er gagnleg bók fyrir þá sem
ferðast um fjöll og firnindi.
Endilega…
…kynnið ykkur
fjallaskála
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Þetta hefur farið vel af stað ogvið getum ekki verið annaðen glaðar yfir viðtökunum.
Netsíðan er á íslensku og fyrst
og fremst ætluð fyrir Íslendinga,
við höfum eitthvað selt af vörum til
útlanda en það er lítið enn sem kom-
ið er,“ segir Stella Stefánsdóttir
sem er ein af fimm kvenna hópi sem
stendur að vefversluninni Bútik.is.
„Við erum fimm konur sem
komum allar hver úr sinni áttinni,
okkur langaði til að fara að gera
eitthvað sjálfar. Við erum allar
mæður og búnar að vera úti á
vinnumarkaðinum, flestar í við-
skiptalífinu, en langaði nú að gera
eitthvað spennandi og vera með
sveigjanlega vinnutíma. Síðastliðinn
vetur unnum við okkar fyrsta verk-
efni saman þegar við aðstoðuðum ís-
lenska hönnuði við að markaðssetja
sig í Þýskalandi. Í framhaldi af því
kom þetta verkefni upp í hendurnar
á okkur og við ákváðum að vinna
það í samstarfi við vefsíðuna Press-
una,“ segir Stella um aðdragandann
að síðunni. Ásamt henni eru það:
Auður Einarsdóttir, Gréta Hlöð-
versdóttir, Svanhvít Hrólfsdóttir og
Soffía Steingrímsdóttir sem standa
að Bútik.is en verslunin var opnuð í
síðustu viku.
Alltaf í tímaþröng
„Okkur fannst vanta vefverslun
með fjölbreytt vöruúrval fyrir þá
sem eiga erfitt um vik að fara út að
versla, hvort sem það er vegna fjar-
lægðar frá verslunum eða tíma-
skorts. Við höfum allar verið úti í at-
vinnulífinu og erum allar uppteknar
mæður sem eru alltaf í tímaþröng
svo okkur fannst vanta alhliða net-
verslun fyrir nútímafólk. Það er til
fjöldinn allur af frábærum litlum
netverslunum en okkur fannst
vanta vettvang þar sem hægt er að
kaupa meira en bara vörur frá ein-
stökum hönnuðum eða vörumerkj-
um. Við sáum þetta fyrst og fremst
sem vettvang til að bjóða upp á fjöl-
breytt vöruval innan tísku- og lífs-
stíls,“ segir Stella og bætir við að
þær stefni meðal annars að því að
bjóða vörur sem hafi hingað til ekki
fengist hérlendis.
Stella segir að þær leggi mikið
upp úr því að bjóða góða þjónustu.
„Þó það sé kannski furðulegt að tala
um þjónustu í svona netverslun þá
býður Bútik góðan skilafrest og við
tökum alltaf vel á móti fólki á opn-
unartíma í Akralindinni, þar sem
við erum staðsettar, og aðstoðum
fólk eftir bestu getu í símann. Ann-
ars er þetta bara hefðbundin net-
verslun, einföld í notkun. Það er
hægt að borga með kreditkorti á
vefnum okkar, koma til okkar og
borga með korti eða staðgreiða og
við tökum líka við símgreiðslum.
Síðan er varan bara send heim, á
pósthús eða sótt til okkar,“ segir
Stella. Hún hefur mikla trú á því að
netverslun geti borið sig á Íslandi.
„Við höfum séð það í nágrannalönd-
unum að netverslun er ört vaxandi í
smásölu. Við stólum á það að Ís-
lendingar sem eru ákaflega net-
væddir fylgi í fótspor nágranna
sinna.“
Verslun
Fimm konur opna vefverslun
Bútik-konurnar Auður, Svanhvít, Stella, Soffía og Gréta.
www.butik.is