Morgunblaðið - 30.06.2010, Blaðsíða 30
AF ILMVATNI
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Að þefa er list. Í það minnsta í heimiilmvatnsins og kannski líka ef mað-ur er jólasveinn að nafni Gáttaþef-
ur. Svokölluð nef heimsins eru mikilvægur
þáttur í því að búa til ný ilmvötn en ein-
stakt lyktarskyn hjálpar til við að gera
magnaða blöndu úr ólíkri angan sem síðan
ratar ofan í fallegt ilmvatnsglas. Athygl-
isvert er að eingöngu karlmenn eru starf-
andi sem nef en ástæðan fyrir því ku vera
sú að lyktarskyn þeirra helst óbreytt á
meðan lyktarskyn kvenna breytist með
hormónasveiflum. Ilmvatnsborgin Grasse í
Frakklandi er sannkölluð mekka þeirra
sem hafa áhuga á ilmvatnsgerð. Þar er
hægt að heimsækja ilmvatnsframleiðendur
og skoða alþjóðlegt ilmvatnssafn.
Segja má að það sé skylda þeirra semheimsækja Grasse að hafa séð kvik-
myndina Perfume, The Story Of a Murde-
rer. Annars flokkast maður varla sem al-
vöru ilmvatnsnörd og fellur ekki jafn vel
inn í gestahópinn. Kvikmyndin er byggð á
metsölubók Patricks Süskinds og segir af
lífshættulegri þrá aðalpersónunnar Jean-
Baptiste Grenouille til að skapa hinn full-
komna ilm. Grenouille er sannkallaður
listamaður í heimi ilmvatnsins en hann er
þeirrar náttúru gæddur að vera með ein-
staklega gott lyktarskyn og þegar hann
finnur fullkomna lykt af ungri stúlku lætur
hann ekkert stöðva sig við að endurskapa
ilminn.
Þessu fylgja nokkuð óhefðbundnar að-
ferðir Grenouille við að sanka að sér ilmi
stúlknanna en til þess að takast ætl-
unarverk sitt töfrar hann til sín konur sem
hann myrðir og notar húð þeirra til að búa
til ilmvatn. Þó ber ekki að óttast það að
verða dreginn inn í dimmt húsasund í
Grasse, þar sem samkvæmt áreiðanlegum
heimildum leiðsögumanns um Fragonard-
ilmvatnssafnið í Grasse er eingöngu notuð
dýrafita til að ná fram angan þeirra
plantna og blóma sem notuð eru við fram-
leiðsluna. Já, ég segi það satt, Perfume,
The Story Of a Murderer er skemmtileg og
áhugaverð kvikmynd en ekki byggð á stað-
reyndum.
Í Grasse hefur ilmvatn verið framleittsíðan á 16. öld. Ilmvatnið er þó ekki
eina listgreinin sem þar hefur verið stund-
uð en ilmvatnsglösin eru líka listasmíð. Í
hinu alþjóðlega ilmvatnssafni í Grasse má
gleyma sér í margar klukkustundir við að
skoða flösku eftir flösku af ilmvatnsglösum
og sjá hvernig þau hafa breyst í gegnum
árin. Einnig má þar fræðast um hégóma
mannkynsins allt frá því að grískir gæjar
notuðu kol sem augnblýant.
Listin að þefa og ilmvatnsgerð
Sniff Jean-Baptiste Grenouille dreymir um að búa til hinn fullkomna ilm á óvenjulegan hátt.
» Já, ég segi það satt, Perf-ume, The Story Of a
Murderer er skemmtileg og
áhugaverð kvikmynd en ekki
byggð á staðreyndum.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2010
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Killers kl. 3:30 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára Leikfangasaga 3D kl. 3:30 - 5:45 íslenskt tal LEYFÐ
Killers kl. 8 - 10:10 LÚXUS Toy Story 3D kl. 3:30 - 5:45 enskt tal / ótextað LEYFÐ
Grown Ups kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20 LEYFÐ The A-Team kl. 8 - 10:40 B.i. 12 ára
Grown Ups kl. 3:30 - 5:45 LÚXUS Get Him to the Greek kl. 8 - 10:25 B.i. 12 ára
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
H E I M S F R U M S Ý N D
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
-T.V. - Kvikmyndir.is
ÞEIR VORU PLATAÐIR - ÞEIR VORU SVIKNIR - HEFNDIN ER ÞEIRRA
MISSIÐ EKKI AF FYRSTU STÓRMYND SUMARSINS!
-S.V. - Mbl.
-J.I.S. - DV
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Killers kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára
Grown Ups kl. 8 LEYFÐ
The A-Team kl. 10 B.i. 12 ára
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti teng