Morgunblaðið - 09.07.2010, Side 1
Heilsíðuauglýsingar Haga
Fyrri hluta árs 2010
3%
97%
Á fyrri hluta þessa árs keyptu
fyrirtæki í eigu Haga ígildi 396
heilsíðna af auglýsingum í dag-
blöðum. Af þeim voru 383, eða 97%,
í Fréttablaðinu, en 13, eða 3%, í
Morgunblaðinu. Fyrirtækin sem um
ræðir eru Bónus, Hagkaup, Útilíf
og Debenhams. Þetta kemur fram í
nýrri samantekt Capacent Gallup.
Á sama tímabili keyptu 100 stærstu
fyrirtæki landsins, sem ekki eru í
eigu Haga, ígildi tæplega fjögur
þúsund heilsíðna af auglýsingum.
Þar var dreifingin mun jafnari, eða
60% í Fréttablaðinu og 40% í Morg-
unblaðinu. »9
Nær allar auglýs-
ingar í Fréttablaðinu
F Ö S T U D A G U R 9. J Ú L Í 2 0 1 0
Stofnað 1913 158. tölublað 98. árgangur
APPELSÍNURAUÐ
SKULU BROSIN
VERA Í SUMAR
GLEÐIBÖLL
Á TVEIMUR
STÖÐUM
NEIL PATRICK
HARRIS GÆTI
UNNIÐ VERÐLAUN
STYRKJA GAY PRIDE 36 TILNEFNING TIL EMMY 39HEITAR VARIR 10
Töluverður
samdráttur virð-
ist vera í stofnun
einkahlutafélaga
á þessu ári.
Þannig voru
um þriðjungi
færri einka-
hlutafélög skráð
hjá Fyrirtækja-
skrá á fyrstu sex mánuðum þessa
árs en í fyrra. „Á tímabilinu janúar
til júní 2010 voru 899 einkahluta-
félög skráð hjá okkur,“ segir Skúli
Jónsson, forstöðumaður Fyrir-
tækjaskrár. „Það er um 430 fé-
lögum færra en var á sama tíma í
fyrra.“ » 6
Þriðjungsfækkun
í skráningu
„Það er okkar sem samfélags að
búa þannig um hnútana að það
verði aðlaðandi fyrir þetta unga
fólk að koma heim. Svarið er
óskaplega flókið og snýst ekki
nema að hluta til um laun. Þetta
snýst um fjölbreytni í þjón-
ustunni og svo mætti lengi
telja,“ segir Sigurður Guð-
mundsson, forseti heil-
brigðisvísindasviðs Háskóla
Íslands. Hann telur að hluti
vandans sé ósveigjanleiki
stjórnvalda í heilbrigðis-
geiranum. „[Það] er mjög
erfitt að horfa upp á ónot-
aðar byggingar sem nýtast
ekki fyrir íslenska heil-
brigðisþjónustu og má ekki nota
fyrir einkarekna heilbrigðis-
starfsemi.“
Hann segir að margir ís-
lenskir læknar kjósi heldur að
vinna í einkareknu heilbrigð-
isumhverfi. Það kunni að út-
skýra hvers vegna fjölmarg-
ir þeirra snúi ekki aftur
heim eftir sérnám í útlönd-
um.
Sigurður segir að ekki
komi til greina að fjölga
læknanemum til að sporna
við læknaskortinum hér á
landi. „Við sjáum ekki að svar
okkar hér á landi sé að fjölga
útskrifuðum læknum.“ »4
Breytingar á heilbrigðiskerfinu eru nauð-
synlegar til að laða heim íslenska lækna
Fjárfestingarbankinn Askar Capital var hluti af Milestone-veldi Karls og
Steingríms Wernerssona. Bankinn var stofnaður árið 2007 og var forstjóri
þá Tryggvi Þór Herbertsson. Við stofnunina var tilkynnt að starfsmenn
hans væru um 80 og starfsstöðvar væru á Íslandi í Lúxemborg og Rúmeníu
og að ætlunin væri að opna í þremur löndum til við-
bótar. Askar var mikið í svokölluðum fast-
eignaverkefnum og hafði umsvif víða.
Verkefnin gengu þó misjafnlega, m.a.
tapaði félagið 1,4 milljörðum á húsi
með þremur lúxusíbúðum í Hong Kong
eða 1,2 milljónum á hvern fermetra. Út-
reiðin í Hong Kong var þó aðeins dropi í
hafið. runarp@mbl.is
Umsvif víða um heim
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Viðræður um kaup Saga Capital á
hluta starfsemi Askar Capital eru á
byrjunarstigi. Þetta staðfestir Þor-
valdur Lúðvík Sigurjónsson, for-
stjóri Saga Capital. Askar Capital
eru þessa dagana á vonarvöl, en
eignaleigu- og bílalánafyrirtækið
Avant er í 100% eigu Askar. 6,6 millj-
arða krafa á Avant er jafnframt
stærsta eign Askar, en heildareignir
nema um 10,5 milljörðum. Avant
tapaði um fjórum milljörðum króna á
síðasta ári, og staða fyrirtækisins
hefur versnað enn frekar í kjölfar
dóms Hæstaréttar um ólögmæti
gengistryggingar lánsfjár. Saga
Capital á um 18% hlut í félaginu Ask-
ar, sem segja má að sé tæknilega
gjaldþrota. Forstjóri Askar, Bene-
dikt Árnason, lét hafa eftir sér á dög-
unum að félagið uppfyllti ekki kröfur
FME um eiginfjárstöðu.
Tveir möguleikar í stöðunni
Talsverðrar eiginfjárinnspýtingar
er þörf til að Askar Capital geti
starfað áfram í sömu mynd. Ólíklegt
er talið að af því verði. Þannig eru
tveir möguleikar sagðir vera í stöð-
unni: Askar verði sett í þrot eða
reynt verði að auka virði eigna bank-
ans. Ein leið til þess væri að breyta
skuldum fyrirtækisins í hlutafé og
skipta starfseminni upp milli kröfu-
hafa. Saga Capital er sagt hafa
áhuga á að kaupa þann hluta Askar
er sneri að ráðgjöf og gerð hagspáa.
Þreifingar
um kaup Saga
á hluta Askar
Mikil óvissa um örlög Askar Capital
Askar á Avant sem tapaði miklu
Askar og Saga
» Askar Capital tapaði um 4,5
milljörðum króna á síðasta ári.
Langstærstur hluti tapsins er
vegna afleitrar afkomu dóttur-
fyrirtækisins Avant.
» Skilanefnd Glitnis er meiri-
hlutaeigandi Askar með 53,5%
hlut. Saga Capital á 18,1%.
» Askar uppfyllir ekki lág-
marksskilyrði um eiginfjár-
stöðu samkvæmt reglum FME.
Engu er líkara en að hér sé bleikur flamingói í fjörunni á Langasandi á
Akranesi þar sem kattliðug stúlka fór á handahlaupum og fetti sig og
bretti ef einskærri kæti þar sem hún var að leik ásamt fleirum. Nú þegar
fjöldi Íslendinga er í sumarfríi heimsækja þeir ýmsa staði á landinu.
Morgunblaðið/Eggert
Flamingói í fjörunni
Stjórn Íbúða-
lánasjóðs hefur
frestað ráðningu
nýs fram-
kvæmdastjóra
sjóðsins ótíma-
bundið. Fyrri
framkvæmda-
stjóri, Guð-
mundur Bjarna-
son, lét af störfum 30. júní.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er sundrung innan stjórn-
arinnar um hvern skuli ráða til
starfsins en 27 sóttu um það. Fjórir
hafa verið kvaddir til viðtals.
Stjórnarmaður segir að frestunin
muni ekki hafa áhrif á störf sjóðs-
ins, aðstoðarframkvæmdastjóri
gegni starfi framkvæmdastjóra í
bili. »2
Fresta ráðningu
framkvæmdastjóra