Morgunblaðið - 30.06.2010, Síða 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2010
„Skógarmítillinn getur borið borrelía-bakter-
íuna [Lyme-sjúkdóm] og veiru sem veldur heila-
bólgu,“ segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir,
en kveður að ekki hafi komið upp tilfelli slíks
smits frá mítlinum hér á landi ennþá. Hann seg-
ir þó að rétt að reikna með möguleika á smiti og
því sé æskilegt að fólk þekki deili á mítlinum og
viti hvernig bregðast skal við.
Sníkjudýrið skógarmítill er liðfætla og berst
hingað til lands með farfuglum. Með hlýnandi
veðri hafa lífsskilyrði mítilsins batnað og er talið
að hann hafi þegar náð fótfestu í skóglendi hér.
„Þetta geta verið hættulegir sjúkdómar,
borrelía getur valdið liðvandamálum og heila-
himnubólgu. Ef hún nær fótfestu í mönnum get-
ur verið erfitt að eiga við hana,“ segir Haraldur
og kveður mikilvægt að fólk leiti læknis sem
fyrst sé það bitið eða verði vart einkenna. Bíti
mítillinn og festi sig við fólk verður að fjarlægja
hann sem fyrst. Með því má mögulega komast
hjá smiti.
„Fólk verður hundveikt af henni,“ segir Har-
andur um heilabólguna en hún getur dregið fólk
til dauða. Hann segir því brýnt að fólk fari rétt
að sé það bitið af skógarmítli.
Skógarmítill getur valdið heilabólgu
Sóttvarnalæknir hvet-
ur fólk til að vara sig á
blóðsjúgandi smitbera
sem hefst við í skóglendi
Ljósmynd/landlaeknir.is
Roðahringur Sýking af völdum bits skógarmítilsins getur orsakað roða og önnur einkenni.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það eru um 700 nemendur í tölv-
unarfræði og þeim verkfræði- og
raunvísindagreinum sem nýst gætu í
fyrirtækjum tengdum hugverka-
geiranum hér við verkfræði- og nátt-
úruvísindasviðið. Ef fjármunum yrði
sérstaklega beint í þessar greinar
mætti anna þessari auknu eftir-
spurn,“ segir Ólafur Pétur Pálsson,
forseti iðnaðarverkfræði-, vélaverk-
fræði- og tölvunarfræðideildar Há-
skóla Íslands, aðspurður hvort há-
skólarnir muni geta þjálfað þá 1.000
til 1.500 starfsmenn sem hugverka-
geirinn telur sig þurfa til að manna
lausar viðbótarstöður á næstu árum.
„Við sjáum á aðsóknartölum að
það er mjög mikill áhugi á tölvunar-
fræði og tengdum greinum. Maður
hefur heyrt það frá hugbúnaðar-
fyrirtækjum að það sé mikil eftir-
spurn eftir fólki með þessa menntun.
Það er því líklegt að eftirspurnin
verði meiri en framboðið á næstu
misserum ef ekki verður stutt sér-
staklega við þessar greinar.“
Áhrif netbólunnar
Björn Þór Jónsson, forseti tölv-
unarfræðideildar Háskólans í
Reykjavík, segir sömu sögu.
„Ég tel að atvinnumöguleikar í
hugbúnaðariðnaði séu góðir hér á
landi. Ég tel líka að það sé nóg af
tækifærum fyrir fólk sem vill þróa
eitthvað nýtt til að hasla sér völl á
markaðnum. Sjálfur vildi ég sjá
miklu fleiri fara í nám sem gagnast
við upplýsingatengd störf. Ég óttast
alls ekki að það verði mettun á þessu
sviði á næstu árum,“ segir Björn Þór
sem telur lok netbólunnar enn móta
afstöðu margra til greinarinnar.
„Netbólan sprakk árið 2001 og þá
varð það útbreidd skoðun að það
væri ekkert að gera hjá tölvunar-
fræðingum. Staðreyndin var hins
vegar sú að þótt margir misstu vinn-
una fékk stór hluti aftur vinnu. Það
var í mörgum tilfellum fólk sem hafði
litla reynslu sem missti vinnuna þá.
Sú þjóðsaga hefur síðan verið við
lýði að það sé lítið að gera hjá tölv-
unarfræðingum. Raunveruleikinn er
hins vegar sá að fyrirtæki hafa mörg
hver ekki haft fyrir því að auglýsa
eftir fólki þar sem þau vissu að það
myndi ekki bera árangur.
Þótt ekki sé sama rífandi eftir-
spurn eftir vinnuafli núna og þegar
góðærið stóð sem hæst sýnist mér
staðan þrátt fyrir allt vera sú að ný-
útskrifað fólk sé að skila sér í vinnu.
Það tekur bara aðeins lengri tíma.
Tölur frá öðrum löndum um
mannaflsþörf í tölvugreinum sýna að
hún fer vaxandi á meðan námsþátt-
taka fer minnkandi. Það er áhyggju-
efni.“
– Telurðu því að of fáir nemendur
hafi lagt tölvunarfræði fyrir sig?
„Já. Ég tel svo vera. Þegar netból-
an sprakk dalaði aðsókn að tölvunar-
fræðinámi verulega. Árið 2005 sner-
ist dæmið við og aðsóknin fór að
stíga upp á við aftur. Meira þarf þó
til svo hún haldi í við eftirspurn
markaðarins.“
– Hvernig eru launakjörin? Hafa
launin lækkað eftir netbóluna?
„Nei. Ég held að laun tölvunar-
fræðinga hafi haldið sér. Sumir
kunna þó að hafa orðið fyrir launa-
skerðingu í kreppunni því bankarnir
greiddu mjög vel. Hins vegar eru
byrjunarlaun tölvunarfræðings
býsna góð en oft er talað um að þau
séu um 350.000 krónur. Það eru ekki
margar stéttir sem gera betur.“
– Á hvaða sviðum ríkir bjartsýni?
„Leikjaiðnaðurinn hefur verið
mjög áberandi. Annar geiri tengist
notkun gervigreindar en almennt
lofar notkun hennar á ýmsum svið-
um góðu,“ segir Björn Þór um tæki-
færin framundan.
Stefnir í skort á tæknifólki
Háskólarnir munu að óbreyttu eiga í erfiðleikum með að anna eftirspurn markaðarins Hugverka-
geirinn mun líklega fara fram úr matvælaiðnaði í ár Vöxturinn hefur gífurlega þjóðhagslega þýðingu
Vöxtur sprotafyrirtækjaÚtflutningsverðmæti
2009 í milljörðum kr.
Gjaldeyrisskapandi iðnaður
(Bráðabirgðatölur)
Sa
m
ta
ls
:7
81
,1
m
a.
175-200
ma.
Matvæla-
iðnaður
(sjávarútv.,
landb. o.fl.)
Stóriðja
Ferðaþjónusta,
samgöngur
Hugverka-
iðnaður
Velta
hugverka-
iðnaðarins
erlendis
220,7
(28,2%)
187,5
(24%)
191,3
(24,5%)
181,6
(23,3%)
Upplýsingarnar um
veltuaukningu sprota-
fyrirtækja byggja á
greiningu í tengslum
við Vaxtarsprotann,
verðlaun sem veitt
eru því fyrirtæki sem
hraðast hefur vaxið.
Samtök sprotafyrir-
tækja, HR og RANNÍS
standa að valinu.
Tölur yfir útflutnings-
verðmæti hugverka-
geirans byggja á
greiningu SI. Um
bráðabirgðatölur er að
ræða en þær byggja á
gögnum frá Hagstofu
Íslands. Heildstæðar
tölur yfir vöxt hugverka-
geirans og mannafla-
þörf á Íslandi á síðustu
árum liggja ekki fyrir.
Gert er ráð fyrir
20-30% vexti í
ár, eða um allt
að 54,5 ma.
Frá 2001 til 2010, ásamt spá fyrir næstu 3 ár (í milljónum króna)
CCP
Stjörnu-Oddi
NimbleGen
Marorka
Gagarín
Caladris
Gogogic
Mobilitus
HugurAX
AGR
Betware
Vaki
Tellmetwin
Sauma tech
Ice consult
Oxymap
Sagasstem
Mind games
45.000
40.000
35.000
30.000
25.000
20.000
15.000
10.000
5.000
0
2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013
2010
16-17 ma. kr.
Spá fyrir 2013
44 ma. kr.
Einkenni smits
Verði smit getur myndast roði í hring
kringum bitið. Roðinn getur komið fram
allt að 30 dögum eftir bit. Önnur möguleg
einkenni eru þreyta, hiti, hrollur og verkir
sem oft vara lengi. Sé um heilabólgu að
ræða getur komið til krampa og lömunar.
Meðferð sjúkdómanna
Lyme-sjúkdómur er meðhöndlaður með
sýklalyfjum eða bólgueyðandi lyfja-
meðferð. Engin sértæk meðferð er til við
heilabólgu en til eru bóluefni við henni.
Fyrirbyggjandi aðgerðir
Klæðist fatnaði sem hylur vel þegar farið
er um skóglendi og notið mýflugufælandi
áburð. Frekari upplýsingar eru á
www.landlaeknir.is.
Roði, hiti og verkir
HEILABÓLGA OG LYME-SJÚKDÓMUR
Hugbúnaðarfyrirtækið AGR er í
hópi fjölda fyrirtækja á sínu sviði
sem hljótt hefur verið um. Fyrir-
tækið var stofnað 1997 en helsta
söluvara þess er innkaupa- og
birgðastýringarbúnaður sem hefur
verið í þróun frá árinu 2000.
„Í framhaldi af því fórum við að
selja inn á íslenskan markað og höf-
um síðan nokkurn veginn náð að
metta hann. Flest stærri fyrirtæki á
landinu sem hafa háa birgðastöðu
eru að nota okkar kerfi,“ segir
Finnur Tjörvi Bragason, markaðs-
stjóri AGR, um sögu fyrirtækisins.
Árið 2005 hóf fyrirtækið sókn á
erlenda markaði en það hefur nú
skrifstofur í Árósum og Bretlandi.
Starfsmenn eru 18 og eru 5 er-
lendis. Stefnt er að fjölgun í ár. Við-
skiptavinir eru yfir 60 í 18 löndum.
Frá hugmynd
að alþjóðlegri
starfsemi
Morgunblaðið/Eggert
Hugbúnaðargerð AGR hefur aðsetur á efstu hæð gamla Morgunblaðshússins í Kringlunni.
Ljósmynd/Erling Ólafsson
a