Morgunblaðið - 07.07.2010, Qupperneq 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2010
FRÉTTASKÝRING
Anna Sigríður Einarsdóttir
annaei@mbl.is
Meiri sátt virðist ríkja um þá leið
sem valin var við innritun 10. bekkj-
ar nema í framhaldsskóla á haust-
önn 2010 en var í fyrra. Það ár fékk
töluverður fjöldi nemenda hvorki
inni í þeim skóla sem hann valdi
sem fyrsta eða annað val. Betur
gekk að útvega nýnemum skólavist
að þessu sinni, m.a. vegna þess að
framhaldsskólum bar nú að taka inn
a.m.k. 45% nemenda úr svo nefnd-
um hverfisskólum.
Katrín Jakobsdóttir menntamála-
ráðherra segir einhver erindi vegna
framhaldsskólavistar vissulega hafa
borist ráðuneytinu, en þau séu um-
talsvert færri en í fyrra. „Miðað við
hvernig fyrsta og annað val koma út
þá sýnist okkur þetta almennt hafa
gengið betur,“ segir Katrín, sem
kynnti stöðuna á ríkisstjórnarfundi í
gærmorgun.
Ekki hafa allir sama val
Alls sóttu 4.356 nemendur um
inngöngu í framhaldsskóla og eru
það um 96,5% þeirra sem skráðir
voru í 10. bekk sl. haust. Samkvæmt
upplýsingum frá ráðuneytinu hefur
hlutfallið aldrei áður verið svo hátt.
Fengu 95% umsækjenda skólavist í
þeim skólum sem þeir sóttu um sem
fyrsta eða annað val. Þar af fengu
um 82% skólavist í þeim skóla sem
þeir sóttu um sem fyrsta val.
Ekki eru þó allir sáttir við þá inn-
ritunarleið sem valin var að þessu
sinni og hafa ýmsir bent á að í ein-
hverjum tilfellum hafi nemendur
einfaldlega ekki þorað að sækja um
þann skóla sem þá langaði helst í af
ótta við að komast þá ekki að ann-
ars staðar.
Helgi Árnason, skólastjóri Rima-
skóla, kannast við að innritunarregl-
ur hafi haft áhrif á framhaldsskóla-
val nemenda. Hann hefur þó ekki
heyrt frá nemendum sem voru
ósáttir með þann skóla sem þeir
fengu inngöngu í. „Við erum öllu
ósáttari við það misrétti að börn í
Grafarvogi fái bara að velja um einn
hverfisskóla, Borgarholtsskóla,
á meðan að flest önnur börn
í Reykjavík geti valið um
tvo,“ segir Helgi. Jóhanna
Gestsdóttir, aðstoðar-
skólastjóri Seljaskóla, tek-
ur í sama streng. En Fjöl-
braut í Breiðholti (FB)
er eini hverfisskóli
nemenda í Breiðholti.
Nemendur í Selja-
skóla hafa hins vegar
alltaf leitað mikið í
FB og því hafi hún ekki orðið vör
við neina óánægju vegna innrituna-
reglnanna nú. „Við hvöttum krakk-
ana líka til að setja þann skóla sem
þau helst vildu í fyrsta sæti.“ FB,
Menntaskólinn við Sund og Kvenna-
skólinn hafi orðið fyrir valinu í flest-
um tilfellum. Í Norðlingaskóla voru
börn einnig hvött til að láta hjartað
ráða för. „Velflest barnanna fengu
sitt fyrsta val og mjög fá eru raunar
að fara í hverfisskólana,“ segir Sif
Vígþórsdóttir skólastjóri.
Verzlunarskóli Íslands, sem lengi
hefur verið í hópi vinsælustu fram-
haldsskóla, tekur að þessu sinni inn
alla þá nemendur hverfisskóla sem
stóðust innritunarkröfur. Þorkell H.
Diego, aðstoðarskólastjóri Verzlun-
arskólans, segir helming þeirra
nemenda annars hafa verið í sam-
keppni við nemendur annars staðar
að um skólavist. „Og við höfum allt-
af viljað vera Verzlunarskóli Ís-
lands, ekki bara Verzlunarskóli
Kringlunnar.“
Þorkell er þó mjög sáttur við for-
innritun í framhaldsskóla sem fram
fór í aprílmánuði og telur marga
nemendur hafa skoðað sín mál bet-
ur í framhald af henni og leitað að-
stoðar náms- og starfsráðgjafa.
Menntamálaráðherra er þessu sam-
mála. „Þetta er hluti af því sem við
teljum hafa verið mjög jákvætt og
við höfum fengið mjög jákvæð við-
brögð frá nemendum við,“ segir
Katrín.
Skipting framhaldsskóla eftir hverfum
MR
Kvennó
MH
Versló
MS
Borgó
FÁ
FM
Flensborg
Iðnsk. Hfj.
FG
MK
Framhaldsskólar:
MR:Menntaskólinn í Reykjavík
Kvennó: Kvennaskólinn í Reykjavík
MH:Menntaskólinn við Hamrahlíð
Versló: Verslunarskóli Íslands
MS:Menntaskólinn við Sund
FB: Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Borgó: Borgarholtsskóli
FÁ: Fjölbrautaskólinn í Ármúla
FM: Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ
Flensborg: Flensborgarskóli
Iðnsk. Hfj.: Iðnskólinn í Hafnarfirði
FG: Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
MK: Menntaskólinn í Kópavogi
Tæknisk.: Tækniskólinn*
*Almennar brautir fyrir nemendur úr grunn-
skólum vestan Elliðaáa. Ekki merkt á korti.
Grunnskóli Seltjarnarness MR Kvennó
Landakotsskóli
FB
Tjarnarskóli
Hagaskóli Austurbæjarskóli
HáteigsskóliMHVersló
Álftamýrarskóli FÁ
Hlíðaskóli
Hvassaleitisskóli
Laugalækjarskóli
Langholtsskóli
Vogaskóli MS
Réttarholtsskóli
Árbæjarskóli
Ingunnarskóli
Foldaskóli Borgó
HúsaskóliHamraskóli
Rimaskóli
Engjaskóli
VíkurskóliBorgarskóli
Norðlingaskóli
Breiðholtsskóli Hólabrekkuskóli
Fellaskóli
Ölduselsskóli FB
Seljaskóli
Varmárskóli
Lágafellsskóli FM
FM
Klébergsskóli FM
(Kjalarnesi)
Áslandsskóli
Hraunavallaskóli Flensborg
Hvaleyrarskóli
Lækjarskóli
Setbergsskóli
Víðistaðaskóli
Öldutúnsskóli
Iðnsk.Hfj.
Garðaskóli
Sjálandsskóli
Álftanesskóli Digr
anesskó
li HjallaskóliKársnesskóli
Kópavogsskóli
Lindaskóli
Salaskóli
Smáraskóli
Snælandsskóli
Vatnsendaskóli
FG
Hörðuvallaskóli
MK Skýringar:
Framhaldsskóli
Grunnskóli með unglingastig
Hverfisskólar viðkomandi grunnskóla
Flensborg Iðnsk.Hfj.
Flensborg Iðnsk.Hfj.
Flensborg Iðnsk.Hfj.
Flensborg Iðnsk.Hfj.
Flensborg Iðnsk.Hfj.
Flensborg Iðnsk.Hfj.
Iðnsk.Hfj.
Iðnsk.Hfj.
Iðnsk.Hfj.
Iðnsk.Hfj.
Iðnsk.Hfj.
Iðnsk.Hfj.
Iðnsk.Hfj.
Iðnsk.Hfj.
Iðnsk.Hfj.
Iðnsk.Hfj.
Iðnsk.Hfj.
Iðnsk.Hfj.
FG
FG
MK
MK
MK
MK
MK
MK
MK
MK
MK
FB
FB
FBFB
MS
MS
MS
MS
MS
MS
MR Kvennó
MR Kvennó
MR Kvennó MR MH
MHVersló
MH
FÁ
MHVersló
Versló
FÁ
FÁ
FÁ
FÁ
FÁ
Borgó
Borgó
Borgó
Borgó
BorgóBorgó
Borgó
Borgó
Borgó
MS
FB FG
SuðurhlíðarskóliMH
Tæknisk.
Hverfisskólar umdeild innritunar-
leið en þó ríkir meiri sátt en í fyrra
Forval í framhaldsskóla fær jákvæð viðbrögð Ekki geta allir valið úr sama fjölda hverfisskóla
Morgunblaðið/Golli
Hvert skal halda? Það getur reynst mörgum nemandum erfitt að ákveða í
hvaða framhaldsskóla sækja eigi um skólavist.
Mikil ásókn hefur jafnan verið í
þá skóla sem bjóða upp á
bekkjakerfi, en þeir eru ekki
nema sex á móti 32 brautar-
skólum. Menntamálaráðherra
segir ráðuneytið vissulega
skoða þessi mál. „Við munum
fara yfir ásóknina í skólana og
reyna að greina hvernig ferlið
virkaði.“
Það liggi fyrir að margir vilji
geta sótt í bekkjakerfið af því
að það tryggi visst öryggi, „Síð-
an heyrist líka oft kvartað yfir
að úrval í framhaldsskólum sé
of bóknámsmiðað.“ Eftirspurn í
bóknám hafi alltaf verið mikil,
en á sama tíma hafi brottfall
líka verið mikil. „Það bendir til
þess að fólk sæki ekki í eða
finni nám við hæfi. Því verð-
um við að horfa á málin út
frá þeirri stóru mynd,
hvernig við getum
dregið úr brottfalli og
gert fólki kleift að
finna nám við
hæfi.“
Brotfall líka
verið mikið
VINSÆLDIR BEKKJAKERFIS
Katrín Jakobsdóttir