Morgunblaðið - 07.07.2010, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2010
til að hlusta á hugmyndir okkar og
ræða þær, hvort sem um var að ræða
heimspeki, textafræði, málfræði,
borgarskipulag, landafræði eða
sagnfræði. Hann var flestum mönn-
um betur lesinn og hafði fræðilegan
áhuga á mörgum sviðum og brenn-
andi áhuga á að læra. Síðustu mán-
uðina í lífi sínu notaði hann til að
læra pólsku og portúgölsku, en hann
hafði ágæt tök á fjölmörgum tungu-
málum, bæði fornum og lifandi.
Kjartan hafði skemmtilega og sér-
staka kímnigáfu og það voru ófáar
sögurnar sem hann sagði okkur yfir
matarboðum og á góðum stundum.
Kjartan hafði sinn hátt á flestum
hlutum. Hann ákvað til dæmis strax
og ráðið var að hann flyttist til Nor-
egs að nota nýnorsku í Noregi. Þetta
þótti sumum sérkennilegt uppátæki
því nýnorska er ekki það mál sem
mest er notað í Osló eða sem útlend-
ingar yfirleitt reyna að tileinka sér.
En Kjartan sat við sinn keip og mun
hafa ritað óaðfinnanlega nýnorsku.
Sem kemur engum á óvart. Í upphafi
árs 2007 greindist Kjartan með
krabbamein. Fyrir hann, fjölskyldu
hans og vini hans var þetta mikið
áfall, sérstaklega þegar við sáum í
hvaða átt veikindin stefndu. Kjartan
tókst á við veikindi sín með mikilli
yfirvegun og baráttuvilja. Hann hélt
jafnaðargeði til leiðarloka. Við vinir
hans spurðum hann hvort það hellt-
ist ekki yfir kvíði og angist, þegar
ljóst var orðið hvert stefndi. Kjartan
svaraði því til, og er það dæmigert
fyrir hann, að jú, stundum gerðist
það en aldrei lengi í einu því hann
hefði lag á að fara fljótlega að hugsa
um eitthvað annað. Kjartan lá sein-
ustu daga sína í Osló á Radiumhosp-
italet, og það sem olli honum mest-
um áhyggjum var ef fólk gæti ekki
tekist á við veikindi hans á skyn-
samlegan og vitrænan hátt og haldið
aftur af tárunum þegar hann yrði
kvaddur, í síðasta sinn. Hans hinsta
ósk var að fá að komast heim til Ís-
lands og deyja þar. Honum varð að
ósk sinni. Við vinir hans og starfs-
félagar hér í Osló þökkum fyrir þær
alltof fáu stundir við fengum með
Kjartani, við höfum misst góðan
dreng.
Eyjólfur Kjalar og Arna
Mathiesen, Jón Viðar og Katrín
Dóra, Kristin og Tom, Jon
Gunnar og Sigrún.
Kjartan Ottósson var frábær
fræðimaður og afreksmaður á sviði
málvísinda.
Aðrir munu sjálfsagt gera fremd-
arverkum hans á því sviði viðhlítandi
skil.
En þar að auki var hann eitthvert
mesta ljúfmenni sem ég hef kynnst.
Það er þungt að sjá á bak jafn
mætum starfsbróður og félaga langt
um aldur fram.
Rósemi hans og æðruleysi til
hinstu stundar léttu velunnurum
hans erfiðan viðskilnað.
Hann skilur eftir hlýjar og góðar
minningar.
Helgi Haraldsson.
Það er mikill sjónarsviptir að
Kjartani Ottóssyni prófessor í Ósló,
sem nú er látinn langt fyrir aldur
fram. Hann var einn af okkar fremstu
málfræðingum, þekktur að gjörhygli
og vönduðum vinnubrögðum. Enda
hafði hann öðlast margháttaðan
frama og viðurkenningar í starfi. Þótt
hann hafi lengst af starfað á erlendri
grund voru viðfangsefni hans að
stórum hluta íslensk. Doktorsritgerð
hans frá Lundarháskóla fjallaði um
þróun miðmyndar í íslensku. Þegar
málfræðingar hafa mikið við í hóli um
verk kollega sinna segja þeir stund-
um að það sem hólið snýst um „verði
ekki betur gert“, og ég hygg að þetta
megi segja um ritgerð Kjartans.
Meginhluta ferils síns starfaði Kjart-
an við Háskólann í Ósló og taldist
einn helsti sérfræðingur heimsins í
sögu norrænna mála, ekki síst ís-
lensku og vesturnorrænu. Eftir hann
liggur fjöldi rita um þessi efni. En
hann átti jafnframt margt óunnið, og
á síðustu fundum okkar höfðum við
rætt um ýmiss konar samstarf, og
verður erfitt að fylla upp í þau göt í
þekkingunni sem eftir standa þegar
ekki verður lengur hægt að spyrja
Kjartan. Og óvíst er hvort eða hvern-
ig þeim verkum verður lokið sem
hann hafði á prjónunum.
Persónuleg kynni mín af Kjartani
voru ekki sérlega náin framan af,
enda hafa málfræðingar sjaldan
tíma til að ræða persónulega hluti
þegar stafkrókar eru annars vegar.
Eins og áður sagði starfaði hann í
Ósló lengst af og gerðist norskur
ríkisborgari. Og fundum okkar bar
ekki mjög oft saman. En mér er þó
minnisstæð samvera okkar á ráð-
stefnu í Svíþjóð fyrir tæpum áratug,
þar sem meðal annars var rætt um
málleg tengsl Noregs og Íslands.
Þar sagði Kjartan frá því yfir bjór-
glasi að hér áður fyrr, þegar norsk
skip komust í námunda við íslensk á
hafi úti, hefðu þeir norsku lagt á
flótta vegna fýlunnar sem lagði frá
íslensku skipunum. Í þessari sögu
var fólgin glettni ætluð okkur „Ís-
lendingunum“ á ráðstefnunni, full-
um af gorgeir um okkar merkilega
tungumál samanborið við nýnorsk-
una sem Kjartan var búinn að gera
að sínu „opinbera máli“. Og hann
fylgdi þessu eftir með því að gefa
greininni sem hann birti í ráðstefnu-
ritinu heiti sem þýða má sem
„Heimanorsk áhrif á íslensku“ (titill-
inn auðvitað á nýnorsku). Sú glettni
sem þarna kom fram var, þegar að
var gáð, einn ríkasti þáttur í skap-
ferli Kjartans.
Fyrir þetta og allan þann vísdóm
sem mér auðnaðist að læra af Kjart-
ani (mér talsvert yngri manni!) vil ég
þakka. Lífsnautn hans var frjó og
viljinn sterkur, þar til hann kom fyr-
ir skömmu, eins og hann orðaði það
sjálfur, alkominn heim. Ég sendi að-
standendum Kjartans innilegar
samúðarkveðjur.
Kristján Árnason.
Eitt uppáhalds tómstundagaman
málfræðinga er að segja sögur hver
af öðrum. Þar er raunar af nógu að
taka því að málfræðingar sem eitt-
hvað kveður að eru venjulega gott
söguefni. Kjartan Ottósson, kær vin-
ur minn og fjölskyldu minnar, var
sannarlega enginn hversdagsmaður.
Hann varð þjóðsagnapersóna á unga
aldri og náði orðstír hans langt út
fyrir raðir málfræðinga. Sameigin-
legur kunningi frá Bandaríkjunum
komst einhverju sinni svo að orði
þegar Kjartan bar á góma: „There’s
a guy who walks to the beat of his
own drum.“ Kjartan var gæddur
mikilli skarpskyggni og ótrúlegu
minni á alls konar staðreyndir enda
var lærdómur hans á mörgum
fræðasviðum með ólíkindum. Hann
hafði einnig til að bera þróaða en
nokkuð sérstaka kímnigáfu sem kom
viðmælendum oft þægilega á óvart.
Doktorsritgerð hans frá Lundi
fjallaði um miðmynd í íslensku og er
ítarlegasta úttekt sem til er á því
margslungna fyrirbæri. Kjartan
rannsakaði einnig fjölmörg önnur
efni og var einn fárra jafnvígur á
söguleg og samtímaleg málvísindi en
hafði auk þess djúpstæða þekkingu á
norrænni textafræði. Raunar var
Kjartan kominn vel af stað með aðra
doktorsritgerð, sem átti að fjalla um
íslenska setningafræði, þegar hann
fékk starf sem prófessor við háskól-
ann í Ósló árið 1992. Þar gat Kjartan
sér gott orð sem annars staðar þótt
ekki færi hjá því að einhverjir fyndu
til smæðar sinnar andspænis svo
gríðarmiklum lærdómsmanni. Ung-
ur norskur málfræðingur lýsti hon-
um í mín eyru sem „en ensom ulv“.
Það hygg ég þó að hafi ekki verið alls
kostar rétt því að Kjartan átti sæg
vina og kunningja í Ósló og var
óþreytandi að kynna mig fyrir mörg-
um þeirra þegar ég dvaldist vetur-
langt í borginni árið 2004-05. Við
Kjartan tókum þar þátt í alþjóðlegu
verkefni um söguleg málvísindi á
vegum norsku vísindaakademíunn-
ar. Fór ekki hjá því að okkur yrði
skrafdrjúgt um fræði okkar þennan
vetur og kynntumst við þá býsna vel.
Kjartan bauð mér að auki að vera
með í leshópum um ýmis æðri við-
fangsefni, t.d. forngrískar mállýskur
og hetítíska textafræði. Þess á milli
fórum við gjarnan á menningarleg-
ustu bjórkrá í Ósló – Underwater
Pub – þar sem ungir og upprennandi
söngvarar fluttu rómaðar óperu-
aríur. Þegar fjölskylda mín kom til
Óslóar um vorið lék dætrum mínum
þrem forvitni á að sjá þennan umtal-
aða vin minn. Sá Kjartan sem þær
kynntust var ekki alvörugefinn
fræðaþulur heldur glettinn og
skemmtilegur félagi sem bauð okkur
heim eitt kvöldið sérstaklega í því
skyni að kynna Bítlana fyrir stúlk-
unum. Raunar varð þessi plötukynn-
ing nokkuð ítarleg þannig að komið
var fram á rauðanótt þegar hinni
ógleymanlegu kennslustund lauk.
Að endingu bauð húsráðandi upp á
„röndóttan ís“ í öllum regnbogans
litum eins og til að verðlauna nem-
endurna fyrir ástundunarsemina og
hann hefur síðan átt sérstakan stað í
hjarta þeirra. Ljúfar endurminning-
ar um góðan dreng sem féll frá langt
um aldur fram gera okkur sem eftir
lifum söknuðinn ögn léttbærari.
Þórhallur Eyþórsson.
Þriðjudaginn síðastliðinn fékk ég
þær sorgarfréttir að vinur minn til
margra ára Kjartan G. Ottósson
væri látinn. Fréttin kom ekki á
óvart, þar sem ég vissi að heilsu
hans hafði hrakað mikið frá því ég
ræddi við hann síðast í mars sl. Ég
var þá að undirbúa heimsókn til hans
í Ósló nú í byrjun júlí. Hann var að
vanda bjartsýnn á heilsu sína og lét
vel af sér í því samtali.
Vinátta tókst með okkur Kjartani
þegar hann gekk til liðs við unga
jafnaðarmenn. Það kom fljótt í ljós
að þarna var á ferð maður með mikla
þekkingu á þjóðmálum, sterka sann-
færingu og ríka réttlætiskennd.
Hann varð fljótt einn af hugmynda-
fræðingum okkar enda hafði hann
sett sig vel inn í grunn jafnaðar-
stefnunnar. Kjartan var ekki maður
skyndiákvarðana. Hann velti málun-
um fyrir sér og undirbjó hverja
ákvörðunartöku af kostgæfni og var
því rökfastur þegar þurfti. Áhugi
hans á þjóðmálum og jafnaðarstefnu
leiddi til þess að hann ásamt okkur
nokkrum félögum hélt úti tímariti
um þessi mál þar sem dýpra var
seilst en í hinni daglegu umræðu.
Kjartan var potturinn og pannan í
skrifum og var ritstjóri tímaritsins
þar til hann hélt til náms erlendis. Á
háskólaárunum stóð hann fyrir
stofnun félags umbótasinnaðra stúd-
enta. Kjartan var ekki sá sem stóð í
fremstu línu heldur var smiðurinn
sem undirbjó hinn hugmyndafræði-
lega grunn.
Kjartan var mikill náms- og
tungumálamaður. Hann lauk dokt-
orsprófi frá Lundi en stundaði sam-
tímis doktorsnám í Washington.
Málvísindi og tungumál áttu hug
hans eftir því sem hann kafaði dýpra
í þau fræði. Hann gat lesið á fjölda
tungumála og var talandi á allmörg
þeirra.
Kjartan var mikill fræðimaður
sem var stöðugt við vinnu og þótti
vandaður á allan hátt í verkum sín-
um. Málvísindi og norræn fræði hafa
misst merkan fræðimann sem var
hafsjór af vitneskju sem hann átti
eftir að koma á framfæri.
Þrátt fyrir að frá árinu 1980 vær-
um við Kjartan sjaldan í sama landi
héldum við ávallt sambandi og heim-
sóttum hvor annan eftir því sem við
varð komið. Á stefnumótum okkar
áttum við gjarnan samtöl um mál-
efni líðandi stundar og skiptumst á
upplýsingum um viðfangsefni hvor
annars. Þessi samskipti voru okkur
báðum gefandi þótt störf okkar
væru mjög ólík – hann málvísinda-
maður en ég verkfræðingur. Kjartan
hafði ekki aðeins áhuga á mér og
mínum málefnum heldur var hann
mjög áhugasamur um alla fjölskyld-
una og spurðist alltaf fyrir um dæt-
urnar og gengi þeirra.
Kjartan tókst á við sjúkdóm sinn
af æðruleysi og bjartsýni allan tím-
ann frá því hann greindist og lét
aldrei bilbug á sér finna. Hann hélt
ótrauður áfram að skrifa og senda
frá sér fræðigreinar þrátt fyrir erfið
veikindi.
Skarð hefur myndast í hug okkar
allra sem kynntumst og nutum fé-
lagsskapar Kjartans.
Ég vil að lokum senda Gyðu og
systkinum hans þakklæti fyrir að
leyfa mér að kveðja hann hinsta
sinni ásamt þeim við kistulagningu
þar sem ég var á förum utan.
Tryggvi Jónsson.
Vinningaskrá
7. FLOKKUR 2010
ÚTDRÁTTUR 6. JÚLÍ 2010
Kr. 3.000.000
Aukavinningar kr. 100.000
4102 4104
Kr. 500.000
14028 16848 19405 23993 30418 34457 34508 40025 51618 69111
Kr. 100.000
17 1677 18583 22199 39216 54584 60803 62552 66505 68843
Kr. 5.000.-
á miða sem hafa eftirfarandi endatölur:
26 91
231 6934 13136 20430 26716 32224 39988 46923 54153 58762 64243 7105
756 7010 13377 20442 26791 32368 40195 47130 54211 58886 64829 7129
924 7236 13445 20739 26801 32735 40602 47229 54217 58903 65024 71304
1363 7668 13818 21062 26883 32955 40631 47395 54539 59318 65089 71444
1423 8346 14096 21064 27174 33312 40758 48494 54707 59628 65153 7144
1585 8380 14194 21620 27399 33387 41138 48703 54737 59845 65323 7174
1612 8492 14423 21637 28072 33713 41189 48757 54921 59865 65418 71794
1686 8558 14571 21768 28207 33791 41581 49039 55045 60444 65581 7185
2159 8743 14690 22089 28237 34370 41845 49051 55323 60641 66083 7192
2421 9107 15083 22302 28469 34476 41926 49141 55347 60648 66197 7194
2535 9234 15336 22349 28498 34818 42030 49417 55408 60692 66352 7199
2579 9318 15379 22507 28525 34821 42054 49445 55789 60878 66568 7238
3170 9557 16050 22926 28699 34893 42495 49450 55884 60956 66622 7253
3379 9718 16051 23033 29149 35178 42516 49577 56432 61112 66792 72534
3411 9916 16151 23068 29223 35187 42550 49610 56456 61370 66899 7254
3490 10209 16441 23070 29311 35248 42605 49617 56587 61486 67119 7272
3635 10216 16487 23595 29579 35439 43053 49697 56634 61628 67135 72754
3644 10339 16516 23663 29762 35625 43139 50041 56651 61985 67362 72964
3857 10440 16634 24060 29845 35930 43274 50575 56719 62193 67615 7310
3859 10483 16681 24069 30034 36371 44125 50721 56722 62238 68007 73114
3954 10888 17292 24500 30260 36448 44271 51184 56939 62621 68218 7345
4083 11026 17317 24777 30296 36676 44779 51188 56956 62741 68334 7347
4188 11226 17411 24860 30633 36986 44868 51203 57063 62803 68506 7395
4499 11439 17733 24870 30728 37051 44978 51798 57069 62816 68649 7424
4508 11578 17938 25059 30740 37399 45070 52438 57162 62819 68706 7429
5215 11965 18213 25394 30800 37510 45407 52618 57572 62875 69416 7478
5382 12229 18352 25561 30937 37676 45472 52693 57585 62878 69603
5688 12349 18355 25623 31168 37954 45531 52706 57613 62909 69717
5826 12690 18392 25717 31468 38412 45973 53095 57712 63147 69814
5986 12729 18578 25915 31616 38449 45988 53117 57911 63220 70247
6272 12926 18949 26231 31828 38674 46076 53292 58289 63269 70430
6546 12928 19076 26397 31918 39435 46150 53487 58355 63472 70588
6898 13027 19411 26552 32054 39545 46320 53738 58523 63596 70800
6907 13124 19537 26620 32129 39869 46444 54109 58662 63866 70903
Kr. 15.000
16 7065 12687 19499 26308 32077 37182 43188 49283 56543 63361 6922
52 7153 12731 19818 26488 32115 37304 43203 49314 56614 63704 6925
75 7199 12773 19835 26508 32133 37432 43302 49382 56687 63753 6930
125 7298 12891 19851 26513 32186 37480 43320 49554 56754 63773 6932
218 7315 13047 19856 26736 32220 37496 43334 49628 57079 63964 6936
555 7369 13110 19924 26780 32369 37526 43444 49795 57170 64016 6977
563 7435 13133 19943 26901 32380 37563 43602 49814 57342 64153 6986
825 7454 13176 20136 27283 32393 37596 43607 49936 57346 64236 6998
870 7547 13244 20151 27317 32422 37838 43658 50049 57541 64272 7001
972 7707 13310 20186 27415 32437 38092 44020 50064 57546 64380 7012
1067 7917 13386 20225 27451 32439 38108 44078 50290 57766 64406 7020
1158 7970 13561 20246 27535 32555 38115 44345 50651 57981 64488 7038
1162 7981 13634 20347 27566 32581 38492 44516 51046 57986 64527 7048
1358 8030 13680 20481 27721 32666 38577 44578 51139 58051 64636 7049
1654 8031 13805 20538 27783 32682 38597 44647 51276 58157 64689 7052
1777 8174 13985 20639 27990 32701 38875 44704 51487 58166 64851 7055
2218 8211 14074 20723 28016 32800 39107 44757 51517 58200 64860 7069
2334 8312 14208 20728 28092 32817 39134 44803 51553 58284 64880 7069
2456 8430 14406 20892 28197 32937 39295 44856 51768 58312 64928 7084
2651 8482 14407 20939 28252 33120 39311 44883 51830 58329 65113 71024
4103
Kr. 25.000
2771 8604 14410 21124 28267 33201 39389 44890 52057 58471 65140 71164
2854 8703 14580 21315 28310 33416 39446 44914 52273 58488 65151 71166
3182 8707 14646 21451 28374 33417 39481 44929 52354 58600 65196 71187
3206 8961 14698 21561 28590 33418 39517 44968 52377 58668 65217 71487
3296 8968 14748 21778 28605 33425 39699 45020 52439 58909 65282 71532
3427 8992 14753 21898 28608 33522 39778 45087 52476 58943 65327 71574
3456 9055 14792 21939 28708 33545 39805 45325 52603 58955 65534 71669
3594 9066 15148 21968 29034 33779 39902 45420 52747 59009 65565 71778
3631 9080 15455 21976 29089 33798 39906 45421 52754 59174 65646 71865
3746 9170 15616 21998 29102 33815 39935 45544 52760 59185 65741 72184
3751 9207 15823 22014 29111 33879 40006 45638 52900 59320 65829 72204
3769 9406 15851 22212 29138 34029 40017 45676 52968 59341 65850 72497
3795 9468 16015 22237 29205 34115 40138 45837 52997 59403 65984 72540
3869 9556 16097 22297 29221 34400 40437 45864 53002 59513 66045 72613
3988 9612 16158 22298 29275 34478 40522 45878 53085 59673 66142 72684
4098 9666 16214 22528 29284 34499 40598 45880 53179 59755 66165 72732
4467 9993 16225 22545 29329 34560 40653 45894 53218 60053 66190 72854
4547 10008 16286 22607 29431 34665 40655 46228 53377 60411 66331 73006
4553 10128 16309 22805 29655 34693 40732 46319 53393 60586 66334 73178
4684 10152 16313 22847 29764 34781 40805 46324 53638 60649 66337 73222
4718 10263 16559 22922 30038 34844 41049 46335 53663 60861 66403 73230
4741 10408 16673 22938 30041 35059 41265 46424 53866 60870 66659 73377
4816 10537 16718 23153 30074 35258 41291 46457 53891 60913 66905 73558
4897 10576 16781 23401 30317 35274 41304 46582 54016 60998 66954 73618
4932 10652 16809 23508 30323 35340 41715 46596 54104 61010 67114 73658
4969 10654 16820 23588 30419 35371 41726 46686 54123 61167 67315 73762
5192 10764 16834 23657 30458 35447 41740 46874 54156 61223 67381 73768
5383 10943 16871 23686 30630 35449 41804 47064 54168 61316 67395 73777
5405 11033 16971 23720 30674 35503 41888 47342 54223 61535 67605 73805
5502 11113 17374 24224 30730 35607 41938 47358 54236 61650 67698 73888
5503 11180 17493 24251 30780 35817 41998 47628 54334 61665 67744 74054
5576 11298 17564 24497 30870 35827 42007 47698 54532 61691 67751 74165
5622 11314 17655 24836 30925 35857 42139 47748 54589 61757 67764 74166
5881 11418 17770 24850 31236 35953 42153 47767 54597 61788 67775 74198
5990 11430 17865 24875 31247 36018 42329 47801 54810 61907 67829 74239
5992 11466 17901 24884 31267 36045 42528 48025 54908 61944 67863 74287
6024 11707 17952 24900 31270 36068 42692 48212 55017 62144 67928 74369
6306 11813 17997 25182 31375 36178 42771 48220 55633 62171 67947 7451
6336 11938 18168 25233 31404 36190 42789 48245 55689 62427 68070 74638
6404 12032 18357 25339 31410 36306 42798 48382 55800 62521 68143 74657
6409 12129 18456 25464 31488 36377 42807 48456 55943 62681 68185 74826
6513 12267 18830 25905 31599 36460 42858 48567 55972 62797 68205 74935
6542 12268 18879 26074 31744 36503 42883 48596 56038 62927 68470 74943
6594 12282 19052 26149 31926 36559 42935 48615 56074 62970 68523
6659 12352 19173 26205 31932 36618 42980 49017 56104 63206 68607
6705 12437 19185 26299 31973 36979 43066 49054 56443 63332 68733
6810 12602 19447 26300 32057 36980 43111 49213 56459 63342 69104
Afgreiðsla vinninga hefst þann 20. júlí 2010
Birt án ábyrgðar um prentvillur