Morgunblaðið - 07.07.2010, Qupperneq 32
Þetta er áhrifa-
mikil plata með
strengja og
píanóþunga-
miðju. Hún nær
góðum tengslum
við það tilfinn-
ingaróf sem hún
gerir að viðfangsefni sínu, en það eru
umskipti úr erfiðleikum og þunga í
gleði og léttleika. Ólafi tekst líka að
láta manni finnast sem maður sé á ró-
legum stað eftir mikil átök. Kannski
situr maður í dögun á brotnum trjá-
stúf á Kyrrahafseyju eftir ofsaviðri
kvöldið áður og fylgist með sól nýs
dags rísa við sjóndeildarhringinn í al-
gjöru logni. Lík tættra frumbyggja
geta líka verið á víð og dreif, ef mönn-
um finnst hitt of óspennandi. Ólafur
meðhöndlar næmni og gætni svo vel
að erfitt er að hlusta óhrærður og
finna narratív við tónlistina en auð-
velt er að bregða sér upp myndum
fyrir hugskotssjónir. „Þú ert sólin“ er
gott byrjunarlag fyrir plötuna og seg-
ir okkur mikið um það sem koma
skal. Lagið, leitt af píanói, býður okk-
ur ýmsar af þeim sveiflum sem við
eigum eftir að kynnast og oft og tíð-
um sér maður hvað Ólafi tekst að
gera mikið við fáeinar píanónótur
með því einu að breyta umhverfi
þeirra. Næsta lag „Þú ert jörðin“ er
næmt og í samhengi plötunnar má
auðveldlega segja að hér leiki allt í
lyndi. Hlutirnir verða aðeins flóknari
í „Tunglið“ þar sem við fáum að kynn-
ast melódíu ríkri af píanói, áslátti og
dramatískum strengjum sem fá að
springa út og blómstra. Niðurlag
lagsins er hins vegar rólegt og dapurt
og leiðir okkur inn í myrka hluta plöt-
unnar. „Loftið verður skyndilega
kalt“ er lýsandi titill á laginu sem
platan hverflast um og við mætum fá-
tæklegum tómleika í „Kjurrt.“ Þetta
lag gerir ekki mikið fyrir mig en ekki
er hægt að segja að það eigi ekki
heima á þessum stað plötunnar, en
mörg önnur lög hefðu gert það líka.
Næsta lag, „Gleypa okkur“ er frábær
og mjög ánægjuleg samsetning. Það
byrjar á rólegum nótum og fljótlega
falla trommur og drumbur við það
sem maður bjóst ekki við, melódían
skýrist sífellt og maður er alltaf að
uppgötva eitthvað nýtt í hverri
hlustun, eins og maður skilji það sí-
fellt betur enda flettist ofan af því og
ótal hljómar bætast við. Ég er mjög
hrifinn af þessu lagi sem er fyrirrenn-
ari birtunnar í „Hægt, kemur ljósið.“
Þar rofar til í enn einu réttnefninu og
styrkleikar plötunnar sýna sig í
seinni hlutanum. Með hliðsjón af því
sem á undan er gengið, verður manni
ljóst hversu vel heppnuð heildin er.
Næstsíðasta lagið „Undan hulu“ und-
irbýr okkur rólega fyrir endalokin en
mér finnst það gott og jafnframt leið-
inlegt. Hins vegar er ómögulegt að
skilja ósáttur við ferðalagið með „Þau
hafa sloppið undan þunga myrkurs-
ins“ enda léttir yfir manni og plötunni
hefur tekist ætlunarverk sitt.
Áhrifamikið, vítt og litríkt róf
Geisladiskur
Ólafur Arnalds - Þau hafa sloppið
undan þunga myrkursins bbbbn
GUÐMUNDUR EGILL
ÁRNASON
TÓNLIST
Ný plata Ólafi Arnalds tekst einstaklega vel upp með nýju plötu sinni.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2010
SÝND Í ÁLFABAKKA
GLAUMUR, GLAMÚR OG
SKÓR ERU MÁLIÐ Í SUMAR
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
STRANGLEGA BÖNNUÐ
BÖRNUM
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
Í , I I, I Í
Ein vinsælasta
mynd sumarsins
Kirsten Stewart, Robert Pattinson
og Taylor Lautner eru mætt í þriðju
og bestu myndinni í Twilight
seríunni
„BESTA TWILIGHT MYNDIN TIL ÞESSA“
- ENTERTAINMENT WEEKLY
HHHH
- P.D. VARIETY
HHHH
- K.H. THE HOLLYWOOD REPORTER
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
HHHHH
“ÓMENGUÐ SNILLD YST SEM INNST.”
“HÚN HEFUR SVO SANNARLEGA ALLA
BURÐI TIL AÐ VERÐA VINSÆLASTA OG
BESTA MYND SUMARSINS”
S.V. - MBL
HHHHH
- P.H. BOXOFFICE MAGAZINE
HHHHH
„ÞETTA VERÐUR EKKI MIKIÐ BETRA“
- Þ.Þ FRÉTTABLAÐIÐ
HHHH
"TOY STORY 3 ER ÞAÐ BESTA
SEM ÉG HEF SÉÐ Í BÍÓ Á ÞESSU
ÁRI HINGAÐ TIL OG ÉG GET
EKKI BEÐIÐ EFTIR AÐ SJÁ HANA
AFTUR!"
- T.V. KVIKMYNDIR.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
BOÐBERI kl.3:40-5:50-8-10:20 14 LEIKFANGASAGA 3 3D m. ísl. tali kl. 3:203D -5:403D L
TWILIGHT SAGA : ECLIPSE kl.3:20-6-8-8:30-10:40-11 12 LEIKFANGASAGA 3 m. ísl. tali kl. 1 - 3:20 - 5:40 L
TWILIGHT SAGA : ECLIPSE kl. 3:20 - 6 - 9:20 VIP-LÚXUS TOY STORY 3 m. ensku tali kl. 10:20 12
A NIGHTMARE ON ELM STREET kl. 10:50 16 PRINCE OF PERSIA kl. 5:40-8 10
SEX AND THE CITY 2 kl. 8 12 AÐ TEMJA DREKANN SINN kl. 3:40 L
/ ÁLFABAKKA
BOÐBERI kl. 8:10-10:30 12
TWILIGHT SAGA : ECLIPSE kl. 5:30-8-10:20-10:40 12
LEIKFANGASAGA 3 3D m. ísl. tali kl. 5:403D Sýnd á morgun L
TOY STORY 3 3D m. ensku tali kl. 83D L
/ KRINGLUNNI
Bandaríski rapparinn Snoop Dogg
hélt partí eftir tónleika sína á hátíð-
inni Wireless í Lundúnum síðastlið-
inn laugardag. Það væri ef til vill
ekki í frásögur færandi nema fyrir
þær sakir að gestalisti hans saman-
stóð einungis af kvenmönnum.
Yfir hundrað konur létu sjá sig á
skemmtistaðnum West End’s
Merah, þar sem partíið var haldið,
en þar var gæslan hin strangasta.
„Öryggisverðirnir voru með aug-
un opin fyrir fallegum konum sem
Dogg myndi vilja hitta. Fyrir utan
voru tveir risastórir dyraverðir
sem pössuðu upp á að karlmenn
kæmust ekki inn fyrir hússins dyr.
Þeir hleyptu ekki einu sinni inn
þeim karlkyns starfsmönnum
staðarins sem komu með kampavín-
ið,“ var haft eftir einum kvenkyns
gesti rapparans.
Dogg vill
aðeins konur
Dogg Rapparinn er ekkert sérlega
gefinn fyrir karlmenn.