Morgunblaðið - 30.06.2010, Blaðsíða 15
Fréttir 15ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2010
Málsskjölin vegna saksóknar á
hendur tíu meintum njósnurum
Rússa í Bandaríkjunum minntu
stundum á reyfara um njósnir í kalda
stríðinu. Skjölin benda þó til þess að
njósnararnir hafi ekki verið mjög
færir á sínu sviði og ekki komist í
hálfkvisti við söguhetjur á borð við
James Bond. Bandarísk yfirvöld
töldu jafnvel ekki ástæðu til að
ákæra þá fyrir njósnir.
Dómsmálaráðuneytið í Wash-
ington skýrði frá því í fyrrakvöld að
tíumenningarnir hefðu verið hand-
teknir á sunnudag og ákærðir fyrir
að vera leynilegir erindrekar er-
lendra stjórnvalda, en það varðar allt
að fimm ára fangelsisdómi. Níu
þeirra voru ákærðir fyrir samsæri
um peningaþvætti og sú ákæra varð-
ar allt að 20 ára fangelsi.
Njósnararnir eru sagðir hafa búið
í bandarískum borgum í rúman ára-
tug, undir fölskum nöfnum og lifað
ósköp venjulegu lífi til að vekja ekki
grunsemdir. Á meðal þeirra voru pör
sem þóttust vera hjón. Ekki var
skýrt frá því við hvað útsendararnir
störfuðu en hermt var að þeir hefðu
reynt að komast í vinfengi við menn
sem hefðu upplýsingar um kjarna-
vopn, stefnu Bandaríkjastjórnar í
málefnum Írans, yfirmenn leyni-
þjónustunnar CIA og fleiri mál.
Njósnarar eru sagðir hafa beitt
ýmiss konar hátæknibúnaði við
njósnirnar, m.a. notað sérstakan
hugbúnað til að fela texta í myndum
sem settar voru á netið á vefsetrum
sem opin eru almenningi. Rússneska
leyniþjónustan SVR er síðan sögð
hafa notað sama hugbúnað til að lesa
úr leyniletrinu. Njósnararnir beittu
einnig gamalkunnum aðferðum,
grófu m.a. holur til að fela peninga í
almenningsgörðum.
Ef marka má málsskjölin virðast
þó njósnararnir hafa haft lítið upp úr
öllu krafsinu og hermt er að þeir hafi
verið svo viðvaningslegir að banda-
rískir gagnnjósnarar hafi getað
fylgst með þeim í mörg ár.
Sergej Lavrov, utanríkisráðherra
Rússlands, neitaði ásökuninni um
njósnir og krafðist skýringa á ákær-
unum. Hann sagði tímasetningu
handtökunnar undarlega og gaf til
kynna að markmiðið með henni væri
að grafa undan viðleitni til að bæta
samskipti Bandaríkjanna og Rúss-
lands. bogi@mbl.is
Reuters
Borgarafundur Medvedev Rússlandsforseti og Obama snæddu hamborgara
á skyndibitastað í Virginíu þremur dögum fyrir handtöku njósnaranna.
Njósnararnir höfðu
lítið upp úr krafsinu
Rússneskur njósnahringur sagður hafa starfað í Banda-
ríkjunum í mörg ár Var þó ekki ákærður fyrir njósnir
Undarleg tímasetning?
» Njósnahringurinn var hand-
tekinn þremur dögum eftir
fund Dmítrís Medvedevs Rúss-
landsforseta með Barack
Obama Bandaríkjaforseta.
» Fréttaskýrendur í Moskvu
sögðu tímasetningu handtök-
unnar grunsamlega, því svo
virtist sem einhverjir í banda-
ríska valdakerfinu væru and-
vígir stefnu Obama og vildu
senda honum þau skilaboð að
hann gæti ekki treyst Rússum.
Heimastjórnin á Grænlandi hefur
krafist þess að tvö olíuvinnslufyrir-
tæki, sem hafa fengið leyfi til að
bora eftir olíu við strönd landsins,
leggi fram tryggingu að andvirði
nær 60 milljarða danskra króna, sem
svarar 1.200 milljörðum íslenskra.
Viðskiptafréttavefur danska dag-
blaðsins Berlingske Tidende skýrði
frá þessu í gær og sagði þetta mestu
tryggingarfjárhæð sem krafist hefði
verið í heiminum vegna olíuborunar
á hafsbotni. Nota ætti féð til að
greiða hugsanlegar skaðabætur og
standa straum af kostnaði vegna
olíuhreinsunar ef mengunarslys
yrði, líkt og þegar sprenging í bor-
palli í Mexíkóflóa olli mesta olíu-
mengunarslysi í sögu Bandaríkj-
anna.
Breska fyrirtækið Cairn Energy
og Petronas í Malasíu hafa fengið
leyfi til að bora eftir olíu undan norð-
vesturströnd Grænlands. Fyrir-
tækin samþykktu kröfuna og fram-
kvæmdir eiga að hefjast á næstu
dögum. bogi@mbl.is
Kröfðust
mettryggingar
Grænlendingar krefja olíufyrirtæki
um 1.200 milljarða kr. vegna olíuleitar
Morgunblaðið/RAX
Ríkt Grænland á margar auðlindir.
Hindúaprestar sitja í pottum fullum af vatni og fara
með sérstaka bæn til að sefa Varun, einn af guðum
hindúa, í borginni Ahmedabad á vestanverðu Indlandi.
Varun er guð himinsins, vatnsins og regnsins í goða-
fræði hindúa. Gert er ráð fyrir því að monsúnrigningar
hefjist á Indlandi á morgun eftir tíu daga hlé.
Reuters
Reynt að sefa regnguð hindúa
Lúanda, höfuðborg Afríkuríkisins Angóla, er orðin dýrasta borg heims, að
því er fram kemur í árlegri úttekt fyrirtækisins Mercer.
Úttektin tekur til verðlags á um 200 hlutum og veitir því góða vísbend-
ingu um á hverju ferðamenn mega eiga von í viðkomandi borgum.
Afrísk borg hefur aldrei áður verið í efsta sæti listans en að auki eru
Libreville, höfuðborg Gabons, og Ndjamena, höfuðborg Tsjads, á listanum.
Fyrirtækið kannaði verðlag í 214 borgum um víða veröld en það þykir
ýta undir verðlagið fyrir aðkomumenn í afrísku borgunum að greiða þarf
hátt verð fyrir örugga gistingu og húsnæði.
Athygli vekur að Reykjavík er ekki lengur á lista Mercer yfir 50 dýrustu
borgir heims en vart þarf að rekja ástæður þess. Til sbr. áætlaði greining-
ardeild Economist að hún væri sjötta dýrasta borgin 2007. baldura@mbl.is
4
6
2
10
5
3
8
7
1
8
Heimild: Mercer * Jafn dýrar borgir Á heimslista
DÝRUSTU BORGIR HEIMS
Þrjár afrískar borgir eru nú í fyrsta sinn á meðal tíu dýrustu borga veraldar á
árlegum lista fyrirtækisins Mercer. Niðurstaðan vitnar um aukna hagsæld í Afríku.
EFTIR HEIMSHLUTUM
AMERÍKA
21. Sao Paulo,
Brasilíu
27. New York,
Bandaríkjunum
29. Rio de Janeiro,
Brasilíu
45. Havana,
Kúbu
55. Los Angeles,
Bandaríkjunum
EVRÓPA
4. Moskva,
Rússlandi
5. Genf,
Sviss
8. Zürich*,
Sviss
10. Kaupmannahöfn,
Danmörku
11. Ósló*,
Noregi
MIÐAUSTURLÖND/
AFRÍKA
1. Lúanda,
Angóla
3. Ndjamena,
Tsjad
7. Libreville,
Gabon
13. Viktoría,
Seychelles-eyjum
19. Tel Aviv,
Ísrael
ASÍA/KYRRAHAF
2. Tókyó,
Japan
6. Osaka,
Japan
8. Hong Kong*,
(Kína)
11. Singapúr*,
Singapúr
14. Seúl,
Suður-Kóreu
Kaupmannahöfn
Danmörk
Moskva
Rússland
Zürich*
Sviss Tókýó
Japan
Osaka
Japan
Genf
Sviss
Ndjamena
Tsjad
Hong Kong*
(Kína)
Libreville
Gabon
Lúanda
Angóla
ÞÆR 10 DÝRUSTU
Singapúr
Viktoría
Sao Paulo
New York
HavanaLos Angeles
Rio de Janeiro
Tel Aviv
Seúl
Ósló
Afríka á dýrustu borgina
í fyrsta skipti í sögunni
Fjallað er um málið á vef tímarits-
ins Business Week með þeim orð-
um að á olíusvæðum Grænlands á
hafi úti sé að finna allt að 17 millj-
arða tunna af olíu og ígildi 9,3
milljarða tunna af fljótandi gasi,
auk gríðarlegs magns af jarðgasi.
Tímaritið segir Grænland deila
hluta hafsvæðanna með Kanada
en að því gefnu að Grænlendingar
eigi bróðurpartinn er ljóst að
þarna er um gríðarlegar fjárhæðir
að ræða. Nægir þar að margfalda
tunnufjöldann af olíu með heims-
markaðsverðinu í dag sem er um
75 Bandaríkjadalir. baldura@mbl.is
Svart gullið undir ísnum
EFTIR MIKLU AÐ SLÆGJAST
Niðursveiflan í Bretlandi hefur víða
áhrif og er nú svo komið að Karl
Bretaprins hefur séð sig knúinn til
að draga úr útgjöldum vegna gesta-
móttaka við hirðina.
Bretaprins hefur náð góðum
árangri ef marka má nýjar tölur frá
bresku konungsfjölskyldunni en þar
kemur fram að hún hafi tekið á móti
9.396 gestum í fyrra, eða á móti tæp-
lega sama fjölda og árið á undan.
Til að draga úr útgjöldum vegna
þessa var ákveðið
að skipta út
þriggja rétta
málsverðum eins
og kostur væri en
bjóða þess í stað
upp á hanastél og
„standandi borð“
með pinnamat og
ódýrari réttum.
Árangurinn lætur ekki á sér
standa því útgjöldin minnkuðu um
helming, fóru úr 102 milljónum
króna niður í um 49 milljónir.
Sendiráðið og hirðin
Niðurskurðurinn vekur athygli,
ekki síst í því ljósi að upplýst hefur
verið að íslenska sendiráðið í Svíþjóð
bauð hátt í 400 manns til móttöku á
þjóðhátíðardegi Íslendinga, eða
sama fjölda og breska hirðin tekur á
móti á ríflega hálfs mánaðar fresti að
meðaltali. baldura@mbl.is
Bretaprins skiptir út þrírétta
málsverðum fyrir hanastél
Karl Bretaprins