Morgunblaðið - 07.07.2010, Síða 2

Morgunblaðið - 07.07.2010, Síða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. „Hlýnandi veðurfar á landinu kemur greinilega fram á gróðrinum. Vorið kemur fyrr og gróð- urinn vex meira. Við sjáum það betur og betur með hverju árinu sem líður,“ segir Björn Sigur- björnsson hjá Gróðrarstöðinni Gróanda í Mos- fellsbæ. Á myndinni hlúir starfsmaður Gróanda að geitaskeggi en plantan barst hingað til lands frá Svíþjóð árið 1965 en kom þangað upphaflega frá Kamtsjatka-skaga í Rússlandi árið 1921. Morgunblaðið/Árni Sæberg Geitaskeggið toppar fyrr en áður Önundur Páll Ragnarsson onundur@mbl.is „Þeir ungu Íslendingar sem hafa hug á að komast með mikilli fyrirhöfn í erfitt og illa launað starf á Íslandi ættu sterklega að íhuga krabbameins- lækningar,“ segir Sigurður Böðvarsson, sérfræð- ingur í krabbameinslækningum, í viðtali í nýjasta hefti Læknablaðsins. Hann er nú að flytja til Bandaríkjanna, eftir níu ár á Landspítalanum. Sigurður lýsir kjörum sínum þannig að eftir strangt sérnám sem hann hafi kostað sjálfur með ómældri vinnu fyrir lág laun, hafi hann komið heim og hafið störf sem sérfræðingur fyrir 476.000 krónur á mánuði. Á fimmtán árum hafi hann unnið sig upp í hæsta launaflokk sérfræðilækna með 533.000 krónur á mánuði. Svo bjóðist honum vakt- ir með 1.910 króna kaupi á tímann. „Um daginn var ég á helgarvakt. […] Ég þurfti á allri minni kunnáttu í lyflækningum að halda. […] Dóttir mín vann á sama tíma við að afgreiða kaffi og kleinur í Húsdýragarðinum fyrir 1.850 krónur á tímann.“ Og þannig lýsir Sigurður vinnu- staðamenningu Landspítalans þegar hann kom heim úr sérnámi, árið 2001: „Vert þú ekkert að setja þig á háan hest, karlinn minn, hér gerum við hlutina svona.“ Hann kveðst hafa haft mikið gaman af því að tengja stemn- inguna á spítalanum við meistaranám sitt í stjórn- un heilbrigðisþjónustu, „… reyndar svo gaman að ég skellti oft og tíðum upp úr í eins manns hljóði,“ segir hann í viðtalinu. Stjórnsýslan hafi verið afar veik og spilling viðgengist með svonefndum sviðs- stjórum, sem settir voru yfir hvert svið við sam- einingu spítalanna, handvaldir af stjórnendum án auglýsingar. Aðspurður segist Björn Zoëga, forstjóri Land- spítalans, sammála því að vinnustaðamenningin hafi verið gamaldags. „En ég hef síðustu árin lagt mikla orku í að breyta henni. Ég held að þetta sé að sumu leyti rétt, en að öðru leyti á þetta ekki við.“ Um launin segir hann að Sigurður sé að vísa í jafnaðarkaup. Þegar læknirinn fari heim að sofa á bakvaktinni sé hann enn á sömu launum, en það sé gengilbeinan í Húsdýragarðinum ekki. Hins vegar byggist þetta á kjarasamningum lækna við ríkið, sem spítalinn semji ekki um. Sérfræðingar séu þó ekki ofaldir af launum sínum, en fleira spili inn í þá ákvörðun að flytja úr landinu en laun. Björn segir aðspurður að ekki sé atgervisflótti frá spítalanum, þó fjórir læknar, eftir því sem hann best viti, hafi ákveðið að fara þaðan á síðustu misserum. „Ég hef ekki orðið var við neinn fjölda- flótta frá okkur,“ segir Björn. Með svipuð laun og gengilbeina  Fráfarandi formaður Læknafélags Reykjavíkur hættir sem krabbameinslæknir á LSH og flytur út  Launin svipuð og á kaffihúsi  Vinnustaðamenning LSH afturhaldssöm  Sviðsstjórakerfið spilling Sigurður Böðvarsson Björn Zoëga Svanhvít Jakobsdóttir Stjórn Landssambands kúabænda sendi frá sér ályktun í gær þar sem lýst er furðu á breytingum á reglu- gerð um markaðsfyrirkomulag við aðilaskipti að greiðslumarki mjólk- ur á lögbýlum. Telja kúabændur að ráðherra hafi hundsað tillögur starfshóps sem sambandið, ráðu- neytið, Bændasamtökin og Mat- vælastofnun hafi lagt fram og fólu í sér að fyrsti markaðsdagur kvóta- markaðarins yrði 15. september nk. Í ályktuninni kemur fram að „ákvörðun ráðherra veldur kúa- bændum fjárhagslegum skaða. Lýs- ir stjórn Landssambands kúabænda allri ábyrgð vegna þessa á hendur ráðherra.“ Kúabændur ósáttir við reglugerð um kvótamarkað Sjö hafa verið handteknir í fimm húsleitum í Hafnarfirði undanfarna daga samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Talsvert af munum sem taldir eru þýfi hefur fundist við húsleitirnar, m.a. tölvur og símar. Nú þegar hef- ur hluta munanna verið komið í réttar hendur. Eitthvað af fíkni- efnum fannst líka við þessar hús- leitir. Sjömenningarnir, fimm karl- ar og tvær konur, hafa flestir áður komið við sögu hjá lögreglu. Nokkrir aðilar til viðbótar hafa ver- ið kallaðir til skýrslutöku. Fimm húsleitir í Hafnarfirði Sigurður segir kostnað við yf- irstjórn Heilsugæslu höfuð- borgarsvæðisins hafa verið 600 milljónir á síðasta ári, en sami kostnaður hjá sjálfstæðum læknastöðvum verið 5-10% af því, þrátt fyrir þriðjungi fleiri heimsóknir þangað. Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri Heilsu- gæslunnar, segir þessa tölu ranga. Þegar sé búið að hag- ræða mikið í yfirstjórninni. Svigrúm til sparnaðar? HEILSUGÆSLAN Guðni Einarsson gudni@mbl.is Formlegar viðræður milli lífeyris- sjóðanna og ríkisins um fjármögnun stórra samgönguverkefna hefjast í næstu viku. Þetta var ákveðið á fundi fulltrúa lífeyrissjóðanna og samn- inganefndar ríkisins í samgöngu- ráðuneytinu í gær. Um er að ræða framkvæmdir fyrir um 30 milljarða á næstu árum. Afli fjár með veggjöldum Náist samkomulag um vaxtakjör, tryggingar, endurgreiðslutíma og fleira er talið mögulegt að fram- kvæmdir geti hafist þegar í haust. Mestur þungi framkvæmdanna verði á árunum 2011-2014. Arnar Sigurmundsson, formaður stjórnar Landssambands lífeyrissjóða, sagði gert ráð fyrir því að framkvæmdirn- ar sem um ræðir gætu verið sjálf- bærar. Hugmyndin er að ríkið afli tekna til að endurgreiða lán lífeyr- issjóðanna, t.d. með veggjöldum. „Það sem við þurfum, ef við náum samkomulagi um ávöxtun, endur- greiðslutíma og annað, er fyrst og fremst að góðar tryggingar séu fyrir endurgreiðslunni. Hún kæmi þá af veggjöldum einhvers konar,“ sagði Arnar. „Þetta er gríðarlega mikið verkefni.“ Vaðlaheiðargöng voru ekki rædd á fundinum í dag. Arnar sagði ekkert því til fyrirstöðu að fulltrúar lífeyrissjóðanna hitti full- trúa félags um Vaðlaheiðargöng til viðræðna um fjármögnun. Í félagi um Vaðlaheiðargöng er ríkið með meirihlutaeign á móti Norðlending- um. Stefna að 30 milljarða framkvæmdum Ákveðið Kristján Möller samgönguráðherra, embættismenn og fulltrúar lífeyrissjóðanna á fundi um fjármögnun framkvæmda í gær.  Formlegar viðræður um fjármögnun að hefjast milli ríkis og lífeyrissjóða Alþingi samþykkti 16. júní sl. lög um stofnun opinbers hluta- félags um framkvæmdir við tvö- földun hluta Suðurlandsvegar, Vesturlandsvegar og að ljúka tvöföldun Reykjanesbrautar við Hafnarfjörð. Einnig mun vera rætt um að lífeyrissjóðir láni fyrir nýrri brú yfir Ölfusá við Selfoss. Fyrrgreindar framkvæmdir og gerð Vaðlaheiðarganga er flest- ar að finna í stöðugleikasátt- mála aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda sem var undirrit- aður 25. júní 2009. Í sáttmálanum MARGAR FRAMKVÆMDIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.