Fréttablaðið - 12.10.2011, Page 8
12. október 2011 MIÐVIKUDAGUR8
Sigurður Hjörtur Kristjánsson
sérfræðingur í lyflækningum og hjartasjúkdómum
opnar hinn 24. október n.k. stofu í
Læknasetrinu
Þönglabakka 6, 109 Reykjavík.
Tímapantanir í síma 535 7700
Fimmtudagur 13.10.11
Sinfónían á Airwaves
Miðasala » www.sinfonia.is » www.harpa.is
Frá kr. 69.900
Fimm nátta helgarferð - allra síðustu sæti!
Heimsferðir bjóða frábært sértilboð á allra síðustu sætunum í fimm nátta ferð 18.
október til hinnar einstöku perlu Búdapest. Búdapest er ótvírætt ein fegursta borg
Evrópu og hún býður einstakt mannlíf, menningu og skemmtun auk frábærra
veitinga- og skemmtistaða. Í boði er mjög takmarkaður fjöldi herbergja á einstökum
kjörum, m.a. á Hotel Star Inn Centrum sem er gott og frábærlega staðsett hótel í
miðborginni. Verðlagið í Búdapest er frábært svo hér er tilvalið að versla og njóta
lífsins á einstaklega hagkvæman hátt. Fararstjórar Heimsferða gjörþekkja borgina
og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu.
Budapest
18. - 23. október
Frá kr. 69.900
Hotel Star Inn Centrum * * *
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í 5 nætur á Hotel Star Inn *** með morgunverði.
Sértilboð 18. október. Ath. verð getur hækkað án fyrirvara.
DÓMSMÁL Kona á fertugsaldri hefur
verið ákærð fyrir Héraðsdómi
Reykjaness fyrir stórfelldan fjár-
drátt.
Konunni er gefið að sök að hafa
sem bókari og gjaldkeri, hjá fast-
eignasölunni Hraunhamri í Hafn-
arfirði, dregið sér á árunum 2007
og 2008 fjármuni og önnur verð-
mæti frá félaginu, alls rúmlega sex
milljónir króna. Konan tók út vörur,
samtals að verðmæti 905.239 krón-
ur, í 24 skipti í heimildarleysi, leysti
út í nafni Hraunhamars og nýtti í
eigin þágu. Meðal annars keypti hún
sjónvarp, tölvu og myndavél.
Þá er konunni gefið að sök að
hafa greitt seljanda fasteignar, sem
konan hafði sjálf fest kaup á, fyrir
milligöngu Hraunhamars, þrjár
milljónir króna af bankareikningi
fasteignasölunnar, sem greiðslu
vegna afhendingar fasteignarinnar.
Konan hafði áður aðeins lagt tvær
milljónir inn á reikning Hraunham-
ars.
Þá dró konan sér tæplega 4,5
milljónir með því að gefa út tékka af
bankareikningum Hraunhamars. Þá
dró hún sér ríflega 200 þúsund frá
starfsmannafélagi Hraun hamars.
- jss
Ákærð fyrir stórfelldan fjárdrátt frá fasteignasölunni Hraunhamri:
Sökuð um að stela sex milljónum
Í EIGIN VASA Konan tók fjármunina til
eigin nota.
ÚKRAÍNA Júlía Tímosjenko, helsti
leiðtogi stjórnarandstöðunnar í
Úkraínu, var í gær dæmd í sjö ára
fangelsi fyrir að hafa misnotað völd
sín þegar hún var forsætisráðherra
árið 2009.
Dómarinn var lengi að lesa upp
dóminn, en Tímosjenko beið ekki
eftir að hann lyki lestrinum heldur
hóf að ræða við blaðamenn í dóm-
salnum áður en lestrinum var lokið.
Hún líkti réttarhöldunum við
sýndarréttarhöld Stalíns og sakaði
Viktor Janúkovitsj forseta um að
hafa samið dóminn sjálfur.
Þegar Kíríjev dómari gekk úr
réttarsalnum hrópaði Oleksandr
Tímosjenko, eiginmaður Júlíu, að
dómarinn muni sjálfur fá sams
konar dóm einhvern daginn.
Tímosjenko var í forystusveit
appelsínugulu byltingarinnar svo-
nefndu árið 2004, þegar stjórnar-
andstöðunni tókst með víðtækum
stuðningi almennings að hrekja
bæði Leoníd Kútsjma úr embætti
forseta og Janúkovitsj úr embætti
forsætisráðherra.
Janúkovitsj er nú orðinn forseti
og Tímosjenko sakar hann um að
standa að baki þessum réttarhöld-
um.
Catherine Ashton, utanríkismála-
fulltrúi Evrópusambandsins, segir
niðurstöðu dómarans valda sér
miklum vonbrigðum. Réttarhöldin
hafi ekki staðist alþjóðlegar kröf-
ur og dómsniðurstaðan staðfesti að
dómsvaldið sé notað í pólitískum til-
gangi gegn stjórnarandstöðunni.
Hún segir að Evrópusamband-
ið muni nú endurskoða samskipti
sín við Úkraínu. Evrópusambandið
hefur unnið að því að taka upp nán-
ara samstarf við Úkraínu.
Réttarhöldin snerust um samn-
ing, sem gerður var við Rússa árið
2009 um að Úkraína greiði Rússum
sambærilegt verð fyrir gas og tíðk-
ast í Vestur-Evrópu.
Samkomulagið var gert á fundum
Tímosjenko með Vladimír Pútín,
forsætisráðherra Rússlands, en
undirritað af yfirmönnum gasfyr-
irtækja landanna beggja, Gazprom
í Rússlandi og Naftogaz í Úkraínu.
Andstæðingum Tímosjenko þykir
samningurinn óhagstæður Úkraínu
og dómarinn komst að þeirri niður-
stöðu að hún hefði farið út fyrir
valdsvið sitt sem forsætisráðherra
þegar hún gerði samninginn við
Pútín. Fyrir það eigi hún skilið sjö
ára fangelsi.
Lögfræðingar Tímosjenko hafa
ákveðið að áfrýja dómnum og
Tímosjenko hefur sagst ætla að fara
með hann fyrir Mannréttindadóm-
stól Evrópu.
gudsteinn@frettabladid.is
Réttarhöldin
sögð pólitísk-
ar ofsóknir
Júlía Tímosjenko, fyrrverandi forsætisráðherra
Úkraínu, var í gær dæmd í sjö ára fangelsi að loknum
réttarhöldum, sem ESB segir ekki standast alþjóðlegar
kröfur. Dómari taldi hana hafa misnotað völd sín.
FÓLK Tveir athafnamenn óska nú
eftir því að fá lóð í Reykjavík
undir stórhýsi fyrir skemmti-
og fræðslugarðinn Auga Óðins.
Sama verkefni var í bígerð í
Hveragerði um nokkurt skeið.
Þema garðsins er ásatrú.
Guðbrandur Gíslason og Ólaf-
ur Viðarsson óska eftir fundi
með fulltrúum Reykjavíkur-
borgar um það hvort hægt sé að
finna starfseminni stað í borg-
inni. Sjálfir vilji þeir helst vera
austan Kringlumýrarbrautar.
Segja þeir flatarmál hússins
þurfa að vera á bilinu átta til tíu
þúsund fermetrar og lofthæðina
yfir 25 metrar. Byggingin verði
„finnskt stálgrindarhús með
frönskum segldúk“. Ráðgert sé
að opna Auga Óðins vorið 2013.
- gar
Vilja lóð fyrir skemmtigarð:
Auga Óðins í
finnsku seglhúsi
1994
1995
1996
1997
1998
1999
2000
2001
2002
2003
2004
2005
2006
2007
2008
2009
2010
Togstreita valdamanna
Þau Júlía Tímosjenko og Viktor Jústsjenko voru í fararbroddi appelsínugulu byltingarinnar í
Úkraínu árið 2004, þegar stjórnarandstaðan sakaði Leoníd Kútsjma forseta og Viktor Janúko-
vitsj forsætisráðherra um kosningasvindl. Þau Tímosjenko og Jústsjenko komust til valda í
kjölfarið, hún sem forsætisráðherra en hann sem forseti. Fljótlega slettist upp á vinskapinn og
Jústsjenko rak Tímosjenko og ríkisstjórn hennar haustið 2005. Hún komst aftur til valda árið
2007 en 2010 bauð hún sig fram til forseta gegn fjandvini sínum Janúkovitsj, og beið lægri
hlut. Stuttu síðar samþykkti þjóðþing landsins vantraust á ríkisstjórn hennar.
24. jan. - 8. sept.
21. nóv. 2002 -
7. des. 2004
28. des. 2004 -
5. jan. 2005
25. feb. - ?
19. júlí 1994 -
23. jan. 2005
23. jan. 2005 -
25. feb. 201018. des. 2007 -
4. mars 2010
Júlía Tímosjenko
f. 1960
Viktor Janúkovitsj
f. 1950
Leoníd Kútsjma
f. 1938
Viktor Jústsjenko
f. 1954
■ Forsætisráðherra
■ Forseti