Morgunblaðið - 07.07.2010, Síða 36
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 188. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Dó í miðri vampírumynd
2. Fjölskylda fórst í bílslysi
3. Áttu 1,3 milljarða í banka
4. Klámmynd tekin upp í sjúkrahúsi
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Listmálarinn Hafsteinn Austmann
færði Kópavogsbæ fyrir helgi olíu-
málverk að gjöf sem þakklætisvott
fyrir að halda sýningu á verkum sín-
um í Gerðarsafni í vor. Guðrún Páls-
dóttir, bæjarstjóri Kópavogs, veitti
gjöfinni viðtöku.
Færði Kópavogsbæ
olíumálverk
Smekkleysa gaf
út geisladiskinn
Hymnodia sacra í
vikunni. Á honum
má finna lög úr
samnefndu ís-
lensku handriti,
sem er stærsta
nótnahandrit frá
18. öld sem varð-
veist hefur hér á landi. Kammerkór-
inn Carmina og kammerhópurinn
Nordic Affect flytja lögin, sem útsett
eru af Árna Heimi Ingólfssyni. »27
Smekkleysa gefur
út geisladisk
Ari Matthíasson hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins
og mun hann hefja störf er
leikhúsið tekur til starfa að
loknu sumarleyfi.
Ari er með BFA-gráðu í
leiklist frá Leiklistar-
skóla Íslands, MBA-
gráðu í stjórnun og
rekstri frá Háskól-
anum í Reykjavík
og MSc-gráðu í
hagfræði frá Há-
skóla Íslands.
Nýr framkvæmda-
stjóri Þjóðleikhússins
Á fimmtudag Norðan 8-13 m/s vestanlands, en hægari annars staðar. Rigning á N- og
A-landi, en annars skýjað með köflum og þurrt að kalla. Hiti 6 til 17 stig, hlýjast SV-lands.
Á föstudag og laugardag Norðlæg eða breytileg átt og rigning með köflum eða skúrir.
Hiti svipaður.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 13-20 m/s. Rigning sunnan- og suðaustanlands, en
annars úrkomulítið. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast suðvestantil.
VEÐUR
Valur lagði Breiðablik að velli,
2:1, í uppgjöri tveggja efstu
liðanna í úrvalsdeild kvenna í
fótbolta í gærkvöld og náði
með því fjögurra stiga forystu
í deildinni. Valur er með 23
stig en Þór/KA, sem vann Aft-
ureldingu 4:0, komst í annað
sætið með 19 stig. Rakel
Hönnudóttir skoraði þrennu
fyrir Akureyrarliðið. Fylkir
vann Grindavík, FH lagði
Hauka og Stjarnan og KR
skildu jöfn. »4
Valur náði fjögurra
stiga forystu
Spánn og Þýskaland bítast í kvöld um
réttinn til að mæta Hollendingum í
úrslitaleik heimsmeistaramótsins í
knattspyrnu á sunnudaginn. „Ég hef
aldrei efast um hæfileika þessa liðs
eða þroska. Leik-
menn hafa sýnt
að þá þyrstir í
sigur eins og
verð-
uga
heims-
meist-
ara,“ segir
Joachim Löw,
þjálfari hins öfluga
þýska liðs sem
hefur komið
skemmtilega á
óvart í keppninni.
»2
Aldrei efast um hæfi-
leika eða þroska liðsins
„Fram að þessu hefur tímabilið verið
hreint helvíti og þetta var eiginlega í
fyrsta skipti á árinu sem ég var virki-
lega tilbúinn til að spila og laus við
meiðsli,“ segir Veigar Páll Gunn-
arsson, landsliðsmaður í knatt-
spyrnu, sem skoraði þrennu í norsku
úrvalsdeildinni í fyrrakvöld, en hann
hefur verið þjakaður af meiðslum
undanfarna mánuði. »2
Tilbúinn til að spila í
fyrsta skipti á árinu
ÍÞRÓTTIR
Í lok mars missti Júlíus Már
Baldursson, bóndi á Tjörn á Vatns-
nesi, allt sitt í stórbruna. Hann hefur
ræktað landnámshænur í rúm 30 ár
og búið hans var það stærsta á land-
inu með sterkum og fjölbreyttum
ræktunarstofni. Hann vaknaði
klukkan rúmlega fjögur um nóttina
við hávaða og hljóp út.
„Þegar ég kom út logaði meðfram
öllum þakskeggjum og út um alla
glugga. Það var allt alelda þegar ég
vaknaði,“ segir hann.
Hænurnar, um 200 ungar og 970
egg brunnu inni en Júlíus segir að
ungarnir hafi átt að klekjast út eftir
þrjá daga. „Ég var farinn að heyra
tíst í eggjunum.“
Júlíus er hugaður maður og segir
ekki annað koma til greina en að bíta
á jaxlinn og horfa fram á við.
Styðja hugsjónamann
Reikningur hefur verið stofnaður
til að hjálpa Júlíusi við uppbygg-
inguna og eru menn hvattir til stuðn-
ings. VB-Landvélar telja það mikil-
vægt að styðja við bakið á
hugrökkum hugsjónamönnum og
hafa fært Júlíusi útungunarvél sem
sér um að snúa um 75-80 eggjum
sjálfkrafa. Þeim sem vilja kynna sér
málið betur er bent á heimasíðuna
www.islenskarhaenur.is. Júlíus er
snortinn og þykir gott að finna fyrir
stuðningi hjá fólki eftir áfallið.
MEldurinn eirði engu »9
Missti allt sitt í stórbruna
Hænsnabúið, útihúsin, verkfærageymslan og bílskúrinn brunnu til kaldra kola
Júlíus gefst ekki upp, heldur ótrauður áfram og ætlar að byggja búið upp aftur
Dýravinur Júlíus með landnáms-
hænum sínum fyrir brunann.
Harmleikur á Tjörn
» Sprengingar og drunur urðu
til þess að Júlíus vaknaði um
hánótt og blasti við honum
stórbruni.
» Júlíus er öryrki eftir veikindi
og slys og hefur því ekki mikið
milli handanna til að byggja
upp búið né standa undir háum
lánum. Hann hefur nú fengið
veglegan styrk.
» Eftir rannsóknir á stórbrun-
anum kom í ljós að eldurinn
hafði kviknað út frá rafmagni.
Betur gekk að út-
vega nýnemum í
framhaldsskólum
skólavist en í
fyrra og svo virð-
ist sem meiri sátt
ríki um þá leið
sem nú var valin
við innritun, þ.e.
vegna forgangs
nemenda í hverfisskóla.
Ekki eru þó allir á eitt sáttir um
innritunarleiðina. Þá er einnig gagn-
rýnt að nemendur í sumum hverfum
í Reykjavík eigi aðeins aðgang að
einum hverfisskóla en nemendur í
öðrum hverfum geti valið á milli
tveggja hverfisskóla. »14
Innritanir
ekki eins
umdeildar
Misjafn fjöldi hverfis-
skóla til að velja úr
Kristján Hauksson, fyrirliði Framara í fótbolta, var
einn fárra sem komust í gegnum inntökupróf lækna-
deildar Háskóla Íslands í ár. Áður hafði þessi mikli
keppnismaður lokið námi í verkfræðideild Háskólans
í Reykjavík. Hann hefur verið einn besti leikmaður
Fram í sumar og átt stóran þátt í velgengni liðsins. »4
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Fjölhæfur fyrirliði lærir til læknis