Fréttablaðið - 12.10.2011, Side 23
CLAW
46”-54”
Fyrir stóru strákana
mtdekk.is
Söluaðili:
Sólning Selfossi, Gagnheiði 2, sími 482 2722
Skútuvogi 2 | 104 Reykjavík | Sími 568 3080Kópavogur, Smiðjuvegi 68–70 | Sími 544 5000
Njarðvík, Fitjabraut 12 | Sími 421 1399
Selfoss, Eyrarvegur 33 | Sími 482 2722
SÓLNING
www.solning.is www.bardinn.is
Veldu Continental
þegar öryggið skiptir máli
Continental er sigurvegari fjölmargra
óháðra dekkjaprófana undanfarin ár.
Continental dekk eru hönnuð fyrir akstur
á norðlægum slóðun.
Opnunartímar verkstæða
Virka daga 8.00–18.00
LÁN Í6V
AXTAL
AUST
MÁNUÐ
I
„Þetta er frábært og auðvitað
fyrst og fremst meiri háttar viður-
kenning á því starfi sem við höfum
verið að vinna,“ hafði Hlynur
Bjarki Sigurðsson, starfsmaður
hjá Arctic Trucks, að segja í gær
en þá varð ljóst að fyrirtækið hafði
tryggt sér sess á spjöldum Heims-
metabókar Guinness fyrir hröð-
ustu yfirferð á landi á suðurskaut-
inu.
Kazakhstan National Geo graphic
Society, KNGS, stóð fyrir leiðangr-
inum sem var farinn frá Novo til
suðurpólsins í desember á síðasta
ári. Hlynur var bílstjóri og bifvéla-
virki og auk hans tveir starfsmenn
frá KNGS og einn frá The Antarc-
tica Company. Ekið var á tveimur
Arctic Trucks-bílum, það er fjór-
hjóladrifnum AT44 Expedition sem
eru smíðaðir á Toyota Hilux.
Ferðalangarnir óku meðal ann-
ars yfir stórt, ókannað sprungu-
belti og upp í mikla hæð. Færi var
oft erfitt, gríðarlegur kuldi og lang-
ar veglengdir sem þurfti að keyra
án þess að fá eldsneyti. Engu að
síður tók það Hlyn og félaga aðeins
108 tíma að keyra 2.308 kílómetra
á pólinn sem jafngildir meðalhraða
upp á 21,4 kílómetra á klukkustund.
Þeir gerðu tvisvar hlé á ferðinni,
fyrst skömmu eftir að lagt var af
stað í rúma tólf tíma til að fá hæð-
araðlögun en hæðin sem farið er
upp í jafngildir um 4.000 metrum.
Seinna stoppuðu þeir í rúma fimm
tíma til að bæta á eldsneyti, elda
og hvíla sig.
Félagarnir settu síðan í raun
annað óskráð heimsmet á heim-
leiðinni sem tók þá aðeins 84 tíma
að aka, eða sem gildir meðalhraða
upp á 27,5 kílómetra á klukkustund.
Hlynur segir viðurkenninguna
frá Guinness vera ánægjuleg-
an endi á ferð sem hafi þó fyrst
og fremst verið farin í þeim til-
gangi að undirbúa vísindaleiðang-
ur á suðurpólinn nú í desember
á vegum KNGS. „Þetta var mik-
ill sigur fyrir bílana sem stóðust
prófraunina með prýði og allt gekk
eins og í sögu. Viðurkenningarskjal
Guinness er góð staðfesting á því.“
Við þetta má bæta að Arctic
Trucks smíðaði annan bíl fyrir
Thomson Reuters „Eikon“ byggðan
á Toyota Tacoma sem mun reyna
að bæta heimsmetið í desember.
Hann leggur af stað frá Patriot
Hills sem er styttri leið að suður-
pólnum og á því ágæta möguleika
að ná markmiðinu.
roald@frettabladid.is
Metið staðfest
hjá Guinness
Bílar frá íslenska fyrirtækinu Arctic Trucks settu nýtt heimsmet í
hröðustu yfirferð á landi á Suðurheimskautslandinu þegar þeir keyrðu
2.308 kílómetra leið frá Novo til suðurpólsins í desember í fyrra.
Sérstæð bílaleiga hefur verið opnuð í París. Hægt er að
leigja litla rafbíla sem nefnast BlueCar til að skjótast á milli
staða. Bílana má taka á einum stað og skilja eftir á öðrum.
Öll afgreiðsla verður rafræn. Nánar á www.fib.is
Arctic Trucks er ekki fyrsta íslenska fyrirtækið sem á þátt í að setja heimsmet
á Suðurheimskautslandinu. Annað fyrirtæki, IceCool, með Gunnar Egilsson í
fararbroddi, setti met á suðurheimskautinu árið 2005.
Gunnar ók þá á sérútbúnum sex hjóla Ford 1.100 kílómetra leið frá Patriot
Hills til suðurpólsins, sem er mun styttri leið en Arctic Trucks fór frá Novo og
að pólnum. Leiðangurinn tók IceCool 69,3 tíma eða að meðaltali tæpa 16
kílómetra á klukkustund.
Íslenskir pólfarar gera það gott
Gunnar Egilsson setti hraðamet í akstri á suðurpólinn árið 2005.
Þegar Fiat-Chrysler sendi frá sér tónlistar-
myndband með söng- og leikkonunni Jennifer
Lopez til að kynna nýja Fiat 500 bílinn létu
viðbrögðin ekki á sér standa. Þótti ýmsum
sem bíllinn væri þar algert aukaatriði en því
meiri áhersla lögð á að sýna þokkafullan vöxt
söngkonunnar. Forsvarsmenn Fiat-Chrysler
brugðust við með því að senda frá sér yfir-
lýsingu þess efnis að þetta væri alls ekki
auglýsing heldur tónlistarmyndband sem
fyrirtækið kostaði.
Nú er komin í sýningu í bandarísku
sjónvarpi ný auglýsing þar sem Fiat 500 er
vissulega í öðru aðalhlutverkinu, en áhersl-
an liggur þó á að sýna Lopez aka um götur
gamla hverfisins síns í New York og segja frá
því hve mikla hvatningu þetta hverfi veiti
henni. Vonandi að bílaáhugamenn sætti sig
betur við þessa nýju útgáfu. - fsb
„Það var ævintýri líkast að koma upp á hásléttu Suðurheimskautslandsins, þessa
hvítu auðn sem virtist engan endi ætla að taka. Maður fann verulega til smæðar
sinnar í þessum framandi heimi.“ Þannig minnist Hlynur leiðangursins á suður-
pólinn.
Minna af JLo
meira af Fiat 500
Jennifer Lopez er í aðalhlutverki í nýrri sjónvarpsauglýsingu frá Fiat,
eftir að myndband með henni fór fyrir brjóstið á bílaáhugamönnum.