Morgunblaðið - 30.06.2010, Page 11
Morgunblaðið/Ernir
Leiðtogar Dadi Gulzar og Jayanti Kirpalani í heimsókn sinni í Lótushús.
skildi ekki orð af því sem hún sagði,
Kirpalani sá um að þýða.
Guizar sagði að dvölin á Íslandi
hefði verið mjög góð. „Það virðist
vera almenn vitund um það hér að
hlutir geta verið mjög dramatískir og
að þeir geta breyst mjög snögglega,
svo menn verða að vera andlega við-
búnir og hafa mikinn innri styrk til að
geta tekist á við slíkar utanaðkom-
andi aðstæður,“ sagði Guizar.
Hún var vel meðvituð um banka-
hrunið og náttúruhamfarirnar sem
Íslendingar hafa gengið í gegnum að
undanförnu en sagðist þrátt fyrir það
ekki hafa orðið vör við mikla nei-
kvæðni í heimsókn sinni hér. „Ég
skynjaði ekki neikvæðar tilfinningar
hjá fólkinu sem við höfum verið að
hitta, en ég finn samt að það er
ákveðin vitund um að það er eitthvað
að gerast og það þarf að gera eitt-
hvað en það er enginn alveg viss um
hvað þarf að gerast. Fólk virðist vera
að leita að svörum um hvað næsta
skref eigi að vera,“ sagði Guizar og
hvatti fólk til að leita í hugleiðsluna. Í
henni gæti það þróað sinn eigin styrk
og ró og átt í kjölfarið auðveldara
með að takast á við umheiminn. „Að
hugleiða er ákvörðun sem hver og
einn getur tekið fyrir sjálfan sig og
hugleiðslan fær fólk til að gera eitt-
hvað og skapa sér betra líf.“
Eins og lótusblóm
Spurðar hvort það sé ekki erfitt
að hugleiða í öllu áreiti nútíma-
samfélagsins svarar Guizar að hug-
leiðsla feli ekki í sér að loka á um-
heiminn. „Hugleiðsla snýst frekar
um hvernig á að lifa í veröldinni og
gefa af sér til hennar. Falleg samlík-
ing er lótusblómið, blómið er í vatn-
inu en samt stakt og vatnið heldur
blóminu uppi, lótusblað er með vax-
kennt yfirborð og ef vatnið lendir á
því rennur það af og skaðar það ekki.
Við þurfum að vera í þessum heimi á
svipaðan hátt og lótusblómið er í
vatninu. Með því að finna innri sann-
leika og fegurð getum við séð til þess
að neikvæðnin snerti okkur ekki en
við gefum samt jákvætt framlag til
heimsins.
Leiðin að því að geta hugleitt er
að skilja hvernig á að nota orku hug-
ans á jákvæðan hátt. Taka síðan yfir
stjórnina og þjálfa hugann til að hald-
ast á réttri braut og til að skapa rétt-
ar hugsanir. Þá getur maður tengst
við innri friðinn,“ sagði Guizar. Hún
hélt af landi brott með Kirpalani
stuttu eftir að ég ræddi við þær enda
þarf að dreifa boðskapnum víða.
Stærstan hluta ársins dvelur Guizar í
höfuðstöðvum Braham Kumaris-
skólans á Indlandi en ferðast nokkra
mánuði á ári utan Indlands og dreifir
andlegum boðskap. Kirpalani býr í
London en ferðast átta til níu mánuði
á ári um heiminn, ein og með Guizar.
Að spjallinu loknu afhenti Guiz-
ar mér lítið viskukorn og litla köku
sem þær baka sjálfar og gefa þeim
sem koma að hlýða á þær. „Fræið að
velgengni þinni í lífinu er djúp innri
sátt,“ sagði viskukornið og hefði ekki
getað verið viturlegra.
Reuters
Delhi Hugleiðsluhefðin er löng í
Indlandi, landi Gulzar og Kirpalani.
Við þurfum að vera í
þessum heimi á svip-
aðan hátt og lótusblóm-
ið er í vatninu
www.lotushus.is
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2010
950.000.000
ÞÚ TALDIR RÉTT:
950 MILLJÓNIR
220.000.000
+730.000.000
Tvöfaldur fyrsti vinningur stefnir
í 220 milljónir og Ofurpotturinn
stefnir í 730 milljónir.
Ekki gleyma að vera með,
fáðu þér miða fyrir klukkan
fjögur í dag á næsta sölustað
eða á lotto.is
Tvöfald
ur
1. vinni
ngur
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM!
MIÐINN GILDIR 30. JÚNÍ 2010
A. 12 14 17 21 41 48
B. 05 16 23 36 37 38
C. 07 09 13 22 34 38
D. 03 06 19 24 25 31
E. 11 19 21 25 38 42
F. 01 25 35 36 39 46
G. 18 19 20 23 28 46
H. 22 27 29 39 40 42
Daglegt líf 11
„Uppáhalds-
matjurtin mín er
grænkál. Af því
það er svo hollt
fyrir kroppinn,“
segir Sólveig Ei-
ríksdóttir mat-
gæðingur. „Margir
halda að grænkál
sé ekkert spenn-
andi en það leynir á sér. Það er mjög
auðvelt í ræktun, hægt að forrækta
það inni og skella svo í kassa úti í
garði eða í pott á svalirnar. Og þetta
kál er ekkert að erfa það við mann þó
maður gleymi aðeins að hugsa um
það, það er svo harðgert. Restin af
grænkálinu mínu frá því í fyrra tók að
lifna við í sumar og var bara prýði-
legt. Ég hef lært inn á grænkálið og
er að þróa grænkálssnakk sem er
geggjað.“
Uppáhaldsblómið hennar Sollu er
íslensk fjóla. „Þessi litla og smá-
gerða, hún er svo falleg. Svo má líka
nota blómin af henni út á salat. Fjólu-
blómin eru með góðum sætukeim en
þau gleðja fyrst og fremst augu
þeirra sem borða salatið.“
Uppáhaldsjurtir Sólveigar Eiríksdóttur
Fjólan fegrar salatið
Að vera með rétta viðhorfið er betri
leið að árangri í starfi en greindar-
vísitala, menntun og flestir aðrir
þættir. Dr. Martin Seligman hefur
fundið út að jákvæðar manneskjur
eru heilbrigðari, í betri samböndum
og ná lengra á vinnumarkaðinum en
aðrir. Jákvætt fólk vinnur sér líka inn
meiri peninga segir á Msn.com. Allir
geta tileinkað sér rétta viðhorfið
sama hvaðan þeir koma eða hversu
mikla hæfileika þeir hafa og það get-
ur skipt sköpum í starfsframanum.
Hér eru tíu ráð til að tileinka sér
viðhorf jákvæða starfskraftsins.
Hugsaðu:
1. Ég ræð örlögum mínum.
2. Allt er mögulegt.
3. Ekkert er of lítið eða ómerkilegt
til að gera það vel.
4. Koma vel fram við alla.
5. Ég var gerð/ur fyrir þetta starf og
stöðuna fyrir ofan mig.
6. Þetta snýst ekki bara um það sem
ég veit heldur líka hverja ég
þekki.
7. Hvað get ég gert meira og betur?
8. Allir gera mistök og það á að tak-
ast á við þau og halda áfram.
9. Ég er minn stærsti aðdáandi.
10. Mig þyrstir í tækifæri og leita
þeirra stöðugt.
Vinna
Reuters
Kátar Betra að brosa og vera hress.
Jákvætt viðhorf mikilvægast til
að koma sér áfram í starfi