Morgunblaðið - 30.06.2010, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2010
Þeir voru þeir bestu hjá CIA
en núna vill CIA losna við þá
HHHH
„Hún er skemmtileg“
- Roger Ebert
Skotbardagar, hasar, sprengingar
og húmor... frábær afþreying.
Zoe Saldana úr Avatar sýnir
stórleik í þessari
stórkostlegu
hasarmynd
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU
TALI
Miley Cyrus er
æðisleg í sinni
nýjustu mynd
STÓRKOSTLEG
SKEMMTUN FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
VIDDI, BÓSI LJÓSÁR OG HIN
LEIKFÖNGIN ERU KOMIN AFTUR Í
STÆRSTU OG BESTU TOY STORY
MYNDINNI TIL ÞESSA
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
EITT MESTA ILLMENNI KVIKMYNDASÖGUNNAR
ER KOMIÐ Í BÍÓ – FREDDY KRUEGER
ÞESSI MYND Á EFTIR AÐ HALDA ÞÉR VAKANDI Í LANGAN TÍMA!
STRANGLEGA BÖNNUÐ BÖRNUM
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
HHHHH
“ÓMENGUÐ SNILLD YST SEM INNST.”
“HÚN HEFUR SVO SANNARLEGA ALLA
BURÐI TIL AÐ VERÐA VINSÆLASTA OG
BESTA MYND SUMARSINS”
S.V. - MBL
HHHHH
- P.H. BOXOFFICE MAGAZINE
HHHHH
„ÞETTA VERÐUR EKKI
MIKIÐ BETRA“
- Þ.Þ FRÉTTABLAÐIÐ
HHHH
"TOY STORY 3 ER ÞAÐ BESTA
SEM ÉG HEF SÉÐ Í BÍÓ Á ÞESSU
ÁRI HINGAÐ TIL OG ÉG GET
EKKI BEÐIÐ EFTIR AÐ SJÁ HANA
AFTUR!"
- T.V. KVIKMYNDIR.IS
TWILIGHT SAGA : ECLIPSE kl. 8 - 10:30 12
GET HIM TO THE GREEK kl. 8 12
THE LOSERS kl. 10:30 12
TWILIGHT SAGA : ECLIPSE kl. 8 - 10:35 12
LEIKFANGASAGA 3 3D ísl. tal kl. 5:403D L
TOY STORY 3 m. ensku tali kl. 5:40 L
SEX AND THE CITY 2 kl. 9 12
TWILIGHT SAGA : ECLIPSE kl. 8 - 10:30 12
GROWN UPS kl. 8 - 10:10 10
/ KEFLAVÍK / SELFOSSI/ AKUREYRI
Nýr dansviðburður, Var það gang-
ári? á sér stað með óhefðbundnum
hætti á Humarhátíðinni á Höfn, hinn
3. júlí 2010. Um er að ræða dans-
göngu sem fólki er boðið að fara í en
hún er samofin sögulegri leiðsögn
um bæinn. Ragnar Ísleifur Braga-
son, ljóðskáld og leikhúslistamaður,
mun kynna okkur söguna en hann
bregður sér í líki draugsins Gangára
sem sér um leiðsöguna. Sá kann að
hafa sopið marga fjöruna síðustu
aldirnar og á að þekkja hvern krók
og kima landsins. Það eru dans-
ararnir Aðalheiður Halldórsdóttir
og Valgerður Rúnarsdóttir sem hafa
skapað heim Gangárans en saman
starfa þær undir nafinu Vaðall. Þær
hafa samið fjölda dansverka, m.a.
fyrir Íslenska dansflokkinn og
Reykjavík dansfestival á und-
anförnum árum og þær hafa báðar
verið tilnefndar til Grímunnar sem
dansarar ársins.
„Við vorum að horfa í kringum
okkur í miðbæ Reykjavíkur þegar
okkur fannst við sjá svo mörg tóm
búðarrými, þannig að okkur fannst
svolítið eins og við værum staddar í
eyðibæ. Þá fengum við hugmyndina
um Gangárann sem er flökkudraug-
ur og við byrjuðum með þetta í
Reykjavík þar sem hann þekkir allt
og segir fólki sögur. Þetta byrjaði
bara sem svona leiðsögn og svo vatt
þetta upp á sig og við fylltum þetta
af tónlist og lífi og dansviðburðum
og hinu og þessu og svona eftir
gönguna þá getum við spurt okkur,
var þetta í alvöru flökkudraugur?
Var hann raunverulegur þessi mað-
ur, því hann talar um allt sem gerð-
ist fyrir 5 árum eða 200 árum með
sama hætti,“ segir Valgerður en
Vaðalsstúlkurnar standa þó ekki
einar með Ragnari Ísleifi að verk-
efninu á Höfn heldur virðist þeim
hafa tekist að virkja bæinn með sér í
viðameira samvinnuverkefni. „Mér
finnst gaman hvernig okkur hefur
tekist að virkja fólk með okkur
hérna og vekja áhuga þess. Allir eru
að leggja sitt af mörkum og koma
með það sem þau kunna, Kvenna-
kórinn, Leikfélagið, Vinnuskólinn
allur og aðrir áhugasamir. Það er
búið að taka allt til hérna í bænum
og gera allt fínt. Þetta verður bara
spennandi,“ segir Valgerður að lok-
um. gea@mbl.is
Dansað til að muna
Söguleg dansganga með draugnum
Gangára verður á Höfn hinn 3. júlí
Morgunblaðið/Ásdís
Dans Stúlkurnar í Vaðli færa okkur dansgönguna með Gangára.
Veffyrirtækið Yahoo hefur gert
samning við leikarann og leikstjór-
ann Ben Stiller um gerð netþáttar
þar sem málefni líðandi stundar
verða tekin fyrir. Foreldrar Stillers
verða í aðalhlutverki í þáttunum.
Stiller er á alþjóðlegu auglýs-
ingahátíðinni í Cannes á vegum
Yahoo að kynna þennan fyrirhug-
aða vefþátt, en hver þáttur verður
innan við tíu mínútur að lengd og
sýndur á Yahoo-vefnum. Foreldrar
Stillers, Jerry Stiller og Anne
Meara, eru þekktir grínistar og fá
það hlutverk að ræða nýjustu frétt-
ir á persónulegum nótum. Til
stendur að sýna fyrsta þáttinn á
Yahoo fyrir áramót.
Stiller og fjölskylda Anne Meara,
Christine Taylor, Ben Stiller og
Jerry Stiller.
Stiller vinnur
með Yahoo
Dansgangan Var það gangári? á
sér stað laugardaginn 3. júlí á
Humarhátíðinni á Höfn. Lagt
verður af stað frá Pakkhúsinu
klukkan 14:00 en þátttakendur
fá sögu Hafnar beint í æð með
dansi og leik. Leiðsögumaður er
draugurinn Gangári.
Gangári
DAGSKRÁIN